Morgunblaðið - 18.02.1998, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ
34 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
^"~^'"FRÍTTm
Umsögn Ragnars H. Hall hæstaréttarlögmanns um skýrslu Rfkisendurskoðunar
Málsmeðferð
sýslumanns
gagnrýnd
BIFREIÐASTÖÐ ÞÞÞ hefur bækistöðvar sínar á Akranesi.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ fékk
^.Ragnar H. Hall hæstaréttarlög-
mann til að fara yfir skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um uppboð á
skuldabréfum ÞÞÞ, og í umsögn
hans kemur m.a. fram að hann telji
að þegar sýslumaðurinn á Akranesi
hafí leitað eftir heimild fjármála-
ráðuneytisins til að bjóða í skulda-
bréfín fyrir ríkissjóð hafi hann í
raun verið að óska eftir heimild til
að láta ríkissjóð kaupa skuldabréfin
fyrir hærra verð en aðrir væru til-
búnir að greiða fyrir þau í því skyni
að koma ÞÞÞ undan afplánun vara-
refsingar eða stytta afplánunar-
*Tíma.
I umsögn Ragnars er bent á að
lögum samkvæmt falli fjárnám í
lausafé eða kröfur niður að liðnu ári
frá því það var gert ef krafa frá
gerðarbeiðanda um nauðungarsölu
eða aðra lögmæta ráðstöfun hins
fjárnumda hafi ekki borist sýslu-
manni innan þess tíma. Gögn máls-
ins beri með sér að sýslumaður hafi
ekki gert reka að því fyrir 28. des-
ember 1996 að selja þau skuldabréf
sem hann hafði gert fjárnám í einu
ári fyrr, og fjárnámsréttur inn-
heimtu ríkissjóðs í þessum bréfum
því fallið niður þann dag, en fjár-
nám í fasteign hafi hins vegar ekki
r.fallið niður. Þetta virðist sýslu-
' manni hafa yfirsést á sínum tíma og
Ríkisendurskoðun einnig þegar
stofnunin lagði lögfræðilegt mat á
atvik málsins. Þetta sé afar mikil-
vægt atriði einkum vegna þess að
annað skuldabréfið sem um ræðir
hafi ekki verið eign ÞÞÞ heldur eig-
inkonu hans sem samþykkti að bent
væri á bréfið til fjárnáms. Sam-
þykki hennar hefði einnig legið fyrir
við síðara fjárnámið en ekki sé víst
að það hefði fengist ef ekki hefði þá
... verið búið að tryggja að greiðslur af
bréfinu rynnu beint inn í sektar-
dóminn.
Fyrirmæla í aðfararlögum
ekki gætt
I skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram að í ljósi þess að
greiðsla barst af bréfunum á fyrsta
gjalddaga þeirra hafi augljóslega
verið ríkissjóði hagfelldara að halda
bréfunum áfram í vörslum ríkis-
sjóðs og innheimta það þegar það
félli í gjalddaga. Þetta telur Ragnar
óheimilt þar sem fjárnámshafi hafi
ekki sömu stöðu að þessu leyti eins
og sá sem fengið hefur kröfur að
handveði til tryggingar á skuld.
Fram kemur að þegar greitt var
*■ af skuldabréfunum tveimur í febrú-
ar 1997 hafi bæði gerðarþoli og
sýslumaður staðið í þeirri trú að
fyrir hendi væri gilt fjárnám í um-
ræddum skuldabréfum. Svo virðist
sem fyrirmæla í aðfararlögum hafi
ekki verið gætt í sambandi við inn-
heimtu þessa fjár, en því hafi án at-
hugasemda af hálfu gerðarþolans
verið ráðstafað upp í skattskuldir
hans, enda hafi ekki annað verið til
innheimtu á hendur honum hjá
sýslumannsembættinu á þeim tíma.
Endurupptaka fjárnáms heimil
í skýrslu Ríkisendurskoðunar er
því haldið fram að sýslumaður hafi
ekki haft lagaheimild til að endur-
upptaka fjámám í skuldabréfunum
en því er Ragnar ósammála og vísar
hann til greinar í aðfararlögum þar
sem kveðið sé á um að endurupp-
taka skuli fjárnámsgerð ef allir
málsaðilar séu á það sáttir og svo
hafi verið í þessu tilfelli. Hann telur
að nauðsynlegt hafi verið af hálfu
sýslumannsins á þeim tíma sem
fjárnámið var endurupptekið að
gera nýtt fjárnám hjá gerðarþolan-
um til að tryggja ríkissjóði fulln-
ustumöguleika af verðmæti skulda-
bréfanna þar sem eldra fjárnámið í
þeim var fallið úr gildi. „Þetta var
gert, en augljóslega af annarri
ástæðu, nefnilega þeirri að sýslu-
maður hafði tekið um það ákvörðun,
án samráðs við viðkomandi ráðu-
neyti, að láta allar greiðslur sem
fengjust upp í kröfur ríkissjóðs,
ganga fyrst til lúkningar sektar-
kröfunni,“ segir í umsögn Ragnars.
