Morgunblaðið - 09.01.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 33
Flutningur Ríkissjónvarpsins
í Utvarpshúsið er tímaskekkja
Opið bréf til Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra frá Samtökum
kvikmyndaleikstjóra
ÚTVARPSHÚSIÐ.
A AÐALFUNDI Samtaka kvik-
myndaleikstjóra sem haldinn var
þann 30. des. sl. fóru fram fjörug-
ar umræður um Útvarpshúsið í
Efstaleiti og flutning sjónvarpsins
þangað. Fundurinn samþykkti ein-
róma að senda menntamálaráð-
herra Birni Bjarnasyni eftirfarandi
opið bréf:
Herra menntamálaráðherra
Bjöm Bjarnason
Menntamálaráðuneytinu
Sölvhólsgötu
Reykjavík
Þú hefur skýrt frá því á Alþingi
að þú áformir að láta flytja Ríkis-
sjónvarpið í Útvarpshúsið. Banda-
lag íslenskra listamanna ásamt
Samtökum kvikmyndaleikstjóra
hefur ítrekað varað við slíkum
áformum og bent á hvaða hættur
það hafí í för með sér fyrir sjálf-
stæða íslenska dagskrárgerð. Of
langt mál væri að rekja í þessu
bréfi öll þau rök sem listamenn
hafa fært fram máli sínu til stuðn-
ings, enda er tilgangur okkar með
þessu bréfi öðru fremur sá að tjá
þér að við lítum svo á að þessi
ákvörðun þín gangi í berhögg við
grundvallaratriði þeirrar menning-
arstefnu sem íslenskir kvikmyr.da-
leikstjórar vilja efla; það er að
styrkja frelsi kvikmyndaleikstjóra
til athafna og skapandi hugsunar,
en vinna gegn forsjárhyggju, stofn-
anavaldi og miðstýringu. Með því
að flytja Ríkissjónvarpið í Útvarps-
húsið er verið að festa í sessi þau
vinnubrögð að framleiðsludeildir
sjónvarpsins sjái um framleiðslu
þess dagskrárefnis sem Ríkissjón-
varpið framleiðir. Þetta mun leiða
til þess að dagskrárgerð fyrirtækja
og listamanna utan stofnunarinnar
er dæmd til að dragast saman eða
hverfa, því það húsrými sem tekið
verður í notkun í Efstaleiti mun
gleypa allt dagskrárfé sjónvarpsins
og gott betur, nema menn séu að
innrétta húsið og tækjavæða til að
það standi verklaust og autt. Kvik-
myndaleikstjórar þekkja innviði
þessarar stofnunar það vel, að þeir
teija hættu á að með þessari
ákvörðun þinni sé verið að auka
enn á stofnanavaldið og miðstýr-
inguna í starfsemi sjónvarpsins og
tryggja að forsjárhyggjan ráði þar
ríkjum í framtíðinni. Kvikmynda-
leikstjórar vilja efla Ríkissjónvarpið
sem ritstjórn með bestu fáanlegu
útsendingaraðstöðu, en að fram-
leiðsludeildirnar verði lagðar niður.
Verði þessari stefnu fylgt, er núver-
andi húsnæði Sjónvarpsins meira
en nógu stórt, og nota má þær 960
milljónir sem eyða á í flutninginn
til að framleiða íslenska dagskrá.
Úr því þessar milljónir eru til eru
þær svo sannarlega betur komnar
í dagskrá en steinsteypu. Vextirnir
einir af þessari upphæð myndu
duga langleiðina til að bjarga ís-
lenskri dagskrárgerð. Við leyfum
okkur jafnframt stórlega að efast
um að kostnaðaráætlun þín upp á
960 milljónir sé rétt, og minnum á
kostnaðaráætlanir um Þjóðleikhús-
endurbætur og Flugstöð. Þeir í
okkar hópi sem gerst til þekkja
segja að áætlunin sé aðeins toppur-
inn á ísjakanum, og þegar upp
verði staðið muni þessi framkvæmd
kosta sem næst tvo milljarða.
Danska ríkið stofnaði fyrir fáein-
um árum TV2 og er sú stöð rekin
eingöngu sem ritstjórn, án fram-
leiðsludeilda. Sama er að segja um
Channel 4 á Bretlandi. Sjálfstætt
starfandi listamenn og frjáls einka-
fyrirtæki framleiða dagskrárefnið
utan þessara stofnana, og reynslan
sýnir að þeir gera það bæði af
meiri metnaði og betur og ódýrar
en gerist í ríkisreknum stúdíóum.
