Morgunblaðið - 09.01.1998, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 35
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
EIGUM SJALF
FRUMKVÆÐIÐ
FYRSTU sjávarafurðirnar, sem merktar verða umhverfis-
merki Sjávarnytjaráðs stórfyrirtækisins Unilever og
World Wide Fund for Nature (WWF), stærstu náttúruvernd-
arsamtaka heims, verða settar á markað á árinu. Umhverfis-
merkið á að vera til marks um að viðkomandi vara komi úr
fiskstofni, sem sé nýttur með ábyrgum og sjálfbærum hætti.
Það er verulegt umhugsunarefni fyrir íslenzkan sjávarútveg
hvernig bregðast eigi við þessu samstarfi náttúruverndarsinna
og eins stærsta fiskkaupanda heims.
Sjávarnytjaráðið hefur boðið íslenzkum sjávarútvegsfyrir-
tækjum samstarf, en ólíklegt er að þau þiggi það boð. Tals-
menn WWF hafa orðið uppvísir að óvönduðum vinnubrögðum;
í áróðri þeirra og auglýsingum hafa t.d. allar fískveiðar verið
settar undir sama hatt og allar fiskveiðiþjóðir sakaðar um of-
veiði og rányrkju. Þótt samtökin hafi dregið í land gagnvart
íslandi er ósennilegt að íslenzkir hagsmunaaðilar telji sig geta
treyst þeim.
Hins vegar ber engu að síður að taka frumkvæði WWF og
Unilever alvarlega. Almenningur víða um heim hefur áhyggjur
af ástandi umhverfisins, þar á meðal heimshafanna og auðlinda
þeirra. Sjónarmið umhverfisverndarsamtaka eiga mikinn og
vaxandi hljómgrunn í helztu markaðslöndum íslendinga og eru
raunar hluti af markaðsumhverfinu þar, sem verður að taka
tillit til.
Umhverfismerkingar af ýmsu tagi eru farnar að höfða mjög
til ákveðins hóps neytenda, sem tekur vörur með slíkum merk-
ingum fram yfir aðrar. Hættan er sú, að í hillum erlendra stór-
markaða verði umhverfismerki á sjávarafurðum, sem Sjávar-
nytjaráðið hefur vottað að séu veiddar með umhverfisvænum
hætti, en ekki íslenzkar sjávarafurðir, þrátt fyrir að íslending-
um hafi tekizt einna bezt fískveiðiþjóða að vernda fiskstofna og
umgangast auðlindina af ábyrgð.
Það er því ljóst að við verðum sjálf að taka frumkvæðið í
þessum efnum, í stað þess að láta umhverfisverndarsinnum og
alþjóðlegum stórfyrirtækjum það eftir. Það á að vera hægt
með samræmdu átaki að koma á framfæri við erlenda neytend-
ur staðreyndum um ábyrga stjórn Islendinga á fiskveiðiauð-
lindum sínum. íslenzkur sjávarútvegur ætti sem allra fyrst að
taka höndum saman við hagsmunaaðila í nágrannalöndunum,
sem eiga svipaðra hagsmuna að gæta, taka upp sameiginlega
umhverfismerkingu fiskveiðiþjóða á Norðurslóðum og tryggja
að slík merking verði trúverðug í augum neytenda.
Hér hlýtur einkum að verða horft til frumkvæðis Norræna
laxasjóðsins, sem Orri Vigfússon er í forsvari fyrir. Sjóðurinn
hefur leitað eftir samstarfi við stjórnvöld og hagsmunaaðila á
Grænlandi, í Færeyjum, Noregi og Kanada um að koma á fót
umhverfismerki, sem segi til um að viðkomandi sjávarafurðir
komi úr Norður-Atlantshafi, fiskurinn sé veiddur með um-
hverfisvænum aðferðum og með sjálfbærum hætti og sé í
hæsta gæðaflokki. Það má vel vera, að sá farvegur, sem Orri
Vigfússon hefur opnað í þessu sambandi sé einmitt sá, sem
hentar hagsmunum okkar bezt.
