Morgunblaðið - 18.02.1998, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Formaður fullnustumats-
nefndar taldi afgreiðsl-
una löglega og eðlilega
blína um of á starfsemi fíkniefna-
deildar lögreglunnar og dómsmála-
ráðherra á meðan hinir raunveru-
legu sökudólgar, fíkniefnasalarnir,
gleymdust. Þingmenn jafnaðar-
manna höfnuðu þessu og sögðu að
fyrri hluti ræðu dómsmálaráðherra
hefði verið með eindæmum ómál-
efnalegur. Þar færi hann með
dylgjur sem ekki ættu sér stað í
raunveruleikanum.
Þeir þingmenn sem tóku til máls,
og ekki er vitnað til sérstaklega,
voru Guðmundur Arni Stefánsson,
Árni R. Arnason, Guðrún Helga-
dóttir, Tómas Ingi Olrich, Árni M.
Mathiesen, Hjálmar Amason, Guð-
ný Guðbjörnsdóttir, Hjálmar Árna-
son, Valgerður Sverrisdóttir, Krist-
ján Pálsson, Jóhanna Sigurðardótir
og Ágúst Einarsson.
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Alþýðubandalags og óháðra,
tók fram að hún tæki undir þá
beiðni að skýrsla Atla Gíslasonar
verði skoðuð í allsherjarnefnd í full-
um trúnaði. Hún lagði hins vegar
áherslu á að skýrsluna ætti ekki að
birta almenningi þar sem hún værí
þess eðlis að þar væru yfirheyrslur
yfir aðilum sem hefðu réttarstöðu
grunaðra manna.
Þá kvaðst Margrét telja að um-
ræðan um störf fíkniefnadeildar
lögreglunnar hefði frá upphafí ekki
snúist um annað en að ekki væri
nógu vel búið að þessum málum al-
mennt. „Það hefur ítrekað komið
fram að það vantar reglur um þess-
ar óhefðbundnu rannsóknaraðferð-
ir. Það vantar fjármagn til fíkni-
efnalögreglunnar og það vantar að
við bregðumst við með þeim hætti
sem við ættum að gera. Og mér
fannst það gott að heyra það hér
frá hæstvirtum utanríkisráðherra
að hann ætli að beita sér alveg sér-
staklega fyrir því að það verði tekið
á með þeim hætti að það dugi
vegna fíkniefnavandamála barna og
unglinga," sagði hún.
Hefðu þingmenn tekið aðra
afstöðu? spurði Margrét
Margrét fjallaði því næst um
reynslulausn Steiners. Hún tók
undir þá skýríngu að löglega hefði
verið óskað eftir því að hann fengi
hugsanlega reynslulausn vegna
þess að hann hefði boðið fram upp-
lýsingar um tvö stór mál sem lög-
reglan hefði verið að rannsaka en
hvorki komist lönd né strönd. „Við
erum á vissan hátt að kaupa upp-
lýsingar og engar reglur eru til um
það,“ sagði hún og hélt áfram. „Ég
held að hver og einn hljóti að velta
því fyrir sér hvort hann hefði tekið
aðra afstöðu á þeim tíma. Hvort
hann hefði tekið aðra afstöðu. Ég
held ekki. En þetta verður vissu-
lega til þess að reglurnar verða
settar," sagði hún.
Sighvatur Björgvinsson, þing-
flokki jafnaðarmanna, gerði ræðu
dómsmálaráðherra m.a. að um-
ræðuefni og sagði ráðherra hafa
eytt helmingi ræðutíma síns í að-
dróttanir að tilteknum hópi þing-
manna. Ráðherra „lét í veðri vaka
að umfjöllun fjölmiðla á undanföi’n-
um vikum og misserum um mál
tengd fíkniefnaheiminum væri sam-
særi tveggja alþýðuflokksmanna,
eins þingmanns og eins varaþing-
manns. Með öðrum orðum lét í ljós
þá furðulegu skoðun að þessir tveir
einstaklingar með hjálp þess þriðja
hefðu stjórnað allri fjölmiðlaum-
fjöllun um málið, sem hefur verið í
öllum blöðum og öllum ljósvaka-
miðlum um langa hríð“, sagði Sig-
hvatur og spurði hvernig fyi-rver-
andi ritstjóri gæti trúað svona sam-
særiskenningu.