Þú hefur sagt að farið sé eftir áliti
færustu sérfræðinga þegar ákveðið
var að flytja Sjónvarpið. Kannski
hefur stofnunin sjálf kallað til sín
erlenda tæknifræðinga sem vita lít-
ið um íslenskan raunveruleika og
sett í gang sína eigin bókhaldssér-
fræðinga með forskrift um niður-
stöðu til að vinna „Já-ráðherra-
leikinn", en eitt er víst, að ekki
einn einasti úr hópi þeirra kvik-
myndaleikstjóra sem eiga að vinna
við húsið hefur verið spurður. Og
það sem er meira um vert, við telj-
um þessa húsbyggingu mistök frá
upphafi, sem menn ættu að hafa
hugrekki til að horfast í augu við,
og auglýsa sjónvarpshluta bygg-
ingarinnar til sölu. Þótt ekki feng-
ist til baka við þá sölu nema helm-
ingur þeirra rúmlega eitt þúsund
milljóna sem sjónvarpið hefur þeg-
ar eytt í þetta hús, mætti bjarga
íslenskri dagskrárgerð til margra
ára. Ef við opnuðum sjónvarp í dag
myndi heilbrigð skynsemi segja
okkur að reka slíkt fyrirtæki ein-
göngu sem ritstjórn, og síst af öllu
^ Refsiaðgerðum gegn
Irak verður ekki haldið
áfram endalaust
að blása út það bákn sem fyrir er.
Óhjákvæmilega velta menn því fyr-
ir sér hvað stjórni þeim stjórnmála-
mönnum er vinna sér það helst til
afreka að byggja upp báknið þegar
þeir komast til valda, og taka póli-
tískar ákvarðanir upp á hundruð
milljóna. Ákvarðanir sem virðast
einungis teknar til að ganga í aug-
un á embættismönnum. Þetta er
því alvarlegra þegar til þess er
hugsað að stofnunin er algerlega
stefnulaus og veit ekkert hvað hún
vill verða, eins og aðalfundur
Bandalags íslenskra listamanna
hefur bent á; dagskráin á lítið skylt
við „public service" en er útbíuð í
kostunarauglýsingum, svo dag-
skrárstjórnin er meira og minna
komin í hendurnar á auglýsinga-
deildum dömubindainnflytjenda.
Væri ekki nær að staldra við og
hugsa málið áður en lagt verður út
í skuldafenið sem enginn veit
hversu djúpt á eftir að verða? Nú
á að leggja minnst 960 milljónir í
húsbyggingu sem enginn íslenskur
listamaður kærir sig um meðan
íslensk dagskrárgerð er nánast
engin. Auðvitað verða þessar millj-
ónir á endanum teknar af dagskrár-
fénu, hvernig svo sem bókfærslu-
legir sjónhverfingarmenn munu
setja það upp. Haldi menn að mont-
hús bæti íslenska dagskrárgerð, er
róið á röng mið. Sjónvarp er dag-
skrá, ekki hús. Það skyldi þó aldrei
fara svo að Útvarpshúsið verði
ekki pólitískur minnisvarði, heldur
í senn legsteinn og níðstöng yfir
íslenskri dagskrárgerð.
í stjórn Samtaka
kvikmyndaleikstjóra eru: Hrafn
Gunnlaugsson, formaður, Friðrik
Þór Friðriksson, varaformaður,
Óskar Jónasson, ritari, Hilmar
Oddsson, gjaldkeri ogJón
Trj'ggvason meðstjórnandi.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
Tollkerfi
EDI tenging
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
INNRÁS íraks í
Kúveit var fordæmd
af meirihluta ríkja
heims, sem ekki að-
eins vildu refsa
árásaraðilanum með
raunhæfum aðgerð-
um heldur og koma
í veg fyrir að af hon-
um starfaði ógn í
framtíðinni. Á þess-
um forsendum voru
gerðar viðeigandi
ályktanir Örygg-
isráðs Sameinuðu
þjóðanna og komið á
fót sérstakri nefnd
um afvopnun íraks.