ÓLÖGLEG NOTKUN
HUGBÚNAÐAR
ISLENZK stjórnvöld hafa enn ekki lögfest ákvæði alþjóða-
samninga um hugbúnaðarvernd, þrátt fyrir að þau hafi und-
irritað alþjóðsamninga þar um. Af þessum sökum hefur ekki
verið unnt að taka hart á hugbúnaðarþjófnaði ýmiss konar,
sem viðgengizt hefur hérlendis um árabil. Fullyrt er að 85%
alls hugbúnaðar, sem notaður er í tölvum á Islandi, sé illa
fenginn, þ.e.a.s. eigendum hugbúnaðarins hefur ekki verið
greidd sú lögbundna þóknun, sem þeim ber.
Hérlendis hafa undanfarin ár risið upp hugbúnaðarfyrir-
tæki, sem sýnt hafa mikið og gott frumkvæði og frjótt ímynd-
unarafl. Menn hafa talað fjálglega um þennan nýja vaxtar-
brodd íslenzks iðnaðar og þjóðarbúið hefur stórum aukið
gjaldeyristekjur sínar vegna hans. Þrátt fyrir það hafa ákvæði
til verndar hugbúnaðarframleiðendum ekki verið lögtekin og í
raun má segja, að vart megi búast við að Islendingar verði
teknir alvarlega í þessum efnum á meðan látið er átölulaust að
menn taki hugbúnað ófrjálsri hendi.
Hróbjartur Jónatansson hæstaréttarlögmaður'hefur nú ver-
ið ráðinn af Alþjóðasamtökum hugbúnaðarrétthafa til þess að
finna og lögsækja þá, sem gerzt hafa fingralangir á þessu sviði.
f samtali við hann í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær, segir
að mikilsvert sé að breyta viðhorfi íslendinga til þessara mála.
Þegar til lengdar lætur tapi menn á þessu framferði, því að
yrði greitt fyrir hugbúnaðinn, myndi þjónusta við íslendinga
aukast og myndu framleiðendur þá frekar láta fjármagn í t.d.
þýðingar forritanna, í stað þess að eyða þeim í að eltast við for-
ritsþjófana.
íslendingar eru meðal mestu tölvunotenda heims. Það er illt
til afspurnar, virði þeir ekki alþjóðasamninga um höfundar-
rétt. Því er nauðsynlegt að breyta viðhorfi fólks í þessu efni.
Forsenda þess að það sé unnt, er að stjórnvöld lögleiði þegar í
stað þau ákvæði, sem nauðsynleg eru til þess að þessi mál geti
verið í lagi hérlendis.
Náttúruvernd
I ' I Náttúruverndarsvæði
I I Verndarsvæði
I I Önnursvæði
Athugasemdir við miðhálendisskipulag
Lífleg þjóð-
málaumræða
um hálendis-
hagsmuni
Athugasemdir við tillögu að svæðisskipulagi
miðhálendisins til ársins 2015 eru miklar
að vöxtum og taka til margvíslegra þátta.
Guðmundur Sv. Hermannsson blaðaði í
þessu mikla skjalasafni.
SKIPULAGSTILLAGAN lá
frammi til umsagnar í sex
mánuði og þegar umsagnar-
frestinum lauk 10. desember
höfðu borist 95 athugasemdir, sumar
talsvert umfangsmiklar.
Athugasemdirnar komu frá lærð-
um og leikum og voru bæði á jákvæð-
um og neikvæðum nótum og í heild
eru þær lífleg þjóðmálaumræða þar
sem tekist er á um hvernig miðhá-
lendið muni nýtast þjóðinni best i
framtíðinni. Inn í það fléttast grund-
vallarsjónarmið í náttúruvernd, hags-
munir atvinnugreina og einstaklinga,
efnahagsmál í víðum skilningi og
áhrif og völd.
Viðamestu athugasemdirnar komu
frá orkugeiranum sem telur að hlutur
sinn í skipulagstillögunni sé fyrir
borð borinn, ekki sé nægilegt tillit
tekið til stefnumörkunar stjórnvalda í
orkumálum, og að nýtingu orkulind-
anna sé í tillögunni stillt upp gegn
náttúruverndarsjónarmiðum og
ferðamennsku. Því sé nauðsynlegt að
endurskoða skipulagstillöguna með
þetta í huga og fresta því að taka af-
stöðu til annarra svæða en þar sem
þegar liggja fyrii' samþykkt not eða
samþykkt vemdarsvæði.
