Morgunblaðið - 22.01.1998, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Blondal í bobba
HÆSTVIRTUR samgönguráðherra hefur enn ekki áttað sig á hvað stutt er orðið til útlanda ...
Landssamband vörubifreiðastjóra kvartar
undan djafnri samkeppni við skipafélögin
Vilja skýr skil milh
sjó- og landflutninga
LANDSSAMBAND vörubifreiða-
stjóra fer fram á að sett verði lög
þar sem gerður verði skýr greinar-
munur á sjó- og landflutningum.
Unnur Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri sambandsins, segir
að skipafélögin Eimskip og Sam-
skip hafi það býsna mikið í hendi
sér hve mikið af landflutningum
teljist vera sjóflutningar en af síð-
amefndu greininni er ekki greidd-
ur virðisaukaskattur. Þau hafl auk
þess keypt upp mörg smærri land-
flutningafyrirtæki úti á lands-
byggðinni til að tryggja sér land-
flutningana.
Unnur segir að skipafélögin
flytji inn vöru samkvæmt svoköll-
uðum „door to door“-skilmálum,
eða heim að dyrum.
„Auðvitað finnst okkur liggja í
augum uppi að skipafélögin ákveða
eftir geðþótta hve stór hluti land-
flutninguiTnn er af reikningnum.
Þau hafa jafnvel í hendi sér að
bjóða ókeypis landflutning. Að
þessu leyti eru skipafélögin með
allt aðra samkeppnisstöðu en
vörubifreiðastjórar. Hvergi annars
staðar í nágrannalöndunum eru
ekki skýr skil milli sjó- og land-
flutninga. Við viljum að tekið verði
á þessu máli þannig að skipafélög-
in þurfi að sýna fram á hvað af
reikningnum er sjóflutningur og
hvað landflutningur," sagði Unnur.
Engin sérstök lög
um vörubifreiðir
Hún segir að um starfsemi vöru-
bifreiðastjóra séu ekki til nein sér-
stök lög. Lög sem gilda um ein-
yrkja í vörubifreiðarekstri gildi
einnig um starfsemi leigubfla og
rúta.
„Enn hefur ekki verið gefin út
reglugerð fyrir vöru- og sendibfl-
stjóra með þessum lögum og það
er ekki tekið á starfsumhverfi
fólks í flutningageiranum. Halldór
Blöndal samgönguráðherra lofaði
að úr þessu yrði bætt á þessu vor-
þingi og við treystum því að það
verði gert.
Það er einn þáttur í því að veikja
stöðu stéttarinnar að hún býr ekki
við almennilegt starfsumhverfi
hvað lögin snertir. Það er nauð-
synlegt að koma á starfsleyfakerfi
þar sem menn þurfa að uppfylla
vissar hæfniskröfur til þess að fara
út í þennan atvinnurekstur,“ sagði
Unnur.
OATKER kartöflumús, 220 gr Weetabix, 215 gr
Egils Pilsner, 1/2 Itr Þorrasíld, 600 ml
169- 99-
eetöbix
n
m
mrztmmm
319-
Allir dagar eru tilboðsdacjariija okkur
f
NNI HEIM • UM LAND ALLT
Námur, efnisgæði og umhverfi
Eig'um heims-
met í notkun
jarðefna
Dr. Borge J. Wigum
RIÐ 1995 var haldin
ráðstefna á vegum
umhverfisráðuneytis
um námur á Islandi og sótti
dr. Bprge J. Wigum, þá
ráðstefnugestur, í fram-
haldi af henni um styrk til
Rannsóknaráðs til þess að
kanna skipulag, efnisgæði
og hámarksnýtingu jarð-
efna á íslandi. Verkefhið
var styrkt af Vegagerðinni
og umhverfisráðuneyti og
unnið í samvinnu við Sam-
tök iðnaðarins og Rann-
sóknastofnun byggingar-
iðnaðarins með aðstoð Eyj-
ólfs Bjarnasonar og Eddu
Lilju Sveinsdóttur.
- Hvernig hefur rann-
sóknin gengið fyrir sig?
„Við settum fram verk-
efni til þriggja ára, þar sem
við vildum í fyrsta lagi skoða
hvemig staðan er í dag. Á þessu
ári er hugmyndin að kynna sér
efnisvinnslu og árið 1999 verður
gæðaeftirlit tekið athugunar. Um
þessar mundir emm við að klára
fyrstu áfangaskýrsluna, um stöð-
una í dag. Hún mun koma út á
vegum Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins en verður
fyrst skilað til Rannsóknaráðs Is-
lands.“
- Hvað kemur fram í skýrsl-
unni?
„Skýrslan er um 60 blaðsíður og
þar er úttekt á ástandi jarðefna-
töku á íslandi. Til þess að byggja
upp landið, hús, vegi, brýr, orku-
mannvirki og fleira, þarf viðun-
andi jarðefni, það er laus jarðlög,
sjávarset og berg. í þessum bygg-
ingarefnum felast gríðarlegir fjár-
munir og þau em í raun forsenda
þess að landið er í byggð. Við höf-
um reynt að kortleggja fyrir-
komulag efnisleitar, námulög, mat
á umhverfisáhrifum, sjálfbæra
þróun og hvaða rannsóknir hafa
verið gerðar í tengslum við jarð-
efni á Islandi, bæði almenns eðlis
og vegna vegagerðar og stein-
steypuframkvæmda."
