Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Rannsókn innherja-
viðskipta hjá RL
Vextir
lækka
áfram
VEXTIR héldu áfram að lækka á
verðbréfamarkaði í gær. Avöxtun-
arkrafa ríkisvíxla lækkaði um 7
punkta í 7,19% og ávöxtunarkrafa
verðtryggðra ríkisskuldabréfa fór
einnig lækkandi. Avöxtunarkrafa
spariskírteina með 2 ára líftíma
lækkaði mest, eða um 4 punkta í
5,26%. Ávöxtunarkrafa húsbréfa
lækkaði um 1 punkt og var 5,27%
við lokun.
Viðskipti á Verðbréfaþingi ís-
lands námu tæpum 1.100 milljónum
króna í gær. Mest urðu viðskipti
með banka- og ríkisvixla. Viðskipti
með hlutabréf voru hins vegar ekki
mikil í gær, námu 32 milljónum
króna að markaðsvirði. Hlutabréfa-
vísitala Verðbréfaþings lækkaði um
0,3% og urðu mestar lækkanir á
gengi Lyfjaverslunar Islands sem
lækkaði um tæp 5% í 2,62. Þá lækk-
aði gengi hlutabréfa í Síldarvinnsl-
unni, íslenskum sjávarafurðum og
Sláturfélagi Suðurlands um 4%.
Einungis hlutabréf í Eimskip hækk-
uðu í gær, en lokagengi bréfanna
var 7,42 eða 0,3% hærra en á mið-
vikudag er gengi þeirra hækkaði
um 1,4% í kjölfar fregna af auknum
umsvifum félagsins.
Málið
fellt niður
RANNSÓKN ríkislögreglustjóra
(RL) vegna innherjaviðskipta, sem
staðið hefur yfir síðan í haust, er
lokið og verður ekki aðhafst frek-
ar í málinu.
Bankaeftirlit Seðlabankans vís-
aði sl. haust einu máli, þar sem
grunur vaknaði um að innherja-
viðskipti hefðu átt sér stað með
hlutabréf í fyrirtækjum, til lög-
reglurannsóknar hjá efnahags-
brotadeild ríkislögreglusijóra.
Þessari lögreglurannsókn lauk
fyrir skömmu og segir Jón H.
Snorrason, saksóknari og yfir-
maður efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra að ákveðið hafi
verið að fella málið niður. „Það
sem fram kom í rannsókninni var
ekki nægiiegt eða líklegt til sak-
fellingar. Því verður ekki ákært í
málinu,“ segir Jón.
Bankaeftirlit Seðlabankans hef-
ur enn til rannsóknar nokkur mál
þar sem grunur hefur vaknað um
að innherjaviðskipti hafi átt sér
stað með hlutabréf í fyrirtækjum
en ekki hefur verið ákveðið hvort
einhverjum þeirra verður vísað
áfram til ríkislögreglustjóra.
11% veltuaukning hjá
Gúmmívinnslunni á milli ára
170% aukning í
sölu loftbóludekkja
GÚMMÍVINNSLAN hf. á Akur-
eyri velti 147 milljónum króna á
síðastliðnu árj, samanborið við 132
milljónir árið 1996 og nemur aukn-
ingin 11% á milli ára. Naglalaus
loftbóludekk njóta æ meiri vin-
sælda og jókst salan á þeim um
170% á milli ára.
Yfirlýst markmið stjórnenda
Gúmmívinnslunnar um að auka
veltuna um 10% á milli ára náðist
og rúmlega það, að því er segir í
fréttatilkynningu frá íyrirtækinu.
Upplýsingar um afkomu þess
verða birtar þegar ársuppgjörið
liggur fyrir.
Á síðasta ári varð langmest
veltuaukning í sölu nýrra hjól-
barða. Einnig jókst sala dekkja til
notkunar í landbúnaði og segir að
rekja megi þá aukningu að veru-
legu leyti til Vrederstein-merkis-
ins, sem Gúmmívinnslan fékk um-
boð fyrir á liðnu ári. Á hinn bóginn
varð samdráttur í framleiðslu og
sölu á vörum Gúmmívinnslunnar í
sjávarútvegi á síðasta ári.