Sú skoðun kemur fram í athuga-
semdum Landsvirkjunar, Orkustofn-
unar, iðnaðarráðuneytis o.fl. að sam-
vinnunefndinni, sem vann skipulags-
tillöguna, beri lagaleg skylda til að
takja tillit til stefnumörkunar Lands-
virkjunar í forsendum sínum fyrir
skipulaginu og geti ekki skorast und-
an því að gera ráð fyrir fyrirhuguðum
og hugsanlegum virkjunum Lands-
virkjunar samkvæmt upplýsingum
frá fyrirtækinu.
Er þarna einkun verið að vísa til
Fljótsdalsvirkjunar, en í skipulagstil-
lögunni er ekki tekið undir þá tilhög-
un hennar sem Alþingi og iðnaðarráð-
herra hafa samþykkt.
Þrengt að virkjanamöguleikum
Fram kemur í athugasemdunum að
þeim virlqunarhugmyndum, sem
settar voru inn á skipulagskort, sé
þröngur stakkur skorinn, sérstaklega
þeim virkjunarkostum sem enn eru á
forathugunarstigi. Iðnaðarráðuneytið
lýsir þeirri skoðun að svæðisskipulag
eigi fremur að veita heimild til að
nýta ákveðin vatnasvið en fjalla um
tiltekin mannvirki eða tilhögun
þeirra, eins og gert sé í til-
lögunni. Það sé eðli virkj-
unarrannsókna að þær
leiði til þess að sumum
kostum sé hafnað, sumum
breytt eða að fram komi
hugmyndir um breytta tilhögun virkj-
ana sem oft falla betur að annam
landnýtingu eða að vernda viðkvæm
svæði.
Náttúruvernd sáttari
við skipulagið
Við allt annan tón kveður eðlilega í
athugasemdum þar sem fjallað er um
skipulagstillöguna út frá sjónarmið-
um náttúruverndar. Athugasemdirn-
ar frá þessum aðilum eru jákvæðari,
Morgunblaðið/RAX
FERÐAÞJÓNUSTA er ört vaxandi á Miðhálendi Islands eins og kemur fram í athugasemdum við svæðisskipu-
lagstillögu. Á myndinni er vélsleðamaður á Skaftárjökli.
Nýting hálend-
isins á að vera
sjálfbær
t.d. lýsir Náttúruvernd ríkisins yfir
stuðningi við grunnhugmynd og meg-
indrætti skipulagstillögunnar þótt at-
hugasemdir séu gerðar við ákveðna
þætti þess. Hvetur Náttúruvemdin
til þess að skipulagið verði staðfest en
telur um leið nauðsynlegt að hefjast
handa við endurskoðun á því með
söfnun upplýsinga og athugasemda
við forsendur þess, vegna þess að
töluvert skorti á að nægar upplýsing-
ar séu fyrir hendi á ýmsum sviðum
hvað varðar lífríki og jarðfræði og
aðra eðlisræna þætti. Þeirri endur-
skoðun verði lokið eigi síðar en árið
2000.
Af sumum er tillagan gagnrýnd
fyrir að gera hagsmunum orku-
geirans allt of hátt undir höfði á
kostnað náttúruverndarsjónarmiða
og leggja áherslu á mikilvægi þess að
varðveita óbyggðirnar. Náttúm-
verndarsamtök Islands mótmæla t.d.
harðlega í greinargerð sinni fyrirhug-
uðum línulögnum sem gert er ráð fyr-
skipulagstillögunni _ um
Sprengisand og Odáða-
hraun og hafna stórfelld-
um virkjunaráformum og
raforkuflutningi á miðhá-
__________ lendinu fyrir orkufreka,
mengandi stóriðju.
Svipað sjónarmið kemur einnig
fram hjá ýmsum hagsmunaaðilum í
ferðaiðnaði, en þar er einnig nokkuð
mismunandi sýn á hve langt eigi að
ganga við uppbyggingu vega og að-
stöðu á svæðinu.
Stefnumótun vantar
í ferðaþjónustu
Ferðaþjónustan gagnrýnir skipu-
lagstillöguna einnig út frá öðrum for-
sendum. Ferðamálaráð vill að skipu-
ír
laginu verði frestað, m.a. vegna þess
að stefnumótun um ferðaþjónustu á
miðhálendinu sé skammt á veg komin
og ferðaþjónustuna skorti þau grunn-
gögn og áratugarannsóknavinnu, sem
aðrar atvinnugreinar, svo sem orku-
iðnaðurinn, landbúnaðurinn og nátt-
úruvernd hafi til þessarar skipulags-
vinnu.
