Morgunblaðið - 22.01.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.01.1998, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuters TRÚRÆKNIR kúbverskir kaþólikkar sýna eftirvæntingu sína vegna komu páfa með því að halda á loft myndum af hans heilagleika meðan á guðsþjónustu stendur í dómkirkju Havana í gær. Eduardo Boza Masdi- val biskup, sem hefur verið í útlegð í 37 ár, prédikaði. Kúbuheimsókn Jóhannesar Páls II páfa Utlagar og pílagrímar flykkjast til eyjarinnar Krókódíl- ar bana 20 Kinshasa. Reuters. MANNSKÆÐIR krókódílar hafa banað og étið að minnsta kosti 20 manns í einu þorpi í Lýðveldinu Kongó, að því er ríkisútvarpið þar greindi frá í gær. Ráðast krókódílamir á þorpsbúa er þeir fara yfír Kongófljót á litlum bátum, en hafa einnig átt til að yfirgefa kjörlendi sitt í og við fljótið og elta uppi og drepa bændur við jarðyrkju. Flest fórnar- lambanna hafa verið böm. Sér- fræðingar segja að þessi teg- und krókódíla ráðist oft á fólk en sjaldgæft sé að þeir fari langt frá kjörlendi sínu. Oþekktur eður ei? HUGSANLEGA er einn hermann- anna íjögurra sem hvílir í gröf óþekkta hermannsins í Arlington- kirkjugarðinum í Washington ekki óþekktur. Að líkindum verða jarðneskar leifar hans grafnar upp og DNA-rannsókn látin skera úr um hvort þar er á ferðinni liðs- foringinn Michael Blassie, marg- verðlaunaður orrustuflugmaður sem skotinn var niður við An Loc í Víetnam í maí 1972. Lík hans fannst í Víetnam í október 1972 en síðar týndust nafnplötur hans og úrskurðað var að líkið, sem kann að vera af honum, væri af óþekktum hermanni. Það er systir Blassie sem óskað hefur eftir rannsókninni og reynist grunur hennar réttur verður flugmaður- inn jarðsettur að nýju. Bagdad. Reuters. ÍRAKAR lögðu í gær til að vopna- eftirlit Sameinuðu þjóðanna (SÞ) frestaði eftirliti í svokölluðum for- setahöllum, að sögn Richards Butlers, yfirmanns vopnaeftirlits- ins. Sagði hann að tillaga íraka væri „ögrun“ við öryggisráð SÞ sem hefur krafist óhefts aðgangs að öllum stöðum sem kunni að geyma gjöreyðingar-og efnavopn. Butler hélt í gær frá Irak eftir við- ræður við Tareq Aziz, aðstoðarfor- sætisráðherra landsins, og mun hann gefa öryggisráðinu skýrslu um þær á föstudag. Bresk og bandarísk yfirvöld útilokuðu ekki hemaðaraðgerðir gegn írökum, er ljóst varð að viðræður Butlers og Aziz hefðu verið árangurslausar. Butler var harðorður á blaða- mannafundi sem hann hélt eftir fundinn með íröskum ráðamönn- um og sagðist „hvorki vilja né KOMU Jóhannesar Páls II páfa til Kúbu var beðið með eftirvæntingu í gær, en hann lenti á flugvelli höfuð- borgarinnar Havana eftir hálfs sól- arhrings ferðalag frá Róm í gær- kvöldi. Þetta er í fyrsta sinn í sög- unni sem páfi leggur leið sína til Kúbu en í 81. sinn sem Jóhannes Páll II fer í opinbera heimsókn frá því hann tók við páfadómi 1978. í kirkjum Karíbahafseyjarinnar og á Havanaflugvelli bergmáluðu bænir trúaðra úr röðum innfæddra og að- kominna pílagríma, sem binda miklar vonir við að heimsókn páfa muni marka tímamót í sögu Kúbu, sem Fídel Castro og kommúnistaflokkur hans hefur stjómað harðri hendi í nær