Morgunblaðið - 18.02.1998, Page 44

Morgunblaðið - 18.02.1998, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS I' DAG Sjöfn er traustsins verð Frá Garðari Hilmarssyni: ÞEGAR Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar var gert að hlutafélagi um áramótin 1995/1996 hafði það sinn aðdraganda. Á meðan eigendur og stjóm fyrir- tækisins undir- bjuggu þennan gjörning, þurfti starfsfólk Skýrr einnig að skoða sín mál. Eftir að það var gert og skoðaðir höfðu verið ýmsir val- kostir, var tekin ákvörðun með allsherjar atkvæðagreiðslu um að vera áfram í Starfsmannfélagi Reykjavíkur. Þetta var hægt með- al annars vegna þess að félagið hafði verið undirbúið til þess að geta tekist á við þessar breyttu að- stæður. En það sem skipti mestu máli var að við starfsfólk Skýrr treystum félaginu, og ekki síst for- manni þess, Sjöfn Ingólfsdóttur, til halda þannig á málum að hags- munir okkar yrðu í fyrirrúmi. Það gekk eftir, og frá byrjun og æ síð- an hefur hún unnið í okkar málum og með okkar hagsmuni í huga. Sjöfn hefur unnið út frá því að hvorki félagið né hún ættu þessar sálir. Hún hefur ætíð haft það að leiðarljósi að það væri fólkið sem yrði fyrir breytingunni sem máli skipti og ekkert annað. Hún hefur viljað þjóna því, hvaða ákvörðun sem það hefur tekið, hvort sem það vildi fara eða vera. Á sama hátt hefur hún unnið fyr- ir það fólk sem á eftir hefur komið og mun vinna fyrir þá sem síðar koma. Því enginn veit hvaða stofn- un/fyrirtæki er næst, og þá er gott að eiga formann með reynslu og sem er traustins verður. Ef félagsmenn hafa viljað skipa sér í sveit með öðrum hætti þá hef- ur hún ekki staðið í vegi fyrir því og stutt það þann veg, en ef það hefur valið þá leið sem við starfs- fólk Skýrr gerðum, hefur hún varið það með oddi og egg. Hún er manneskja sem hikar ekki við að standa með sínu fólki hvar sem er og hvenær sem er. Eg hef unnið með henni í félags- málum lengi, og veit að hún er heiðarleg, réttsýn og er tUbúin til þess að fóma sér í þágu þess fólks sem hún er umbjóðandi fyrir með hagsmuni þess að leiðarljósi. Sjöfn á það skilið að við sýnum henni í verki að við metum verk hennar að verðleikum. Því skora ég á félags- menn að mæta á kjörstað og kjósa hana áfram til forystu, því það er félaginu nauðsyn. GARÐAR HILMARSSON, formaður starfsmannafélags Skýrr hf. Garðar Hilmarsson Afnám trúfrelsis árið 1000 Frá Sigurjóni Þórðarsyni: NÝLEGA var haft viðtal við Björg- vin Brynjólfsson, oddvita Samtaka aðskilnaðar ríkis og kirkju (SARK), í fréttatíma Stöðvar 2, þar sem fram kom sú skoðun að furðu sætti að æðstu embættismenn í lýðræðisríki væru að halda upp á að 1000 ár væru liðin frá afnámi trúfrelsis, þ.e. kristnitökunni á Þingvöllum. Sann- leikurinn er sá að kristnir og heiðn- ir menn höfðu lifað í landinu frá landnámi en með kristnitökunni var trúfrelsi heiðinna manna skert verulega. Trúfreisi þykir sjálfsögð mannréttindi nú í lok 20. aldar og skýtur því skökku við að íslenska ríkið sé að halda upp á mannrétt- indabrot sem framin voru fyrir 1000 árum. Samkomulaginu um kristnitök- una árið 1000 var m.a. náð fram með þvingunum og gíslatöku Nor- egskonungs. Það kemur fram í grein í Skírni frá árinu 1941 en höf- undur hennar er Einar Arnórsson, fyrrum rektor Háskóla íslands, ráð- herra og hæstaréttardómari. Einar fjallar um kristnitökuna á gagnrýn- inn hátt og vegur og metur heimild- ir sem fjalla um atburðina árið 1000. I greininni er meðal annars fjallað um ýmsar þjóðsögur sem spunnust í kringum kristnitökuna svo sem legu Þorgeirs lögsögumanns undir feldi, jarðelda í Ölfusi, mannblót heiðinna manna og primsigningu og skím þingheims. Höfundur afgreiðir allar framangreindar sagnir sem seinni tíma tilbúning. Að lokum hvet ég þá sem fjalla um undirbúning hátíðarinnar á Þingvöllum til þess að lesa grein Einars og að hafa í heiðri sagn- fræðilegar