170% aukning varð milli ára í
sölu naglalausra loftbóludekkja
fyrir fólksbfla, að því er segir í til-
kynningunni. Þá jókst sala á loft-
bóludekkjum fyrir vöru- og fólks-
flutningabifreiðir einnig umtals-
vert á milli ára. Er því greinilegt
að þeim sem aka um á slíkum
dekkjum fjölgar stöðugt. Telur
Ami Laugdal, markaðsstjóri
Gúmmívinnslunnar, að þessi þróun
spari Akureyrarbæ milljónir króna
í vetur með minna sliti á malbiki en
áður. Notkun loftbóludekkja er
enn sem komið er algengari á
Akureyri en annars staðar og aka
allir stærri strætisvagnar bæjarins
t.d. á slíkum dekkjum.
Ný dekk fyrir
vörubfla og rútur
Á vori komanda hyggst Gúmmí-
vinnslan kynna nýtt framdekk fyr-
ir vöruflutningabifreiðir og rútur.
Slitþol þess á að vera um fimmt-
ungi meira en hefðbundinna
dekkja og gefa betri rásfestu en
draga úr eldsneytisnotkun. Telur
Árni að þetta nýja dekk nái
traustri fótfestu á markaðnum á
komandi misserum.
Fyrsti Tango-skanninn
í notkun hérlendis
PRENTSMIÐJAN Hjá Guðjóni Ó.
hefur tekið í notkun fyrsta Tango-
skannann frá Heidelberg hérlendis
sem fyrirtækið festi nýlega kaup á.
Hjá Guðjóni Ó. hóf starfsemi sína
1992 og er því 5 ára á þessu ári.
Á þessum 5 árum hefur fýrirtækið
fjárfest í tækjum bæði í forvinnslu,
prentsmiðju og bókband, m.a. skönn-
um frá Linotype-hell og Heidelberg ,
Saphir og Tango, Quasar filmu-
útkeyrsluvél ásamt Delta OPI, auk
Canon litaljósritunarvélar sem gera
vinnsluna mjög hraða en hárná-
kvæma að því er fram kemur í frétt.
Fyrirtækið hefur einnig keypt
tvær Heidelberg GTO prentvélar,
fjögurra lita og tveggja lita, tölvu-
stýrða pappírsskurðarhnífa og upp-
raðara fyrir eyðublöð sem tryggir
betri frágang verkefna.
Umhverfisvæn prentsmiðja
Fram kemur að frá 1990 hafi ein-
göngu verið notaðar jurtaolíur til
hreinsunar á prentvélum. Öllum úr-
gangi frá prentvélum er safnað til
eyðingar og afgangspappír er end-
urnýttur.
Eigendur Hjá Guðjóni Ó. eru
Ólafur Stolzenwald, Þórleifur V.
Friðriksson og Sigurður Þorláksson
en umboðsaðili Heideilberg á Is-
landi er Sturlaugur Jónsson hf, og
umboðsaðili Heidelberg Prepress er
ACO hf.
VIÐSKIPTI
Misjöfn ávöxtun bankareikninga á árinu 1997
Dollarareikningar
gáfu hæstu
raunávöxtunina
GJALDEYRISREIKNINGAR með
dollurum skiluðu langhæstri ávöxtun
allra bankareikninga á árinu 1997.
Raunávöxtun dollarareikninga var á
bilinu 9,1-9,6% á árinu, enda hefur
gengi dollara verið að styrkjast und-
anfarin misseri. Svipaða sögu er að
segja um ávöxtun reikninga í sterl-
ingspundum sem skiluðu 7-7,3%
raunávöxtun, skv. samantekt Morg-
unblaðsins.
Þeir sem hafa ávaxtað fjármuni
sína í ýmsum öðrum erlendum mynt-
um hafa hins vegar borið skarðan
hlut frá borði og var t.d. raunávöxt-
un gjaldeyrisreikninga í þýskum
mörkum neikvæð um 6,5-7,3%
vegna gengisþróunar marksins.
