Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Handtekn-
ir aftur
vegna hrað-
bankaráns
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
tvo menn í fyrrakvöld vegna rann-
sóknar á þjófnaði á hraðbanka í and-
dyri Kennaraháskólans seinustu
helgina í janúar, en um er að ræða
sömu menn og handteknir voru dag-
inn eftir ránið.
Daginn eftir að ránið uppgötvað-
ist voru tveir menn handteknir en
annar þeirra var seinasti einstak-
lingurinn sem opnaði dyr að anddyri
skólans með greiðslukorti sínu. Ann-
ar mannanna var látinn ljúka rúm-
lega vikulangri afplánun vegna eldra
máls og látinn laus að því búnu, en
hinum var sleppt eftir yfirheyrslu
næsta dag.
Ránsfengurinn, um fimmhundruð
kflóa þungur hraðbanki sem fjar-
lægður var í heilu lagi ásamt öllum
þeim verðmætum sem í honum voru,
fannst í sendiferðabifreið sem lagt
hafði verið í Hlíðahverfi, sama dag
og ránið uppgötvaðist.
Skömmu síðar, eða þriðjud. 3.
feb., voru tveir aðrir handteknir og
þeir dæmdir til að sæta fjórtán daga
gæsluvarðhaldi, eða til 18. febrúar.
Morgunblaðið/Rax
Islendingur handtekinn með 5 kfló af hassi í Frakklandi
Var í langferðabfl á leið
til Spánar með fíkniefnin
París. Morgunblaðið.
ÍSLENSKUR maður um fertugt
var handtekinn í Suður-Frakklandi
6. febrúar síðastliðinn með fimm
kfló af hassi í farangri sínum. Dag-
blaðið Le Monde sagði frá þessu
fyrir skömmu og staðfesti sendi-
herra íslands í Frakklandi, Sverrir
Haukur Gunnlaugsson, það í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að mað-
urinn sætti nú varðhaldi í fangels-
inu í Nice.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var íslendingurinn sofandi
á næturferðalagi í langferðabfl þeg-
ar lögreglan gerði leit og fann fíkni-
efnin. Maðurinn er búsettur á Spáni
og mun hafa verið kominn mjög
nærri spænsku landamærunum
þegar þetta var. Sverrir segir að
ræðismaður íslands í Nice muni
kanna hagi hans og hafi þegar verið
skipaður réttargæslumaður. Þá er
rannsóknardómari með málið til
meðferðar.
Á langan afbrotaferil að baki
Smári Sigurðsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn hjá embætti ríkislög-
reglustjóra, segir að frönsk yfirvöld
hafi ekki óskað eftir upplýsingum
um afbrotaferil mannsins enn sem
komið er, sem gæti skýrst af því að
málsmeðferð ytra taki að jafnaði
lengri tíma en hér tíðkast. „Um-
ræddur maður á að baki langan af-
brotaferil og hefur komið bæði við
sögu lögreglu hérlendis og erlendis.
Hann hefur hins vegar ekki komið
hingað til lands um árabil heldur
verið búsettur á Spáni og Portúgal
meðal annars,“ segir Smári.
Ræðismaður Islands í Nice,
Maurice Demas-Lairolle lögmaður,
kveðst gera ráð fyrir að hitta mann-
inn í lok vikunnar. Hann viti enn
nánast ekkert um málsatvik enda sé
hann ekki lögmaður íslendingsins.
Demas-Lairolle telur ólíklegt að
maðurinn sé í einangi'un, málið sé
varla þess eðlis og fangelsið þar að
auki yfirfullt. Hann segir að rann-
sókn megi í mesta lagi taka fjóra
mánuði en undir sérstökum kring-
umstæðum sé mögulegt að fram-
lengja hana og um leið varðhalds-
tímann um aðra fjóra. Að svo búnu
þurfi að leggja fram ákæru eða
sleppa fanganum.
Hámark 10 ára fangelsi
Demas-Lairolle segir að dómar í
frönskum fíkniefnamálum geti mest
numið tíu ára fangelsi og fjársekt að
hámarki 50 milljónum franka.
Tilganginum
ekki náð
ÞESSI misheppnaða fuglahræða
var illa í stakk búin til þess að
halda mávunum frá karfanum í
karinu. Þeir létu ekki blekkjast
og gæddu sér á góðgætinu með-
an eigandi vinnustakksins brá
sér frá.