fulla fjóra áratugi. Opinberlega var Kúba trúlaust ríki um þrjátíu ára skeið, 1962-1992, en í augum kúb- verskra byltingarsinna stóð kaþólska kirkjan fyrir arfleifð kúgunar fyrri tíma undir nýlendustjórn Spánverja geta“ orðið við óskum íraka nema öryggisráð SÞ gæfi honum fyrir- skipanir þar að lútandi. Sagði Butler að viðræðurnar við Aziz hefðu verið „býsna skýrar, býsna afdráttarlausar“ og að þeir hefðu rætt tæpitungulaust. Fullyrti einn heimildarmaður Reuters að við- ræðurnar hefðu verið þær erfið- ustu sem fulltrúar vopnaeftirlits- ins og íraskra stjómvalda hefðu átt. Aziz hélt blaðamannafund síð- degis í gær og vísaði þar á bug ásökunum um að Irakar væru að framleiða sýkla- og efnavopn. „Það er lygi,“ sagði hann. Aziz vill bíða niðurstöðu funda tækninefndar Er Butler var spurður hvort ekki væri hætta á því að viðræður vopnaeftirlitsmanna og íraka og síðar einræðisstjóm Batistas. Samtímis því að verkamenn vom í óða önn að hengja upp borða í hvít- um og gulum litum Páfagarðs með- fram þeirri leið sem hinn tigni gest- ur mun fara um í dag lentu í gær flugvélar frá Bandaríkjunum á Ha- vanaflugvelli sem fluttu útlæga Kúbverja til heimalandsins sem höfðu fengið leyfi til að sameinast skyldmennum sínum í tilefni af páfa- heimsókninni. A meðal útlaga sem Castro-stjórn- in leyfði að kæmu til Kúbu af þessu tálefni var Eduardo Boza Masvidal biskup, en hann var neyddur í útlegð fyrir 37 áram, skömmu eftir valda- töku Castros. Masvidal, sem nú er 82 ára, hélt tilfinningaþrungna messu í heimasókn sinni sem sóknarbörnin bragðust við með gleðitárum og hamslausu lófataki. Stjómvöld reiknuðu með að um tíu þúsund pílagrímar og 3.000 erlendir myndu dragast í það óendanlega, neitaði hann því og kvaðst ekki telja að „margir þættir þessa leik- rits væru eftir“. Að sögn Butlers bað Aziz hann um að stöðva vopnaeftirlit og bíða þess að niðurstöður „tæknilegra matsfunda" um gjöreyðingar-, efna- og lífefnavopn íraka, lægju fyrr. Fyrsti matsfundurinn verður haldinn 1. febrúar nk. Að sögn Butlers telur Aziz að niðurstaða fundanna verði sú að ekki sé þörf á frekara eftirliti og að loka megi skýrslunum um þessar vopnateg- undir. Þá telji Aziz tímabært að ræða við Butler um aðgang að for- setahöllunum og í kjölfarið finnist aðstoðarforsætisráðherranum að aflétta eigi viðskiptabanni SÞ á írak sem sett var í kjölfar innrásar þeirra í Kúveit. Butler kvaðst hafa svarað því til blaða- og fréttamenn kæmu til eyjar- innar til að fylgjast með heimsókn- inni. I Havana era um 9.400 hótelher- bergi og voru þau öll löngu uppbók- uð. Til að auðvelda aðkomufólkinu að finna gististað afléttu stjómvöld skatti af leigutekjum sem almenning- ur, sem hefur yfir húsnæði að ráða, getur tekið fyrir að hýsa fólk. Oryggisráðstafanir Kúbversk stjómvöld bönnuðu sér- staklega allan skotvopnaburð í ná- grenni við áfangastaði páfaheim- sóknarinnar, en hann hyggst halda fjórar útimessur næstu daga, þá stærstu á Byltingartorginu í Havana næstkomandi sunnudag, síðasta dag heimsóknarinnar. Talsmenn stjórn- valda sögðu þó í fyrradag að þau ættu ekki von á neinum ofbeldis- verkum