Morgunblaðið - 22.01.1998, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998 45
í
I
I
I
i
;
I
I
l
i
I
i
l
i
l
j
j
í
l
;
I
Opnir
fundir hjá
R-list-
anum
OPNIR kynningarfundir með
frambjóðendum í prófkjöri Reykja-
víkurlistans verða haldnir í Póst-
hússtræti 13 í þessari viku. Haldnir
verða fjórir fimdir og mæta sjö
frambjóðendur til leiks á hverjum
þeirra.
Fundaröðin hófst í gærkvöldi í
prófkjörsmiðstöðinni Pósthús-
stræti 13 og hefjast fundirnir kl.
20.30. Fundirnir eru öllum opnir og
á þeim gefst gott tækifæri til þess
að ræða við frambjóðendur um
málefni borgarinnar og kynna sér
áherslur þeirra.
Aðrir fundir verða í kvöld kl.
20.30 og á laugardag og sunnudag
kl. 15.
Rfldsstjórnin selji
Fj árfestingabankann
STJÓRN sambands ungra sjálf-
stæðismanna hvetur ríkisstjómina
til þess að selja, svo fljótt sem auðið
er, hinn nýstofnaða Fjárfestinga-
banka atvinnulífsins.
„Fjárfestingabankanum var sam-
kvæmt heimild Alþingis, haslaður
rúmur starfsvettvangur og hefur nú
komið á daginn að forsvarsmenn
bankans hyggjast nýta sér það svig-
rúm til fullnustu og ganga inn á þau
svið er almennu viðskiptabankarnir
hafa m.a. sinnt, þ.e. almennri fjár-
málaþjónustu við fyrirtæki. Mjög
hallar á viðskiptabankana í fyrirsjá-
anlegri samkeppni við Fjárfestinga-
bankann þar sem hann hefur
sterkasta eiginfjárstöðu íslenskra
banka og því óhjákvæmilega yfir-
burði á innlendum fjármagnsmark-
aði,“ segir m.a í fréttatilkynningu
frá stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna.
Ásdís Halla Bragadótth’, formað-
ur SUS, segist í samtali við Morgun-
blaðið leggja sérstaka áherslu tvennt
í þessu sambandi. „í fyrsta lagi er í
Iögunum einungis heimild fyrir því
að selja 49% hlutafjár í Fjárfestinga-
bankanum og í öðra lagi hefur verið
talað um það að undirbúningur að
sölu hlutafjárins ætti að hefjast
strax eftir gildistöku laganna, þ.e. í
upphafi þessa árs,“ segir hún.
„En nú hefur bankinn tekið til
starfa og það hefur ekki verið gerð
grein fyrir því hvernig sú vinna á að
fara fram. Þess vegna viljum við
sérstaklega gagnrýna viðskiptaráð-
herra og ríkisstjórnina fyrir að hafa
ekki kynnt hvernig staðið verði að
sölu þessara 49% og að hafa heldur
ekki tilkynnt um það að það sé eðli-
legt að selja allan bankann, af því að
núna hefur komið í ljós að bankinn
ætlar í umfangsmikla samkeppni á
fjánnagnsmarkaði og kannski meiri
samkeppni en margir bjuggust við,“
segir Asdís Halla.
í fréttatilkynningu stjórnar SUS
segir ennfremur að ríkisstjórnin
hafi ekki gert hreint fyrir sínum
dyrum gagnvart umbjóðendum sín-
um varðandi stefnu sína í banka-
málum.
Orð og efndir fara ekki saman
„I stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar var formbreyting í-íkisbank-
anna, einkavæðing og niðurskurður
boðaður. Orð og efndir hafa hins
vegar ekki farið saman í þessum
efnum, heldur hafa aukin ríkisum-
svif á fjármálamarkaði í stjórnartíð
ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar
gengið gegn stjórnarsáttmálanum
og gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Hefur stjórnartíðin að þessu leyti
einkennst um of af undanlátssemi
gagnvart hinum afturhaldskenndu
sjónarmiðum viðskiptaráðherra og
flokks hans, Framsóknarflokksins.
Ungir sjálfstæðismenn krefjast
þess að ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins geri skyldu sína í þessum
efnum og fylgi stefnu flokksins en
bregðist henni ekki,“ segir í frétta-
tilkynningunni.
Fræðslu-
fiindur um
Grikkland
í KVÖLD gengst Grikklandsvina-
félagið Hellas fyrir fræðslufundi,
þar sem sagt ferður frá Grikk-
landsferðum tveggja skálda, þeirra
Francois-René de Chateaubriand
og enska lávarðarins Geroree Gor-
don Byron. Fundurinn verður
haldinn í Kornhlöðunni, Banka-
stræti 3 og hefst kl. 20.30.
Þeir Harldur Ólafsson mann-
fræðingur og Guðni Elísson bók-
menntafræðingur flytja erindi á
fundinum.
---------------
Gestir hjá
Ffladelfíu
HJÓNIN Lise og Ludvig Karlsen
verða gestir Fíladelfíu nú um helg-
ina. Áríð 1983 stofnuðu þau með-
ferðarheimili fyrir vímuefna- og
áfengissjúklinga á vegum norsku
hvítasunnuhreyufíngarinnar.