------------
Bensínfnykur
en ekki mengun
BENSÍNFNYKUR gaus upp á
hafnarsvæðinu á Sauðárkróki undir
kvöldmat í gær en engin merki sáust
þó um leka eða hættu á mengun.
Fnykurinn virtist gjósa upp þegar
hlánaði og töldu menn hann koma
frá gömlum tanki, sem búið er að
taka úr notkun, utarlega á hafnar-
svæðinu. Taldi lögreglan eftir athug-
anir sínar engin ummerki um leka á
rörum eða tankinum, líklegra væri
að lyktin hefði gosið upp þegar farið
var að eiga við tankinn.
Morgunblaðið/J úlíus
Flutningabifreið ók á
kyrrstæðan vörubfl
EINN maður var fluttur á slysa-
deild eftir allharðan árekstur sem
varð á Sæbraut skammt írá Duggu-
vogi laust eftir klukkan 15.30 í gær,
þegar flutningabifreið ók aftan á
kyrrstæðan vörubfl. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu hafði orð-
ið vélarbilun í vörubflnum og hann
staðið á Sæbraut í um hálftíma þeg-
ar óhappið átti sér stað, en ekki er
fullljóst hvemig það bar til. Öku-
maður flutningabifreiðarinnar var
fluttur á slysadeild með minniháttar
meiðsl.
Enn óvæntar uppákomur við tökur á Myrkrahöfðingjanum
„Kynngikrafturinn skilar
sér vonandi í myndinni44
ENN gengur á
ýmsu við tökur á
Myrkrahöfðingj-
anum, kvikmynd
Hrafns Gunn-
laugssonar, sem
byggð er á Písl-
arsögu síra Jóns
Magnússonar.
Hrafn telur öll
ósköpin sýna að
einhver kynngi-
kraftur sé á ferð-
inni og kveðst hann vona að sá
kraftur skili sér í myndinni.
Hrafn sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær frá ýmsum undar-
legum uppákomum, svo sem því
þegar unnið var við tökur í Mýr-
dalnum og hjálparkona aðstoðar-
leikstjórans, Guðrún að nafni,
gekk þar inn í hús og kynnti sig
með þeim orðum að hún héti
Garún og kæmi frá Myrkrahöfð-
ingjanum, en þá hefði rafmagnið
skyndilega farið af. Við Hjör-
leifshöfða hefði brotnað kúp-
lingsdiskur í bíl og annar bíll
orðið bensínlaus úti á miðjum
sandi, jafnvel þó að bensínmælir-
inn sýndi að tankurinn væri hálf-
ur. Þá liti allt út fyrir að steinn
hefði rekist upp undir flutninga-
bíl í Hvassahrauni með þeim af-
leiðingum að olía af honum lak
niður í vegkant á Þingvöllum
þegar menn voru við tökur þar á
dögunum.
Gjörð sprakk
í tvígang
„Þegar við vorum við tökur
við Blautukvísl á dögunum lent-
um við Ari Kristinsson í sand-
bleytu mikilli og munaði litlu að
þar færu bæði menn og hestur á
kaf, auk þess sem minnstu mun-
aði að við misstum kvikmynda-
tökuvélina. Við höfðum verið
þarna nokkru áður á nákvæm-
lega sama stað og þá var engin
sandbleyta þarna,“ segir Hrafn.
Þá sprakk gjörð á hnakki úti í
miðri á þegar leikari var að
sundríða yfir Kúðafljót. „Leikar-
inn fór á flot en menn frá Flug-
björgunarsveitinni voru við-
staddir, svo það var engin hætta
á ferðum. Svo var skipt um
gjörðina og sett glæný gjörð í
staðinn en þó vildi ekki betur til
en svo að hún sprakk aftur dag-
inn eftir, þegar annar leikari var
að ríða eftir fjörunni við Jök-
ulsárlón," segir Hrafn.
„Steig á stakstein"
Þrátt fyrir allar þessar óvæntu
uppákomur segir Hrafn að verk-
efninu miði nokkuð vel. „Ég er
reyndar alveg geysilega ánægður
með hvernig samstarfsfólkið hef-
ur tekið mótlætinu og hvemig
það hefur styrkt móralinn í hópn-
um að þurfa að standa á móti
þessu öllu,“ segir Hrafn. Sjálfur
er hann haltur þessa dagana eftir
að hann tognaði á fæti. „Ég var
að ganga í hrauninu um daginn,
alveg á jafnsléttu, steig á stak-
stein, fór á hausinn og tognaði."