Morgunblaðið - 22.01.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 41
MINNINGAR
SIGURÐUR ARON
ÁLFSSON
+ Sigurður Aron
Álfsson fæddist í
Reykjavík 1. maí
1918. Hann lést á
heimili sínu hinn 13.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Magn-
úsdóttir og Álfur
Arason. Sigurður var
næstelstur ellefu
systkina.
Hinn 2. desember
1950 kvæntist Sig-
urður Guðninu Jóns-
dóttur, f. 26.5. 1918 í
Loðmundarfirði, en
hún lést 17. mars síðastliðinn.
Þau bjuggu alla tfð í Reykjavík
og eignuðust tvö
börn, Jón Friðrik, f.
21.5. 1951, og Álf-
rúnu, f. 17.9. 1955.
Maki Jóns Friðriks er
Ásrún Matthíasdóttir
og eiga þau Ara og
Ásrúnu. Maki Álfrún-
ar er Jón Kristinn
Cortes og eiga þau
Rúnu Dögg og Hildu
Hrund og eitt barna-
barn, Sögu. Sambýlis-
maður Rúnu Daggar
er Guðni Gunnarsson.
títför Sigurðar
Arons fer fram frá
Bústaðakirkju i dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elsku afi, nú ert þú kominn til
ömmu og þarft ekki að vera veikur
lengur. Við vildum hafa þig lengur
hjá okkur því það var svo gott að
geta heimsótt þig. Það var alltaf
gaman að koma til ykkar ömmu, þú
varst að hlusta á tónlist meðan
amma spilaði við okkur. Operur og
einsöngslög voru uppáhaldið þitt og
þegar þú tókst undir þá fórum við
stundum að hlæja því þú breyttist
allt í einu í stórsöngvara. Þegar það
kom kvöldmatur bjóstu til fiskiboll-
urnar góðu, þú kunnir það utanað
þótt þú sæir kannski ekki nógu vel
hvað þú varst að gera.
Þegar við áttum aftnæli þá bak-
aðir þú fullt fat af pönnukökum og
komst með og allir gestirnir sögðu
að þetta væru bestu pönnukökur í
heimi. Við tefldum saman og horfð-
um á enska fótboltann. Þú leyfðir
okkur að sofa í rúminu hjá ömmu
þegar við gistum og svafst sjálfur í
sófanum þó að það færi örugglega
ekki vel um þig þar. Ef við vorum
veik þá komuð þið amma í leigubíl í
Hafnarfjörðinn til að hugsa um
okkur, þið vilduð alltaf gera allt fyr-
ir okkur. En núna eruð þið allt í
einu bæði farin. Hver á nú að vera
hjá okkur á jólunum, hver á að elda
rjúpurnar og hver á að baka pönnu-
kökur í aftnælin okkar? Við vitum
að þú gast ekki verið hjá okkur
lengur afi, en við munum ekki
gleyma þér og öllu því góða sem við
gerðum saman.
Hans vegur
er væng
haf
og geiminn
þérguð
gaf
umeilífð
semeinn
dag
hans frelsi
er faðm
lag.
(Ingimar Erlendur Sigurðsson.)
Elsku afi, við söknum þín, en við
vitum að þér líður vel hjá ömmu.
Kveðja frá
Ara og Ásrúnu.
Ég þekkti Sigurð Álfsson í
rúman mannsaldur. Hann var af
þeirri kynslóð íslendinga sem
kynntist hvað mestum breytingum
í þjóðlífinu, af þeirri kynslóð er
þurfti að hafa fyrir lífinu; stutt
skólaganga og snemma til vinnu til
að hjálpa foreldrum með
barnmarga fjölskyldu. Hann var af
þeirri kynslóð er þoldi kreppuna og
mátti þola skömmtunartímann, þá
kominn með fjölskyldu. Hann var
af þeirri kynslóð er byggði sjálfur
húsið sitt frá grunni með
útsjónarsemi og sparnaði. Hann
var af þeirri kynslóð er gerði
okkur, sem nú erum á miðjum
aldri, kleift að lifa góðu lífi. Hann
var af þeirri kynslóð er tók skyldur
sínar gagnvart fjölskyldu sinni
alvarlega og getur litið yfir farinn
veg og verið stolt af.