Þá bendir Ferðamálaráð á að enn
sé óljóst hvernig stjómskipun og
eignarhaldi á hálendinu verði háttað
meðan enn séu óafgreidd lagafrum-
vörp á Alþingi um þjóðlendur og
sveitarstjórnarlög þar sem m.a. á að
staðfesta stjómsýslumörk sveitarfé-
laganna á miðhálendinu öllu. Ferða-
málaráð vill raunar að stjórnsýsla á
miðhálendinu sé á einni hendi og
svipuð skoðun er sett fram í fleiri at-
hugasemdum, svo sem frá Ferðafé-
lagi Islands.
Þorkell Helgason orkumálstjóri
bendir m.a. á í athugasemd sinni, að
ef stjórnsýsla og skipulagsmál á há-
lendinu verði í umsjá þeirra 50
hreppa sem liggja að hálendinu, sé
viðbúið, að sama virkjunarmannvirk-
ið tilheyri mismunandi, hreppum:
stöðvarhús í einum, stíflur og lón í
öðmm og línulagnir og aðkomuvegir í
enn öðram. Hagsmunir þessara sveit-
arfélaga muni rekast á því opinber
gjöld, einkum fasteignaskattar, mið-
ist við þann hrepp þar sem stöðvar-
húsið er. Þetta bjóði þeirri hættu
heim að virkjunaraðili hljóti mjög
misjafnar undirtektir í mismunandi
hreppum með tilheyrandi deilum og
tilkostnaði við sættir.
sín taka. Einn þeii’ra, Haukur Brynj-
ólfsson segist hafa frá því á unglings-
árum, ferðast um hálendið og dvalist
þar svo samtals nemi mánuðum og
stundum lifað af landinu. „Það veitir
mér ómetanlega frelsistilfmningu að
geta gengið um víðáttur, sem ég veit
að enginn á frekar en ég. Ég mót-
mæli því að þessi tilfinning verði tek-
in af mér í þágu einhverra hreppa-
sjónarmiða," segir Haukur í athuga-
semdinni. Og 137 manns hafa skrifað
undir undirskriftalista þar sem því er
mótmælt að miðhálendið sé lagt und-
ir stjórn og eignarhald sumra hreppa
landsins.
En Samband íslenskra sveitarfé-
laga telur nauðsynlegt í sinni greinar-
gerð að leiðrétta þann misskilning, að
verið sé með gerð svæðisskipulagsins
að færa til fámennra sveitarfélaga
stóraukið áhrifavald frá því sem nú
er. Hið rétta sé að sveitarfélögin hafi
haft ákveðnum lögskyldum að gegna
varðandi framkvæmd skipulags- og
byggingamála innan marka sveitarfé-
laganna og á afréttum ---------------
sem þeim tilheyra. Nánast
allt miðhálendið skiptist í
afréttir og sé því' þegar
innan lögsögu sveitarfé- _____________
laganna að undanskildum
jöklum, en eðlilegt sé að lögskyldur
sveitarfélganna nái einnig til þess
landsvæðis.
Víða hagsmuna-
árekstrar á
svæðinu
Frelsistilfinning
Ymsir einstaklingar, sem sendu inn
athugasemdir, láta stjórnsýsluna til
Landgræðsla
eða vemdun
Gróður og náttúrufar á miðhálend-
inu og landnotkun því tengd, fá tals-
verða umfjöllun í athugasemdunum.
Sumum finnst að umfjöllun um gróð-
urfar hálendisins sé af skornum
skammti í greinargerð með tillögunni
og byggist ekki á nægilegri þekkingu.
Landgræðsla ríkisins telur tillöguna
ekki viðunandi að því að varðar land-
græðslumál, því hún miði við að varð-
veita núverandi ástand gróðurs, en
ekki að endurheimta vistkerfi og
bæta ástand eyddra og vangróinna
landa. Svipuð gagnrýni kemur fram í
athugasemdum Skógræktar ríkisins,
sem bendir á að í skipulaginu sé
hvergi gert ráð fyrir skógrækt og
endurheimt gróðurlanda og því virki
það sem hindrun á endurheimt land-
gæða.
Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins leggur í athugasemd áherslu á að
nýting hálendisins þurfi að vera sjálf-
bær, og með fylgir ýtarleg greinar-
gerð Olafs Arnalds á rannsóknardeild
RALA þar sem hann gagnrýnir m.a.
að beitarfriðun sé ekki talin þáttur i
skilgreiningu verndarsvæða í skipu-
lagstillögunni og leggur áherslu á að
hætt verði beitarnýtingu á auðnum
og rofsvæðum.
Hreppapólitík
Margar af athugasemdunum eru
ýmiskonar leiðréttingar og sumar
þeiraa má sjálfsagt fiokka undir
hreppapólitík. Fljótshlíðarhreppur og
V-Eyjafjallahreppur hafa lengi deilt
um yfirráðarétt yfir Þórsmörk og sú
deila fór fyrir Hæstarétt á siðasta ári,
sem taldi að hvorugur hreppurinn
ætti þar tilkall til lögsögu þar. í kjöl-
farið lagði sérstök úrskurðarnefnd
um stjórnsýslumörk til að hrepparnir
hafi sameiginlega stjórn svæðisins. I
athugasemd bendir oddviti V-Eyja-
fjallahrepps m.a. á að þar sem getið
sé flugbrautar i Húsadal i Þórsmörk í
skipulagstillögunni eigi vitanlega að
standa V-Eyjafjallahrepps en ekki
Fljótshlíðarhrepps. Og oddviti Fljóts-
hlíðarhrepps segir í athugasemd sinni
að allir skálar á Þórsmerkursvæðinu
séu í Fljótshlíðarhreppi, ekki V-Eyja-
fjallahreppi eins og standi í skipu-
lagstillögunni.
Af öðrum athugasemdum má
nefna að Samband sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi telur nauð-
synlegt að breyta sýslumörkum S-
Þingeyjarsýslu og N-Múlasýslu til að
tryggja að stjórnsýsla í Kverkfjöll-
um verði óumdeilanlega í _N-Múla-
sýslu. Eigandi jarðarinnar Úthlíðar í
Árnessýslu, sem nær langt upp á há-
lendið, áskilur sér rétt til að skipu-
leggja á eigin vegum land
sitt með nánari hætti en
gert er í tillögunni. Og
landeigendur í Álftafirði
og A-Skaftafellssýslu
mótmæla því að jarðir
þeirra eru innan skipulagssvæðisins.
Samvinnunefndin um svæðisskipu-
lag miðhálendisins hélt fund eftir að
fresturinn til að skila athugasemdum
rann út í desember. Að sögn Snæ-
bjöms Jónassonar, formanns nefnd-
arinnar, er nú unnið við að flokka at-
hugasemdirnar og að því loknu mun
nefndin fjalla ýtarlega um þær. Því
gæti tekið mánuði að undirbúa end-
anlega skipulagstillögu til umhverfis-
ráðherra til staðfestingar.
Forseti Irans hvetur til óformlegra samskipta Irana
og Bandaríkjamanna í sögulegu sjónvarpsviðtali
„Rjúfa þarf
veg'g- vantrausts“
MIÐHÁLENDI ISLANDS: Svæðisskipulag 2015
Á mannvirkja-
beltum Miðhá-
lendisins eru
aðalfjallvegir,
mannvirki sem
tengjast raforku-
vinnslu og helstu
þjónustustaðir
ferðamanna.
Linan er viðmiðunarlína til
lagssvæði miðhálendis. Sú lína
í aðalatriðum og felst í henni skilgieining á mörkum
heimalanda og afrétta. Þessa markalínu hafa fulltrúar
heimamanna og skipulagsnefndar miðhálendisins komið
sér saman um með samþykki viðkomandi sveitarstjómai
Mohammed Khatami,
✓
forseti Irans, hefur að
undanförnu lýst yfir
vilja til að bæta sam-
skipti Irana við Vestur-
lönd. I sjónvarpsviðtali á
miðvikudagskvöld, því
fyrsta sem íranskur leið-
togi veitir bandarískri
sjónvarpsstöð frá 1979,
kvað greinilega við ann-
an tón en menn hafa
mátt venjast frá
----------------
leiðtogum Irans.
