Morgunblaðið - 22.01.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 11
FRÉTTIR
Formaður félags hjúkrunarfræðinga gagnrýnir ummæli fjármálaráðherra um launamun kynjanna
Heldur nöturleg
skilaboð til kvenna
ÁSTA Möller, foi-maður Félags ís-
lenskra hjúki-unarfræðinga, hefur
gagnrýnt ummæli Friðriks Soph-
ussonar fjármálaráðherra í Morg-
unblaðinu á þriðjudag um að þegar
rætt væri um að draga úr launa-
mun kynjanna væri átt við muninn
innan stéttar, en ekki milli stétta
og sagði að þetta væru „heldur nöt-
urleg skilaboð til kvenna“.
Ásta hefur óskað eftir fundum
með borgarstjóra, fjármálaráð-
herra og heilbrigðisráðherra vegna
þessara mála og hyggst hún meðal
annars krefjast svara um það
hvernig eigi að fylgja eftir yfirlýs-
ingu, sem gefin var um að draga
bæri úr launamun milli kynjanna í
kjarasamningnum við hjúkrunar-
fræðinga um mitt síðasta ár.
„Hann er í raun að segja að kon-
ur, sem fara í langt og strangt
nám, og gegna ábyrgðarmiklum
störfum, geti ekki vænst þess að fá
hærri laun fyrir vinnu sína nema
þær fari í hefðbundin karlastörf,"
sagði Ásta um yfirlýsingu fjár-
málaráðherra. „Það finnast mér
vera heldur nöturleg skilaboð til
kvenna. I gegnum tíðina hafa hefð-
bundin störf kvenna á borð við
hjúkrun veríð vanmetin til launa og
ráðherra hefur oft sagt að viðhorfs-
breytingu þurfi til að jafna stöðu
karla og kvenna. En með þeim orð-
um að markmiðið sé ekki að bera
saman milli stétta laun karla og
kvenna með sambærilega ábyrgð
er hann ekki að ýta undir viðhorfs-
breytingu heldur þvert á móti að
viðhalda gildandi viðhorfum."
Friðrik sagði í samtalinu við
Morgunblaðinu á þriðjudag, að það
væri augljóst að læknar fengju
meira en hjúkrunarfræðingar sam-
kvæmt síðustu kjarasamningum og
bilið breikkaði milli stéttanna, en
þegar talað hefði verið um að
draga úr launamun milli karla og
kvenna hefði verið átt við að
„minnka muninn milli kynjanna
innan stéttar, þar sem fólk hefði
farið í sama nám og ynni sams kon-
ar vinnu“.
Ásta sagði að fjármálaráðherra
væri að vísa til yfirlýsingar, sem
hefði verið undirrituð við gerð
kjarasamnings í júní á liðnu ári.
Hann virtist túlka hana svo að ekki
ætti að draga úr launamun milli
stétta heldur innan stétta.
I yfirlýsingunni segir að það sé
„yfirlýst stefna ríkis og Reykjavík-
urborgar að jafna þann launamun
karla og kvenna, sem ekki [sé]
hægt að útskýra nema á grundvelli
kyns“. Síðan er bætt við: „Með
nýju launakerfi er hægt að vinna
að þeim markmiðum. Með það í
huga munu fjármálaráðherra og
Reykjavíkurborg láta gera úttekt á
áhrifum nýs launakerfis á launa-
mun karla og kvenna starfandi hjá
stofnunum sínum á samningstíma-
bilinu."
Ásta sagði að þessi yfirlýsing
hefði verið gefin út vegna þrýst-
ings félags hjúkmnarfræðinga.
Hún hefði síðan birst í þeim samn-
ingum háskólamanna, sem voru
undirritaðir á eftir samningum
hjúkrunarfræðinga.
