Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Tævanar kyrrsetja Airbus
A300 flota China Airlines
Taipei. Reuters.
FLUGMÁLAYFIRVÖLD á Tævan
kyrrsettu í gær allar níu Airbus
A300-600R breiðþotur flugfélagsins
China Airlines vegna rannsóknar á
orsökum brotlendingar flugvélar
sömu gerðar í aðflugi að flugvellin-
um í Taipei í fyrradag. Verða þær
teknar til gaumgæfilegrar skoðunar
og komi ekkert athugavert í ljós við
ástand þeirra verður flugbanninu
aflétt að skoðun lokinni.
Talsmaður flugfélagsins, Ha-
milton Liu, sagðist telja afar litlar
líkur á þvi að rekja mætti slysið til
bilunar í flugvélinni, sem var sjö ára
gömul. Hún hafi verið nýkomin úr
skoðun þar sem hún reyndist í full-
komnu ásigkomulagi. Var slæmu
veðri og lélegu skyggni kennt um í
fyrstu. Sjónarvottur, sem sagður
var sérfræðingur um flug, kvaðst
hafa fylgst með aðfluginu og virst
það vera mjög eðlilegt. Rétt eftir að
hann hætti að horfa á flugvélina
kvað við gífurlegur hávaði er hún
skall niður á íbúðahverfi við flug-
vallarjaðarinn.
Sérfræðingar flugvélaverksmiðj-
anna Airbus Industrie í Frakklandi
héldu í gær til Tævans til þess að
aðstoða við rannsókn flugslyssins,
en með þotunni fórust 196 menn,
farþegar og áhöfn, og sjö manns á
jörðu niðri. Meðal þeirra voru tvö
börn sem fundust á lífi í rústum
húsa sem urðu undir bralri þotunn-
ar, en þau dóu af völdum sára sinna.
Svörtu kassamir fundnir
Flugritar þotunnar fundust í gær
og vonast er til að þeir geti varpað
ljósi á hvers vegna þotan brotlenti
er flugmennimir urðu að hætta við
lendingu vegna dimmviðris og
hugðust gera aðra aðflugstilraun.
Samtöl við flugmennina gáfu ekki til
kynna að neitt væri að um borð. Er
þeir urðu að hætta við lendingu
spurði flugumferðarstjóri hvort þeir
hygðust reyna annað aðflug. A tal-
stöðvarsendingu frá þotunni heyrð-
ust þá aðeins aðvörunarhljóð
klingja í stjómklefa þotunnar en
ekki raddir flugmannanna. A sömu
sekúndum fórst flugvélin.
Seðlabankastjóri Tævans, Sheu
Yuan-dong, eiginkona hans og þrír
starfsmenn bankans fórust með
þotu China Airlines. Langflestir
farþeganna vom nýgift hjón að
snúa heim úr brúðkaupsferð til Bali
og vandamenn þeirra. Þannig fórst
13 manna fjölskylda. Einnig vom
fimm Bandaríkjamenn, einn
Indónesi og einn Frakki í hópi far-
þega.
Svo sem til siðs er á Taipei tók
Tsai Tui flugmálastjóri ábyrgð á
slysinu á hendur sér og baðst lausn-
ar. Ríkisstjórnin fól honum hins
vegar að stjórna rannsókn slyssins.
Sömuleiðis boðaði Chiang Hung-i
forstjóri flugfélagsins afsögn sína.
í gær var hafist handa við að
bera kennsl á lík þeirra sem fómst
með flugvélinni. Vora þau það illa
leikin að talið var að grípa þyrfti til
DNA-rannsóknar til að ná árangri.
Óheppni?
Að undanförnu hafa fimm mann-
skæð flugslys átt sér stað í Asíu á
jafn mörgum mánuðum. Ekkert er
sameiginlegt með þeim og sagði
Neil Smith, sérfræðingur um flug-
slys hjá tryggingafyrirtæki í
Singapore, að um hreina óheppni
væri að ræða. Arið 1997 var flug-
samgöngumálum Asíu óhagstætt
því þá fórust þar 675 manns í áætl-
unarflugi, miðað við 50 árið áður.