„Lise og Ludvig reka 30 með-
ferðarheimili víðs vegar um Noreg
og þar eru 350 til 400 einstaklingar
inni á hverjum sólarhring. Stofnun-
in rekur einnig biblíuskóla í Öster-
bo fyrir 60 nemendur og stendur
fyi-ir námskeiðum; tölvunámskeið-
um, myndlistamámskeiðum og
hússtjórnarnámskeiðum. Einnig er
starfræktur skóli þar sem í boði er
vélsmíða-, kokka- og smíðanám og
til gamans má geta að nú er einn
Islendingur í skóla hjá þeim að
læra til kokks. Ludvig Karlsen er
sjálfur fyrrverandi alkóhólisti og
hefur setið í fangelsi í 9 ár. Sl.
haust var hann sæmdur æðstu
heiðursorðu norska konungsins
fyrir störf sín í þágu vímuefnaneyt-
enda og er þetta í fyrsta sinn í sögu
norska ríkisins sem fyrrverandi
fangi er sæmdur slíkri orðu,“ segir
í fréttatilkynningu.
Lise og Ludvig verða með sam-
komur í Fíladelfíu fostudagskvöld
23. janúar kl. 20, í Samhjálp hvíta-
sunnumanna, Hverfísgötu 42, laug-
ardaginn 24. janúr kl. 20 og síðan í
Fíladelfíu sunnudag kl. 16.30. Sam-
komurnar eru öllum opnar.
-----------------
Opið hús hjá
Nýrri dögun
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgamðbrögð, eru með opið hús í
kvöld kl. 20-22 í B-sal í Gerðubergi
og eru syrgjendur velkomnir.
Næsti fyrirlestur verður
fimmtudagskvöldið 5. febrúar á
sama stað og sama tíma. Þá verður
fjallað um barnsmissi.
LEIÐRÉTT
Mynd birtist ekki
VEGNA mistaka
birtist ekki mynd
af Gústav
Stolzenwald, höf-
undi bókarinnar
Undir öræfa-
himni, með um-
sögn um hana í
blaðinu í gær. Um
leið og beðist er
velvirðingar á Gústav
þessu er myndm stolzenwald
birt.
Lögmannafélag íslands
í FORUSTUGREIN Morgunblaðs-
ins um skattamál sl. þriðjudag var
ranglega farið með nafn Lögmanna-
félags Islands og það nefnt Lögfræð-
ingafélag íslands. Hlutaðeigendur
og aðrir lesendur eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Námslengd á umhverfísbraut
NÁM á umhverfisbraut Gai’ðyrkju-
skóla ríkisins í Hveragerði tekur þrjú
og hálft ár en ekki tvö ár eins og
sagði í Daglegu lífi sl. föstudag.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Rangur myndartexti
RANGUR myndartexti birtist með
mynd úr kolsýruverksmiðju í Gríms-
nesi í blaðinu í gær á bls. 17. Á
myndinni sést Guðmundur Ásgeirs-
son, tæknilegur framkvæmdastjóri
ísaga hf. hleypa kolsýru af tanki en
þegai’ kolsýran kemur út úr tankin-
um breytist hún í þurrís.
Morgunblaðið/Þorkell
Stóri vinning-
urinn í Línu-
leiknum
DREGIÐ hefur verið um stóra
vinningin í Línuleiknum, vikuferð
fyrir fjóra með Plúsferðum i' Lego-
land. Fyrirtækin sem stóðu að
leiknum voru Morgunblaðið, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Akureyri og Sól
hf.
„Gífurleg þátttaka var í leiknum.
Sú heppna var íris Ösp Ólafsdóttir,
sem sést hér ásamt Línu langsokk
og foreldrum sínum Ólafi Friðriks-
syni og Freyju Tryggvadóttur. Um
leið og ofangreind fyrirtæki óska
vinningshafanum og fjölskyldu
hennar til hamingju vilja þau
þakka öllum þeim sem tóku þátt í
leiknum,“ segir í fréttatilkynningu.
Námskeið
fyrir húsverði
og umsjónar-
menn fasteigna
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breið-
holti, í samvinnu við Iðntæknistofn-
un Islands, Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins og Samtök
iðnaðarins, stendur fyrir námskeiði
um húsvörslu, en þetta mun verða í
fyrsta skipti sem þessir aðilar vinna
saman að menntamálum, segir í
fréttatilkynningu.
Megin markmið námskeiðsins
eru: Að auka fjölbreytni í endur- og
símenntun, að bregðast við kröfum
frá umsjónarmönnum/eigendum
fasteigna um reglubundið nám fyrir
húsverði, að auka þverfaglega
þekkingu húsvarða til að meta við-
haldsþörf fasteigna, að bjóða þeim
sem skipta vilja um starf nýjan val-
kost í eftirmenntun og að bjóða
fram nýjan möguleika í endur-
menntun fyrir þá sem misst hafa
vinnuna.
Námskeiðið er tvíþætt: í fyrsta
lagi gnmnnám sem er 104 tímar og
stendur frá 2. febrúar til 31. mars.
Þar eru helstu efnisflokkar: Náms-
tækni, tjáning og mannleg sam-
skipti, uppbygging húsa, viðhald og
öryggismál og rekstur og utanum-
hald.
Þegar grunnnámskeiði er lokið
verður boðið uppá valáfanga í 26
tíma (27. apríl -15. maí). Þar verður
farið dýpra í ýmis sérstök málefni,
svo sem: Umhverfismál og ræsting,
tölvutækni og húsvai’sla, húsvarsla í
skólum og íjiróttam an n virkj u m.
Þeir sem áður hafa lokið námskeiði
fyrir húsverði geta einnig innritað
sig á þessi framhaldsnámskeið.
Skráning er í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti til 27. janúar Nánari upp-
lýsingar eru á heimasíðu Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti,
www.fb.is