Ljóst við hvað var átt
„Það var alveg ljóst við samn-
ingsborðið við hvað var átt þama,“
sagði hún. „Við höfðum ekki haft
áhyggjur af launamun karla og
kvenna innan hjúkrunarfræðinga-
stéttarinnar, enda eru 98% hjúkr-
unarfræðinga konur. Við höfðum
hins vegar miklar áhyggjur af því
að þetta nýja launakerfi myndi
leiða til aukins launamunar milli
karla og kvenna í þjóðfélaginu og
þá ekki síst milli karla- og kvenna-
stétta.“
Ásta sagði að jafnréttislögin
gerðu beinlínis ráð fyrir því að laun
ólíkra starfshópa yrðu borin saman
með það í huga að karlar og konur
skyldu njóta sömu kjara fyrir jafn
verðmæt og sambærileg störf.
Hún benti á að bæði borgarstjóri
og fjármálaráðherra hefðu haft það
á stefnuskrá sinni að jafna launa-
mun karla og kvenna og því hefði
þessi yfirlýsing um að nýja launa-
kerfið yrði notað til að vinna að því
markmiði að draga úr launamun
kynjanna verið knúin fram. Allir
hefðu vitað að ekki væri átt við að
skoða bæri launamun innan stétt-
arinnar.
Hugðust frá upphafi
skoða heildina
„Við fórum inn í þetta launa-
kerfi með það í huga að það yrði
almennt skoðað yfir heildina að
jafna launamun karla og kvenna
og þá eigi að skoða starfshópa
milli stétta og greiða þeim laun,
sem miðast við menntun, sérhæfni
og ábyrgð," sagði hún. „Um leið
yrði notað tækifærið til þess að
skoða launamun milli meðal ann-
ars hefðbundinna karla- og
kvennastétta."
Ásta sagði að ekki mætti skilja
orð sín svo að hjúkrunarfræðingar
væru að mótmæla því að laun
lækna hækkuðu. „Þvert á móti
fögnum við því að læknar fengu
hækkun á launum sínum, en jafn-
framt viljum við bera saman laun
milli starfa, sem fylgir svipuð
ábyrgð innan þessara stétta og við
krefjumst skýringa á þessum
mikla launamun."
Launamunur sagður hafa
aukist á SHR
Að sögn Ernu Einarsdóttur,
hjúkrunarframkvæmdastjóra
slysa- og bráðasviðs Sjúkrahúss
Reykjavíkur, er talsverður launa-
munur milli karla og kvenna á
sjúkrahúsinu. Hún situr í jafn-
réttisnefnd sjúkrahússins, sem
vinnur nú að gerð starfsáætlunar í
jafnréttismálum samkvæmt beiðni
borgarstjórnar, og sagði hún að
margt benti til þess að launamun-
ur milli kynja hefði aukist á
sjúkrahúsinu á undanförnum ár-
um.
Faxafeni 5 • 108 Reykjavik
Sími: 568 2277 • Fax: 568 2274
Aukið samstarf SBS
og Austurleiðar
Breytt uppsetning
framtalseyðublaða
NOKKRAR breytingar hafa verið
gerðar á skattframtali lands-
manna. Framtalseyðublöð verða
send út frá skattstofum um helg-
ina.
Ástæðan fyrir breytingunum er
tvíþætt. I fyrsta lagi kallar upp-
taka fjármagnstekjuskatts á
breytta uppsetningu og í öðru lagi
hefur allri úrvinnslu við skatt-
framtöl verið breytt og nú eru þau
skönnuð í tölvu.
Hagræðing með
breyttu framtali
Skattframtalið hefur hingað til
verið sent í formi fjórblöðungs en
nú verður það á lausum blöðum.
Hjón fá þrjú A-4-blöð og einhleyp-
ingar tvö. Hjón fá hvort sína for-
síðu og tekjusíðu en sameiginlega
síðu yfir fjármagnstekjur, eignir
og annað sem því tengist. Hrefna
Einarsdóttir, deildarstjóri
fræðsludeildar embættis ríkis-
skattstjóra, segir að framtalið
muni berast í umslagi og æskilegt
sé að fólk sendi það til baka í sama
umslagi. Mikilvægt sé að fólk
brjóti blöðin ekki saman, lími þau
hvorki né hefti, því þá verði erfið-
ara að vinna úr þeim.
