Morgunblaðið - 10.01.1998, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
U mfangsmiklar
breytingar á
Sléttbak EA
UMFANGSMIKLAR breytingar
standa yfir á Sléttbak EA, frysti-
togara Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf., hjá Slippstöðinni hf.
Fyrir áramót var öllum skipverj-
um sagt upp, um 30 manns, en
ráðgert er að skipið haldi aftur
til veiða í lok febrúar.
Ollum vinnslubúnaði á milli-
dekki verður skipt út, lagfær-
ingar gerðar á botnstykki, kjöl
og skutrennu, skipið verður
málað, auk þess sem unnið verð-
ur við ýmis önnur verk.
I gær höfðu starfsmenn Slipp-
stöðvarinnar hreinsað allan
gamla vinnslubúnaðinn af milli-
dekkinu.
Tvær lyftur
verða
opnaðar
TALSVERT hefur snjóað í Hlíðar-
fjalli síðustu sólarhringa og er nú
kominn ágætis skíðasnjór. Tvær
lyftur verða opnaðar á morgun, laug-
ardag, og verður opið í fjallinu frá kl.
11 til 16 um helgina. Einnig verður
lögð 3,5 kílómetra löng göngubraut
þar sem aðstæður eru mjög góðar.
Víðast eru snjóalög ágæt, en skíða-
fólk er þó hvatt til að fara með gát og
renna sér ekki út fyrir troðnar
brautir. Veitingasala á Skíðastöðum
verður ekki opin þessa helgi.
Morgunblaðið/Kristján
Fjórða hæðin á Hótel Norðurlandi án lyftu
Leyfíð fellt
úr gildi
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA:
Guðþsjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Athugið breyttan
messutíma. Biblíulestur í
Safnaðarheimilinu kl. 20.30 á
mánudagskvöld.
Mömmumorgunn í Safnaðar-
heimilinu frá kl. 10 til 12 á
miðvikudagsmorgun, kaffi og
spjall. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 17.15 á fimmtudag.
Bænarefnum má koma til
prestanna.
H JÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli á morgun kl.
11, sunnudag. Almenn sam-
koma kl. 17 og unglingasam-
koma kl. 20. Heimilasamband-
ið kl. 15 á mánudag og krakka-
klúbbur kl. 17 á miðvikudag.
Allir hjartanlega velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænasamkoma kl. 20.30 í
kvöld, laugardagskvöld. Vitn-
isburðarsamkoma í umsjá
ungs fólks á morgun, sunnu-
dag, kl. 14. Mikill og fjöl-
breyttur söngur, allir hjartan-
lega velkomnir. Vonarlínan,
sími 262-1210, símsvari allan
sólarhringinn með uppörvun-
arorð úr ritningunni.
KFUM og K í Sunnuhlíð:
Bænastund kl. 20 á sunnu-
dagskvöld, almenn samkoma
kl. 20.30. Ræðumaður Pétur
Björgvin Þorsteinsson djákni.
Allir velkomnir. Fundur í
yngri deild KFUM og K kl.
17.30 á mánudag, 12. janúar,
fyrir drengi og stúlkur 8-12
ára.
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur fellt úr gildi úrskurð sinn frá því í
maí árið 1996 um að eigendum
Hótels Norðurlands væri heimilt að
byggja fjórðu hæðina ofan á hótelið
án þess að krafa yrði gerð um að
lyfta yrði sett í húsið.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti í nóvember árið 1995 að leyfa
byggingu fjórðu hæðar Hótels Norð-
urlands án þess að gera kröfu um
lyftu í húsið. Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á Akureyri og nágrenni, mót-
mælti samþykktinni og kærði til um-
hverfisráðuneytisins. I úrskurði um-
hverfisráðherra, Guðmundar
Bjarnasonar, frá því vorið 1996 kem-
ur fram að heimilt sé að byggja hæð-
ina ofan á hótelið án þess að lyfta sé
sett í húsið og var hann m.a. studdur
þeim rökum að Hótel Norðurland
væri flokkað sem fjölbýlishús. Stjórn
Sjálfsbjargar mótmælti þessum úr-
ÖÐRU sinni verður að fresta hinni
árlegu þrettándagleði Iþróttafé-
lagsins Þórs, en samkvæmt upplýs-
ingum sem Þórsarar hafa fengið frá
Veðurstofunni mun hitastig næstu
daga vera 0-+4 gráður, þannig að
vallarsvæði félagsins þolir ekki
þann mannfjölda sem jafnan sækir
þrettándagleðina. Hlýindi og rign-
skurði harðlega og benti m.a. á að
fengi hann að standa væru ákvæði
byggingarreglugerðar um bætt að-
gengi fatlaðra hjóm eitt og sýndar-
mennska af hálfu stjórnvalda, ef
hægt væri að komast hjá því að
standa við þau með hundakúnstum
og undanþágum.
