Morgunblaðið - 09.01.1998, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður FÍA um hugmyndir um útboð á hleðslu flugvéla
• •
Oryggisatriði að reynt
fólk sinni störfunum
„MÉR fmnst vafasamt að ætla að
bjóða út hleðslu flugvélanna, það
var reynt í Keflavík en horfið frá því
aftur vegna misjafnrar reynslu. Pað
er hreint öryggisatriði að reynt
starfsfólk sinni þessum verkefnum,"
sagði Kristján Egilsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflugmanna,
aðspurður um þá hugmynd forráða-
manna Flugfélags íslands að bjóða
út hleðslu flugvéla í Reykjavík.
„Þetta veldur okkur flugmönnum
miklum áhyggjum því þarna er um
sérhæfð störf að ræða sem reynt
fólk þarf að vinna,“ sagði Kristján
ennfremur. „Þarna vinnur starfs-
fólk með áratuga reynslu, hleðsla
flugvéla er vandaverk og nákvæmn-
isvinna. Þetta er fólkið sem hoi'fir
yfirleitt á eftir flugvélunum þegar
þær fara af stæði, það gengur um
vélarnar að innan sem utan og því
skiptir miklu að augu þeirra séu
glögg og opin fyrir því sem kann að
vera athugavert.
Þessir starfsmenn geta alveg eins
og við séð slíka hluti og það má líka
minna á að þeir hafa séð um afís-
ingu flugvélanna. Það boðar að
mínu viti ekki gott ef þarna á eftir
að verða stöðug endurnýjun á
starfsfólki frá væntanlegum verk-
taka eins og reynslan varð í Kefla-
vík,“ sagði Kristján ennfremur.
Formaður FIA kvaðst því ekki
hrifinn af þessari hugmynd og taldi
sig hafa fulla ástæðu til að vara við
henni með þessi öryggissjónarmið í
huga.
Jólatré víða notuð
til jarðvegsgerðar
Skuldabréf ÞÞÞ
Ein afborg-
un greidd
KOMIÐ hefur í ljós að upplýsingar
fjármálaráðuneytisins, sem greint
var frá í blaðinu í gær, um að
greiddar hafi verið 26 milljónir kr.
af skuldabréfunum tveimur sem
tekin voru fjámámi hjá Þórði Þ.
Þórðarsyni á Akranesi vegna
skattskulda, em ekki réttar. Nán-
ari athugun í ráðuneytinu hefur
leitt í ljós að fyrsti gjalddagi á
bréfunum var i fyrra og hefur því
verið greidd ein afborgun af bréf-
unum eða samtals 14 millj. kr. upp
í skattakröfur. Skattaskuldir
þrotabúsins við ríkið nema í dag
154 millj. kr.
MJÖG algengt er orðið að forsvars-
menn bæjarfélaga standi fyrir því að
jólatrjám sé safnað saman sérstak-
lega og þau notuð til jarðvegsgerðar.
I Reykjavík, Hafnarfirði og á
Egilsstöðum er trjám safnað saman
með skipulögðum hætti fram að
helgi auk þess sem tré á þvælingi
verða að sjálfsögðu hirt og þau notuð
til jarðvegsgerðar.
I Reykjanesbæ er ætlast til þess
að fólk komi trjánum út fyrir garða
sína. Bæjarstarfsmenn fylgjast síðan
með og tína þau upp eftir þörfum.
Trén verða síðan kurluð með öðram
garðaúrgangi.
I Kópavogi er gert ráð fyrir þvi að
fólk fari sjálft með tré sín í Sorpu.
Bæjarstarfsmenn safna hins vegar
saman þeim trjám sem berast út á
götur og eru þau kurluð niður og
notuð í jarðveg, ofan á blómabeð og
annað slíkt.
Á eigin ábyrgð á ísafirði
Á ísafirði fengust hins vegar þær
upplýsingar að fólk beri sjálft
ábyrgð á því að losa sig við jólatré og
að þeim trjám sem berist með öðru
rusli verði eytt.
Á Akureyri er ætlast til þess að
fólk komi trjánum í sérstaka gáma
en ekki fengust upplýsingar um það
hvað við þau er gert.