meðan á heimsókninni stendur, en í fyrra gekk hrina sprengjutilræða yfir eyna. að ósk íraka væri ögrun við örygg- isráðið og að hann gæti engu spáð um viðbrögð þess. „Hann [Aziz] sagðist gera sér grein fyrir þessari staðreynd, að Irakar hefðu vitað um hana er þeir tóku ákvörðun og að þeir myndu standa við hana,“ sagði Butler. Kvaðst hann búast við að niðurstaða áðurnefndra tæknifunda yrði sú sama og vopna- eftirlitið hefði haldið fram hingað til, að írakar hefðu ekki gert grein fyrir öllum vopnum sínum. Butler sagði að ef vopnaeftirlits- menn SÞ bæðu hann um að leyfa að gerð yrði tilraun til að skoða forsetahallir í frak, myndi hann verða við því. Aziz nefndi hins veg- ar ekki hótanir Saddams Husseins, leiðtoga fraks, frá því um helgina að vopnaeftirlitsmenn SÞ yrðu að vera á brott frá írak innan hálfs árs. Kjúklinga- sölubanni aflétt? MARGT bendir nú til að kjúklingar verði á borðum íbúa Hong Kong er nýárið gengur í garð samkvæmt tímatali Kínverja eftir viku. Hafa kínversk yfirvöld fyrir- skipað eftirlitsmönnum í Gu- angdong-héraði, norður af Hong Kong, að undirbúa að kjúklingasölubanninu verði aflétt. Ostaðfestar fregnir hafa hins vegar borist af því að þrjú ný tilfelli af fuglaflensu hafi komið upp en heilbrigðisyfir- völd í Hong Kong vísa því á bug. Sérfræðingar Aiþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar segjast ekki hafa séð nein merki um að fuglaflensuveiran eigi upptök sín í Kína. Cook hrósar Hong Kong ROBIN Cook utanríkisráð- herra Breta bar lof á hvemig mál hefðu þróast í Hong Kong frá því Kínverjar tóku þar við yfirráðum í júlí í fyrra eftir viðræður við Tung Chee-hwa, héraðsstjóra, í gær. Kvaðst hann þó viija sjá lýðræðisþró- unina ganga lengra. Cook er æðsti ráðamaður Breta sem kemur til héraðsins frá í júh'. Kanna ábyrgð Pinochets DÓMARI í Chile kvaðst í gær ætla að hefja formlega rann- sókn á því hvort Augusto Pin- ochet, hers- höfðingi og fyrrverandi leiðtogi her- foringja- stjórnar landsins, bæri ábyrgð á fjöldamorð- um sem framin vora í 17 ára stjómar- tíð hans. Hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur Pin- ochet. Barist við svínapest SVÍNAPESTAR hefur orðið vart víða í Evrópu að nýju. Verð á svínakjöti hefur lækkað mjög og er búist við að það haldist þar til svínum á sýkt- um svæðum hefur verið slátr- að og því dregið úr framboði á svínakjöti. Pestin hefur m.a. komið upp í Þýskalandi, á Spáni og í Hollandi. Deilt um „leynikofau VERJENDUR Theodores Kaczynskis, sem er ákærður fyrir að vera hinn svokallaði Unabomer, hafa krafist þess að sækjendur í málinu verði neyddir til að veita upplýsing- ar um leynilega kofa, sem full- yrt er að lögreglan hafi fundið skammt frá heimili Kaczynskis. Dómsmálayfir- völd svöraðu því til að verj- endur gætu spurt skjólstæð- ing sinn. Geðlæknir sem skoð- aði Kaczynski telur hann sak- hæfan, þrátt fyrir að hafa greint hann með geðklofa og ofsóknaræði. Tareq Aziz vill að vopnaeftirliti SÞ í forsetahöllum fraka verði frestað Butler segir tillögu Iraka ögrun við öryggisráð SÞ Augusto Pinochet
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.