Hann bendir á að endurupptaka
fjárnámsins hafi í reynd aðeins falið
í sér lausnargerð þar sem veðbönd-
um var aflétt bæði af skuldabréfun-
um og umræddri fasteign. Beint í
kjölfar endurupptökunnar hafi ver-
ið gerð tvö ný fjárnám hjá gerðar-
þolanum sama dag og lýst yfir fjár-
námum í sömu verðmætum og áður.
Fjárnámin hafi farið fram með 15
mínútna millibili og fjárnámskröf-
urnar teknar fyrir í sömu röð og
þær höfðu borist embættinu, þ.e.
sektarkrafan fyrst og skattakrafan
á eftir, og sektarkrafan þar með
orðið rétthærri. Ef kröfurnar hefðu
hins vegar verið innfærðar sama
dag hefðu kröfurnar orðið jafnrétt-
háar, og glögglega sjáist af gögnum
málsins að sýslumaður hafi á ein-
dæmi sitt tekið ákvörðun um það að
skipa rétthæð krafnanna með þess-
um hætti. Þessa ákvörðun hafi hann
rökstutt í bréfi til dómsmálaráðu-
neytisins 7. janúar síðastliðinn, þar
sem segir m.a. að ákvörðunin sé
byggð á mati hans á því hvernig
hagsmunir ríkissjóðs verði best
tryggðir. Ragnar telur röksemda-
færslu sýslumannsins sérkennilega
og sér í lagi þar vegna þess að i báð-
um tilvikum sé um að ræða dæmdar
kröfur í eigu ríkissjóðs. Telur hann
þá ákvörðun sýslumannsins að
aflétta eldra fjámáminu af fasteign-
inni til þess að hleypa sektarkröf-
unni fram fyrir skattkröfuna vera
afar órökrétta.
„Sektarkrafan var ekki orðin til
þegar upphaflega fjárnámið var
gert í fasteigninni og engir ann-
markar voru á þeirri fjárnámsgerð
sem réttlætt gætu tilfæringar af
þessu tagi. Eg tel að þær réttar-
heimildir sem sýslumaðurinn hefur
vísað til í þessu samhengi eigi hér
hreinlega ekki við,“ segir Ragnar.
Óvenjuleg staða
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
segir að ekki hafi verið mætt af
hálfu ríkissjóðs á uppboðinu þegar
umrædd skuldabréf voru seld nauð-
ungarsölu, en það segir Ragnar
ekki vera alls kostar nákvæmt því
við þessa nauðungarsölu hafi sýslu-
maðurinn á Akranesi verið sem inn-
heimtumaður ríkissjóðs. Uppboðið
hafi sýslumaðurinn haldið sjálfur,
en annar starfsmaður sýslumanns-
ins verið mættur þar sem fulltrúi
ríkissjóðs.
Ragnar bendir á að þegar sýslu-
maður hafi leitað eftir heimild fjár-
málaráðuneytisins til að bjóða í
skuldabréfin fyrir ríkissjóð hafi ver-
ið komin upp afar óvenjuleg staða í
málinu. Ljóst hafi verið að hvert svo
sem söluverð bréfanna yrði gengi
það beint upp í sektarkröfuna, og
þar með væri sýslumaðurinn í raun
að óska eftir heimild til að láta ríkis-
sjóð kaupa skuldabréfin fyrir hæiTa
verð en aðrir væru tilbúnir til að
greiða fyrir þau í því skyni að koma
ÞÞÞ undan afplánun vararefsingar
eða stytta afplánunartímann.
„Ég tel einnig afar sérstætt í Ijósi
allra aðstæðna að sýslumaður
skyldi ekki hafa samráð um það við
Athugasemdir fjármálaráðuneytisins við skýrslu Rflrisendurskoðunar
Fyrirmæli til sýslu-
manns um að fara að
gildandi reglum
í ATHUGASEMDUM, sem fjár-
málaráðuneytið sendi Ríkisendur-
skoðun síðastliðinn föstudag vegna
þeirra gagnrýnisatriða sem lúta
með beinum eða óbeinum hætti að
ráðuneytinu í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um innheimtu skatt-
*skulda og dómsektar Þórðar Þ.
