Morgunblaðið - 04.04.1998, Side 40

Morgunblaðið - 04.04.1998, Side 40
40 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Er verslunar- hyggjan orðin einráð? — / „Egget skrifað það sem mér dettur í hug. Allt hringsnýst í kollinum á mér. Er eitthvað sem mér hefur aldrei verið leyft að segja? Á ég að létta á hjarta mmu ?“ Jan Henrik Swahn SÆNSKA tímaritið BLM er meðal helstu bókmenntatímarita á Norðurlöndum og hef- ur tekið ýmsum breyt- ingum að undanförnu. Aberandi er sú viðleitni að endurnýja rit- ið. Nýr ritstjóri BLM, Jan Hen- rik Swahn, skrifar leiðara í 1. tölublað 1998 sem er ekki aðeins ábending um ágæti efnisvalsins heldur að því er virðist þörf ádrepa. Swahn segir um leiðarann að hann sé fýrsti textinn á tólf ára blaðamennskuferli sínum sem hann skrifi án VIÐHORF Eftir Jóhann Hjálmarsson þess að þurfa að fá einhvern til að lesa yfir og samþykkja hann: „Eg get skrifað það sem mér dettur í hug. Allt hringsnýst í kollinum á mér. Er eitthvað sem mér hefur aldrei verið leyft að segja? A ég að létta á hjarta mínu?“ Swahn fínnur að því í leiðar- anum hve lítið fari fyrir bók- menntaskrifum í sænskum dag- blöðum, einkum stórblaðinu Dagens Nyheter sem sækist meira eftir almennum umræðu- greinum, félagslegri og menn- ingarlegri umfjöllun, málfrelsis- greinum og pólitík á kostnað bókmenntanna. Swahn líst eng- an veginn á að bókmenntir séu settar til hliðar í dagblöðum. Kannski er Swahn óþarflega svartsýnn því að þótt greina megi að bókmenntaumíjöllunin sé minni í dagblöðunum en til dæmis þegar Olof Lagercrantz var ritstjóri Dagens Nyheter má alltaf öðru hverju rekast á mjög gott bókmenntaefni þar og í Svenska Dagbladet og fleiri blöpum. Eg kann aftur á móti að segja frá fremur Ijótu dæmi um áhuga Dagens Nyheter á íslenskri menningarumræðu. Fyrir nokkrum árum var send hingað blaðakona frá Dagens Nyheter í því skyni að segja frá háværum deilum sem áttu að geisa í reyk- vísku blöðunum vegna skiptra skoðana um takmark menning- arumræðunnar og aðferðir við að tjá sig, jafnvel einstakar per- sónur. Þegar hringt var til mín frá Dagens Nyheter og ég spurður um þetta „eldfima" efni kom ég að mestu af fjöllum. Eg spurði hvaðan upplýsingarnar kæmu um íslenska „menningar- stríðið“ og fékk það svar að heimildarmenn væru „bók- menntafólk í Uppsölum". Þegar blaðakonan tók mig tali ræddi ég einkum við hana um ís- lenska rithöfunda og hvað þeir væru að fást við og freistaði þess að eyða misskilningi henn- ar og drepa samsæriskenning- um á dreif. Hún náði aftur á móti í fólk hér sem gaf nógu mikið í skyn til þess að unnt væri fyrir hana að gera sér mat úr því. Þegar ég loksins fékk að sjá greinina, árangur þeirrar ferðar sem Dagens Nyheter kostaði til Islands, var hún í styttra lagi og aðeins ein setning um bók- menntirnar, hitt var að mestu leyti af því tagi sem þykir að vísu gjaldgengt manna á milli þegar önnur umræðuefni skort- ir. I bréfi til mín frá blaðakon- unni var ljóst að hún var sjálf miður sín eftir að yfirmenn hennar á menningamtstjórn Dagens Nyheter höfðu klippt greinina og skorið og sniðið hana eftir sínu höfði. En ég þekki dálítið til á er- lendum blöðum og veit að vinnu- brögðin þar eru ekki öll upp á marga fiska. Til dæmis skildi ég eftir að hafa lesið minningar Olofs Lagercrantz að þeir mörgu róttæku vinstrimenn sem hann safnaði kringum sig og settu mestan svip á blaðið lengi og gera sumir enn voru að minnsta kosti að töluverðum hluta mótleikur hans gegn hin- um efnuðu hægrimönnum sem eiga blaðið og vildu ráða ferð- inni. Það er mikið rætt um menn- inguna sem verslunarvöru og ákaft fundið að slíkum sjónar- miðum, ekki síst í tímaritum eins og BLM. Einn þeirra sem taka þetta efni til umfjöllunar í viðkomandi tölublaði BLM er norski rithöfundurinn Dag Sol- stad sem hefur m.a. fengið Bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs og er meðal kunnari rithöf- unda Norðmanna. Upphafsorð greinar Solstads, Um skáldsöguna, vöktu athygli mína og hljóta að vekja athygli annarra: „Ég get bara viður- kennt: Ég er í miklum vandræð- um með að segja eitthvað af viti um það efni sem ég hef verið beðinn að tala um og tekið að mér að gera. Ég vil bara segja það að ég hef lítið sem ekki neitt að segja um skáldsöguna og þrátt fyrir það að ég hafi fengist við að skrifa skáldsögur og velta fyrir mér í hverju það fælist í meir en þrjátíu ár.