Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 12
12 SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Á ATHAFNASVÆÐI Bischoff Gruppe í Bremerhaven á föstudag var
m.a. unnið að því að ferma vörubíl sem var á leið til Hannover.
Friedrich Liirssen
eða aðrar skoðanir en þeir sem ég
starfaði með, eða vildi semja við,
þá var auðvitað sest að samninga-
borðinu - þannig gengur lífið fyrir
sig í viðskiptum.“
- Heldur þú að fyrirtækið
Bischoff Gruppe muni breytast á
margan hátt, við það að Samskip
hafa keypt fyrirtækið?
„Það finnst mér í hæsta máta
líklegt. Nýtt fólk er nú að koma inn
í fyrirtækið, nýjar hugmyndir og
nýjar stefnur. Þessi atvinnurekst-
ur, rekstur skipafélaga, hefur
breyst mikið á undanfómum árum
og það er að mínu viti eðlilegt.“
Ólafur sannfærði Bischoff
um ágæti Samskipa
- Er ekkert einkennilegt til þess
að hugsa að þetta tæplega aldar
gamla fjölskyldufyrirtæki hætti að
vera fjölskyldufyrirtæki?
„Nei, það held ég ekki - þetta
verður öðruvísi, en þetta er eðlileg
breyting. Ég tel að þetta sé þýð-
ingarmikil breyting og gamla
rekstrarformið, fjölskyldufyrir-
tækið, verði nú að horfa til nýrra
og breyttra tíma. Fyrir okkur eru
þessi kaup Samskipa mjög góð nið-
urstaða."
- Þið voruð að tapa umtalsverð-
um fjármunum í rekstri á Bisehoff
Gruppe árið 1994, en ákváðuð samt
sem áður á þeim tíma, að fjárfesta
umtalsvert í Samskipum.
Hver var ástæðan fyrir
þeirri ákvörðun ykkar?
„Við hittum Ólaf
Ólafsson og hann sann-
færði okkur um að fjár-
festing í Samskipum væri góður
kostur," segir Erika og skellihlær
við tilhugsunina. Heldur svo áfram:
„Og veistu hvað - þetta var rétt hjá
Ólafi! En þetta er alveg rétt hjá
þér, þegar við tókum þessa ákvörð-
un 1994 vorum við talin hálfrugluð,
ef ekki bara galin, því ráðgjafar
okkar og lánadrottnar sögðu við
okkur: Hvað eruð þið að hugsa?
Samskip eru svo gott sem gjald-
þrota.
En Ólafur var með áætlanir sem
hann kynnti okkur og sannfærði
okkur um að reksturinn myndi
ganga upp og í okkar huga er eng-
in eftirsjá - ekki hin minnsta."
- Hver var ástæðan fyrir því að
þið buðuð Samskipum einu fyrir-
tækja til samningaviðræðna um
kaup á fyrirtækinu?
„Við höfðum átt afar farsælt
samstarf við Samskip. Við áttum
hóp af sameiginlegum viðskiptavin-
um, íyrirtækin tvö voru mjög svip-
uð að stærð, við vorum í svipuðum
rekstri, skiparekstri og flutning-
um, þannig að það að velja Sam-
skip var augljós kostur. Samruni
fyrirtækja og samvinna verður æ
algengari og þetta er einfaldlega
nútíminn í þessum viðskiptum.
Hinn kosturinn sem við stóðum
frammi fyrir, var einfaldlega sá, að
selja eignarhlut okkar í Samskip-
um, til þess að bæta stöðuna hjá
Bischoff. Niðurstaðan varð þessi.
En þá kom Ólafur til sögunnar og
sagði, ef Samskip kaupa á annað
borð, þá kaupir fyrirtækið 65% til
75% og þar sem við áttum hlut í
Samskipum, þá gátum við náð
þessu samkomulagi."
Styðja hvert annað
Friedrich, bróðir Eriku, hefur
lagt orð í belg, í þessum síðustu
orðaskiptum og ég spyr hann því:
Þú rekur þitt eigið skipa- og lysti-
snekkjusmíðafyrirtæki, hvaða hlut-
verki gegnir þú í fyrirtæki systur
þinnar?
Það verður örstutt, hálfvand-
ræðaleg þögn en svo svai-ar
Friedrich Lúrssen: „Ég er yngri
bróður systur minnar," og hlær og
aðrir fjölskyldumeðlimir gera slíkt
hið sama.
- Veit ég vel. En þú rekur þitt
eigið blómlega fyrirtæki. Mér leik-
ur forvitni á hvaða hlutverki þú
gegnir hjá Bischoff Gruppe.