Nokkur ár eru liðin síðan þessi
nefnd tók til starfa og hefur hún
náð jákvæðum og raunhæfum
árangri. Rannsókn á kjarnorkuvíg-
búnaði Iraks er svo langt komin
að heita má að henni sé lokið eins
og staðfest er í skýrslu Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar,
rannsókn á eldflaugabúnaði er
næstum því jafn langt komin -
um það má vísa til jákvæðrar
umsagnar formanns sérnefndar
Sameinuðu þjóðanna um afvopnun
íraks. Góðum árangri hefur verið
náð í framkvæmd rannsóknar á
efnavopnum, en sýnu minni að því
er varðar sýklavopn.
Aðalritari SÞ, Kofí Annan, fór
jákvæðum orðum um starfsemi
sérnefndar Sameinuðu þjóðanna
um afvopnun íraks í
skýrslu sinni um starf-
semi samtakanna árið
1996. Að hans mati er
eftirlitsmönnum SÞ í
írak svo fyrir að þakka
að eyðilögð hafa verið
fleiri vopn heldur en í
hernaðaraðgerðum þeim
sem kenndar voru við
„ Eyðimerkurstorm".
Sú- skynsamlega af-
staða til Iraksmála, sem
kom fram í því að meiri-
hluti fastafulltrúa í Ör-
yggisráðinu hafnaði
valdbeitingu til lausnar
á þeirri kreppu sem upp
kom seint á nýliðnu ári, er fyllilega
í samræmi við hagsmuni allra aðila.
Nú er svo komið, að nauðsynlegt
er að koma þeim skilaboðum ekki
aðeins til forystumanna heldur og
alls almennings í írak að refsiað-
gerðum þeim sem komið var á á
sínum tíma verði ekki haldið áfram
endalaust. Það er ekki hægt að
refsa án afláts fólki sem ber ekki
beina ábyrgð á aðgerðum valdhafa
í landinu og láta það greiða fyrir
mistök þeirra með lífi hundraða og
þúsunda barna, kvenna og aldr-
aðra. Eigi heldur geta menn unað
því að ríkjandi verði afstaða kæru-
leysis og afskiptaleysis um harm-
leik heillar þjóðar.
Vart getur það talist skynsam-
legt að hrekja inn í ógöngur von-
Nikolaj Pjatkov
Það er ekki hægt, segir
Nikolaj Pjatkov, að
refsa án afláts fólki sem
ber ekki neina ábyrgð
á aðgerðum valdhafa
í landinu.
leysis og háskalegrar örvæntingar
ríki sem nú þegar sætir refsiaðgerð-
um sem ekki eiga sér fordæmi.
Meira að segja nágrannar íraks,
sem hafa beðið skaða vegna innrás-
arinnar í Kúveit, eru famir að skilja
að þessar refsiaðgerðir eiga ekki
framtíð fyrir sér. Þeir meta þær æ
oftar sem ómannúðlegar og telja
að þær geti haft öfug áhrif við það
sem ætlast var til.
Telja má víst að betri forsendur
skapist í írak fyrir raunhæfum
lýðræðislegum umbótum og frið-
samlegri stefnu í samskiptum við
nágranna þess í þessum viðsjála
hluta heims, ef hin stolta þjóð
landsins skynjar, að samfélag
þjóða heims kemur ekki fram við
börn hennar, konur og gamalt fólk
sem óvini sína, heldur leggur henni
lið við að komast með sæmd út
úr þeim ógöngum sem nú blasa við.
Höfundur er sendiráðunautur við
rússneska scndiráðið.
Föstudag 9. og Iaugardag TO. janúar 1998
Hinir landskunnu, sikótu og fróbæru skagfirsku söngvarar:
Vinsælasta danshliomsveit landsms:
Hljómsveit Geirmundar Vahýssonar
letkur fyrir dansi.
HúsiO opnað kl. 19:00 tyrír matargesti. • Skemmtun hetst kl. 21:30.
Verð:Kr. 4500 matur og skemmtun • Kr. 1800áskemmtun
ogdansieik. • Kr. 950 á dansleik.
Glæsilegasta hlaðborð landsins: Fjötdi kjöt-. tisk,-
grænmetis- og pastarátta. Auk þess úrval al ertirréttum.
Siml 588-7111 - Fax 568-5018. • Mlðasala opln daglega M. 13-17. • VMsamlega pantið tfmanlega.
HÚTFIi gÍÁND