Skemmdarverk
í Hafnarfirði
ÞAÐ NÆÐIR um þá sem þurfa að
nota þetta biðskýli við Setbergs-
skóla í Hafnarfirði. Ólafur Emils-
son hjá lögreglunni í Hafnarfirði
segir að 3. janúar klukkan 2.07
hafi verið tilkynnt um unglinga
sem voru að skemma skýlið. Þegar
lögregla kom á staðinn hafi þeir
hins vegar verið á bak og burt,
rúða brotin í skýlinu en allt heilt
að sjá við skólann. Ólafur segir þó
að ekki hafi verið mikið um að
unglingar ynnu skemmdarverk í
bænum í vetur og að nýliðin ára-
mót hafi verið með þeim rólegustu
sem hann muni eftir þrátt fyrir að
mikill hópur hafi safnast saman í
miðbænum á nýársnótt.
Anand vann og fékk
framlengingu
ANAND er nýkvæntur. Hér er hann ásamt
eiginkonu sinni, sem heitir Aruna.
fyrir hvern leik bætast
við tíu sekúndur á öllum
tímamörkunum. Það er
því engin hætta á því að
annar hvor missi af titl-
inum með því að falla á
tíma með unnið tafl!
Skákáhugamenn
verða vafalaust mjög
fréttaþyrstir í dag. Þeir
sem hafa aðgang að Al-
netinu ættu að rekja sig
frá heimasíðu Skáksam-
bands íslands, en slóðin
þangað er
http://www.vks.is/si/
Sjötta skákin
Hvítt: Anand
SKAK
Úlyinpíusafnið f
Lausanne, 1.-9.
j a n ú a r 1998
HEIMSMEISTARAMÓT FIDE
Anand vann Karpov, FIDE-heims-
meistara, í sjöttu skákinni og jafn-
aði metin 3-3. Urslit einvígisins
ráðast í dag í stuttum skákum.
Sjötta og síðasta kappskákin var
gífurlega spennandi. Ánand varð
að vinna hana til að jafna metin.
Hann tefldi skákina mjög skyn-
samlega og fékk betri stöðu auk
þess sem hann átti öllu meiri tíma
en Kaj’pov. I 27. leik blés Indverj-
inn til atlögu. Karpov fann ekki
rétta svarið, lék gróflega af sér og
tapaði biskup. Þar með voru úrslit-
in ráðin og Karpov gafst upp eftir
42 leiki.
Taugar Karpovs virðast vera
farnar að gefa sig eftir aldarfjórð-
ungs bardaga í heimsmeistara-
keppninni. Hann eyðir of miklum
tíma og á úrslitastundum nær hann
ekki að taka réttar ákvarðanir.
Teflt til þrautar í dag
Það ræðst í dag hvort Karpov
heldur heimsmeistaratitli Alþjóða-
skáksambandsins FIDE sem hann
hefur borið frá 1975-1985 og aftur
óslitið frá 1992, eftir að Gary Ka-
sparov klauf sig út úr FIDE. Kar-
pov er 46 ára gamall, gífurlega
reyndur einvígismaður og með ein-
hvern þann dýpsta stöðuskilning
sem sést hefur.
Anand er 28 ára gamall Indverji,
sannkallað náttúrubarn í skáklist-
inni og frægur fyrir að tefla hratt
og hvasst. Afar óþægilegur and-
stæðingur sem verður erfiðari eftir
þvi sem tíminn styttist. Anand
tefldi einvígi við
Kasparov um heimsmeistaratitil
atvinnumanna í New York 1995.
Hann náði forystunni, en varð að
lokum að játa sig sigraðan. Nú á
hann hins vegar frábæra mögu-
leika á því að verða sá fjórtándi í
óslitinni röð stórsnillinga sem hafa
borið heimsmeistaratitilinn frá því
á árinu 1886.
Reglurnar
Taflmennskan í dag hefst kl.
13.30 að staðartíma í Lausanne,
eða 12.30 að íslenskum tíma. Fyrst
eru tefldar tvær skákir með 25
mínútna umhugsunartíma á mann.
Verði staðan ennþá jöfn eru tefldar
tvær 15 mínútna skákir. Séu kepp-
endur þá enn jafnir verður gert út
um titilinn í bráðabanahraðskák-
um. Sá sem dregur hvítt fær fjórar
mínútur, en svartur hefur fimm
mínútur. Það ber þó að athuga að
Svart: Karpov
Byrjun Benónýs
1. d4 - Rf6 2. Bg5!?
Erlendis er þetta nefnt
Trompovsky-byrjun, eða einfald-
lega „trompið“. Hér heima lék
Benóný heitinn Benediktsson
leiknum að staðaldri á árum áður
og þótti það til marks um sérvisku
hans. En nú er þetta orðið uppá-
hald margra ungra enskra lands-
liðsmanna og tilvalið til að koma
andstæðingnum út af troðnum
slóðum.