BANDARÍSK stjórnvöld
brugðust af varkárni við yfir-
lýsingum Mohammeds Khata-
mis, forseta írans, sem hvatti í sjón-
varpsviðtali til samræðna milli írana
og Bandaríkjamanna. í yfirlýsingu
frá bandaríska utanríkisráðuneytinu
sagði að Khatami hafi ekki gengið
nógu langt í yfirlýsingum sínum, og
hvatti ráðuneytið til beinna viðræðna
milli stjómvalda í í-íkjunum. Þá lýsti
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, því yfir í gær að hann
teldi æskilegt að reynt yrði á var-
færnislegan hátt að koma samskipt-
um Evrópusambandsins og írans í
viðunandi horf á ný.
Khatami sagði ótímabært að hefja
formleg samskipti ríkjanna en sagð-
ist telja að „allar dyr“ væru nú opnar
fyrir samræður og skilning milli
íranskra og bandarískra borgara.
Hvatti hann til þess að ríkin skiptust
á rithöfundum, fræðimönnum, lista-
mönnum, fréttamönnum og ferða-
mönnum.
Svör Khatamis í viðtali við banda-
rísku sjónvarpsstöðina CNN (Cable
News Network) vora vel undirbúin
og skírskotaði hann til sögu Banda-
ríkjanna og nefndi hliðstæður milli
íranskra og bandarískra viðhorfa til
trúar og frelsis. Fréttaskýrendur
segja þó að svör forsetans hafi oft
vakið fleiri spurningar en þau svör-
uðu. Þó hafi tónninn í svöram hans
verið allt annar en það sem ein-
kenndi viðhorf fyrrverandi yfirvalda
í íran, sem sögðu bandarísk stjórn-
völd vera „hinn mikla Satan“. Hann
er einnig í greinilegri andstöðu við
málflutning erkiklerksins Ali
Khameinis, hins valdamikla trúar-
leiðtoga íran. Khameini hefur að
undanfórnu haldið uppi harðri gagn-
rýni á Bandaríkin.
íranska andspyrnuhreyfmgin
sagði að yfírlýsingar Khatamis væru
til marks um „harðnandi andstöðu“
milli hans eigin viðhorfa og bókstafs-
trúarklerkanna_ sem tóku við stjórn-
artaumunum í íran 1979. Sagði utan-
ríkismálafulltrúi Þjóðarandspyrnu-
ráðs írans að staða mála væri nú
svipuð síðustu stigum einræðis-
stjórnar Rheza Pahlevis, keisara í
íran til 1979.
Engin nauðsyn
á tengslum
Khatami sagði að bandarísk
menning væri verð allrar virðingar,
en íranir teldu „enga nauðsjm á
tengslum við Bandaríkin“. Mörg
framfarasinnuð ríki væra mun þró-
aðri í utanríkisstefnu sinni en
Bandaríkin.
Khatami var kjörinn forseti írans
Byggt á gögnum frá Landmótun ehf. (Einar E.
Sæmundsen, Gísli Gíslason, Yngvi Þór Loftsson)
Reuters
MOHAMMED Khatami, forseti Irans, ræðir við Christiane Amanpour,
fréttamann CNN.
í maí sl. og viðbrögð bandarískra
stjórnvalda við orðum hans í fyrra-
kvöld fólu greinilega í sér boð um
beinar viðræður ráðamanna, og er
það í fyrsta sinn frá því herskáir ír-
anir steyptu stjórn Rheza Pahlevis
1979. Fréttaskýi’endur benda á að
langt sé í land með að Khatami
heimsæki Bandaríkin, en svo virðist
sem stigin hafi verið fyrstu skrefin í
þá átt að koma aftur á stjómmála-
tengslum milli ríkjanna. Bandaríkja-
menn slitu stjórnmálasambandi við
íran 1980 og frystu allar eigur írana
í Bandaríkjunum.
„Við fögnum því að [Khatami]
skuli vilja samræður við bandarísku
þjóðina, en við eram enn þeirrar
skoðunar að rétta leiðin til þess að
takast á við vandamálin í samskipt-
um okkar sé sú að stjórnvöld talist
beint við,“ sagði James Rubin, full-
trúi bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins. Bandarískir þingmenn hvöttu til
að varlega yrði farið og kváðust and-
vígir j)ví að viðskiptaþvingunum
gegn Iran yrði aflétt, nema íranir
sýndu veljvilja í garð Bandaríkj-
anna.