Sighvatur hélt áfram að ræða um
dómsmálaráðherra og sagði eftir-
farandi: „Alvarlegasta ásökunin
sem hefur komið fram í þessum
umræðum er ásökun hans sjálfs í
garð okkar og þeirra annarra sem
um þetta mál hafa fjallað, þegar
hann eins og hann sagði í ræðu
sinni áðan lætur í veðri vaka að
helstu bandamenn okkar í þessari
umfjöllun séu eiturlyfjasalar,
glæpamenn og undirheimalýður...
og sameiginlegt markmið okkar sé
að rífa niður starfsemi lögreglunn-
ar á íslandi og að því er virðist
mannorð hans sjálfs," sagði Sig-
hvatur.
Lúðvík Bergvinsson sagði undir
lok umræðunnar að það væri rangt
sem stjórnarliðar hefðu haldið fram
að þingmenn jafnaðarmanna hefðu
það eitt að markmiði að brjóta nið-
ur lögregluna. Hann sagðist þvert á
móti telja að þessi umræða hefði
leitt til þess að dómsmálaráðherra
hefði farið að gera eitthvað í mál-
efnum lögreglunnar.
Dómsmálaráðherra þakkaði í
lokin þeim þingmönnum sem hefðu
tekið þátt í umræðunni og taldi að
hún hefði um flest verið gagnleg.
„Og það er mitt mat að umræðan
hér í dag hafí að ýmsu leyti færst
inn á nýjar brautir og verið með
talsvert öðru sniði en undanfarið
ár,“ sagði hann.
Dómsmálaráðherra hafnaði því
ennfremur að hann hefði verið með
aðdróttanir í garð þingmanna jafn-
aðarmanna og sagðist auk þess
aldrei hafa lýst því yfír í ræðu sinni
að hann teldi að óeðlilegt væri að
fjölmiðlar fjölluðu um þetta mál.
Hvergi væri hægt að fínna þeirri
fullyrðingu stað í sinni ræðu.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Asdis
RAGNHILDUR Vigfúsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Gertrud Asröm kynntu niðurstöður könnunar-
innar í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Könnun á mismunun innan
íþróttahreyfíngarinnar
Karlamir fá
fleiri styrki
KONUR bera mjög skertan hlut
frá borði innan íþróttahreyfingar-
innar bæði í Reykjavík og á Akur-
eyri. Konur eru að jafnaði um 36%
iðkenda innan íþróttafélaganna.
Innan aðalstjórna hverfafélaganna
á Akureyri eru hins vegar einungis
25% fulltráa konur og í Reykjavík
er þetta hlutfall 7,69%.
Margt bendir einnig til þess að
tekjum íþróttafélaganna sé ekki
skipt jafnt milli kven- og karl-
íþrótta miðað við fjölda þátttak-
enda og að konur beri skarðan hlut
frá borði í úthlutun húsaleigu- og
æfingastyrkja.
Þetta kemur fram í bráðabrigða-
skýrslu sem Iþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur og Akur-
eyrar hafa látið taka saman um
stöðu kynjanna innan íþróttahreyf-
ingarinnar, atvinnu- og menningar-
félaga ungs fólks og félagsmið-
stöðva.
Skýrslan, sem um ræðir, er liður
í þriggja ára jafnréttisverkefni sem
borgar- og bæjaryfirvöld í Reykja-
vík og á Akureyri hafa ákveðið að
vinna að í sameiningu. Það er unnið
með sérstökum stuðningi Norrænu
ráðherranefndarinnar og tekur
bæði til atvinnumála og íþrótta- og
tómstundamála ungs fólks.