2. e6 3. e4 -h6 4. Bxf6 - Dxf6 5.
Rc3 - d6 6. Dd2 - g5 7. Bc4 - Rc6
8. Rge2 - Bg7 9. Hdl - Bd7 10. 0
-0 -0-0 -0 11. Rb5 - a6 12. Ra3
Anand hefur tekist að fá upp tví-
sýna stöðu með færum á báða
bóga. Það er miklu betra gegn Kar-
pov, heldur en að fá upp rólega
betri stöðu sem hann gæti haldið
með nákvæmri vörn. Hér taldi Jó-
hann Hjartarson að 12. - Dg6 væri
eðlilegasti leikurinn á svart og
hann mætti þá vel við una.
STÖÐUMYNDI
12. - g4 13. f4! - gxf3 (framhjá-
hlaup) 14. Hxf3 - De7 15. c3 - h5
16. Hdfl - Hdf8 17. b4 - Ra7 18.
Rc2 - Bh6 19. Del - Kb8 20. Bd3
- Bc6 21. Rf4 - Hfg8 22. d5
Eftir 22. Rxh5 - f5 hefur svartur
opna stöðu fyrir biskupapar sitt og
góð færi fyrir peðið. Nú kom til
greina fyrir Kai-pov að leika strax
22. - Bd7 og bjóða aftur upp á
peðsfórn.
22. - Be8 23. Df2 - Bg7 24. Rd4 -
Bd7 25. dxe6 - Bxd4 26. cxd4 fxe6
27. e5!? - Bc6! 28. Rg6!?
SJÁ STÖÐUMYND I
Nú er 28. De8? mjög slæmt
vegna 29. Hf7! Hh6 30. Hf8! og
hvítur vinnur. En það kann að vera
að í allri taugaspennunni í hita
leiksins hafi báðum yfirsést vænleg
leið fyrir svart sem er 28. - Hxg6!
og nú:
a) 29. HÍ8+? - Hxf8 30. Dxí8+ -
Rc8! 31. Bxg6 - Dg5! og svartur
stendur til vinnings.
b) 29. Bxg6 - Bxf3 30. Dxf3 - Rc6
og svartur stendur ekkert lakar að
vígi.
Það er merkilegt að Karpov skuli
hafa leikið 27. - Bc6! fyrst hann
var ekki búinn að sjá þessa snjöllu
leið. í staðinn leikur hann mjög
gi-óflega af sér:
28. - Dd8?? 29. Rxh8 - Bxf3 30.
Rf7!
SJÁ STÖÐUMYND II
Væntanlega hefur þessi millileik-
ur komið Karpov í opna skjöldu.
Nú leiðir 30. - Bxg2 31. Rxd8 -
Be4+ 32. Dg3 - Hxg3+ 33. hxg3
- Bxd3 34. Hf8 til unnins endatafls
á hvítt. Hann reynir því manns-
fórn:
30. - Dh4 31. Dxf3
Anand er eldri en tvævetur og er
ekki ginnkeyptur fyrir drottning-
arfórninni: 31. Dxh4?? - Hxg2+
32. Khl - Hf2 og svartur nær jafn-
tefli með þráskák.
31. - Dxd4+ 32. Khl - d5 33. Hdl
- Dxb4 34. Hbl - Da4 35. Dxh5
Anand á manni meira og gjör-
unnið tafl. Lokin þaiínast ekki
skýringa.
35. - Rc6 36. De2 - Ka7 37. Df2+
- b6 38. Hcl - Kb7 39. h3 - Hc8
40. Df6 - Rd4 41. Rd8+ - Kb8 42.
Rxe6 og Karpov gafst upp.
Karpov hefur teflt jafnar og bet-
ur í einvíginu, enda óþreyttur.
Tveir grófir afleikh’ í annarri og
sjöttu skákunum hafa kostað hann
tvo vinninga og hugsanlega sjálfan
heimsmeistaratitilinn.
Skemmtikvöld um HM
Skemmtiklúbbur skákáhuga-
manna stendur fyrir skemmti-
kvöldi sem hefst kl. 20 í félags-
heimili Hellis, Þönglabakka 1 í
Mjódd _ (hjá Bridssambandinu).
Helgi Áss Grétarsson fjallar um
þátttöku sína á HM og lokin í dag
munu örugglega bera á góma.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson