Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 17
VIÐSKIPTI
Plötusala minnkar í
fyrsta sinn frá 1980
Los Angeles. Reuters.
SALA á hljómplötum dróst saman í
Bandaríkjunum í fyrra í fyrsta
skipti síðan diskótónlist leið undir
lok um 1980 samkvæmt upplýsing-
um samtaka bandaríska hljómplötu-
iðnaðarins (RIAA).
Á árunum um 1985-1995 jókst
sala á ári úr 4 milljörðum dollara í
12 milljarða. Aukningin nam um 12-
20% á ári og stafaði aðallega af því
neytendur keyptu geisladiska í stað
gamalla plötualbúma, en einnig af
því að rokktónlist varð fjölbreyti-
legri og að rapp og tónlist spænsku-
mælandi fólks náðu vinsældum.
Uppganginum lauk fyrir tveimur
árum þegar tónlistarunnendur
höfðu endurnýjað plötusöfn sín,
markaður fyrir tölvudiska var orð-
inn mettur og sex helztu tónlistar-
fyrirtækjunum tókst ekki að koma
fram með ný lög sem slógu í gegn.
Sölutregða leiddi tilmikils niður-
skurðar hjá þessum sex fyrirtækj-
um og hundruðum verzlana í keðj-
um á borð við Musicland Stores
Corp., Camelot og Wherehouse var
lokað. Á síðustu 12 mánuðum hefur
sala glæðzt á ný eftir kvalafulla
endurskipulagningu og vegna þess
að nokkur lög hafa slegið í gegn.
40% samdráttur
Tónlistardeild Time Wamers,
Wamer Music, hefur tilkynnt að
hagnaður á fjórða ársfjórðungi hafi
minnkað um 40 af hundraði. Stjóm-
arformaður Time Warners, Gerald
Levin, kenndi um söluerfiðleikum
og töfum á útgáfu geislaalbúma frá
Madonnu, Seal og Anita Baker.
PolyGram NV segir hins vegar að
söluhagnaður og rekstrarhagnaður
tónlistardeildar fyrirtækisins hafi
aukizt um 17% á sama tíma.
Forstjóri PolyGram, Alain Levy,
kvað ástæðurnar þær að fjölbreytt
tónlist væri á boðstólum að fyrir-
tækið væri alþjóðlegt og kostnaði
væri haldið í skefjum.
-----------------
IBM smíðar
hraðvirkustu
tölvu heims
Somers, New Yorkríki. Reuters.
IBM hefur undirritað 85 milljóna
dollara samning um smíði fljótvirk-
ustu ofurtölvu heims.
Þegar tölvan er fullgerð á hún að
geta reiknað út á einni sekúndu það
sem tæki venjulega vasareiknivél
tíu milljónir ára.
Bandaríska orkuráðuneytið og
stofnunin Lawrence Livermore
National Laboratory í Livermore,
Kalifomíu, sömdu við IBM um
smíði tölvunnar.
Tæknin er sú sama og var notuð
við smíði skáktölvunnar Deep Blue,
sem sigraði stórmeistarann Garry
Kasparov, IBM RS/6000 SP. Með
þeirri tækni má gera 10 billjónir út-
reikninga á sekúndu þegar tölvunni
hefur verið komið fyrir í Livermore
árið 2000.
Forseti Sony Pictures
segir af sér
Los Angeles. Reuters.
JEFF SAGANSKY, annar
tveggja forseta kvikmyndaversins
Sony Pictures Entertainment, hef-
ur sagt af sér vegna ágreinings um
stjóm fyrirtækisins.
I yfirlýsingu frá Sagansky segir
að hann geti ekki sætt sig við
framkomnar hugmyndir um breyt-
ingar á alþjóðlegum umsvifum
Sony Corp.
Sagansky tók við starfi sínu hjá
Sony Pictures Entertainment í
fyrra þegar nýir stjórnendur vom
ráðnir til að auka tekjur fyrirtæk-
isins. Hann hafði gegnt yfírmanns-
stöðu hjá Sony síðan 1994.
Áður starfaði Sagansky í tíu ár
við kvikmyndir og sjónvarp og var
um tíma yfirmaður CBS Enterta-
inment. Undir hans stjóm varð
CBS vinsælasta stöðin, en hafði
verið í þriðja sæti áður.
I fyrra náðu nokkrar myndir
Sony miklum vinsældum, þar á
meðal Men in Black, Air Force
One of MyBest Friend’s Wedding.
Miðatekjur jukust í 1,27 milljarða
dollar, sem var met.
AÐALFIJISIDIJR 1998
Aöalfundur Skeljungs hf. veröur haldinn
miövikudaginn 18. mars 1998 i Hvammi
á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38,
og hefst fundurinn kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf skv.
17. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, fillögur og reikningar félagsins liggja
frammi á aöalskrifstofu félagsins, hluthöfum til
sýnis, viku fyrir aöalfund.
Aögöngumiðar og fundargögn eru afhent
á aöalskrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 4,
6. hæö, frá og meö hádegi 11. mars til hádegis á
fundardag, en eftir þaö á fundarstað.
Aö loknum aöalfundarstörfum verður móttaka
fyrir hluthafa með léttum veitingum i Setrinu á
sama staö.
Gallup könnun janúar 1998
F R É T T I R
MARKAÐS
Sími 552 7575 • Fax 562 3074 • www.matthildur.com
Matthildur
slær í gegn!
»Á hvaða útvarpsstöð
hlustar þú mest?éi
Það er augljóst að dagskrárstefna Matthildar FM 88,5
hefur náð til hlustenda. Sjaldan hefur útvarpsstöð
náð þvílíkum árangri á jafn stuttum tíma og Matthildur FM 88,5. Þessi árangur
hefur náðst með því að víkja aldrei frá þeirri stefnu sem mörkuð var í upphafi og
ávalt að bjóða upp á bestu mögulegu dagskrá og tónlist hverju sinni.
Matthildur FM 88,5 er best í tónlist - það heyra hlustendur.
%
25
20 -
I S -
I 0 _
22,3%
I
Reykjavík - Reykjanes / Konur 20-40 ára
111
S>
13
Könnunin var gerð ! lok janúar 1998. Úrtakið var 1200 manns af öllu landinu á aldrinum 16 til 75 ára
en í þessum niðurstöðum eru einungis skoðuð svör fólks af höfuðborgarsvæðinu og Suðumesjum.
Matthildur FM leikur tónlist fyrir aldurshópinn 24 til 54 ára með megináherslu á konur, eða eins og
við kjósum að nefina það: tónlist fyrir „forseta fjölskyldunnar". Nú geta fyrirtæki og stofnanir sem vilja
ná til innkaupastjóra heimilanna því snúið sér til eins ljósvakamiðils sem sérhæfir sig í að sinna þörfum
þessa mikilvæga neytendahóps sem í eru alls 77.629 manns, eða 38.808 konur og 38.821 karlar.
Alls eru þetta 27.528 heimili sé miðað við meðaltalsfjölskyldu.
Ucztílóidid
Dagur á Matthildi FM
♦
N(#if y
[ Axel Axelsson ]
6:45 - 10:00
[ Valdts Gunnarsdóttir ]
10:00 - 14:00
[ Sigurður Hlöðversson ]
14:00 - 18:00
[ Helðar jónsson ]
18:00- 19:00