Morgunblaðið - 18.02.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 41
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglu
Róleg helgi í Reykjavík
13. til 15. febrúar
HELGIN var fremur róleg hjá
lögreglu og voru rúmlega fjögur
hundruð verkefni færð til bókunar.
Um helgina voru 11 ökumenn
stöðvaðir vegna gruns um ölvun
við akstur og 20 vegna
hraðaksturs. Þá voru höfð afskipti
af fleiri ökumönnum vegna ýmissa
umferðarlagabrota.
Nokkuð var um að lögreglan
hefði afskipti af börnum sem voru
úti eftir lögbundinn útivistartíma.
Um helgar eru börnin færð í
athvarf sem lögreglan ásamt
Félagsmálastofnun og íþrótta- og
tómstundaráði reka við Túngötu.
Þangað verða síðan foreldrar eða
forráðamenn að sækja börn sín. I
sumum tilvikum eru börnin flutt á
nærliggjandi lögreglustöð. Ekki
virðast allir forráðamenn virða
þær reglur sem gilda fyrir útivist
barna, en ábendingar lögi-eglu eru
skýrar.
Samhliða auknum hættum sem
börn standa frammi fyrir eykst
gildi þess að virða útivistarreglur.
Það er reynsla lögreglu að það sé
einkum eftir gildandi útivistartíma
sem börn hafa greiðari aðgang að
áfengi. og fíkniefnum. Lögreglan
hefur sem dæmi haft afskipti af
sölumönnum fíkniefna á stöðum
þar sem ungmenni safnast jafnan
saman seint á kvöldin um helgar.
Mikilvægt er því að foreldrar virði
þær reglur sem í gildi eru.
Skemmdarvargur á ferð
Aðfaranótt laugardags var 19
ára piltur handtekinn fyrir að
krota á veggi Pósthússins í
miðbænunum. Hann hafði einnig
unnið svipaðar skemmdir á öðrum
mannvirkjum í miðborginni.
Pilturinn má vænta sekta fyrir
þetta brot sitt.
Klukkan 21.27 á föstudag var
lögreglu tilkynnt um eld í
Herkastalanum við Kirkjustræti 2.
Þar logaði eldur í línskáp á þriðju
hæð og gekk greiðlega að slökkva
hann. Mikinn reyk lagði um húsið
og þurfti að reykræsta það.
Löggæsla vegna útfarar
Lögreglan annaðist gæslu og
umferðarstjórn vegna útfarar
Halldórs Kiljans Laxness sem
gerð var frá Kristskirkju á
laugardag. Nokkrum nærliggjandi
götum var lokað um tíma á
laugardag og þannig útbúin
bílastæði, en mikið fjölmenni var
við athöfnina.
Morgunblaðið/Ásdís
JÓHANNES Jónsson ásanit nemendum 7. og 8. bekk Engjaskóla.
Jóhannesi í Bónus fært
viðurkenningarskj al
NEMENDUR í 7. og 8. bekk Engja-
skóla í Grafarvogi hafa afhent Jó-
hannesi Jónssyni í Bónus sérstakt
viðurkenningarskjal vegna þeirrar
afstöðu hans að selja ekki tóbak í
verslunum sínum. Um var að ræða
sérhannað skjal sem krakkarnir
hönnuðu sjálfir.
Við sama tækifæri afhenti Ingi-
björg Pálmadóttir, heilbrigðisráð-
hera, Jóhannesi viðurkenningaskjal
fyrir gott framlag til tóbaksvarna
en Tóbaksvarnanefnd mun á næst-
unni veita ýmsum aðilum (verslun-
um og kaffihúsum) slík viðurkenn-
ingarskjöl.
ABAUGLVSIISIC3AR
BÁTAR SKIP j| TILKYNNINGAR
Fiskiskip til sölu
Vélbáturinn Grímsey II ST 102,
sskrnr. 1317, sem er 30 brúttórúmlesta eikar-
bátur, byggður á Skagaströnd árið 1973.
Aðalvél Cummins 305 hö. frá 1987. Báturinn
selst með veiðileyfi en án aflahlutdeilda.
Báturinn er útbúinn fyrir neta- og togveiðar.
Fiskiskip — skipasala,
Hafnarhvoli v/Tryggvagötu,
sími 552 2475.
Skarphéðinn Bjarnason, sölustj.,
Gunnar I. Hafstpinsson, hdl.,
Magnús Helgi Arnason, hdl.
