Morgunblaðið - 22.01.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 23
Listin að
leika Liszt
Ungverski konsertpíanistinn Jenö Jando
ræðst ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Islands í Háskólabíói í kvöld - mun flytja
báða píanókonserta landa síns Franz Liszt.
Orri Páll Ormarsson hafði tal af Jando sem
leikið hefur víða á ferlinum, meðal annars
inn á fjölmargar geislaplötur fyrir Naxos.
FYRSTI píanókonsert Franz Liszt
er mikið verk. Annar konsertinn er
það líka. Svo sem ekki að undra því
Liszt var ekki einungis eitt fram-
sæknasta tónskáld 19. aldarinnar,
heldur jafnframt einn mesti píanó-
sniilingur sem sögur fara af - sann-
kallaður virtúós. „Það er sem hljóð-
færið glói í höndum þessa meist-
ara,“ sagði sjálfur Robert
Schumann eftir að hafa hlýtt á Liszt
árið 1840 á tónleikum þar sem
„hann réð fullkomlega yfir tilfinn-
ingum viðstaddra og lék sér með
þær eins og honum sýndist".
En með hvaða hætti nálgast
konsertpíanistar verk þessa mikla
meistara í nútímanum? Vakir hann
ekki yfir þeim? „Vafalaust gerir
hann það,“ segir Ungverjinn Jenö
Jando sem ræðst í það þrekvirki að
leika báða píanókonserta landa síns
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Islands í kvöld, „og auðvitað leitast
ég við að vera þessum mikla snillingi
tnir. Annars er erfitt að gera grein
fyrir því hvert hugarástand manns
er þegar á hólminn er komið - þess
vegna er best að láta verkin tala!“
Það er ekki á hverjum degi sem
sami einleikari flytur fleiri en einn
konsert á sömu sinfóníutónleikun-
um hér á landi. Er þetta háttur sem
Jando hefur tamið sér? „Nei, því fer
víðsfjarri. Eg hef einungis einu
sinni áður flutt báða píanókonsert-
ana hans Liszt á sömu tónleikunum.
Það var í Mílanó árið 1986, á hund-
rað ára ártíð tónskáldsins. Þegar
Sinfóníuhljómsveit Islands stakk
upp á þessu leist mér aftur á móti
strax vel á hugmyndina, enda er
þetta kjörið tækifæri fyrir tónlistar-
áhugamenn að bera þessi tvö frá-
bæru verk saman.“
Glíman endalausa
En er þetta ekki erfitt? „Jú,
biddu íýrir_ þér! Þetta er mikil
þrekraun. Eg þekki verkin hins
vegar mjög vel og svo fæ ég nátt-
úrulega pásu á milli konserta," seg-
ir Jando og skellir upp úr. „Nei, í
fullri alvöru þá skiptir það sköpum,
ekki bara fyrir mig heldur áheyr-
endur líka. Píanókonsertar Liszt
eru ekki auðmelt tónverk."
Já, það má með sönnu segja að
þessi 45 ára gamli tónlistarmaður sé
ekki að koma að píanókonsertum
Liszt í fyrsta skipti. „Liszt er eðli
málsins samkvæmt í hávegum hafð-
ur í heimalandi mínu og þar sem ég
þótti snemma valda tæknilega efið-
um verkum fékk kennari minn mér
Píanókonsert nr. 2 þegar ég var
fimmtán ára, með orðunum:
„Lærðu þetta!“ Þar með var glíma
mín við Liszt hafin - glíma sem
aldrei mun taka enda.“
Ari síðar innritaðist Jando í
Franz Liszt-tónlistarháskólann í
Búdapest og það var á þeim vett-
vangi sem hann flutti konsertinn
íyrst opinberlega, studdur af kenn-
ara sínum. Hvenær hann flutti
verkið fyrst með hljómsveit man
Jando ekki en það hefur hann gert
ótal sinnum - eins Píanókonsert nr.
1, sem hann lærði skömmu síðar.
„Bæði eru þessi verk makalausar
tónsmíðar og ég finn alltaf eitthvað
nýtt í þeim í hvert einasta skipti
sem ég leik þau. Það er einkenni
auðugrar tónlistar!“
Jando segir að Liszt sé tvímæla-
laust í hópi sinna eftirlætis tón-
skálda. I þeim góða hópi er þó fleiri
nafnkunna menn að fmna:
Schubert, Mozart, Beethoven,
Brahms og Haydn. Píanóleikarinn
kveðst ekki gera upp á milli þessara
manna, ekki frekar en skeiða í tón-
listarsögunni. „Þetta eru ólík tón-
skáld, með ólíkan stíl, auk þess sem
þau voru uppi á ólíkum tímum. Að
mínu viti er affarasælast fyrir tón-
listarmenn að finna lykilinn að
hverju þeirra um sig, aðeins þannig
geta þeir opnað eyru áheyrenda
sinna. Að öðrum kosti dylst öllum
að þeir hafi eitthvað „að segja“.“
Hundrað geislaplötur
Jando hefur verið önnum kafinn
konsertpíanisti í liðlega tvo áratugi
Dansfrædafélagi
komið á fót
ÍSLENSKA dansfræðafélagið var
stofnað í Reykjavík 18. janúar sl.