Engar lýsingar á prenti jafnast á
við að heyra sögu þessarar
kynslóðar af munni hennar sjálfrar,
þó í smáskömmtum væri, því Siggi
var ekki margmáll. Við það sá
maður stundum hluti hversdagsins
í öðru Ijósi en áður og getur lært af
reynslunni. Sem ljúfur tengdafaðir
var hann ávallt búinn til hjálpar,
hversu lítið eða stórt sem verkið
var, hvort sem var við húsbyggingu
eða garðvinnu þegar við dóttir hans
vorum búin að róta upp lóðinni í
kringum húsið hans við að byggja
við og ofaná.
Þegar nú afi Siggi og amma
Rúna eru burtkölluð, er okkar, sem
erum næsta kynslóð, að axla
ábyrgðina gagnvart börnum okkar
og bamabömum. Ég vona að mér
takist jafnvel og Sigurði Álfssyni.
Jón Kristinn.
Elsku afi. Það er skrítin tilhugs-
un að þú sért ekki lengur í húsinu
hjá okkur. Það er yndislegt að hafa
alist upp í návist ykkar ömmu og
eru minningarnar margar og góðar.
Það verður erfitt að venjast því að
heyra þig ekki syngja með uppá-
halds óperunum þínum eða sinna
öðmm áhugamálum í rólegheitum.
Við völdum handa þér ljóð sem
okkur finnst eiga vel við þig.
Hjarta þitt var Wýtt og gott,
hugurinn rór og mildur,
fas þitt ailt bar fagran vott
um fómarlund og skyldur
(Valgeir Helgason)
Við elskum þig, afi.
Rúna Dögg og Hilda Hrund.
SKÚLI
SIG URBJÖRNSSON
+ Skúli Sigurbjörnsson var
fæddur á Blönduósi hinn 18.
mars 1923. Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 11. janúar síð-
astliðinn og fór útför hans fram
frá Grensáskirkju 20. janúar.
Hinn 11. janúar fékk ég símtal til
Noregs þar sem ég er búsett. Hann
afi var dáinn. Hann afi minn sem
kvaddi mig um jólin og spurði
hvenær við kæmum næst heim til
íslands. Tíminn stöðvaðist, tárin
hrundu, og minningarnar þeystu
um hugann. Þegar ég var lítil og lá
með flensu var alltaf hringt í
Hreyfil og beðið um skilaboð fyrir
242, að hún Dabba væri lasin. Það
leið ekki á löngu þar til afi hringdi
eða var mættur með kók og prins
handa litlu afastelpunni sem lá og
vorkenndi sjálfri sér. Stundum fór-
um við í fræðslubfltúra eins og ég
kallaði það, þá spurði afi mig um
nöfn á öllum mögulegum höfuð-
borgum, eða að við æfðum okkur í
ensku. Hann var mjög nákvæmur á
dagsetningar, og skrifaði alla við-
burði niður í litlu bókina sína. Einu
sinni keypti hann sér bfl, og kaupin
voru miðuð við afmælisdaginn minn.
Afmælisdagurinn minn var einnig
sá dagur þegar íbúðin á Lindargöt-
unni var keypt. Svo það var ekki
skrítið að mér fyndist ég vera
afastelpa sem átti heimsins besta
afa. Þegar ég sjálf gifti mig var það
hann afi sem læddi kampavíni og
konfekti inn í ísskápinn okkar.