- Bendið þið á eitthvað sem
mætti beturfara?
„Já, í öðrum kafla skýrslunnar
tökum við fyrir hvernig slíkar
framkvæmdir eru skráðar á land-
inu í heild og gerum tillögur um
framtíðarskráningu. Stærstur
hluti hagnýtra jarðefna á Islandi í
dag telst til svokallaðra lausra
jarðlaga sem eru afai' misjöfn að
gerð og gæðum. Efnisnámur eru
mjög dreifðar um landið og
þannig eru sum landsvæði rík af
byggingarefnum en önnur ekki.
Að magni til fer langmestur hluti
þeirra til vegagerðar. Þegar notk-
un jarðefna er skipt niður á íbúa
kemur í ljós enn eitt heimsmet á
íslandi, eða rúmlega 30 tonn á ári
á hvert mannsbarn, sem er tvisvar
til þrisvar sinnum
meira en á hinum
Norðurlöndunum.
Einnig vekur athygli
að jarðefni á Islandi
koma nánast alfarið úr
lausum jarðlögum meðan aðrar
þjóðir í nágrannalöndum vinna
allt að helmingi síns efnis úr fóstu
bergi. Eitt vandamálið er að erfitt
er að fá upplýsingar um notkun
jarðefna á landinu en endanlegt
mat var að heildarnotkunin væri
um sex milljónir rúmmetra á ári.
Skiptingin er þannig að 3,5 millj-
ónir rúmmetra fara til vegagerð-
ar, eða 65%, 13% í götur og húsa-
grunna, 11% í steinsteypu og svip-
að magn að meðaltali í stíflur
vegna virkjanaframkvæmda."
- Hvaða tillögur gerið þið til úr-
bóta?
„Aírakstur þessarar vinnu er
►Borge Johannes Wigum fædd-
ist í Þrándheimi í Noregi árið
1963. Hann lauk stúdentsprófi
ytra árið 1982 og gegndi þvínæst
herþjónustu í eitt ár. Árið 1983
kom Borge til íslands til ársdval-
ar og lagði stund á íslensku fyrir
erlenda stúdenta. Hann flentist
hér og hóf nám í jarðfræði við
Háskólann árið 1984. Árið 1988
lauk hann BS-prófi í jarðfræði
og tók því næst próf í jarðverk-
fræði í Þrándheimi árið 1990.
Árið 1995 iauk hann doktors-
prófí í jarðverkfræði frá Tækni-
háskólanum í Þrándheimi og
hefur starfað sjálfstætt hérlendis
og í Noregi, í fyrirtæki sínu
ERGO, við ráðgjöf og rannsókn-
ir frá haustinu 1996. Borge er
kvæntur Margréti Kristínu Sig-
urðardóttur söngkonu.
hugmyndin um framtíðarskrán-
ingarkerfi. Forsendur þess að
hægt sé að nýta jarðefni af skyn-
semi er góð þekking á eiginleikum
jarðefnanna, notagildi og gæðum
og hvar efnin er að finna. Reynsla
frá nágrannalöndum hefur sýnt
mikilvægi þess að þróa gagna-
grunn fyrir allt landið þar sem
upplýsingum um þekktar námur
og efnistökusvæði er safnað.
Einnig er nauðsynlegt að tengja
þessa skráningu við fyrirliggjandi
upplýsingar um gæði og magn
efna hjá mismunandi stofnunum.
Eitt stærsta vandamálið á íslandi
er að námur eru alltof margar,
sennilega um 2.000 talsins, og
smáar, og bent er á nauðsyn þess
að fækka þeim og stækka, svo
ekki sé verið að kroppa í landið
hér og þar. Við reynum að koma
þeim hugsunarhætti á framfæri
að jarðefni eru auðlind."
- Er bruðlað með jarðefni hér?
„Já, og það eru dæmi um að
verið sé að nota hágæðaefni sem
betur nýttist í steypu, til uppfyll-
ingar undir lóðir eða
sem burðarlög í vegi.
Flestir telja að nóg sé
af sandi og möl, sér-
staklega á íslandi.
Mai'kmiðið með sam-
ræmingu gagnagrunna yfir efnis-
mál á íslandi hlýtur að vera að
öðlast heildaryfirsýn yfir stað-
setningu náma og nýtanlegs efnis.
Jafnframt nýtist sú vinna til þess
að hafa virkt eftirlit með efnis-
notkun og halda bókhald. Með því
móti má spá fyrir um nýtingu
jai'ðauðlinda. Bætt nýting kemur í
veg fyrir frekari sóun verðmæta
og stuðlar að aukinni verðmæta-
sköpun. Skipulag efnistöku er
einnig grundvöllur gæðaeftirlits
og tryggir að viðskiptavinurinn
geti fengið þau gæði sem hann
þarf. Það gæti haft í fór með sér
lækkun byggingarkostnaðar."
Flestir telja
nóg til af
sandi og möl