Morgunblaðið - 18.02.1998, Page 5

Morgunblaðið - 18.02.1998, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 5 FRÉTTIR Setti met á flugleiðinni Reykjavflk - Egilsstaðir Vaðbrekku. Morgunblaðið. METRÓFLUGVÉL Flugfélags Islands setti hraðamet á flugleið- inni Reykjavík Egilsstaðir í gær- morgun, hún var 38 mínútur á leið- inni og bætti gamla metið sem sett var fyrr um morguninn, einnig af Metro-vél, um eina mínútu. Fokker-flugvélar Flugfélagsins hafa verið að fara þessa leið á 42-43 mínútum. „Ég hafði um það bil 110-120 hnúta vind í stélið,“ sagði Kolbeinn Arason, flugstjóri í þessari ferð, „og það gerði gæfumuninn. Ég hefði getað verið mínútu fljótari ef ég hefði ekki þurft að taka hring norður fyrir flugvöllinn og lenda til suðurs," sagði Kolbeinn einnig. Að sögn Karls Jónssonar flug- manns í ferðinni náði vélin allt að 395 hnúta hraða þegar best lét, sem er um 730 kílómetra hraði og Kolbeinn var ekki að taka meiri króka en þurfti, sagði Karl enn- fremur. Vélin, sem er 19 sæta, var í áætlunarflugi frá Reykjavík til Egilsstaða og var fullskipuð far- þegum sem ekki fundu mikið fyrir þessum hraða, enda vélin mjög stöðug. --------------- Landhelgisgæslan Auglýst eft- ir þyrluflug- manni LANDHELGISGÆSLAN hefur auglýst lausa stöðu þyi-luflug- manns, en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur Ben- óný Asgrímsson þyrluflugstjóri fengið þriggja ára launalaust leyfi hjá Landhelgisgæslunni. Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann vonaði svo sannarlega að Benóný kæmi aftur til starfa að fríinu loknu, en Benóný hefur starfað hjá Landhelgisgæslunni í 30 ár og hyggst hann taka við flugmannsstarfi hjá Atlanta flug- félaginu. Alls starfa nú átta flugmenn hjá Landhelgisgæslunni, þrír þyrlu- flugstjórar, þrír þyrluflugmenn og tveir flugstjórar á Fokker gæslunnar. Páll Halldórsson er yfirflugstjóri hjá Landhelgisgæsl- unni og Hafsteinn Heiðarsson er aðstoðaryfirflugstjóri, en hann tók við því starfí um síðustu ára- mót. --------------- 113 sérfræð- ingar hafa sagt upp ALLS 113 sérfræðingar hafa sagt upp samningi sínum við Trygginga- stofnun ríkisins af þeim 385 sem voru í viðskiptum á árinu 1997. Þetta kemur fram í svari heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Margi'étar Frí- mannsdóttur alþingismanns sem dreift var á Alþingi í gær. Af þessum 113 uppsögnum hafa 73 uppsagnir þegar tekið gildi. Ell- efu uppsagnir taka gildi 1. mars nk., 27 uppsagnir taka gildi 1. apríl nk., ein uppsögn tekur gildi 1. mai nk. og ein uppsögn tekur gildi 1. júní nk. SameinacSi lífeyrissjóðurinn ► Rekstrarreikningur þúsundum króna í þúsundum króna Iðgjöld 1.399.923 1.210.149 Lífeyrir -720.519 -635.497 Fjárfestingartekjur 2.108.260 1.874.597 Fjárfestingagjöld -26.741 -23.070 Rekstrarkostnaður -36.555 -34.071 Aðrar tekjur 23.920 23.989 Onnur gjöld -17.527 -56.807 Matsbreytingar 515.994 461.917 Hækkun á hreinni eign á timabilinu: 3.246.754 2.821.207 Hrein eign 1. janúar 24.329.832 21.508.625 Hrein eign i árslok til greiðslu lifeyris: 27.576.586 24.329.832 Efnahagsreikningur 31.12.1997 Fjórfestingar Kröfur Aðrar eignir Viðskiptaskuldir Hrein eign til greiðslu lífeyris: Lífeyrisskuldbinding til greiðslu lífeyris 01.01.1997 KostnaSur við aukningu lífeyrisréttinda fró 01.07.1997 Aukning