Morgunblaðið - 22.01.1998, Blaðsíða 19
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 19
ERLENT
Lítt sýnilegur árangur af för ESB-nefndar til Alsírs
Óska eftir tillögum
London. Reuters, The Daily Telegraph.
BRETAR sögðu í gær að alslrsk
stjórnvöld verði að ráða því hvernig
Evrópusambandið (ESB) veiti að-
stoð við að binda enda á óöldina í
landinu, sem hefur orðið rúmlega
1.200 manns að bana á undanförn-
um þremur vikum. Nefnd ESB fór
frá Alsír á þriðjudagskvöld eftir að
hafa dvalið þar í um sólarhring.
Virðist förin litlum árangri hafa
skilað.
Ekkert lát er á manndrápunum
og alsírsk dagblöð skýrðu frá því í
gær 43 Alsírbúar hefðu verið myrtir
í árásum á þriðjudag. Manntjón
varð einnig í sprengjutilræði í mið-
borg Algeirsborgar í gær en ekki
var vitað hversu margir biðu bana.
Derek Fatchett, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bretlands, fór fyrir
nefnd ESB og sagði hann í viðtali
við BBC í gær að tekist hefði að
móta viðræðugrundvöll, en Alsír-
stjórn yrði að koma fram með
ákveðnar tillögur um aðgerðii- af
hálfu ESB.
Fatchett fór fyrir nefndinni þar
sem Bretar fara nú með forsæti í
ESB, en auk hans voru í nefndinni
aðstoðarutanríkisráðherrar írá Lúx-
emborg og Austurríki. „Við viljum
veita alla þá aðstoð sem við getum.
Þeir verða að segja okkur hvað þeir
vilja að við gerum,“ sagði Fatchett.
Stjórnvöld í Alsír hafa hafnað til-
boðum um alþjóðlega rannsókn á
voðaverkunum í landinu og einnig
tilboðum um neyðaraðstoð. Segjast
þau helst vilja að Evrópuríki beiti
sér gegn samtökum útlægra, bók-
stafstrúaðra múslima sem stjórnvöld
segja starfa í evrópskum borgum.
Nefndarmenn áttu fundi með ráð-
herrum, stjórnarandstöðuliðum og
ritstjórum nokkurra dagblaða.
Reuters
AHMED Attaf, utanrfldsráðherra Alsírs, annar frá vinstri, andspænis
sendinefnd ESB á fundi í Alsír.
Reka verka-
menn úr
landi til að
skapa störf
Bangkok. Daily Telegraph.
YFIRVÖLD í Tælandi og Malaysíu
ráðgera að vísa allt að tveimur millj-
ónum ólöglegra erlendra verka-
manna úr landi í þeim tilgangi að
skapa fleiri atvinnutækifæri fyrir at-
vinnulausa landsmenn sína.
Chuan Leekpai, forsætisráðherra
Tælands, sagði ráðstöfun af þessu
tagi nauðsynlega vegna fjár-
málakreppunnar í Asíu. I landinu
eru 1,8 milljónir atvinnuleysinga og
sagði hann að ráða mætti bót á því
með því að losa landið við ólöglega
verkamenn, sem hann segir fylla
milljónina, fyrir árslok 1999.
Chuan kynnti áform þar sem gert
er ráð fyrir að vísa 300.000 verka-
mönnum úr landi í fyrsta áfanga.
Verða þeir sendir til heimkynna
sinna í fátækum grannríkjum,
Búrma, Kambódíu, Bangladesh og
Indónesíu. Hið kaldhæðnislega er,
að verkamenn af þessu tagi skópu
undirstöður þess viðskiptaveldis
sem þessi ríki hafa státað af. Og þeir
höfðu það gott því ólöglegir
indónesískir byggingaverkamenn í
Kúala Lúmpúr þénuðu tíu sinnum
meira en heima.
Verkamennirnir skapa nú vissan
vanda því ríki Suðaustur-Asíu hafa
heitið að reyna að standa efnahags-
örðugleika af sér sameiginlega. Með
því að senda þá heim gæti sú sam-
staða riðlast og leitt til óróa.
En Tælendingar hyggjast ekki
aðeins senda ólöglega verkamenn
heim, heldur hyggjast þeir ekki end-
urnýja atvinnuleyfi um 300 þúsund
manna, þar af 70 þúsund verk-
menntaðra.
Karlinn
í gæslu
London. Reuters.
STJÓRNENDUR breskrar
verslunarmiðstöðvar hafa
ákveðið að koma til móts við þá
fjölmörgu karlmenn sem
dregnir eru nauðugir viljugir
með í verslunarferðir, og hefur
opnað karlahorn. Það er um
margt líkt barnagæslu sem er
að finna í mörgum stærri
verslanamiðstöðvum, nema
hvað karlarnir leika sér í tölv-
um, horfa á fótbolta í stað
teiknimynda og drekka bjór.
Ætlun yfirmanna verslunar-
miðstöðvarinnar er að „draga
úr neikvæðu viðhorfi karla
gagnvart innkaupum". Segii-
Nick Thornton, talsmaður Blu-
ewater-verslunarmiðstöðvar-
innar sem verður opnuð á
næsta ári í Kent, að sumir
karlar séu líkastir smábörnum
og að flest hjón muni geta
staðfest það. Hugmyndin að
karlahorninu hafi kviknað eftir
að könnun hafi leitt í ljós að
önnur hver verslunarferð
hjóna endi með rifrildi.
Pottaplöntu-
UTSALA
- allt að
50%
afsláttur.
Verðdœmi:
Ástareldur
Prúmúla
Piparskott
Aspas
Friðarlilja
Jukka
Fíkus
Gullpálmi
Bergpálmi
Alparós
Drekatré
Diffenbachía
Burkni
Gúmmítré
Stofuaskur
Friðarlilja (stór)
nú áður
189,- MÍ8,-
199,- >28S,-
- MS4,-
M
299,- ^98,-
359,- ^92,-
369,- -^55,-
399,-
399,-
399,-
399,-
wm
ím
#■
8,
Drekátré
100 sm.
kr» 990,<
Fíkus 100 SM.
ktf. 990,-
Fíkus 120 SM.
kKl.190,-
489,-
»yfÍ8,-
>(Í98,
e-'
: '
... og tugir annara tegunda