Verkefnið er unnið samkvæmt
nýjum hugmyndum og aðferðum í
jafnréttisbaráttu sem nefndar hafa
verið samþætting (mainstream-
ing).
Samþætting hefur að undan-
förnu vakið mikla athygli bæði á
Norðurlöndum og innan Evrópu-
sambandsins. Gertrud Asröm,
sænskur sérfræðingur á sviði sam-
þættingar, hefur á undanfómum
dögum staðið að námskeiðum um
aðferðafræðina hér á landi í tengsl-
um við verkefnið. Hún segir sam-
þættingu vera byggða á allt að 25
ára gömlum hugmyndum sem hafi
fengið byr undir báða vængi eftir
kvennaráðstefnuna í Peking árið
1995.
Gertrud segir samþættingu miða
að því að samþætta jafnréttisstarf-
ið öðrum sviðum samfélagsins, þ.e.
að vinna að jafnrétti „innan frá“ en
ekki aðeins „utan frá“ eins og gert
hafí verið með hefðbundnum-að-
ferðum. Aðferðin byggist fyrst og
fremst á kyngreindri tölfræðilegi’i
greiningu þeirra sviða sem unnið
sé með hverju sinni en kyngreind
tölfræði birti oft annan veruleika
en hefðbundin tölfræði. Aðferðin
geri síðan ráð fyrir því að ákvarð-
anir um framkvæmdir verði teknar
í framhaldi greiningarinnar og á
grundvelli hennar.
Ráðinn
rannsóknar-
prófessor
•NÝLEGA var ráðið í fjórar af
fimm stöðum rannsóknarpró-
fessora sem menntamálaráðu-
neytið auglýsti
hinn 25. júlí
1995. Nú hefur
verið ráðið í þá
fimmtu á sviði
raunvísinda. I
hana var ráðinn
Jakob K. Krist-
jánsson á undir-
sviðinu „líftækni".
Jakob er fæddur á Isafirði
1952. Hann lauk B.S. prófi í líf-
fræði við Háskóla íslands 1976
og doktorsprófi í lífefnafræði
frá Brandeis University í
Boston 1981. Hann var styrk-
þegi Alexander von Humboldt
stofnunarinnai’ við Háskólann í
Mai’burg í Þýskalandi 1981-82.
Hann hefur verið forstöðumað-
ur líftæknisviðs Iðntæknistofn-
unar frá 1985 og jafnframt í
hálfri dósentsstöðu í örveru-
fræði við Háskóla íslands frá
1986. Jakob hefur einkum
stundað rannsóknir á lífríki ís-
lenskra hvera og hagnýtingu
hveraöi’vera og er frumkvöðull
þessara rannsókna hér á landi.
Hann hefur ritstýrt bók um
hveraörverur og birt yfir 60
vísindagreinar og bókarkafla í
viðurkenndum erlendum fræði-
i'itum og nýtur alþjóðlegrar
viðurkenningar fyrir rannsókn-
ir sínar.
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi telur að ríkið hefði átt að bjóða í skuldabréf ÞÞÞ á Akranesi
Átti aldrei að heimila
breytingu á veðröðinni
SIGURÐUR Þórðarson ríkisendur-
skoðandi segist geta tekið undir með
dómsmálaráðherra að skuldabréf í
máli ÞÞÞ á Akranesi uppfylli ekki
ákvæði aðfararlaga. Fyrst svo sé
hafi stjómvöld hins vegar aldrei átt
að samþykkja ósk lögmanns Þórðar
Þórðarsonar um að færa refsikröf-
una fram fýrir skattakröfuna. Þegar
kom til uppboðs á bréfunum hafi
málið verið komið í annan fan'eg og
ríkisvaldinu því borið skylda til að
gæta hagsmuna sinna með því að
bjóða í þau.
í umræðu um skattamál ÞÞÞ á
Akranesi sagði Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra að Ríkisendur-
skoðun væri að fara fram á að dóms-
málaráðuneytið fremdi lögbrot með
því að samþykkja að taka skuldabréf
til 20 ára sem greiðslu upp í sekt
Þórðar Þórðarsonar. Skuldabréfíð
hefði ekki uppfyllt ákvæði aðfarar-
laga um sektargreiðslur.
