Morgunblaðið - 09.01.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.01.1998, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR llil ^ v; . : ■■ ;í "■■ ;s I ' GRÆNLENSKAR múmíur, margra alda gamlar, sem fundust fyrir nokkrum árum hafa vakið mikla athygli en það er kuldinn sem hefur varðveitt líkin. I markvissri uppbyggingu Morgunblaðið/RAX EMIL Rosing forstjóri Þjóðminjasafns Grænlands. ÞJÓÐMINJASAFN Grænlands hef- ur á undanförnum árum verið að þróast og byggjast upp jafnhliða því að vitund fólks og virðing fyrir verðmætum á þeim vettvangi eflist sífellt, ekki ósvipað og hefur átt sér stað á íslandi undanfarna áratugi. Árið 1991 var Þjóðminjasafni Grænlands og grænlenska skjala- safninu slegið saman og skref fyrir skref hefur margviss uppbyggihg átt sér stað. Sérstök stjórn er yfir safninu en starfsmenn eru alls 20 talsins. Forstöðumaður er Emil Rosing, en deildarstjórar eru 4 tals- ins og 3 skjalaverðir. Rekstur safns- ins kostar 7,3 millj. danskra króna á ári eða um 80 millj. ísl. króna. Önnur grænlensk byggðasöfn á landsbyggðinni eru rekin af sveitar- félögum og eru í eigu þeirra og ábyrgð en þegar þau hafa uppfyllt ákveðin fagleg skilyrði fá þau allt að 40% rekstrarstyrk frá græn- lensku heimastjórninni. AIls veitir grænlenska heimastjómin nú lið- lega 20 millj. ísl. kr. til safna utan Nuuk. Emil Rosing, forstöðumaður Þjóðminjasafns Grænlands, sagði að segja mætti að starfsemi Þjóð- minjasafns Grænlands væri fyrst og fremst komin undir friðunarlög- unum og byggðarlögunum. „Safnið spannar að sjálfsögðu sögu Grænlands og menningu," sagði Emil. „Við fáum mikið af hlut- um til baka frá Danmörku, en elstu hlutir safnsins eru frá 17. öld, hlut- ir sem embættismenn og kristniboð- ar hafa safnað og hluta þess fáum við frá safninu í Kaupmannahöfn. Samningur um flutning hluta til Þjóðminjasafn Græn- lands hefur verið byggt upp á undanförnum árum við gömlu höfnina í Nuuk, en safnið hefur til umráða mörg gömul hús og nýbyggingu þar sem aðalstjómstöð safnsins er og tengist hún gömlu húsunum. Mikil aðsókn er að safn- inu og unnið er að mörg- um verkefnum. Arni Johnsen ræddi við Emil Rosing um stöðu safns- ins og helstu verkefni. baka er frá 1983 og eftir 3 ár, eða árið 2000, verður lokið við að flytja til baka það sem um var samið 1983. Nú eru í safninu hjá okkur lið- lega 2.000 númer tengd Thule, Austur- Grænlandi og vesturhluta Grænlands og liðlega 24.000 skjöl. Um það bil 2.000 númer á safninu eru varðandi byggð norrænna manna á Grænlandi. Það er mikil aðsókn að Þjóð- minjasafninu og sl. ár sóttu um 18.000 gestir safnið heim. Um þessar mundir er verið að byggja stórhýsi, um 7.000 fm, sem skjaladeild safnsins á aðild að en þeir sem standa að þessari nýbygg- ingu eru háskólinn, Grenlandica, sem er bókasafn Grænlands, skjala- deild Þjóðminjasafnsins, sem fær til afnota í húsinu um 1500 fm og einnig á bæjarstjórn Nuuk hlutdeild í húsinu. Gronlandica fær 2.100 fm, háskólinn 2.700 fm og Gronlands statistik 800 fm. Stærsta verkefnið sem Þjóð- minjasafnið hefur unnið að á undan- förnum árum er uppgröftur bæjar- ins undir sandinum við Armeralik- jörðinni, en hann er frá 10. öld. Næstu árin verður unnið úr efninu þaðan en þar fundust margir góðir og merkilegir hlutir og það skemmtilegasta er að þessi upp- gröftur og rannsókn gefur heilleg- ustu og fyllstu myndina sem til er frá upphafstímabili norrænna manna á Grænlandi. Einnig hefur safnið unnið meðal annars að viðamiklum verkefnum i Umanak að undanförnu, þar sem skoðaðar voru fornminjar, aðallega húsarústir og tóftir og grafir. Þekktar eru múmíúrnar frá Uman- ak. Við vitum víða um múmíur, en kappkostum að halda því leyndu hvar þær eru. Einnig vinnum við að margs konar smærri verkefnum árið um kring“. LÍKAN af konubátnum grænlenska, aðalflutningabáti Grænlendinga um aldir. SÉÐ inn í tilbúið snjóhús í Þjóðminjasafninu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.