Morgunblaðið - 22.01.1998, Síða 60
Fyrstir með
HP Vectra PC
* Tfjpl hewlett
mílnM PACKARD
Sjáðu meira á www.hp.is
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 IiEYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Akureyringur fékk 44 millj-
ónir króna í Víkingalottói
ISLENDINGUR var með sex töl-
ur réttar í Víkingalottói í gær
og vann rúmar 44 milljónir.
Vinningsmiðinn var keyptur í
gær í Nætursölunni á Akureyri.
Vinningshafarnir gáfu sig fram í
gærkvöldi, en um ijölskyldufólk
er að ræða.
„Þetta verða mikil viðbrigði
fyrir þetta fólk og umbylting á
högum þess,“ sagði Bolli R. Val-
garðsson, markaðsstjóri Vík-
ingalottós, og bætti við að vinn-
ingshafarnir hefðu ekki viljað að
nöfn sín kæmu fram. „Þessu
fylgir mikil geðshræring og þau
^tkváðu að sofa á þessu.“
Hann sagði að fólkið, sem
fékk vinninginn, hefði fylgst
með talnadrættinum í lottóinu í
sjónvarpinu í gær og séð að það
hefði sex tölur réttar - 9, 17, 29,
39 og 40.
„Maðurinn hringdi hingað
samstundis í miklu uppnámi,"
sagði Bolli.
Nætursalan á Akureyri er að
sögn Bolla sá sölustaður þar sem
einna flestir vinningar hafa
komið fram. Hann kvaðst telja
að þetta væri meðal hæstu happ-
drættisvinninga, sem um gæti á
Islandi.
Næsthæsta upphæð, sem ís-
lendingur hefði fengið í Vík-
ingalottói, hefði verið dregin í
apríl 1994 þegar ungt par hefði
hlotið tæpar 40 milljónir króna,
en Isléndingur hefði fímm
sinnum fengið fyrsta vinning.
Stefán Einarsson, eigandi
Nætursölunnar, kvaðst í gær-
kvöldi ekki vita hver hefði keypt
vinningsmiðann. Hann sagði að
18 aðalvinningar í laugar-
dagslottóinu hefðu komið á miða
frá Nætursölunni, en þetta væri
fyrsti vinningur, sem komið
hefði eftir að hann tók við versl-
uninni. Þessir vinningar hefðu
mikil áhrif á viðskiptin í versl-
uninni. „Eg hef verið skammað-
ur fyrir að vera óheillakráka,"
sagði Stefán. „En nú á það ekki
lengur við.“
Fyrsti vinningur í Víkinga-
lottói í gærkvöldi skiptist milli
fjögurra vinningshafa - Dana,
Finna, Norðmanns og íslend-
ingsins - og fær hver þeirra
44.310.557 krónur. Upphæðin er
greidd í einu Iagi og hún er
skattfrjáls.
Stækkun Járnblendiverksmiðjunnar
Opna tilboð um
mánaðamótin
TILBOÐ verða opnuð í byggingu
skála og rafbúnað vegna stækkunar
Járnblendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga um næstu mánaðamót.
Stefnt er að því að stjórn Islenska
jámblendifélagsins taki endanlega
ákvörðun um stækkun á fundi í byrj-
un mars og að framkvæmdir byrji í
framhaldi af því.
Bjami Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Jámblendifélagsins, sagði að
undirbúningur að stækkun verk-
smiðjunnar gengi vel. Verið væri að
fara yfir alla kostnaðarþætti og ljúka
gerð kostnaðaráætlunar. M.a. væri
verið að kanna leiðir til að ná niður
kostnaði við framkvæmdir. Utlit
væri fyrir að kostnaður við byggingu
þriðja ofnsins yrði í kringum þrjá
milljarða króna.
Bjarni sagði ekki æskilegt að hefja
framkvæmdir við stækkun Járn-
blendiverksmiðjunnar á sama tíma
og framkvæmdir við byggingu álvers
Norðuráls hf. stæðu sem hæst. Það
væri hagkvæmt bæði frá sjónarhóli
Jámblendiverksmiðjunnar og einnig
þjóðhagslega að vera ekki með þess-
ar miklu framkvæmdir í hámarki á
sama tíma.
Bjai'ni sagði að enn sem komið
væri benti ekkert til annars en að
ofninn yrði tekinn í notkun í árslok
1999 eins og upphaflegar áætlanir
gera ráð fyrir. Samkvæmt samningi
Járnblendifélagsins við Landsvirkj-
un þarf fyrirtækið að fara að greiða
fyrir raforkuna í árslok 1999 óháð
þvi hvort framkvæmdum við bygg-
ingu ofnsins verður lokið.
Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins
Tæplega 70
““ umsóknir
hafa borist
TÆPLEGA 70 umsóknir um fjár-
mögnun hafa borist Nýsköpunarsjóði
atvinnulífsins sem nú er að hefja
starfsemi. Þar af em 52 umsóknir um
hlutafé, 8 um áhættulán og 10 um
styrki. Verkefnin eru af öllum stærð-
um og gerðum.
Að sögn Páls Kr. Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra sjóðsins, hafa margar
umsóknir borist frá einstaklingum
eða frumkvöðlafyrirtækjum. Tölu-
vert hefur verið um að ungt fólk í
upplýsingatækni- og afþreyingar-
geiranum sendi inn umsóknir. Þá er
nokkuð um verkefni á sviði alþjóða-
væðingar, einkum varðandi þátttöku
sjóðsins í stofnun eða uppbyggingu
fyrirtækja erlendis í eigu íslenskra
aðila. Sjóðurinn fær í arf frá gömlu
fjárfestingarlánasjóðum atvinnulífs-
ins hátt í sex milljarða króna að öllu
meðtöldu og þá fjármuni á að nýta til
fjárfestinga á sviði nýsköpunar. Þar
af eru 4 milljarðar í Stofnsjóði, 1
milljarður í Framtakssjóði vegna
verkefna á landsbyggðinni og um 800
milljónir í Vöruþróunar- og markaðs-
deild.
■ Að skilja/B4
--------------
^Landið verði
eitt skatt-
umdæmi
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra sagði í gærkvöldi að hann
hefði hug á að gera gagngerar um-
bætur á skattkerfinu og yrði málið
rætt á fundi í fjármálaráðuneytinu í
dag.
A fundinum verður fjallað um yfir-
,^kattanefnd, fresti og forúrskurði.
^Sinnig hvort breyta eigi landinu í
eitt skattumdæmi, viðurlög við brot-
um, embætti umboðsmanns skatt-
greiðenda og fleira. Friðrik sagði
hér um að ræða mál, sem hefðu ver-
ið í vinnslu og ætlunin væri að vinna
að á næstunni. „Við munum leita eft-
ir samstarfi við lögmenn og löggilta
^endurskoðendur," sagði hann.
■ Tafir hjá/31
Morgunblaðið/Kristinn
Lítið um árekstra þrátt fyrir hálku
ÉLJAGANGUR á suðvesturhorni landsins í gær truflaði og tafði umferð hálkuna, aðallega smá-nudd. Full ástæða var og verður trúlega áfram til
víða. Að sögn lögreglunnar var þó fremur lítið um árekstra þrátt fyrir að fara að öllu með gát og flýta sér hægt í umferðinni.
Fasteignamat hefur hækkað um að minnsta kosti 4,5%
Verðþróun varð ekki eins
og búist var við í nóvember
VERÐÞRÓUN á 70-110 fermetra húsnæði í fjöl-
býli á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki orðið eins
og gert var ráð fyrir í nóvembermánuði síðast-
liðnum þegar yfirfasteignamatsnefnd ákvað nýtt
fasteignamat sem almennt er 4,5% hærra á öllum
tegundum húsnæðis en það var í íyrra og á sum-
um stöðum á landinu 9% og 12% hærra en það
var í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum í desemberhefti
markaðsfrétta Fasteignamats ríkisins var mæli-
kvarði á þróun fermetraverðs í íbúðarhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu af stærðinni 70-110 fer-
metrar 103,1 í nóvember árið 1996 og 104,0 í nóv-
ember síðastliðnum, sem er lítilsháttar breyting
á þessu tímabili. Helming hækkunar vísitölu
neysluverðs í janúar eða 0,3% má rekja til hús-
næðisliðar vísitölunnar. Þar af má rekja 0,09% til
hækkunar húsnæðisgjalda, en fasteignaskattar
eru reiknaðir út frá fasteignamati, eins og kunn-
ugt er.
Magnús Ólafsson, forstjóri Fasteignamats rík-
isins, sagði aðspurður um þetta að þau gögn sem
Fasteignamatið hefði haft í höndunum við ákvörð-
un fasteignamatsins í nóvember hefðu bent til
þess að verðlag færi hækkandi. Það virtist ekki
hafa gengið eftir í þeim mæli sem ráð var íyrir
gert, samkvæmt þeim tölum sem nú lægju fyrir
um verðþróun á 70-110 fermetra íbúðarhúsnæði.
■ Verð/4