Átti aldrei að heíja leikinn
„Það er út af fyrir sig rétt hjá
Þorsteini að samkvæmt lögum sem
sett voru í júní í fyrra verða sektir
að greiðast á tilteknu tímabili og
skuldabréfið uppfyllir þau skilyrði
ekki,“ sagði Sigurður. „Menn verða
hins vegar að hafa í huga stöðu
þessa máls þegar uppboðið var hald-
ið. Það hafði verið gert fjárnám í
bréfum og fallist hafði verið á ósk
lögmanns Þórðar Þórðarsonar um
að breyta veðröðuninni. Hvers
vegna var það gert þegar íyrir lá að
skuldabréfið uppfyllti ekki ákvæði
laganna? Með því að færa refsikröf-
una fram fyrir skattakröfuna voru
menn raunverulega búnir að missa
allt út úr höndunum, sem menn
höfðu þó nokkur tök í áður í sam-
bandi við þessi fjárnámsbréf. Aðal-
atriðið er því að það hefði aldrei átt
að heimila þennan flutning og það
sagði Ríkisendurskoðun strax í upp-
hafi. Það átti aldrei að hefja leikinn.
Allan þann vandræðagang sem er
orðinn í kringum þetta mál má rekja
til þessara mistaka.
Þegar menn eru komnir á uppboð
er málið komið í allt annan farveg.
Þá eru menn auðvitað fyrst og
fremst að hugsa um að gæta hags-
muna sinna. Landsbréf hf. könnuðu
verðgildi skuldabréfanna og komust
að þeirri niðurstöðu að verðgildi
þeirra væri 36-40 milljónir og við
teljum að það hafi því verið fyrir
neðan allar hellur að láta þessi bréf
fara á 50 þúsund krónur. Dóms-
málaráðherra telur að verðmæti
bréfanna hafi ekki verið núll, en við
erum ekki sammála því mati og telj-
um að það hafi verið til skaða fyrir
ríkissjóð að láta bréfm fara á 50 þús-
und krónur. Staða málsins var því
breytt og mönnum bar skylda til að
taka mið af því þegar verið var að
gæta hagsmuna ríkissjóðs."
Ríkisendurskoðun er ekki að
grafa undan stjórnsýslunni
Friðrik Sophusson fjámálaráð-
herra sagði við umræðu um málið á
Alþingi í fyrradag að það kæmi fyrir
æ ofan í æ að Ríkisendurskoðun
væri að grafa undan staifi sem unn-
ið væri í ráðuneytum. Sigurður
sagðist vísa þessum ummælum al-
gerlega á bug.
„Það er alveg fráleitt að halda því
fram að Ríkisendurskoðun sé að
reyna að gi-afa undan stjórnsýslunni
á íslandi. Menn verða að gera sér
grein fyrir hvert verkefni Ríkisend-
urskoðunar er. Það er að fylgjast
með að menn fylgi eftir lögum og
reglum og geri hlutina á réttan hátt.
Okkur bei' skylda til að gera grein
fyrir áliti okkar á þessum hlutum.
Ef Friðrik er svona ósammála okkur
er það væntanlega vegna þess að við
erum svo ósammála um hvernig er
rétt að standa að hlutum þannig að
þeir séu í lagi.“
Þorsteinn Pálsson nefndi í um-
ræðunum á Alþingi að það kynni að
vera rétt að fá álit þriðja aðila á
þeim atriðum sem um er deilt, t.d.
Lagastofnunar Háskólans. Sigurður
sagðist ekki telja að það leysti þetta
mál. Það breytti varla öllu þó að
kallað yi’ði eftir enn einu lögfræðiá-
litinu. Það væri hins vegar sjálfsagt
og eðlilegt að Alþingi tæki þetta mál
til umfjöllunar í þingnefnd.