Og þó helmingur stóru flug-
slysanna í fyrra hafi átt sér stað í
Asíu bendir öll talnafræði til þess
að ástand flugöryggismála í þeim
heimshluta sé ekki lakara en ann-
ars staðar, að sögn Barry Grind-
rods, ritstjóra flugmálaritsins Ori-
ent Aviation, sem gefið er út í
Hong Kong. Að meðaltali ferst
einn farþegi á hverja 2,6 milljarða
farþegakílómetra í Asíu. Til sam-
anburðar er hlutfallið eitt dauðsfall
á hverja 2,8 milljarða farþegakíló-
metra í heimsbyggðinni allri, að
undanskildum fyrrverandi lýðveld-
um Sovétríkjanna sálugu.
Rithöfundurinn Ernst Jíinger látinn
Umdeildur
en langlífur
HINN umdeildi
þýzki rithöfundur
Ernst Júnger lézt í
gær, tæplega 103 ára
að aldri.
Júnger hóf langan
rithöfundarferil sinn
árið 1920, _ þegar
skáldsagan „I stál-
stormum“ kom út, en
hún byggði á reynslu
hans af þátttöku í
heimsstyrjöldinni
íyrri. Júnger barðist í
fremstu víglínu í
stríðinu og særðist
oft. Hann var síðasti
eftirlifandi maðurinn
sem bar æðstu heið-
ursorðu sem Þýzkalandskeisari
veitti hermönnum í þjónustu sinni
(,,Pour-le-Mérite“).
A þriðja áratugnum taldist Jún-
ger til helztu hugsuða róttækra
þjóðemissinna og að margra mati
lagði hann þannig sitt af mörkum
til að búa í haginn fyrir valdatöku
nazista í Þýzkalandi. En hann var
sjálfur mikill úrvalshyggjumaður
og íyrirleit hið háværa brölt brún-
stakka.
Júnger tók einnig
þátt í seinni heims-
styrjöldinni sem her-
maður, en vegna
tengsla hans við sam-
sæiásmenn 20. júlí-til-
ræðisins við Hitler
var hann rekinn úr
hemum 1944. Aðeins
dálæti Hitlers á skrif-
um hans kom í veg
fyrir að hann yrði líf-
látinn eins og aðrir
samsærismenn.
Eftir stríðið stimpl-
uðu sigurveldin Jún-
ger hemaðarsinna og
bönnuðu útgáfu á
verkum hans í fjögur
ár. Hann hlaut uppreisn æru á ní-
unda áratugnum er honum voru
veitt Goethe-verðlaunin fyrir ævi-
starf sitt, en það era æðstu bók-
menntaverðlaun sem veitt eru í
Þýzkalandi. Bækur hans nutu mik-
illar hylli í Frakklandi en vora mun
umdeildari meðal Þjóðverja.
Meðal aðdáenda Júngers sem
rithöfundar vora FranQois Mitter-
and Frakklandsforseti og Helmut
Kohl kanzlari.
Junger
Sjúklingar vakna
í miðri aðgerð
London. Reuters.
LÆKNAR í Þýskalandi greindu
á mánudag frá rannsóknum á
því, þegar sjúklingar, sem hafa
verið svæfðir fyrir aðgerð,
vakna meðan á aðgerðinni
stendur. Hafa sjúklingar sagt
frá því að þeir hafl komist til
meðvitundar í miðri aðgerð, séð
andlit, heyrt fólk tala, og sumir
fundu sársauka og aðrir mundu
jafnvel eftir því að hafa heyrt
lækna láta niðrandi orð falla
um sig.
Brandarar um vaxtarlag
sjúklingsins
Að sögn Dierk Schwenders,
prófessors við Svæfingalækn-
ingastofnunina í Miinchen,
vakna tveir af hveijum þúsund
sjúklingum, sem svæfðir eru,
meðan á aðgerð stendur.
Scwender og samstarfsfólk
hans rannsakaði 45 sjúklinga
sem höfðu komist til meðvitund-
ar í miðri aðgerð, og eru niður-
stöðurnar birtar í nýjasta hefti
British Journal of Anaesthesia.
Þijátíu og þrír sjúklingar
mundu eftir því að hafa heyrt
samtöl, 12 þekktu andlit og 29
fundu fyrir snertingu. Þrír
sjúklingar fundu fyrir nokkrum
sársauka, átta fundu til angist-
ar og 18 fylltust ofsahræðslu.
