Morgunblaðið - 18.02.1998, Síða 43

Morgunblaðið - 18.02.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 43 Dýraglens Ljóska /ytérdatt þai> / hag— en pabbl hans & risasbór tq pabbc m 'mn er fremur^- iitiU og hjeylatur^^ Ferdinand BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Við kjósum framfarir - Sjöfn sem formann Frá Jakobi Frímanni Þorsteinssyni og Óskari Dýrmundi Ólafssyni: STARFSMANNAFÉLAG Reykja- víkur er félag með langa sögu og ríka hefð. Þetta á þó sérstaklega við í kjaraumræð- unni gagnvart vinnuveitandan- um, Reykjavíkur- borg. Ný starfs- mannastefna Reykjavíkur- borgar hefur ver- ið lögð fram og með margvísleg- um hætti er verið að færa rekstur hennar til nú- tímalegi-a hátta. Þetta þýðir að breytingar eru á döfmni og vakna spurningar um hvernig St.Rv. ætlar að mæta þessari þróun, hvernig félag með fastmótaðar hefðir ætlar að vera virkur þátt- takandi í þeirri kjaraumræðu sem framundan er. I nýgerðum kjara- samningum var rn.a. samið um við- ræður um nýtt launakerfi. I nýju launakerfi felast mörg tækifæri en jafnframt margar hættur. Á næstu mánuðum kemur í Ijós hvernig við getum notað okkur þau sóknarfæri sem þar liggja. St.Rv. hefur síðastliðin ár lagt ríka áherslu á að efla fræðslu og starfsmenntun á vegum Reykjavík- urborgar. I þessari vinnu hefur sitj- andi formaður og stjórn verið virk og má með sanni segja að framfara- spor hafi verið stigin í að efla fræðslustarf hjá borginni. Til stend- ur að leggja stóraukna áherslu á trúnaðarmannafræðslu St.Rv. og stuðla að aukinni virkni og hæfni starfsmanna til að takast á við kjarabaráttuna. Vel þjálfaðir og upplýstir félagar í St.Rv. eru kjarni félagsins og styrkur þess. Við sem ung erum að árum hugs- um oft lítið um lífeyrismál. Nú standa yfir viðræður um að breyta lífeyrissjóði okkar borgarstarfs- manna til samræmis við breytingar á lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna. Mikilvægt er að vel sé haldið á þeim málum. Á miðvikudag og fímmtudaginn nk. verður kosið um formann fé- lagsins. Formaðurinn mun vera í lykilhlutverki í þeim breytingum sem standa yfir. Þetta mun krefjast þess að viðkomandi hafí mikla reynslu, þekki stöðuna vel í dag og sé opinn fyrir framtíðinni. Þessa kosti sjáum við í Sjöfn Ingólfsdótt- ur. Undirritaðir hafa fengið að njóta þess að starfa með henni innan fé- lagsins á undanförnum árum. Við treystum Sjöfn best til að takast á við framangreind verkefni og veita félaginu forystu í áframhaldandi kjarabaráttu. JAKOB FRÍMANN ÞORSTEINSSON, fulltrúi 16. deildar í samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkur, ÓSKAR DÝRMUNDUR ÓLAFSSON, situr í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Jakob Frímann Þorsteinsson Óskar Dýrmundur Ólafsson Agavandi í mennta- málaráðuneytinu Frá Birni Bjarnasyni: í VIÐTALI um endurskoðun námskrár íyrir gi-unnskólann segir Jónmundm- Guðmarsson „... að það sé sátt í þjóðfélaginu um að enginn falli í grunnskóla, og svo verði áfram“. (Mbl. 10/1 ‘98). Þetta kemur mér verulega á óvart því að þeir for- eldrar gi’unnskólabama, sem ég þekki til, era alls ekki þessarar skoð- unar. Getur Jónmundur vísað í ein- hverja könnun þessu til áréttingar og þá til einhverrar könnunar meðal foreldra. Var ekki markmiðið með nýju lögunum að foreldrar fengju einhverju að ráða í skólamálum. Ragnheiður Briem íslenskukenn- ari sagði í mjög góðu viðtali við Morgunblaðið 13. janúar 1998: „Eitt versta slysið í grunnskólanum tel ég vera þá ákvörðun að nemendur skuli færast milli bekkja hvort sem þeir ná prófum eða ekki.“ Ennfrem- ur segir RB: „Það skiptir ekki einu sinni máli hvort hann (nemandinn) verður læs og skrifandi, áfram skal hann upp í næsta bekk.“ Jónmundi er umhugað um aga í skólum en telur hann koma af sjálfu sér. Hann mætti útskýra lausnir agavandamála betur og einkum hvernig það tengist því agavanda- máli í væntanlegri námskrá að eng- ar kröfur megi gera til nemenda. BJÖRN BJARNASON, Álfheimum 42, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. H HÚ5MÆPURATHU6IP: h RAUTT EÐALGINSENG .Morgunroðinn vætir' .Kvöldroðinn bætir' Eitthvað um stund og mund, en ég lagði aldrei trúnað á það ... Skerpir athygli - eykur þol.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.