Morgunblaðið - 22.01.1998, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Herra, þú veist að ég get Árinn Gæti ég kannski leigt
ekki gefið þér svörin ... nokkur þeirra?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Efnilegir
nemendur
Frá Sveini Kiistinssyni:
NYLEGA las undirritaður bókina
„The great terror" (London 1968
og 1990) eftir breska sagnfræðing-
inn Robert Conquest. Hún fjallar
um réttarfarið í Sovétríkjunum á
Stalínstímanum. Stalín iðkaði mikið
að þvinga menn til að játa á sig
margvísleg afbrot, allt frá landráð:
um til morða og morðtilrauna. I
velflestum tilvikum voru sakborn-
ingamir saklausir af þeim glæpum,
sem á þá voru bomir. Pyndingar og
hótanir vom notaðar til að knýja
fram játningar. Auk þess loforð um
mildaðar refsingar ef menn játuðu
á sig áburðinn. Þau loforð vom oft-
ast svikin. Refsingin var ýmist líflát
eða fangelsi til margra ára, sem oft
jafngilti lífláti.
Þegar maður les þessa bók, þá
hrósar maður að vísu happi yfir því
að vera búsettur á Islandi undir lok
tuttugustu aldar en ekki í Sovét-
ríkjunum á stjórnarárum Stalíns.
Fáir voru óhultir, nánast hvar í
flokki, sem þeir stóðu.
Eigi að síður rekur mann í
rogastans að lesa í blöðunum, að
menn hafi verið píndir til að játa á
sig morð á íslandi á síðustu áratug-
um þessarar aldar. Var nú nauð-
synlegt að fara að stæla „Kreml-
bóndann“ í þessum efnum? - Við
komumst reyndar ekki með tæmar
þar sem hann hafði hælana í þess-
um sökum, og munar þar að sjálf-
sögðu mest um það, að við höfúm
fyrir löngu lagt niður dauðarefs-
ingu. Það gefur þann möguleika, að
ranglega dæmdir menn geti fengið
leiðréttingu sinna mála hérna meg-
in grafar.
Mig furðar, að Hæstiréttur Is-
lands skuli ekki vilja nýta þann
möguleika í hinum svonefndu Guð-
mundar- og Geirfinnsmálum. Eg
held það hljóti að vera ástæða til að
endurskoða mál til þrautar, ef við-
urkennt er, að pyndingum hafi ver-
ið beitt til að knýja sakborninga til
játninga við úrlausn þeirra. Mér
finnst ekki trúverðugt, hvemig
dómsvaldið reynir að skýla sér bak
við lagakróka í þessu máli og hafna
endurupptöku, sem öll sanngimis-
rök sýnast þó mæla með.
Hvað Guðmundar- og Geirfinns-
mál varðar, þá sláum við líklega
Kremlbóndann út í því, að engin lík
fundust til að staðfesta að menn
hefðu verið myrtir. Eg man að
minnsta kosti ekki eftir að hafa les-
ið um það að Stalín léti dæma menn
fyrir dráp á mönnum, sem hægt var
að vefengja að væra látnir. Svo
kannski höfum við farið fram úr
fyrirmyndinni á einu sviði.
Eins og drepið var á er þó sam-
anburðurinn við Stalín, ef um væri
að ræða keppni í dómsmorðum,
okkur mjög óhagstæður. Ef við lít-
um hins vegar á hann sem læriföð-
ur, þá eigum við að vísu margt
ólært, en eram kannski nokkuð
efnilegir nemendur. - „A mjóum
þvengjum læra hvolpamir að stela“
segir máltækið.
SVEINN KRISTINSSON,
Þórufelli 16, Reykjavík.
Allir, jafnt reykinga-
fólk sem aðrir, eiga
rétt á sjúkrahúsvist
Frá Ólafi Ólafssyni:
í LÖGUM nr. 101/1996 er gert ráð
fyrir að reykingar á sjúkrahúsum
verði með öllu óheimilar öðram en
sjúklingum sem fá leyfi til að
reykja sam-
kvæmt nánari
reglum. Löggjaf-
inn gerir því ráð
fyrir að yfirmenn
sjúkrahúsa geti
veitt sjúklingum
reykingaleyfi ef
svo ber undir.
Nokkrum sinn-
um hefur þetta
vandamál komið
á borð landlæknis. Landlæknir tel-
ur brýnt að berjast sem mest gegn
reykingum og ekki síst á sjúkra-
húsum, en eigi að síður er ekki
leyfilegt að neita sjúklingi um vist-
un á sjúkrahúsi þó að honum sé
ofraun að tileinka sér reykinga-
bann.
I lögum um heilbrigðisþjónustu
er skýrt tekið fram að allir hafi rétt
á þeirri bestu heilbrigðisþjónustu
sem völ er á, þar af leiðandi ber yf-
irmönnum sjúkrahúsa að koma upp
reykingaafkima fyrir þá er í vanda
era staddir vegna þessa. A þann
veg hafa mál verið leyst fram að
þessu enda er slík ráðstöfun innan
lagamarka.
Enn fremur ber að hafa í huga
að þó að sjúklingar hafni ákveðinni
meðferð ber lækni og öðra heil-
brigðisstarfsfólki að sinna sjúklingi
áfram með öllum þeim ráðum er
þau hafa á hendi ef sjúklingur sam-
þykkir, nema sérstök lög bjóði
annað, svo sem sóttvamalög.
ÓLAFUR ÓLAFSSON,
landlæknir.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.