“ Að mati Dags Solstad hefur verslunarhyggjan orðið einráð, tekið völdin af andlegu lífi Evr- ópu. Síðastliðin þrjátíu ár hefur þetta gerst þegjandi og hljóða- laus og án mótstöðu, telur Sol- stad: „List verslunai-mennsk- unnar hefur náð að drottna og hefur breytt upplýstu menning- arfólki í neytendur.“ Sjálfur kvartar Dag Solstad yfir því að fólk (neytendurnir) skilji ekki bækur sínar. Hann hefur þá tilfinningu að hann skrifi fyrir tómið, að hann eigi alls ekki neina lesendur heldur óhamingjusmama neytendur. Solstad kvartar yfir því að fá lítil sem engin viðbrögð frá les- endum sínum þótt hann sé alls ekki meðal þeirra rithöfunda sem þurfi að harma að bækur hans liggi óseldar í bókabúðum. Augljóst er þó að hann vakti meiri athygli áður fyrr þegar hann var uppreisnargjarnari og beittari. Kannski má skýra vandamál hans þannig að les- endur fyrri bóka sem margir voru jafnaldrar hans og sam- herjar séu hættir að lesa bækur og orðnir háðir verslunarsamfé- laginu, keppninni um afkomuna og lífsgæðin. Bækur breyta ekki lífi þess fólks, að minnsta kosti ekki úr þessu. Vef mig vængj- um þínum Jesús er Guð þinn, því aldrei skalt gleyma. Hann gengur við hlið þér ogleiðaþigvill. Þú eilífa lífið, átt honum að þakka, hann sigraði dauðann og lífið gaf þér. Guðs son á himni núvakirþéryfir. Hann gleymir ei bæn þinni hver sem hún er. Líf mitt sé falið þér, eilífi faðir. Faðminum þínum ég hvfla vil í. Hvað er betra en fá að hvfla í örmum Jesú, vera eins og umvafinn vængjum engla hans? Er nokkuð dýrmætara en að geta lagt sig og þá sem manni eru kærir og þau málefni sem okkur snerta og á okkur hvíla í hendur kærieiksríks og almáttugs Guðs fóður skapara okkar, sem lætur sér annt um okk- ur? Hann kom til okkar í syni sínum Jesú Kristi til þess að frelsa okkur mennina frá synd og dauða með því að taka á sig misgjörðir okkar og syndir, til þess að við réttlættumst og yrðum hrein frammi fyrir honum og eignuðumst líf um alla eilífð í hans nafni. Biðjum og þökkum Það er hverjum manni hollt og ætti að vera ljúft að biðja fyrir ná- unga sínum og málefnum sem hann snerta eða þjóðfélag okkar eða heimsbyggðina á einn eða annan hátt. Þá er mikilvægt að við gleymum ekki að þakka Guði fyrir alla hluti, því það er vilji hans með okkur í Kristi Jesú. Stuttur lestur úr Biblíunni og stutt bæn kvölds og morgna eða hvenær dagsins sem hentar getur ekki gert okkur annað en gott. Slík guðrækni iðkuð á heimilum eða annars staðar af einstaklingi eða í hóp getur gefið okkur ferskan og djúpan andardrátt til að lifa lífinu og takast á við amstur daganna. Með því að biðja til Guðs getum við létt áhyggjum af okkur. Fáum Guð sjálf- an til að bera áhyggj- urnar með okkur. Þú einn veist hvað á þér hvílir. Komdu orðum að því í bæn til Guðs. Þannig hreinsum við hugann. Felum Guði líf okkar allt í því trausti að hann muni vel fyrir sjá. Stutt bænavers Einnig er gott að lesa eða fara með stutt bænavers eða sálma sem aðrir hafa samið og gera þá að bænum okk- ar. Saminn hefur verið fjöldi inni- haldsríkra bæna og sálma sem fylgt hefur þjóð okkar jafnvel í margar aldir og margar kynslóðir hafa kunnað og kennt. Leiðandi bænir og sálmar sem gott er að hugleiða og Bænin má aldrei bresta þig. Sigurbjörn Þor- kelsson segir hverjum manni holt að biðja fyr- ir náunga sínum. gera að sínum. Þá eru slík bæna- vers upplagður farvegur til að orða bænir frá eigin brjósti. Bæn í einrúmi og með börnum Til almáttugs Guðs getum við leitað hvar og hvenær sem er. I öllum kringumstæðum lífsins. Ekkert er svo smátt að hann vilji ekki taka á því með okkur og ekkert svo stórt að hann ráði ekki