ÝIVIISLEGT
Auglýsing um mat á umhverfisáhrifum
— frumathugun
Laugarvatnsvegur,
Úthlíð - Múli
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningarfrá 18. febrúartil 25. mars
1998 á eftirtöldum stöðum; hjá oddvita Bisk-
upstungnahrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun, Reykjavík.
Allir hafa rétttil að kynna sérframkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25.
mars 1998til Skipulagsstofnunar, Laugavegi
166,150 Reykjavík. Þarfást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
KÓPAVO GSBÆR
Lóðir við Akralind
Kópavogsbær auglýsir iðnaðarlóðir við Akra-
lind 3, 5 og 7 lausar til úthlutunar. Á lóðunum,
sem eru 2.300—3.000 m2 að flatarmáli, skal
byggja 2ja hæða iðnaðarhúsnæði 500—600
m2 að grunnfleti.
Áætlað er að lóðirnar verði bygginarhæfar
1. september 1998.
Skipulagsuppdættir, skipulags- og byggingar-
skilmálar svo og umsóknareyðublöð fást af-
hent á Tæknideild Kópavogsbæjar, Fannborg
2, 3. hæð milli kl. 9—15 alla virka daga.
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir
kl. 15.00 þriðjudaginn 24. febrúar 1998.
Eldri umsóknir þarf að endumýja.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
FUNDIR/ MAISIISIFAGIMABUR
Aðalfundur
Aðalfundur Fiskiðjunnar Skagfirðings hf.,
vegna rekstrartímabilsins 1. janúartil 31. ágúst
1997 verður haldinn á Kaffi Krók, miðvikudag-
inn 25. febrúar 1998 kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins.
2. Önnur mál.
Ársreikningur félagsins, auk skýrslu endur-
skoðenda, liggurframmi hluthöfumtil sýnis
á skrifstofum FISKs á Sauðárkróki og í Grund-
arfirði 7 dögum fyrir aðalfund.
Stjórnin.
Almennur fundur
í Læknafélagi Reykjavíkur, fimmtudaginn
19. febrúar kl. 20.30 að Hlíðarsmára 8 í
Kópavogi.
Fundarefni:
1. Fræðslustofnun lækna — Stefán B.
Matthíasson.
2. Punktakerfi í fjögur ár — Þórður G. Ólafs-
son.
3. Hugleiðing um símenntun — Ari
Jóhannesson.
Áfundinum þarf að kynna framboð til stjórnar
LR sem kosin verður á aðalfundi félagsins
19. mars (sjá auglýsingu í síðasta læknablaði).
Stjórn LR.
Fundur um
greiðslukortamál
Þriðjudaginn 24. febrúar nk. klv8.00 standa
Samtök verslunarinnar — FÍSfyrir morgun-
verðarfundi um greiðslukortamál í Hvammi,
Grand Hóteli í Sigtúni.
Til umfjöllunarverðurnýfallinn úrskurður
Samkeppnisráðs vegna greiðslukorta og þau
úrræði sem kaupmenn geta gripið til.
Framsögumenn á fundinum verða:
• Anna Birna Halldórsdóttir
frá Samkeppnisstofnun.
• Haukur Þór Hauksson, varaformaður
Samtaka verslunarinnar.
• Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus.
Allir þeir sem stunda verslun af einhverju tagi
eru hvattirtil að mæta á fundinn og kynna sér
málin.
Þátttökugjald er kr. 1.000, morgunverður inni-
falinn.
Fundurinn er öllum opinn.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu sam-
takanna í síma 588 8910.
TIL SÖLU
Vinnubúðir, vinnuskúrar
Til sölu notaðar vinnubúðir stærð 2,50 x 7,40
metrar. Hagstætt verð.
Formaco, sími 588 7155.
Lagerútsala
Vegna flutninga höldumvið lagerútsölu í hús-
næði okkará Bíldshöfða 16.
Boðið er upp á mikið úrval af leikföngum,
barnavöru og barnafatnaði.
Allt að 40% afsláttur af heildsöluverði.
Opnunartími frá 11.00 — 17.00 virka daga.
Heildverslunin Ársel,
Bíldshöfða 16, ekið inn í portið.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 7 = 17902188'/2 * Fl.
I.O.O.F 9 = 1782188’/í = 9.0.
□ GLITNIR 5998021819 I
I.O.O.F. 18 = 1782188 = F1.
□ HELGAFELL 5998021819 IVA/ 2
Frl.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00
_ SAMBAND (SLENZKFiA
v/ KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Almenn kristniboöossamkoma
í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður:
Sr. Frank M. Halldórsson.
Allir velkomnir.
REGLA MUSTERISRIDDARA
RM Hekla
- 18 - 2 - KS
- MT