staðreyndir um atburð- ina á Þingvöllum árið 1000. SIGURJÓN ÞÓRÐARSON, Víðimýri 4, Sauðárkróki. P0PPK0RN VELVAKAMIl Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til fostudags Ættingja leitað VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf: „Ingvald Idsöe í Noregi óskar eftir að komast í samband við eitthvað af skyldmennum sínum hér á Islandi. Móðurfjölskylda hans er af íslenskum ætt- um en flutti á sínum tíma til Stavanger í Noregi. Með hjálp Þjóðskjalasafns Islands hefur Ingvald fengið upplýsingar um að einn forfeðra hans, Sæ- mundur Hannesson, var fæddur 30. apríl 1872 að Júnkaragerði í Útskála- sókn. Faðir Sæmundar var Hannes Hannesson vinnu- maður á Læk í Krísuvíkur- sókn og móðir Kristín Jónsdóttir. Þeir sem geta hjálpað Ingvald í þessari leit hans að íslenskum ætt- ingjum eru vinsamlega beðnir um að senda honum línu:“ Ingvald Idsöe, Tastarustá 15, N-4027 Stavanger, Norge. Aheitasjóður Þorláks helga „GEGNUM tíðina hafa ýmsir heitið á Strandar- kirkju og gefist vel. Ekki er verra að heita á Þorlák biskup helga, sem einu sinni var klerkur í Odda. Þeim sem eiga við einhver vandamál að stríða, eða óska sér einhverra hags- bóta, er bent á möguleik- ann að heita á Þorlák. Til er áheitasjóður Þorláks helga, sem ávaxtaður er í Búnaðarbankanum á Hellu, með yfirumsjón Sigurðar Jónssonar prests í Odda og fleiri aðila. Sá sem þetta ritar hefur af og til heitið á Þorlák, og fengið óskir sínar upp- fylltar. Auðvitað má svo lengi um það deila hvort þetta sé að þakka hinum forna Skálholtsbiskupi eða öðrum góðum öflum. En ekki skaðar að heita á Þorlák, bara að prófa það.“ Eyjólfur. Hugmynd komið á framfæri „ÉG SÁ í fréttum á Stöð 2 í gær að fyrirtæki á Akur- eyri hefði samið við nokkra leigubíla þar í bæ um að merkja bílana með auglýs- ingum. I fréttinni var talað um að þeir fengju 10 þús- und krónur á mánuði fyrir vikið. Ég er með þá hug- mynd að fyrirtæki gætu fengið öryrkja til þess að líma svona auglýsingar á bílana sína, ég er viss um að þeir tækju minna fyrir en leigubflarnir og gæti það komið sér vel fyrir marga öryrkja sem lifa á lágum tekjum. Svo langar mig tfl að biðja allt unga fólkið að at- huga hvað það er að gera í eiturlyfja- og vímuefna- málum. Þetta unga fólk sem er að fikta í þessum efnum gerir sér kannski ekki grein fyrir þvi að þetta á eftir að koma niður á börnum þeirra, ég er viss um að það vill að börnin þeirra verði hefl- brigð og hraust og líði ekki fyrir líferni foreldra sinna.“ Öryrki. Tapað/fundið Stór blá taska týndist STÓR blá taska, sem stendur „Names in Mila- no“ utaná, týndist líklega á Skuggabar sl. fóstudags- kvöld. Skilvís finnandi hafi samband í síma 588 3302. Fundarlaun. Svartur hanski 1 óskilum SVARTUR hanski með skinni í lófa, fannst sl. fóstudag á Barónsstíg. Uppl. í síma 551 4706. Stórt kvenmannshjól í óskilum STÓRT kvenmannshjól með rauðu stelli og barna- stól í óskflum. Uppl. í síma 552 0873. Úlpa í óskilum KARLMANN SÚLPA fannst í Rimahverfi í Graf- arvogi. Upplýsingar í síma 567 7987. SKAK llmsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á opnu móti í Genf í Sviss um mán- aðamótin. Heimamaðurinn Hung Fioramonti (2.365) var með hvítt, en Igor Khenkín (2.565), ísrael, hafði svart og átti leik. 36. - Haxb4! 37. Hxb4 - Hxb4 38. Dxb4 (38. Hxc6 - Hb2 39. Kgl - einnig 38. - Khl - Kh2 - Khl - Dxh3 er vonlaust) Dxf2+ 4. Df3+ 5. Dg3+ 6. Dxh3+ og hvítur gafst upp. Eftir 7. Kgl - Dxe3+ 8. Kg2 - Dxcl hefur svartur unnið hrókinn til baka og fengið hvorki meira né minna en fimm peð í kaup- bætí! Úrslit mótsins: 1.-2. Khenkín, Goldin, Rússlandi og Sulskis, Litháen 7 v. af 9 mögulegum, 4.