Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 58
58 LAUGAKDAGUR 4. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Lega á sængur- kvennadeild Smáfólk Landspítalans Frá Hönnu Birnu Jóhannesdóttur: ÉG HEF verið staðráðin í að setj- ast niður og skrifa grein um reynslu mína legu, aðbúnaði og þjónustu á sængurkvennadeild Landspítalans allt frá því ég þurfti á starfsemi deildarinnar að halda snemma á þessu ári. Rétt er að taka fram strax að allur aðbúnaður, þjónusta og við- mót starfsfóiksins á fæðingarstof- unni (þ.e.a.s. ljósmæðra og lækna) er til fyrirmyndar í alla staði. Elskulegheit, hlýja og umhyggja fyrir móður og nýbura eru í háveg- um höfð. En einhverra hluta vegna virð- ast allt önnur sjónarmið ráða ferð- inni þegar komið er á sængur- kvennadeild. Þar er leyfður gesta- gangur í 7 klukkustundir sam- fleytt á dag frá kl. 14 tii 21, alls 4 gestir á hverja sængurkonu (afar, ömmur, maki og börn, öðrum er aðgangur bannaður). Þetta þýðir að á fjögurra manna stofu eru leyfilegir 16 heimsóknargestir + 4 sængurkonur + nýburar alls 24 manns. Gestir geta komið og farið þegar þeim hentar í þessar 7 klukkustundir. Því eiga sængur- konurnar ávallt von á fólki utan úr bæ. Þetta truflar óneitanlega sam- band móður og bams sem eru að stíga sín fyrstu skref í brjóstagjöf og gerir það að verkum að hvíld verður lítil í þessar 7 klukkustund- ir. En daginn þyrftu mæður að nota til að hvílast því það segir sig sjálft, að þar sem 4 nýburar eru inni í sama herbergi yfir nótt er lítið um svefn hjá mæðrum. Aður fyrr var heimsóknartími opinn öllum gestum og gestir sáu nýburann í gegnum gler í 1 klukkustund á dag. Síðan var sér- stakur pabbatími að kveldi. Helstu rök starfsfólks deildarinnar fyrir þessari breytingu er að gangurinn hafi fyllst þessa einu klukkustund á dag og hafi það verið of mikið álag fyrir sængurkonurnar og brjóstagjöf þeirra! Með gamla fyr- irkomulaginu var nýburinn bak við gler og minni hætta á smiti. Nú er nýburinn innan um alla þessa gesti í 7 klukkustundir daglega en ekki verndaður bak við gler. Talið er að smit berist helst með handsnert- ingu og auðvitað snerta gestirnir nýburann með höndunum. Ansi er ég hrædd um að hag móður og bams sé betur borgið með gamla fyrirkomulaginu (að allir megi koma í 1 klukkustund á dag) en þá eiga móðir og bam rólegri tíma þegar heim er komið. Auðvitað ætti hver kona sem bú- in er að ala bam rétt á hvíld í sér- stöku hvíldarherbergi en ekki vera send beint inn á fjögurra manna stofu og ef þannig stendur á í heimsóknartíma. Og auðvitað vom þær konur sem viðtal var við 20. febrúar sl. í Morgunblaðinu sáttar og ánægðar en þær höfðu notið þjónustu MFS (meðganga-fæðing- sængurlega) á Landspítalanum, þar sem þær höfðu verið heilbrigð- ar á meðgöngu og átt áfallalausa fæðingu áttu þær rétt á sérher- bergi fyrir sig, nýburann og maka. Því var ég innilega sammála Ár- manni Þórissyni, sem skrifaði grein í Morgunblaðið 12. mars sl., þar sem hann segir orðrétt: „Hvemig má það vera að konum sé svona herfílega mismunað í þjónustu sem starfrækt er af rík- inu?“ Já, það er undarlegt að þær konur sem hafa haft erfiða með- göngu og eða fæðingu sitji ekki við sama borð. Manni finnst nú að einmitt þær þyrftu á hvíldinni að halda. Anna Jóhannesdóttir skrif- ar í Morgunblaðið 17. mars sl. þar sem hún mótmælir því að um lúxus og íburð sé að ræða í MFS-þjón- ustunni, en segir jafnframt að henni finnst aðbúnaður á kvenna- deild til skammar, svo og þjónusta við fæðandi konur á höfuðborgar- svæðinu almennt. Þar með er Anna sammála því að allar konur ættu rétt á stofu þar sem ró og næði ríldr. Viðmót starfsfólks á sængur- kvennadeild geislar ekki beint af hlýju í garð þarfa móður og bams. Þar er upplifunin meira eins og „hlut sé rennt á færibandi í gegn- um verksmiðju“ - mæðmm með nýfædd böm sín er skellt beint inn í heimsóknartíma ef þær eiga á þeim tíma - mæður eru ekki spurðar hvort þær kjósi að hafa böm sín inni hjá sér á nóttunni (auðvitað ættu mæður að hafa val þannig að sumar stofur væru án bama á nóttu en aðrar með böm- um) - mæðram em boðnar svefn- töflur og eymatappar fyrir svefn- inn svo að allt geti gengið sem auð- veldast fyrir sig. I hvaða ástandi er þreytt móðir sem tekið hefur svefntöflu og troðið eymatöppum í eyrun til að gæta nýfædds barns síns? - A sængurkvennadeildinni gengur allt af gömlum vana - venj- um starfsfólksins en ekki þörfum mæðra og nýbura. Fjársvelti tii heilbrigðismála er staðreynd en það er líka staðreynd að hlýlegt viðmót og notalegheit kosta ekki peninga. HANNA BIRNA JÓHANNESDÓTTIR Granaskjóli 16, Reykjavík. Þetta er bara smáskúr! Það er að stytta upp! Hvert eru allir að fara? Er þetta einhver ástæða til að hætta? Af hveiju ættum við að hætta að Ieika?! Vegna þess að hundurinn þinn er að verða blautur ... Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.