Þórðarsonar á Akranesi, segir að
’ ráðuneytið hafi ekki verið spurt um
það hvort heimila ætti endurupp-
töku á fjárnámi vegna skattskulda
ÞÞÞ heldur hvort heimila ætti að
láta greiðslur samkvæmt skulda-
bréfinu fyrst ganga upp í greiðslu
sektarinnar á undan skattskuldinni.
Jafnframt segir í athugasemdun-
um að í afstöðu ráðuneytisins hafi
falist fyrirmæli til sýslumanns um
að fara að gildandi reglum og meta
sjálfur hvort skuldari hafí rétt til að
ráðstafa greiðslum samkvæmt
skuldabréfmu.
Þær almennu reglur sem ráðu-
neytið sé þarna að vísa til séu m.a.
ákvæði tekju- og eignarskattslaga
um þá stefnu við innheimtu að allir
gjaldendur sem eins stendur á um
við innheimtu, vanskil og nauðung-
araðgerðir, skuli hljóta sams konar
..meðferð, og að ekki sé heimilt að
semja um skattskuldir sem til-
komnar séu vegna skattsvika.
Einnig hafi verið vísað til þess al-
menna sjónarmiðs við innheimtu
opinberra gjalda að innheimtumað-
ur skuli gera allt sem í hans valdi
stendur til að tryggja þá hagsmuni
ríkissjóðs að fá greiðslu skatt-
skulda. Þá segir að ráðuneytið hafi
hvorki tekið afstöðu til þess hvort
innheimtumaður fór að þessum
reglum, né heldur hvort skuldari
hafi átt rétt til að hafa áhrif á hvaða
skuld hans yrði greidd fyrst, og vís-
ar ráðuneytið í þessu efni til grein-
argerðar sýslumanns sjálfs.
Ráðuneytið bendir á að Ríkisend-
urskoðun og reyndar flestum öðr-
um hafi yfirsést í þessu máli að hið
upphaflega fjárnám vegna skatt-
skulda sé eftir því sem best verði
séð fallið niður þegar nýja fjárnám-
ið fer fram. Samkvæmt lögum frá
1989 um aðför falli fjárnám sjálf-
krafa niður að liðnu ári frá því að
það var gert ef krafa frá gerðar-
beiðanda um nauðungarsölu eða
aðra lögmæta ráðstöfun hins
fjárnumda hafi ekki borist sýslu-
manni innan þess tíma, og þegar
ráðuneytið hafi ritað bréf sitt 15.
júlí 1997 hafi ekkert fjárnám verið
í gildi. Því séu ákvæði aðfararlag-
anna um heimildir til endurupp-
töku fjárnáms þessu máli óviðkom-
andi.
Afstaða Ríkisendurskoðunar
byggð á röngum forsendum
í athugasemdum fjármálaráðu-
neytisins segir að svo virðist sem
Ríkisendurskoðun byggi afstöðu
sína varðandi sölu skuldabréfanna á
nauðungarsölu ekki á réttum for-
sendum, og það sé rangt að með því
að gera fjárnám í skuldabréfunum
hafi ríkissjóður eignast þau. Til að
fá greiðslu verði gerðarbeiðandi al-
mennt að hlutast til um að kröfunni
verði komið í verð og fá andvirðið í
sinn hlut, en það verði ekki gert
með öðrum hætti en að selja bréfin
við nauðungarsölu. Telur ráðuneyt-
ið því að það hafi ekki verið mögu-
legt til að tryggja hagsmuni ríkis-
sjóðs að halda skuldabréfunum og
innheimta afborganir af þeim án
þess að grípa til frekari ráðstafana,
þ.e. sölu bréfanna á nauðungarsölu.
Sýslumaður mætti á uppboðið
fyrir hönd ríkissjóðs
Þá segir fjármálaráðuneytið þá
staðhæfingu Ríkisendurskoðunar
ranga að ekki hafi verið mætt á
uppboðið á skuldabréfunum fyrir
hönd ríkissjóðs. Sýslumaður, sem
jafnframt sé innheimtumaður ríkis-
sjóðs hafi mætt þar, en sýslumönn-
um beri að annast alla innheimtu
frá því krafa gjaldfellur og þar til
hún sé greidd, afskrifuð eða felld
niður með öðrum hætti. Aftur á
móti hafi legið fyrir sú afstaða
ráðuneytisins að innheimtumaður
ríkissjóðs ætti ekki að bjóða í bréf-
in.
Það sé í samræmi við fram-
kvæmdareglur sem innheimtu-
menn fari eftir að þeir óski álits og
heimildar ráðuneytisins áður en
þeir bjóði í eignir við nauðungar-
sölu, og sú afstaða ráðuneytisins
hafi legið fyrir að ekki bæri að
bjóða í eignina.