Hlutverk félagsins er að gefa fræði-
mönnum um dans tækifæri til að
skiptast á skoðunum og kynnast
fleh-i sviðum dansins en sínum eigin,
kynnast verkum annarra og kynna
eigin verk, jafnt innan félagsins sem
utan. Markmið félagsins er m.a. að
efla fræðilega þekkingu á dansi,
stuðla að dansrannsóknum, kynna
rannsóknaraðferðh' og nýjungar
þeim tengdar, stuðla að dansmennt
sem valgrein í námi grunnskóla-
kennara, vinna að varðveislu heim-
ilda um dans og stuðla að faglega
skipulögðum dansrannsóknum inn-
anlands og í samvinnu við aðrar
þjóðh', segir í fréttatilkynningu frá
félaginu.
Jafnframt segir að félagið láti sig
vai'ða helstu svið dans s.s. listdans,
nútímadans, skapandi dans, dans-
mennt, þjóðdansa, gamla dansa, al-
mennings- og samkvæmisdansa. Fé-
lagar geta allir orðið sem hafa fræði-
lega og/eða faglega þekkingu á dansi
og hafa áhuga á dansrannsóknum og
fræðilegri umfjöllun um dans.
Á stefnuskrá félagsins er m.a. að
stuðla að danskennslu sem skyldu-
grein í grunnskólum og að standa
fyrir fyrirlestrum um dansfræði.
Hægt er að gerst stofnfélagi fram tU
1. júlí 1998.
Formaður íslenska dansfræðafé-
lagsins er Sigríður Valgeirsdóttir.
Aðrir í stjórn eru Bára Magnúsdótt-
ir, Guðbjörg Arnardóttir, Ingibjörg
Björnsdóttir og Örn Guðmundsson.
Morgunblaðið/Kristinn
LISZT hljómar í Háskólabíói. Jenö Jando er við píanóið og í bakgrunni
mundar En Shao tónsprotann.
og síðustu árin hefur hann einnig
getið sér gott orð fyrir fjölmargar
hljóðritanir sem Naxos hefur gert á
leik hans. Telst honum til að hann
hafi leikið inn á meira en eitt hund-
rað geislaplötur á undanförnum tíu
árum. Meðal efnis á plötunum eru
verk eftir Beethoven, Mozart,
Schubert, Haydn, Schumann, Gri-
eg, Brahms og Rakhmanínoff. Pí-
anókonsertar Liszt bíða á hinn bóg-
inn enn síns tíma.
Segir Jando þetta mynstur eiga
vel við sig, það er að leika jöfnum
höndum á tónleikum og í hljóðveri,
en þess er enn ógetið að hann er
virkur kammertónlistarmaður og
hefur haldið stöðu sinni sem pró-
fessor við tónlistarháskólann í Búda-
pest frá því hann lauk þar námi árið
1974. „Mér finnst mér hafa tekist
að finna jafnvægi milli tónleika-
halds og hljóðversvinnu og á
þessum tímapunkti vildi ég hvor-
ugu fórna - ekki fyrir nokkum
mun.“
Að áliti Jandos er helsti kostur-
inn við upptökurnar lærdómur -
hann hafi lært ótrúlega mikið á
þessu „hljóðversbrölti" sínu. Aftur á
móti geti hljóðversvinnan aldrei
komið í staðinn fyrir tónleika, það
liggi svo mikill sköpunarkraftur í
návíginu við áheyrendur.
En hvernig hefur maðurinn tíma
til að kenna og fást við kammertón-
list samhliða þessu öllu? „Ég bý til
tíma,“ segir hann og er snöggur til
svars. Síðan hlær hann. Þegar hann
tekur upp þráðinn kveðst hann
verða að gefa sér tíma til að sinna
nemendum og músísera með félög-
um sínum. „Það er of mikil næring í
þessum anga á meiði tónlistarinnar
til að láta hann liggja á milli hluta.
Því er aftur á móti ekki að leyna að
það kæmi sér stundum vel að
klukkustundirnar í sólarhringnum
væru fleiri en 24!“
Stjórnandi kvöldsins verður Kín-
verjinn En Shao sem verið hefur
eftirsóttur starfskraftur víða um
heim í áratug og stjórnað mörgum
af þekktustu hljómsveitum Evr-
ópu. Þá starfar hann mikið í
Bandaríkjunum, Kanada ogÁstral-
íu.
Auk konserta Liszt verða á efnis-
skránni Dansar frá Galanta eftir
Zoltan Kodály og Margslungni
Mandaríninn eftir Béla Bartók, en
tónskáldin eru, líkt og Liszt og
Jando, fædd í Ungverjalandi.
NETFÖNG
OG
VEFFONG
í SÍMASKRÁ 1998
I Símaskrá 1998 geta
fyrirtæki og einstaklingar
í fyrsta sinn skráð
netföng t.d. (simaskra@simi.is) og
vefföng t.d. (http://www.simi.is)
, 11 f 11 " | i, .661 2935 I
Jón K. Ogmu TSs 1234 f
lA^aa^in-ráðoiöf Hagamel \
" -Netfang:.........1°®'^^ 7»qi
Jón OrvarssoTi 6nrosgotu . *
.. t Nf |( |L)m f III1 f 1 ***™*^*^*«^**
Nánari upplýsingar veitir skráningardeild Landssíma
íslands í síma 550 6620. Netfang: simaskra@simi.is ^,
Eyöublöö liggja einnig frammi á afgreiðslustöðum
íslandspósts og Landssíma íslands . LANDSSÍMINN