Sérkjarareikningar sem bundnir
eru til fjögurra eða fimm ára skiluðu
að venju bestri ávöxtun bankareikn-
inga með íslenskum krónum á árinu
Raunávöxtun
gjaldeyrisreikn-
inga í þýskum
mörkum neikvæð
um 6,5-7,3%
1997. íslandsbanki gat að þessu sinni
státað af hæstu raunávöxtuninni á
slíkum reikningum í lok ársins eða
6,02% á Sparileið 48 og Sparileið 5.
Seint í gær tilkynnti hins vegar
Búnaðarbankinn að hann myndi
bæta um betur á einum reikninga
sinna og hækka raunávöxtun
Bústólpa upp í 6,03%, en áður hafði
bankinn tilkynnt um 5,78% ávöxtun
þessum reikningi. Síðastnefnda talan
er birt í töflunni enda miðast þar all-
ar tölur við vaxtatekjur sem lagðar
voru inn á reikningana fyrir ára-
mótn.
Þeir sem kosið hafa að ávaxta sitt
fé á óbundnum sérkjarareikningum
á borð við Kjörbók Landsbankans,
Trompbók sparisjóðanna og Gullbók
Búnaðarbankans hafa hins vegar
fengið mun lakari raunávöxtun eða á
bilinu 1,4-2,25%.
Innistæður á sparisjóðs-
bókum rýrnuðu
Fjármunir á tékkareikningum og
almennum sparisjóðsbókum hafa að
venju rýrnað að raungildi eða um lið-
lega 1% á árinu 1997 ef þeir hafa
staðið óhreyfðir frá upphafi til loka
árs. Þeir reikningar eru þó almennt
notaðir sem veltureikningar og fjár-
munir ættu ekki að liggja á þeim um
lengri tíma.
Sérkjarareikningar
Landsbankinn
Kjörbók 1,66-2,25%
Landsbók12m. 3,30%
Landsbók24m. 4,53%
Landsbók60m. 5,77%
Grunnur 4,82-6,07%
Sparisjóðir
Trompbók 1,44%
Trompbók12 4,64%
Trompbók 24 5,01%
Pen.mark.reikn.* 4,18%
Öryggisbók1-3 2,73%
Bakhjarl 12 3,33%
Bakhjarl 24 4,43%
Bakhjarl 36 4,98%
Bakhjarl 48 5,38%
Bakhjarl 60 5,82%
Húsn.sp.reikn. 5,82%
bankareikningum 1997 II II
Búnaðarbankinn Ýmsir reikningar Reikningur Lands Búnaðar- íslands- Spari- bankinn bankinn banki sjóðir
Gullbók 1,93% Almenn sparisjóðsbók -1,04% -1,17% -1,18% -1,10%
Metbók 3,16% Kostabók 3,33-5,78% Tékkareikningar -1,04% -1,17% -1,18% -1,10%
Markaðs- reikningur* 4,16-4,89% Innlendir gjaldeyrisreikningar, lausir Bundnir reikningar til 3 og 6 mánaða skila hærri ávöxtun.
Stjörnubók12 3,21% Bandaríkjadollar 9,10% 9,53% 9,61% 9,58%
Stjörnubók 30 5,09% Sterlingspund 7,44% 7,35% 7,27% 7,03%
Bústólpi 5,78% Þýsk mörk -7,32% -6,71% -6,48% -6,66%
íslandsbanki Danskar krónur -5,95% -5,61% -5,33% -5,33%
Uppleið 0,65-5,36% Norskar krónur -5,38% -5,34% -4,91% -4,78%
Sparileið 2/3 1,05% Sænskar krónur -5,02% -4,91% -4,12% -3,86%
Sparileið 12 3,15% Franskirfrankar -6,50% -5,73% -4,97% -5,00%
Sparileið 24 4,36% Svissn. frankar -1,31% -1,31% -0,83% -0,92%
Sparileið 48 6,02% Japanskt yen -5,29% -5,10% -5,15% -5,14%
Sparileið 5 6,02% Verðbr.reikn.* 4,35% ECU -4,15% -3,51% -2,20% -1,86%
NÁNARI upplýsingar um sérkjarareikninga er að finna í mánaðarlegu vaxtayfirliti Seðlabankans.