Schwender sagði að konu nokk-
urri hefði brugðið mjög er hún
heyrði læknana gera grín að
líkamsvexti hennar. „Hvernig
getur konan verið svona feit?“
heyrði hún einn lækni segja.
Verst að vera algerlega
hjálparvana
Verst var þó, að sjúklingarnir
gátu með engu móti látið Iækn-
ana vita af sér, sagði Schwend-
er. „Eg held að mestu óþægind-
in stafi af því að vera algerlega
hjálparvana. Sjúklingurinn get-
ur ekkert gert til þess að
breyta aðstæðunum." Algeng-
ast er að sjúklingar vakni með-
an á keisaraskurði stendur,
hjartaaðgerð og í sumum
bráðaaðgerðum.
Meðal þess sem hefur áhrif á
líkurnar á að sjúklingur komist
til meðvitundar meðan aðgerð
stendur yfír eru svæfíngalyfín,
sem notuð eru, og þol einstak-
lingsins. Svæfíng er yfirleitt
reiknuð út á grundvelli likams-
þyngdar sjúklings.
88 felldir
í Alsír
HERSVEITIR alsírskra
stjórnvalda hafa á undanförn-
um þrem dögum fellt að
minnsta kosti 88 múslímska
uppreisnarmenn í árásum á
búðir þeirra víðs vegar um Al-
sír, að því er alsírsk blöð
greindu frá í gær. Sextíu og níu
uppreisnarmenn voru felldir í
héruðunum Sidi Bel Abbes og
Tlemcen, þar sem uppreisnar-
menn 'hafa framið mörg
fjöldamorð á undanförnum
tveim mánuðum. Nítján upp-
reisnarmenn voru felldir í öðr-
um árásum stjórnarhermanna,
m.a. í Blida-héraði.
Rafsanjani
hittir Sauda
AKBAR Rafsanjani, fyrrver-
andi forseti Irans, mun fara í
tíu daga opinbera heimsókn til
Saudi- Arabíu síðar í vikunni,
og sagði íranskur stjómarer-
indreki að heimsóknin væri til
marks um aukin tengsl milli
ríkjanna tveggja. Rafsanjani er
einn áhrifamesti ráðamaður í
íran og formaður stefnumótun-
arnefndar stjórnarinnar. Hann
mun, ásamt ráðherrum, hitta
æðstu menn Saudi Ai-abíu, en
spenna hefur ríkt í samskiptum
ríkjanna síðan byltingin var
gerð í íran 1979.
Erfðaþættir
hdðkrabba
NIÐURSTÖÐUR rannsókna
er gerðar voru við Sloan-Kett-
ering krabbameinsmiðstöðina í
Bandaríkjunum benda til þess
að hættan á myndun sortuæxlis
í húð fari að mestu eftir erfða-
þáttum á borð við hár- augn- og
húðlit og fjölda fæðingarbletta.
Þeir sem hafa ljóst eða rautt
hár, Ijósan augnlit og föla húð
eru sex sinnum líklegri til að fá
sortuæxli en þeir sem era
dekkri yfirlitum. Sólbruni er
samkvæmt niðurstöðunum að
líkindum ekki orsök æxlis-
myndunar, en geti aukið hætt-
una hjá þeim sem eru við-
kvæmir fyrir vegna erfðaþátta.
Rannsóknin var unnin af Mari-
anne Berwick, farsóttafræðingi
við Sloan-Kettering miðstöðina.
Sjöburum
heilsast vel
SJÖBURAR sem fæddust í
Saudi-Arabíu eru nú orðnir
mánaðargamlir og því komnir
yfir erfiðasta hjallann og að
sögn embættismanns þyngjast
bömin dag frá degi. Börnin sjö
komu í heiminn 14. janúar í
borginni Abha. Ekki hefur verið
greint frá því hver móðir þeirra
er, en faðirinn heitir Abdullah
Mohammad Ali, 55 ára, og á
hann tvær aðrar konur.
Minnst með
linsulokara
JAPANSKI myndavélafram-
leiðandinn Canon kynnti í gær
„heimsins minnstu þriggja
þrepa breytilinsumyndavél með
linsulokara", að því er talsmenn
Canon í Tókýó sögðu. Vélin er
9,5 cm breið og vegur 205
grömm án rafhlaðna.