í lok nýliðins árs felldi umhverfis-
ráðuneytið úrskurðinn úr gildi, en
það hafði tekið málið fyrir að nýju að
beiðni Sjálfsbjargar, félags fatlaðra
á Akureyri og nágrenni. í úrskurðar-
orðum ráðuneytisins vegna þessa
kemur fram að samþykkt bæjar-
stjórnar og bygginganefndar um að
leyfa byggingu hæðarinnar án þess
að setja lyftu í húsið sé felld úr gildi
og lagt til að bygginganefnd og bæj-
arstjórn Akureyrar taki málið til
endurákvörðunar. Bæjarráð Akur-
eyrar vísaði þessu máli til bygginga-
nefndar.
ingar um og eftir áramót gerðu að
verkum að vallarsvæðið varð að
einu drullusvaði. Reyna átti að
halda brennuna á morgun, sunnu-
dag. Nú ætla Þórsarar að freista
þess að halda brennu fyrsta dag í
þorra, 23. janúar næstkomandi, með
von um að vetur konungur verði þá
farinn að sýna sig.
Þrettándagleði frestað
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
HRUNIÐ kom úr Fiskhellanefi.
Bjargstykki hrundi
úr Fiskhellanefi
Vestmannaeyjum - Stórt bjarg-
stykki hrundi úr Fiskhellanefi í
Eyjum fyrir skömmu. Fiskhellar
eru í mynni Herjólfsdals og á Þjóð-
hátíð er alltaf sigið bjargsig af
Fiskhellanefi. Stykkið sem hrundi
úr nefinu hefur vegið nokkur tonn
og hrundi það beint niður í hli'ð-
arnar undir Fiskhellum og mynd-
aði þar stórt sár í grassvörðinn en
bergið slútir talsvert þar sem
hrunið varð.HnulIungar úr hrun-
inu ultu niður hlíðarnar en náðu
ekki niður á veginn sem liggur inn
í Herjólfsdal. Engin slys urðu á
fólki og má þakka fyrir að enginn
var á ferli í hlíðinni undir Fiskhell-
um en í góðviðrinu í vetur hefur
fólk gert mikið af því að labba
víðsvegar um eyjuna.
, Morgunblaðið/Gunnlaugur
ÞRJÁR vinnsluholur voru boraðar á hlaðinu á Arnarstöðum í Helga-
fellssveit og út frá þeim vinnsluhola rétt við útihúsin.
Nóg af heitu
vatni í nágrenni
Stykkishólms
HEITT vatn fundist á bænum Arn-
arstöðum í Helgafellssveit, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu á
fimmtudag. Olafur Hilmar Sverris-
son, bæjarstjóri í Stykkishólmi, seg-
ist telja það mjög jákvæð tíðindi,
sérstaklega ef rétt reynist að vatnið
á Arnarstöðum sé frá öðru kerfi en
það vatn sem fundist hefur á ná-
grannabænum Hofstöðum.
Stykkishólmsbær stóð að borun-
um í landi Hofstaða, sem er næsti
bær við Arnarstaði, fyrir rúmu ári,
en borun í landi Arnarstaða er ein-
staklingsframtak Daníels Hauks-
sonar bónda.
Ólafur segist telja að vatnið sem
fannst á Arnarstöðum styrki hita-
veitu í Stykkishólmi og þó að búist
sé við því að vatnið á Hofstöðum
dugi bænum komi vel til greina að
nota nýju holuna sem varaholu.
Verið er að hanna hitaveitu fyrir
Stykkishólm og vonast menn til
þess að framkvæmdir hefjist í vor.
Reiknað er með því að heitt vatn
verði komið til bæjarinns í haust en
ekki liggur fyrir hvenær dreifikerf-
ið verði tilbúið.
Þetta eru dýrar framkvæmdir en
Ólafur segir það þó grundvallarskil-
yrði fyrir framkvæmdunum að að
þær verði til þess að lækka húshit-
unarkostnað.