lífeyrisskuldbindinga vegna nýrra matsaðferSa Almenn aukning lifeyrisskuldbindingar ó órinu Lífeyrisskuldbinding til greiðslu lífeyris 31.12.1997 Endurmetin eign til greiSslu lífeyris 31.12.1997 Eign umfram skuldbindingu: Ýmsar kennitölur 27.407.588 87.119 160.890 27.655.597 -79.011 27.576.586 24.177.190 135.577 40.093 24,352.860 -23.028 24.329.832 23.828.000 2.715.000 1.650.000 1.952.000 30.145.000 31.986.000 1.841.000 Lífeyrisbyrði 51,5% 52,7% Kostnaður í % af iðgjöldum 2,6% 2,8% Kostnaður í % af eignum 0,1% 0,2% Raunávöxtun miðað við vísitölu neysluverðs á ársgrundvelli 8,4% 8,3% Hrein raunávöxtun miðað við vísitölu neysluverðs á ársgrundvelli 8,2% 8,0% Fjöldi virkra sjóðsfélaga, ársmeðaltal 8.703 8.436 Fjöldi lifeyrisþega í desember 2.615 2.408 Starfsmannafjöldi 11 10 • • ávöxtun Sameinaði lífeyrissjóóurinn er einn stærsti lifeyrissjóbur landsins. Rekstur hans er óháður verðbréfafyrirtækjum og leitast er við að ávaxta hann sem best að teknu tilliti til áhættu. ■ Eignir að fullu á móti skuldbindingum Arlega fer fram trygginaarfræðileg úttekt á stöSu sjóðsins og hefur hann frá upphafi átt að fullu eignir á móti skuldbindingum. ■ Aukning elli- og örorkulífeyrisréttinda A aðalfundi sjóðsins 28. apríl 1 997 var samþykkt að auka elli- og örorkulífeyrisréttindi. Kostnaðarauki viS hin auknu réttindi nam 2.715 millj. kr. ■ Nýjar matsaðferðir Aukning er á lífeyrisskuldbindingum um 1.650 millj. kr. á árinu 1997 m.a. vegna þess að teknar hafa veriS í notkun nýjar töflur um lífslíkur, sem sýna aS lífaldur karlmanna hefur aukist verulega á síðustu árum. ■ Tvenns konar öryggi SameinaSi lífeyrissjóSurinn býSur sjóSsfélögum sínum upp á tvenns konar öryggi í lífeyrismálum. Annars vegar hefðbundna tryggingu í lífeyrissjóSi og hins vegar lífeyrissparnað, þar sem um er að ræða sérsparnað hvers og eins. ■ Lifeyrissjóður Félagar í lifeyrissjóSi sem byggir á samtryggingu Iryggjo hverjir aSra eftir ákveSnum reglum og eru því í reynd félagar í tryggingafélagi. Ellilífeyrir er greiddur ævilangt. Eftirlifandi maka og börnum er tryggSur fjölskyldulífeyrir viS fráfall sjóSsfélaga. einumstað hjá, traustum sjóSi ífeyrir meinaði lífeyrissjóÖurinn Græddur er geymdur lífeyrir SuSurlandsbraut 30, 108 Reykjavík Simi 510 5000, Myndsendir 510 5010 Grænt númer 800 6865 Samtrygging sjóðsfélaga tryggir þeim örorkulífeyrir sem verSa fyrir langvinnum veikindum eða alvarlegu slysi. Allir félagsmenn aðildarfélaganna eiga rétt á aðild aS sjóSnum óháð aldri, heilsufari eSa kynferði. GreiSslur úr samtryggingarsjóði miðast við það iðgjald sem sjóSfélagi greiðir. Samtrygging í lífeyrissjóði er nauðsyn öllum. ■ Lífeyrissparnaður Viðbótarsparnaður hjá lífeyrissjóði tryggir þér og þínum aukið fjárhagslegt öryggi. Hann er góð viðbót við þá tryggingu sem skylduiSgjaldiS veitir, en kemur ekki í hennar staS. —■MBBBaMM—BB Lifeyrir Lífeyrissjóður og lífeyrissparnaður Ellin sem tryggja þér og þínum fjárhagslegt öryggi og frelsi í ellinni. Stjórn Sameinaöa lifeyrissjóSsins: 1 1. febrúar 1 998 Benedikt Daviðsson, GuSmundur Hilmarsson Hallgrimur Gunnarsson, Óskar Mar, Steindór Hálfdánarson og Örn Kjærnested Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóri Heimasiða: www.lifeyrir.rl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.