* Peningamarkaðsreikningur Sparisjóðanna var stofnaður 1. febrúar 1997, Markaðsreikningur Búnaðarbankansl. júní 1997 og Verð-
bréfareikningur Islandsbanka var stofnaður 1. ágúst 1997. Vextir þeirra eru miðaðir við ávöxtun ríkisvíxla í útboðum Lánasýslu nkisins.
Altech hefur selt tækjabúnað
í álver fyrir um 300 milljónir
90% fram-
leiðslunnar til
útflutnings
ÍSLENSKA fyririækið Altech hefur
nú selt sérhæfðan hátæknibúnað í ál-
ver víða um heim fyrir um 300 millj-
ónir króna á síðustu tveimur árum.
Um 90% af þessum tækjum hafa
verið seld til annarra landa.
Nú síðast seldi fyrirtækið tækja-
búnað til álvers í Suður-Afríku og
nýverið tók Islenska álfélagið í notk-
un svokallaðan deiglufleyti frá Al-
tech en þar er um að ræða íslenska
uppfinningu sem annast sjálfvirka
fleytingu sora ofan af áli í deiglum,
áður en þær eru færðar inn í steypu-
skála, að því er segir í frétt.
Þar kemur jafnframt fram að
þetta tæki hafi vakið nokkra athygli
og hafi fyrirtækið fengið fyrirspum-
ir frá nokkrum álverum þar sem
starfsmenn fleyti enn sjálfir soran-
um ofan af sjóðandi heitu álinu.
Altech hefur nú selt tæki til álvera
í öllum heimsálfum. „Fyrirtækið hef-
ur einbeitt sér að þróun hátækni vél-
búnaðar með mikilli sjálfvirkni til
nota í álverum, sérstaklega þar sem
starfsumhverfl er erfitt og heilsu-
spillandi. Hefur fyrirtækið þróað um
tuttugu mismunandi tæki og er sala
síðustu tveggja ára 300 milljónir
króna.
Fyrirtækið hefur fengið fyrir-
spurnir frá flest öllum álverum í
heiminum sem nota forbökuð raf-
skaut eins og Isal og er áralöng al-
þjóðleg markaðssetning nú farin að
skila góðum árangri.
Ein meginforsenda þessa árang-
urs á hinum íhaldssama álmarkaði er
ánægjulegt samstarf við Isal sem
hefur keypt nokkrar af frumgerðum
tækja frá Altech."
Bresk
vörusýning
ALÞJÓÐLEGA gjafavörusýn-
ingin International Spring
Fair verður haldin dagana 1.-5.
febrúar næstkomandi í
Birmingham. Sýningin er ein
hin stærsta sinnar tegundar í
Bretlandi. Á sýningunni er
sýnd hefðbundin bresk gjafa-
vara. Yfir 4.000 fyrirtæki sýna
á 100.000 fm svæði.
Viðskiptafulltrúi breska I
sendiráðsins mun verða á )
þessari sýningu og liðsinna
þeim íslensku kaupendum sem
þess óska. Nánari upplýsingar j
má fá hjá sendiráðinu.
Rangt gengi
hlutabréfasjóðs
í TÖFLU á forsíðu viðskipta-
blaðs Morgunblaðsins í gær
var ranglega farið með gengi
Hlutabréfasjóðs Búnaðar-
bankans hf. Þannig var kaup-
gengi hlutabréfa í sjóðnum |
þann 1. janúar 1997 ekki 1,02 j
heldur 1,004. Af þessum sök- j
um var rangt farið með hækk- j
un á gengi bréfanna á árinu
1997. Ávöxtun bréfanna var |
því ekki 7% heldur 8,5%. ,
Beðist er velvirðingar á þessu.