Of snemmt fyrir
formleg samskipti
Khatami hvatti til þess að „rofinn
yrði sá veggur vantrausts" sem
stæði á milli Bandaríkjamanna og
írana, en sagði \að þó væri of
snemmt að koma á formlegum sam-
skiptum ríkjanna. Hann fordæmdi
hryðjuverkastarfsemi, en sagði að
frelsisbarátta þjóðar gæti ekki
flokkast sem hryðjuverk. Það hefði
verið slæmt að það hefði valdið
Bandai’íkjamönnum sárindum þegar
herskáir íranir tóku bandaríska
sendiráðið í Teheran herskildi 1979.
„En það olli [Bandaríkjamönnum]
einnig sárindum þegar lík ungra
Bandaríkjamanna vora flutt heim
frá Víetnam, en banda-
ríska þjóðin kenndi aldrei
Víetnömum um, heldur
kenndi eigin stjómmála-
mönnum um að hafa ýtt
þjóðinni út í mýrarfen Ví-
etnamstríðsins. Þrýstingur frá
bandarísku þjóðinni batt enda á það
tilgangslausa og ómennska stríð.“
Khatami var spurður hvort segja
mætti að gíslatakan í bandaríska
sendiráðinu við upphaf íslömsku
byltingarinnar í íran hefði verið
ódæðisverk á borð við þau sem oft
hefðu verið unnin í upphafí byltinga,
í frönsku byltingunni, rússnesku og
jafnvel þeirri bandarísku. Forsetinn
svaraði því til að gíslatakan í sendi-
ráðinu hefði verið „neyðaróp þjóðar-
innar gegn niðurlægingu og ójöfnuði
sem stefna Bandaríkjanna og ann-
arra þröngvaði upp á hana, sérstak-
lega við upphaf byltingarinnar".
Nauðsynlegt væri að skilja at- .
burði í þvi samhengi sem þeir hefðu
orðið. ,ýLtburði þessara daga verður
að skilja í samhengi við byltingar-
andann sem þá ríkti og þann þrýst-
ing sem íranska þjóðin var beitt og
leiddi til þess að hún leitaði leiða til
þess að láta í ljósi ákafa sinn og
kvíða.“
„Mikilvæg stund“
Rubin lagði áherslu á að bætt
samskipti írana og Bandaríkja-
manna yltu fyrst og fremst á gjörð-
um íranskra stjórnvalda, en ekki
orðum þein’a. Orð væra þó oft til alls
fyrst. Bandarísk stjórnvöld hafa lýst
vilja sínum til viðræðna við írani
með því skilyrði að írönsk stjórnvöld ,
séu reiðubúin að ræða meintan
stuðning sinn við hryðjuverkastarf-
semi, smíði gerðeyðingarvopna og
andstöðu við ft’iðarumleitanir í Mið-
Austurlöndum.
Bandaríska blaðið Washington
Post hafði eftir heimildarmönnum í
gær að farið væri að gæta áherslu-
breytingar hjá Bandaríkjamstjórn
og bandamönnum Bandaríkjanna í
Mið-Austurlöndum, ekki síst Sádí-
Arabíu. í stað þess að velta því fyrir
sér hvernig hægt væri að refsa írön-
um fyrir hryðjuverk er framin höfðu
verið væri áherslan á það, hvernig
koma mætti í veg fyrir að íranir
styddu við bakið á hryðjuverka-
mönnum í framtíðinni.
Khatami neitaði því í viðtalinu að
íran veitti hryðjuverkastarfsemi
stuðning og sagði að ef hann yrði var
við slíka starfsemi myndi hann
bregðast við því. Hann sagði að í trú-
arriti múslíma, Kóraninum, væri
blátt bann lagt við of-
beldi. „Einungis þeir, sem
skortir rök, grípa til of-
beldis," sagði hann.
John Esposito, prófess-
or í trúarbragðafræði og
alþjóðamálum við Georgetown-há-
skóla í Bandaríkjunum, segir orð '
Khatamis mikilvæg og að þau gætu
rutt brautina fyrir óformleg tengsl
milli ríkjanna. Esposito hefur mikið
skrifað um íslam og vesturlönd.
„Þetta er mikilvæg stund. Það skipt-
ir miklu að við komumst, yfir síðast-
liðin tuttugu ár sem einkennst hafa
af allt að því gagnkvæmu hatri. Nú
vottar fyrir hreyfingu hjá báðum að-
ilum,“ sagði hann.
Khatami
fordæmdi
hryðjuverk