Þrátt fyrir að ég sé fullorðin í dag
og eigi mann og tvö börn, þá fékk
ég alltaf að vera litla stelpan hans
afa. í vor þegar ég fór til afa og
ömmu og sagði þeim frá að ég hefði
náð prófum í skólanum úti fékk ég
verðlaun fyrir hvað ég hefði verið
dugleg. Og það er svo gott að fá
stundum að vera lítill þótt maður sé
orðinn stór, að fá að finna fyrir
barninu í sjálfum sér. Það er svo
sárt og svo tómlegt að missa heims-
ins besta afa sem varð líka heimsins
besti langafi. Þín verður saknað
sárt.
Elsku amma Bubba, við sendum
þér okkar innilegustu samúðar-
kveðjur, bömum hans, og öllum
öðrum sem unnu honum. Og vonum
að trúin á Guð geti gefið okkur öll-
um þann sama styrk og huggun í
sorginni eins og trúin gaf afa styrk
á sinni lífsleið.
„Þú gekkst út um dymar sem þú
þekktir - lífinu - og komst að inn-
ganginum að því óþekkta - dauðan-
um. Þetta er mér ráðgáta, því ég
veit ekki - en vil vita, skil ekki - en
vil skilja, örvænti og græt.
Ég veit í hjarta mínu að þú vissir
og þú skildir. Þú vissir að Guð biði
handan við það óþekkta."
Elsku afi, takk fyrir allt, þú varst
alvöm og ekta.
Dagbjört Lilja Kjartans-
dóttir og fjölskylda.
Erfidrykkjur
írjíírjííjur
Upplvsingar í símum
562 7575 & 5050 925
Q '%
| I
| HOTEL LOFTLEIÐIR
I I C 1 L A " p * I «_H O T « t «
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
KRISTJÁN JÓELSSON
byggingameistari,
Sléttuvegi 13,
áður til heimilis
á Snorrabraut 71,
Reykjavík,
er lést mánudaginn 12. janúar sl. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, föstudaginn 23. janúar kl. 13.30.
Unnur Vilhjálmsdóttir,
Sveinbjörn Kristjánsson, Arnbjörg Óladóttir,
Elin Kristjánsdóttir, Teitur Lárusson,
Hörður Kristjánsson, Ólöf Antonsdóttir,
Sigríður Kristjánsdóttir, Sveinbjörn Ævarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SJÖFN ÞORGEIRSDÓTTIR,
Flúðaseli 89,
verður jarðsungin frá Seljakirkju á morgun,
föstudaginn 23. janúar, kl. 13.30.
Hafsteinn Gunnarsson,
Anna Guðrún Hafsteinsdóttir, Gunnar Þór Geirsson,
Elsa Hafsteinsdóttir,
Ingi Þór Hafsteinsson, Ragnhildur Anna Jónsdóttir,
Hrönn Hafsteinsdóttir, Jón Ingi Gislason,
barnabörn og bamabarnabörn.
+
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JENS GUNNAR PÉTURSSON,
Kvíabólsstfg 4,
Neskaupstað,
sem léstá Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað laugardaginn 17. janúar,
verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 24. janúar kl. 11.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Alfa Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og dótturdætur.
i
i
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
INGIGERÐAR PÉTURSDÓTTUR,
Vindheimum,
Skagafirði.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks krabba-
meinsdeildar Landspltalans.
Guð blessi ykkur.
Sigmundur Magnússon,
Anna Sigriður Sigmundsdóttir, Einar Ólafsson,
Magnús Sigmundsson, Lut Dejonghe,
Pétur Gunnar Sigmundsson, Jóhanna Sigurðardóttir,
Sigurður Rafn Sigmundsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengda-
móður og ömmu,
SIGRÚNAR Ó. ÁSGRÍMSDÓTTUR,
Bylgjubyggð 12,
Ólafsfirði.
Guð þlessi ykkur öll.
Egill Sigvaldason,
Guðbjörg Jóhannesdóttir,
Árni Björnsson,
Jóhannes Egill Árnason.