Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 51
Ofnæmi fyrir
tígrisdýrum
Oxford. Reuters.
TÍGRISDÝR í Chipperfield-sirku-
snum beið ekki boðanna er starfs-
maður sýndi ekki aðgát við fóðrun
dýranna, hélt sig ekki við settar
reglur og rétti því hrátt kjöt með
berum höndum í stað þess að
skutla því inn í búrið með löngu
skafti.
Hinn 230 kílóa bengaltígur læsti
klónum í handlegg Nigels Wessons,
beit höndina af og gleypti og lék
handlegginn að öðru leyti fremur
illa. Atvikið átti sér stað í aðsetri
sirkussins í Heythrop skammt frá
háskólaborginni Oxford, en þangað
var Wesson fluttur með þyrlu í
sjúkrahús þar sem handleggurinn
var tekinn af rétt fyrir ofan oln-
boga. Er sjúkrabörum hans var ek-
ið inn í Radcliffe-spi'talann spurði
starfsfólk bráðavaktarinnar hvort
hann hefði ofnæmi fyrir einhveiju.
„Bara tígrisdýrum," svaraði Wes-
son stuttur í spuna.
Hugbún-
aðarþjóf-
ar þefað-
ir uppi
London. The Daily Telegraph.
HUGSANLEGT er, að brátt
komi á götuna sérútbúinn bfl,
sem getur þefað uppi alla þá,
sem nota hugbúnað í heimild-
arleysi. Byggist þessi tækni á
uppgötvunum, sem tölvufræð-
ingar við háskólann í
Cambridge hafa gert.
Tölvufræðingarnir hafa
fundið aðferð við að breyta eða
hliðra þannig rafsegulgeislum,
sem berast frá tölvuskjánum,
að þeir geti flutt með sér
leynilegt leyfisnúmer, sem
nema má í allt að 40 metra
fjarlægð. Það á því að vera
hægt að finna út hvort hug-
búnaður af þessu tagi er í
höndunum á öðrum en þeim,
sem hafa leyfi til að nota hann.
Kemur þetta fram í vísinda-
tímaritinu New Scientist og
þar segir einnig, að nota megi
þennan nýja hugbúnað jöfnum
höndum til að finna hugbúnað-
arþjófa og til að gera það erf-
iðara en ella að lesa af skján-
um eða ráða í refsegulbylgj-
urnar úr fjarska.
Höfundar þessarar nýju
tækni eru tveir, Markus Kuhn
og Ross Anderson, og fékk sá
síðarnefndi hugmyndina 1971
þegar vinur hans fann upp á
því að laga þannig til tíðni út-
varpsbylgna, sem berast frá
tölvum, að þær mynduðu lag-
línu, sem unnt var að ná á mið-
bylgju í nágrenninu.
Komdu áður en
allt er búið!
Hólf & Gólf
---B REIDDINN I-
/
a
<
u-
%
<?%
BYKO
%
%
V
Daim
HONDA
9 0 h e s t ö f l
Traustur bfll fyrir ungt fólk á öllum aldri
Innifaiið í verði bílsins
1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautunt
Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4
Rafdrifnar rúður og speglar4
ABS bremsukerfi4
Samlæsingar 4
14" dekk4
Honda teppasett4
Ryðvörn og skráning 4
Útvarp og kassettutæki4
Verð á qötuna: 1.455.000f"
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.550.000,-
115 hestöfl
Fjarstýrðar samlæsingar
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Sjálfskipting 100.000,-
[
HONDA
Sfml: 520 1100
...kíktu á merkið!
DIGITAL A ÍSLANDI
Vatnagöröum 14 • sími 533 5050 • fax 533 5060 • http//www.digftal.is
Pentium II
Verð frá: 179.995,-
eiöfuOc