-6. Malarijúk, Úkraínu, Wojtkiewicz, Pól- landi og Bucher, Sviss 6 Vfc v. Á meðal þeirra sem hlutu 6 vinninga voru þeir Boris Gulko, Andrei Sokolov og Vladímir Tukmakov. SVARTUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... NÝLEGA var frá því skýrt, að vegna aukinns umfangs í erfða- fræðirannsóknum á íslandi, gæti orð- ið aukin þörf fyrir lækna í komandi framtíð. Því væri athugandi hvort unnt væri að fá Háskóla íslands til þess að draga úr fjöldatakmörkunum í læknadeild, svo að fleiri læknar út- skrifuðust. Undanfarin ár hefur svokallaður „numerus clausus" verið við lýði í læknadeild Háskóla Islands. Það er kerfi, sem stöðvar nemendur, sem fá góðar fyrstu einkunnir frá því að halda áfram námi, aðeins vegna þess að þeir eru í hópi nemenda, sem fá háar einkunnir, þ.e. meðaleinkunn hópsins er há. Aðrir nemendur og heppnari komast áfram í námi með 2. einkunn, vegna þess að meðaltalsein- kunnin í hópnum það árið er mun lægri. Þetta er það „réttlæti", sem Háskóli Islands býður ungmennum þessa lands upp á. Menn grunar að annarleg sjónar- mið standi hér að baki, svo sem fram kom á Alþingi nú nýlega, er einn af þingmönnunum sagði í ræðustól, að hann teldi að Háskóli Islands væri að verja atvinnuréttindi útskrifaðra kandídata frá Háskólanum með fjöldatakmörkunum. Þetta eru alvar- legar ásakanir. Fjöldi ungs fólks hefur hlotið ágæta einkunn t.d. á almenna lækna- prófinu í Háskólanum, en hefur ekki náð að halda áfram námi, vegna þess að aðeins rúmlega 30 manns komast að hverju sinni. T.d. hafa menn ekki fengið að halda áfram námi með ein- kunnina 8,3 og það þótt menn hafi tal- izt standast próf. Til þess að standast próf í Háskóla Islands þurfa menn einkunnina 5,0. Nú síðast þegar ung- menni í Háskólanum þreyttu þetta al- menna læknisfræðipróf komust menn að með einkunn undir 7,0. Hvers eiga þeir að gjalda, sem áður hlutu ein- kunnina 8,3 og var meinað um fram- hald náms? Væri ekki nær að spyrja það unga fólk, hvort það vildi nú hefja nám, þar sem prófmennirnir frá í ár væru með svo lágar einkunnir að þeir gætu ekki ætlazt til að sitja fyrir fólki með hærri einkunn. Nei, þetta kerfi er svo rotið að tekur engu tali. Kerfið beinlínis er fjandsamlegt ungu fólki, nemendum Háskóla íslands, sem er í raun ekkert nema nemendumir sjálf- ir. Eða hvað er skóli án nemenda? XXX VÍKVERJI lenti í því nú á dögun- um að hringt var í heimasíma hans og þegar hann svaraði, var hann spurður að þvi af kvenrödd, hvort hann vildi svara nokkrum spurning- um vegna skoðanakönnunar, sem ver- ið væri að gera fyrir DV. Víkverji játti því, kvaðst vilja svara. Þá komu spumingamar, m.a. hvort Víkverji væri meðmæltur eða á móti lagasetningu á kjai'adeilu sjómanna og loks kom að því að ein spumingin fjall- aði um það hvort Víkverji myndi Igósa D-lista eða R-lista, ef kosið væri til borgarstjómai' í dag. Víkverji kvaðst myndu ýósa D-listann. Var þá þakkað kærlega íyrir og ekki spurt frekar. Daginn eftir þetta símtal fóru að birtast niðurstöður úr könnunum DV og kom þá í Ijós mikið foi'skot R-lista yfir D-lista, en síðan kom svar við spumingu um það hvoru borgar- stjóraefninu viðkomandi treystu bet- ur, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur eða Áma Sigfússyni. Þar hafði Ingi- björg mikla yfirburði á Árna. Þessa spurningu fékk hins vegar Víkverji aldrei, þegar stúlkan hringdi og vildi fá upplýst, í nafni hins „frjálsa og óháða“ DV, hvernig Víkverji myndi bregðast við. Af hverju Víkverji var ekki spurður þessarar spurningar vekur upp með honum ákveðna tor- tryggni. Var hann ekki spurður, eftir að ljóst var að hann ætlaði að kjósa D-listann? Vora kannski bara óá- kveðnir og kjósendur R-listans spurð- ir að þessu? Þetta vekur jafníframt spurningar um óhæði þessa „frjálsa og óháða“ fjölmiðils, þar sem í stafni og við stjómvöl situr þingmaður Al- þýðuflokksins, sem í þokkabót er svili Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Era nokkur undur þótt framferði sem þetta veki efasemdir á áreiðanleik skoðanakannana DV?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.