Nú svarar Erika: „Hann var
hluthafi. Hann hjálpaði mér og
studdi mig.“ Friedrich heldur
áfram og segir: „Við erum ein fjöl-
skylda, við stöndum saman og við
styðjum hvert annað. Það er þýð-
ingarmikið fyrir okkur.“
- Ert þú mjög hörð af þér í við-
skiptum?
„Ekki svo mjög - held ég. Stund-
um þarf ég að beita ákveðinni
hörku, en ekki um of, vona ég. Ég
er alltaf kona,“ segir Erika og
brosir afar settlega!
- Hvernig sérð þú fyrir þér nána
framtíð fyrirtækisins, eftir að
Bischoff Gruppe er orðið
hlutaf Samskipum?
„Ég tel fyrirtækið
eiga fyrir sér bjarta
framtíð. Þess bíða stór
tækifæri til þess að vaxa
í öflugt flutningafyrirtæki á alþjóð-
legum markaði. Eg hef mikla trú á
framtíð fyrirtækisins.“
Seta í stjórn
Samskipa eðlileg
- Nú þegar þú ert orðih svo stór
hluthafi í Samskipum, er þá ekki
eðlilegt að þú fáir stjómarsæti í
Samskipum?
„Jú, sennilega. En við skulum
ekki fara fram úr okkur sjálfum.
Þetta er hlutur sem við þurfum að
ræða við Ólaf Ólafsson, næst þegar
hann kemur hingað.“
Friedrich bætir hér við: „Þetta
er auðvitað rétt hjá þér. Það er
fullkomlega eðlilegt að jafnstór
hluthafi og systir mín í Samskip-
um, eigi sæti í stjórn fyrirtækisins.
Slíkt væri tilfellið undir eðlilegum
kringumstæðum."
Val á Sam-
skipum var
augljós kostur
s
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
FORSTJÓRARNIR tveir, Herbert Behrens og Róbert Wessmann, munu stýra Bischoff Gruppe í sameiningu.
Eitt fynrtæki,
tveir forstjórar
EIR Herbert Behrens,
sem um árabil hefur verið
forstjóri Bischoff Gruppe
og Róbert Wessmann taka
á móti okkur Morgunblaðsfólki í
fundaherbergi höfuðstöðva Bischoff
Gruppe. Húsið er glæsilegt, um
2.600 femetrar og skemmtilega
staðsett. Þeir sitja hlið við hlið og
byrja á því að segja okkur að þeir
hafi báðir sama starfstitil, forstjóri,
eða eins þeir nefna það á þýsku,
President.
Herbert hefur starfað í áratugi
hjá fyrirtækinu og síðustu árin sem
forstjóri, við hlið Nicolas, sonar
Eriku, sem hefur eftir kaup Sam-
skipa verið lækkaður í tign og heitir
nú rekstrarstjóri.
Eftir því sem næst varð komist á
þessum dagparti mun Nicolas bera
ákveðna ábyrgð á því að illa gekk
hjá Bischoff Gruppe á árunum 1993
til 1996 og félagið tapaði miklum
fjármunum. En þennan dagpart í
Bremen, var þó ekki hægt að henda
með öllu reiður á því. Nicolas virðist
í megindráttum vera sáttur við sitt
nýja hlutskipti og sýndi það m.a.
með því að aka með Morgunblaðs-
fólk um gríðarmikið athafnasvæði
Bischoff Gruppe og sýna það helsta.
Yfirsýn yfir reksturinn eftir
margra ára starf
Herbert segir að þar sem hann
hafi um svo langt árabil starfað hjá
fyrirtækinu, hafi hann vissa yfirsýn
yfir rekstur þess. í upphafi hafi fyr-
irtækið aðeins verið umboðsfyrir-
tæki. En Bruno Bischoff, tengda-
sonur stofnandans, hafi um miðja
öldina fært út kvíamar með mynd-
arlegum hætti og sett á laggimar
sérstakt skipafélag. Upp frá því hafi
fraktskip hafið siglingar til Norður-
landa, fyrrum Sovétríkjanna og
Eystrasaltslandanna.
Herbert er spurður hverjar hann
telji hafi verið helstu ástæður þess
að Bischoff hafi tapað umtalsverð-
um fjármunum á árabilinu 1992 til
1996.
„Við hófum Miðjarðarhafssigling-
ar fyrir um tíu árum í samstarfi við
sovéskt skipafélag. Þær siglingar
gengu vel. Þegar samstarfsaðili
okkar hætti rekstri vegna erfiðleika
var um nokkurt tap að ræða hjá
okkur. Erfiðasta árið var samt sem
áður 1996 þegar markaður okkar í
Austurlöndum fjær hrundi. Sam-
keppni var mjög hörð og farmgjöld
hrundu - þau féllu um 30% í verði á
örskömmum tíma. Auk þess var
gengisþróun okkur svo óhagstæð á
þessum tíma, að fyrirtækið mátti
þola mikið tap.“
Róbert, sem er að taka við for-
stjórastöðu við hlið Herberts, er
spurður hvemig hann sjái fyrir sér
framtíðarrekstur fyrirtækisins eftir
kaup Samskipa á Bischoff Gruppe.
„Ég er sannfærður um að við er-
um að koma upp mjög sterkri ein-
ingu eftir þessi kaup og að Samskip
munu styrkja stöðu sína til muna í
framtíðinni og Bischoff Gruppe
einnig. Við hjá Samskipum sjáum
auðvitað margt innan Bischoff
Gruppe, sem er fýsilegt í framtíðar-
samstarfi. Reynsla Bischoff á fjöl-
mörgum sviðum í flutningum, um-
boðsstarfi, gámaþjónustu og flutn-
ingum á leiðum til Evrópulanda,
Rússlands, Eystrasaltsn'kjanna og
Norðurlanda er dýrmæt viðbót við
okkar starf, uppbyggingu
og reynslu. Þegar við í
sameiningu leggjum allt
sem við kunnum og get-
um af mörkum í sameig-
inlegan sjóð, hlýtur fram-
tíðin að geta verið björt.“
- Eins og þið sögðuð í upphafi -
eitt fyrirtæki - tveir forstjórar. Nú
segir Ólafur Ólafsson, forstjóri
Samskipa, í samtali vð Morgunblað-
ið, að ákveðna þætti þurfi að tak-
marka eða skera niður í rekstrinum
og auka við aðra. Hvað segið þið
forstjórarnir? Verður um mjög
breyttan rekstur að ræða og mun
fyrirtækið stefna í allt aðra átt en
hingað til?
Róbert verður fyrstur til svara
og segir: „Ákvarðanataka um
stefnu og áherslur verður tekin af
Samskipum, sem nú eiga ráðandi
meirihluta í fyrirtækinu. Það á við
um Bischoff Gruppe eins og önnur
fyrirtæki þar sem Samskip eiga
meirihluta."
- En getur ekki verið að til átaka
komi þegar Samskip fara að taka
allar meiriháttar ákvarðanir sem
hingað til hafa verið teknar í rót-
grónu fjölskyldufyrirtæki?
Aftur svarar Róbert og segir:
„Það held ég ekki. Þessi tvö fyrir-
tæki munu mynda sterka einingu
saman og samsteypan mun auðvitað
stefna í sömu átt, með sömu sam-
starfsaðila, umboðsaðila og svo
framvegis."
Herbert er spurður hvort hann sé I
sammála Róbert: „Sjáðu til - hags-
munir nýrrar stjórnar verða að
sjálfsögðu þeir sömu og hagsmunir
framkvæmdastjóra og forstjóra fyr-
irtækjanna - að afla tekna og auk-
inna tekna. Ef við sjáum möguleika
á að færa út kvíarnar - þá er líkleg-
ast að við sem sjáum um daglegan
rekstur komum auga á slíka mögu-
leika og berum þá síðan undir
stjórn, sem tekur svo endanlegar
ákvarðanir. Ég hef ekki áhyggjur af I
þessu.“
Ferli ákvarðana lengra, en
hugsanlega betra
- Mér finnst einhvern veginn að
það geti verið eðlismunur á því,
hvemig ákvarðanir eru teknar í lok-
uðu fjölskyldufýrirtæki
og fyrirtæki eins og Sam-
skipum. Heldur þú að
það geti ekki verið eitt-
hvað til í því?
„Þegar þú orðar það
svo má kannski segja að á vissan
hátt getir þú haft eitthvað til þíns
máls, en þá á ég einkum við það að í
fyrirtæki eins og Samskipum, gæti
það tekið lengri tíma að taka
ákvarðanr - kannski mörgum sinn-
um lengri tíma í einhverjum tilvik-
um. En á hinn bóginn geta ákvarð-
anir einnig verið teknar á þann hátt
sem er betri fýrir fyrirtækið, því þá
má fullyrða að ákvörðun um breytta
stefnu og áherslur er tekin af fleir-
um og skoðuð frá fleiri hliðum og
hugsanlega af meiri dýpt, en í fjöl-
skyldufyrirtækjum."
Herbert og Róbert segja þegar
við kveðjum þá að við séum velkom-
in aftur í heimsókn til Bischoff
Gruppe að einhverjum tíma liðnum
- til öflugra, kröftugra og sterkara
fyrirtækis, sem þeir segja engan
vafa leika á að spennandi verði að
fylgjast með í framtíðinni.
Samsteypan
stefnir auðvit-
að í sömu átt