Fólk kynni sér breytingar
Hrefna telur uppsetningu fram-
talsins aðgengilega fyrir framtelj-
endur en samtölureitum hefur ver-
ið fækkað. „Nýjum eyðublöðum
mun fylgja veruleg hagræðing. Til
dæmis geta foreldrar sótt um
lækkun skatts á framtalinu vegna
ungmenna á aldrinum 16 til 21 árs,
sem eru tekjulág eða í skólum. Þeir
sem greiða vaxtagjöld vegna íbúða
til eigin nota geta fært gjöld beint
á framtalið. Þannig munu margir
geta sparað sér sérstakt eyðublað,"
segir Hrefna.
Fjármagnstekjur eru nú skatt-
lagðar í fyrsta skipti. Hrefna segir
nauðsynlegt að fólk kynni sér
hvernig þær séu skráðar á fram-
talið. „Hér er átt við allar vaxta-
tekjur eftir 1. janúar 1997. Einnig
þarf fólk að varðveita kvittanir
vegna staðgreiðslu og gæta þess
að færa hana á framtal. Annars
kemur hún ekki til lækkunar á
reiknuðum skatti."
Hrefna segir að á næstu árum
sé stefnt að því að einfalda fram-
talsgerð fyrir einstaklinga þannig
að skattyfirvöld sendi þeim áritað-
ar upplýsingar sem þau hafi í sín-
um fórum. Til dæmis um launa-
greiðslur, tryggingabætur, lífeyr-
issjóðsgreiðslur og fasteignamat.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
STARFSMENN Skattstofunnar í Reykjavík unnu við það í gær að flokka framtölin og setja þau í kassa. Síðan
verða þau sett í umslög og dreift þannig á næstu dögum.
Skattframtalið sent til landsmanna um næstu helgi
TVEIR stórir hluthafar í SBS hf. á
Selfossi hafa nýverið selt hluti sína
Austurleið hf. og Kynnisferðum sf.
Með þessum breytingum má búast
við aukinni samvinnu SBS og Aust-
urleiðar og áfram mun standa sam-
vinna við Kynnisferðir sem verið
hefur um árabil.
Hluthafamir tveir, Steinn Her-
mann Sigurðsson og Guðmundur
Jónasson hf., áttu samtals 58%
hlutafjár. Eftir breytinguna eru
hluthafar SBS hf. samtals 26. Eiga
Austurleið hf., Kynnisferðir sf., Ein-
ar Valdimarsson og Þórir Jónsson
samanlagt 85% hlutafjár en aðrir
hluthafar eru einkum hreppar, fé-
lagasamtök og einstaklingar á Suð-
urlandi.
SBS hf. annast sérleyfisakstur í
Árnessýslu og fer átta ferðir á dag
frá Reykjavík til Hveragerðis og Sel-
foss auk þess sem tengingar eru við
áætlunarferðir til annarra byggðar-
laga. Þá stundar fyrirtækið hóp:
ferðaakstur. Starfsmenn eru 15. í
eigu SBS hf. eru nú 18 hópferðabílar
af ýmsum stærðum. Skrifstofa fyrir-
tækisins og verkstæði eru í eigin
húsnæði við Eyraveg 33 á Selfossi.
Höfum fengið nokkur viðbótarhús á Los Parrales
á Kanaríeyjum í Maspaomashverfinu.
Frábær gisting á góðum stað.
Verð frá
.IW. WIN*
miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára í 28 nætur.
Ef 2 saman þá 92.9CC
Innifalið i verðinu er flug, ferðir til og frá flugvelli,
gistíng, flugvallaskattar og islenskur fa ra rstjóri.
í jcrxiúcrt', QébVÚar Ofy tQarS.
Verð frá
miðað er við ferð sem innifelur aðfaranótt sunnudags
og að 2 ferðist saman í bíl.
Innifalið er flug, bílaleigubfll i 3 daga í A flokki
og flugvallaskattar.
VISA
Lh
Verð frá
I
miðað er við ferð sem innifelur aðfararnótt sunnudags
og að 2 ferðist saman.
Innifalið er flug bílaleigubíl í3 daga í A flokki
og flugvallaskattar.
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum