Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ SÆTÚN8 SlMI 569 1500 www.ht.is [ofvirk: það sem gerist varla betra] [illa beisik: afar viðsættanleg] [heimilistæki: rafmagnstæki til heimilisnota] Nt. i fPHIMPS HLJÓMTÆKJA- SAMSTÆÐA • 2x1 oow pyw , • 3jadiska r ’v »Incredible Surround »RDS með klukku Verð 39.900 kr. stgr. Nk. 2 PHILIPS HLJÓMTÆKJA- SAMSTÆÐA vj 2x160W 3ja diska Incredible Surround RDS með klukku Verð 59.900 kr. stgr SANYO 5 FERÐATÆKI M/CD 24 stöðva minni _ . _ V Fjarstýring MC£j<2rO f Verð 18.900 kr. stgr ' , Þu getur unnið tveggja vikna rirstora enskunámskeið ÍTorbay á Englandi ?nta ef þú kaupir hljómtaekjasamstæðu hjá Heimilistækjum fyrir 31. maí. Námskeiðið er ætlað fólki á aldrinum 13-18 ára. Nafn vinningshafa verður dregið úr lukkupotti í , beinni útsendingu á FM 95,7. SANYO FERÐATÆKI M/CD • Ofiugt og gotttæki MCDZjOO Verð 14.900 kr. stgr. Heimilistæki hf MH Mynd/Kristján Kristjánsson MEÐ fjaðrabliki draums. Draumboðinn ljúfi DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns ÞAÐ hendir marga að vakna upp frá draumi með svo þægilega til- fmningu og sætan keim í sinni að þeir eru sem á bleiku skýi langt fram á dag. Samt muna þeir yfir- leitt ekki mikið af þessum ljúfa draum, einungis slitur og mynd- brot hér og þar, engin heil hrif. En það sem draumurinn skildi eftir fær mann til að brosa í um- ferðinni og bjóða fólki góðan dag langt fram á kvöld. Þessir draumar færa með sér boð um betri tíð þó óljós séu, en þau skila sér engu að síður sem sannleiks- korn til vökunnar. Boðin ýta á dreymandann að þroska með sér þá hæfileika sem honum eru vænlegastir til framfara og vekja þá góðu eiginleika sem hann hef- ur ásamt getunni til að greina þá og aðlaga vökuvitund sinni og lífi. Draumboðin opna á lausnir sem huldar eru vökuaugum og geta reynst happadrjúg þeim er svefnaugum sínum sinna. Eitt svona boð barst mér til eyrna frá konu sem sagði að sig hefði dreymt það að örsökina að flens- unni sem herjar á hross landsins væri að finna í úrfallinu frá um- brotunum í Vatnajökli árið 1996. „Forvitin“ sendir draum Ég þurfti að ná í ákveðinn áætlunarbíl og vissi að ég hafði nauman tíma, samt var eins og ég flýtti mér ekki. Mér fannst ég fara aftur inn (fannst það vera heima hjá syni mínum) til að klæðast úlpu (grænni) þó að það seinkaði mér nokkuð, ég nennti ekki að reima skóna sem voru ný- ir hvítir gamaldags strigaskór með löngum hvítum reimum, hálfreimaðir. Ég hleyp út til að ná vagninum og sé að hann er lagður af stað í áttina til mín og rauður vagn á undan. Ég þykist sjá að ég geti stytt mér leið beint af augum og geri það, en hugsa að ég geti ekki hlaupið með skóna svona lausa á mér. Þegar ég lít niður sé ég að moldardrulla hefur slest upp á skóna og skálm- amar, en mér finnst það ekkert tiltökumál. Er ég lít upp aftur sé ég rauða vagninn koma en minn vagn (var eins og áætlunarbíllinn sem gengur milli Reykjavíkur og heimabyggðar minnar) hafði beygt niður aðra götu og var á leið í burtu frá mér og það fannst mér slæmt. Ráðning Draumurinn tengist samfé- lagsábyrgð (áætlunarbíllinn) þinni og þeirri ætlan þinni að hlaupast undan merkjum (striga- skórnir). Hann segir að sú gerð mundi hafa neikvæðar afleiðing- ar (moldardrullan) og því er draumurinn að árétta (rauði vagninn) við þig að hugsa þinn gang og breyta rétt. Draumur „Gluggans" Ég var staddur á verðlaunaaf- hendingu fyi’ir bestu bækur árs- ins. Með mér var kona mín og tveir bestu vinir mínir ásamt konum þeirra. Ég tók eftir því að annar þeirra var búinn að skipta um eiginkonu, mér þótti það nokkuð skrýtið þar sem ég vissi ekki til þess að nokkuð hefði bjátað á í fyrra hjónabandi hans. Þessi nýja kona hans var nokkuð glennuleg en þó líkaði mér ekk- ert illa við hana. Ekki hlaut ég verðlaun á þessari hátíð en mér var nokkuð sama. Þegar hátíð- inni var lokið kvöddum við vin minn og nýju konuna hans, ég tók sérstaklega eftir því að kona hans kyssti mig og hinn vin minn óþarflega fóstum koss bless. Það næsta sem gerðist var að ég, vin- ur minn og konur héldum gang- andi að Ingólfsfjalli. Ég varð fljótlega viðskila við hópinn og ráfaði eitthvað út í myrkrið enda í þungum þönkum útaf nýju bók- inni sem ég ætlaði að fara að skrifa. Reyndar var ég líka að hugsa um að steypa saman tveim bókum sem ég var búinn að skrifa og gefa út sem eina bók. Ég ranka við mér þegar vinur minn kallar í mig og spyr mig hvert ég sé að fara, hvort ég vilji ekki koma með þeim í áttina að fjallinu. Þá sé ég að það er farið að birta af degi, ég lít í áttina að ánni og þar sé ég konu mína og konu vinar míns skokka rólega með árbakkanum. Vinur minn kemur til mín og leiðir mig í átt- ina að hól einum, þar hittum við eiginkonur okkar í sama mund. Allt í einu verður gríðarlega fal- leg sólarupprás, sólin kemur upp fyi-ir ofan fjallið og þetta er fal- legasta sjón sem við höfum séð. Sólin er svo sterk að hún kveikir i trjám í fjallinu. Ráðning Draumurinn fjallar uin per- sónu þína og langanir. Þú virðist af draumnum að ráða hafa átt þér fyrra líf í galsa (vinkonan glennulega) en sért nú orðinn ráðsettari (engin verðlaun/þungir þankar), þó er ekki laust við að þig langi aftur í galsann og um þá baráttu snýst draumurinn. Það er hvora leiðina skuli velja, þá galsafengnu, áhættusömu en skemmtilegu eða þá ráðsettu og nokkuð þurru leið sem þú ert nú á. Draumurinn býður þér þá nýlundu að steypa saman (bæk- urnar tvær) bestu þáttum úr ólík- um lífsstílum sem muni veita þér þá gleði (sólin) sem þú óskar. Hann talar einnig um að heima- hagar (Ingólfsfjall) þínir séu best til þess fallnir að framkvæma gleðileikinn (sólin kveikir í trjám í fjallinu). • Þeir lesendur sem vilju fá drauma sfna birta og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæð- ingardegi og ári ásamt heimilis■ fangi og dulnefni til birtingar til: Draumstafir Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.