við það. Þau börn sem ekki venjast á það að biðja með foreldrum sínum á kvöldin eða öðrum tímum þegar betur hentar fara ólýsanlega mikils á mis. Þvílíkt slys. Varast skal þó að hafa slíkar stundir of langar og alls ekki má þrengja slíkum stundum upp á börn. Faðir vor Hver kann ekki bænina, Faðir vor, bænina sem Jesús kenndi læri- sveinum sínum. Hún segir í raun- inni allt sem segja þarf. Hún nær í rauninni yfir allar þær bænir sem við kunnum að vilja bera fram fyrir Guð. Signingin Þá er gott að hefja hvern dag með því að signa sig. Gera kross- mark frá enni niður á brjóst og frá öxl til axlar eins og mér var kennt það. Við felum okkur þannig þríein- um Guði föður, sonar og heilags anda. Signingin er ekki marklaust handapat eitthvað út í loftið heldur sterkt tákn kristinna manna. Djúp bæn án orða þar sem við viðurkenn- um fyrir sjálfum okkur, náunga okkar og Guði að við séum hans og viljum fá að vera það áfram fyrir kraft upprisu frelsarans okkar Jesú Krists frá dauðum. Það er því blessuð athöfn að signa sig bæði að morgni og kvöldi og í rauninni hvenær sem okkur þykir ástæða til. I signingunni er fólgin áhrifamikil bæn, vitnisburður og trúarjátning. Heimilisguðrækni Mætti guðrækni einstaklinga og í hópum aukast og efiast nú þegar brátt verða 1000 ár frá því við bless- unarlega tókum kristinn sið og trú á hinn krossfesta og upprisna frelsara manna Jesú Krist. Mættum við hljóta þá náð að þiggja þá blessun sem borist hefur okkur frá fyrri kynslóðum er við vorum færð Kristi og fyrir okkur var beðið. Mundi ekki líf okkar auðgast ef við hvert fyrir sig tækjum upp á því að leggja stund á að biðja fyrir okk- ur sjálfum og hvert fyrir öðru? Biðja fyrir þjóð okkar og þeim mál- efnum sem okkur snerta og eru kær. Þær kynslóðir sem nú eru að vaxa úr grasi og þær kynslóðir sem vaxa fram á næstu öld mega ekki verða af þeirri blessun að læra að biðja til Guðs og finna það að fyrir þeim sé beðið. Bænin má aldrei bresta þig. Höfundur er framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins á íslandi og höf- undiir nýiítkomimmr bænabókar: Vefmig vængjum þínum. Sigurbjörn Þorkelsson Skoðanakönnun Fjarðarlistans UNDANFARNAR vikur og mánuði hefur um allt land verið unn- ið að því að sameina krafta þeirra stjórn- málaaíla sem leggja áherslu á félagshyggju og jafnrétti í reynd. í hverju sveitarfélaginu á fætur öðru hafa kom- ið fram sameiginlegir framboðslistar þessara afla, sem þar með hafa lagt til hliðar lítilsverð- an ágreining um titt- lingaskít en í staðinn einbeitt sér að því sem meira máli skiptir: sameiginlegri lífsskoðun og samfé- lagssýn. Fyrirfram hefði mátt ætla að Hafnfirðingar yrðu með í þessari öflugu bylgju. En fáeinum flokks- leiðtogum þar tókst að koma mál- um þannig fyrir að úr því varð ekki og í framhaldi af því ákvað Alþýðuflokkurinn að efna til sér- framboðs. Þau málalok urðu mörgum bæjarbúum mikil von- brigði, enda leikur ekki á því neinn vafi að meðal al- mennra kjósenda er mikill og einlægur áhugi á samstarfi og síðan sameiningu flokkanna. Fjarðarlistinn er sprottinn upp úr þess- um vonbrigðum. Segja má að hann hafi verið stofnaður til að bjarga einhverju af heiðri Hafnfirðinga í samein- ingarmálinu og bjóða upp á nýjan vettvang til að vinna því braut- Kristján Bersi argengi. í þeim sam- Ólafsson tökum sem hafa nú verið stofnuð í þessu augnamiði hafa tekið höndum saman óflokks- bundnir einstaklingar, Alþýðu- bandalagið í Hafnarfirði, hópur kvenna úr Kvennalistanum og margir félagar úr Alþýðuflokkn- um, aðallega Jafnaðarmannafélag- inu. Skoðanakönnun um fólk á fram- boðslista er liður í framboðsundir- búningnum. Hún fer fram laugar- daginn 4. apríl í Smiðjunni á Strandgötu 50. Þangað er stuðn- ingsfólk listans beðið að koma og merkja við 6 nöfn (af 25 sem hafa gefið kost á sér) sem það vill sjá ofarlega á listanum. Niðurstaðan er ekki bindandi, en á að geta orð- ið mikilvægt hjálpartæki fyi'ir kjörnefndina sem hefur það hlut- verk að gera tillögur um skipan listans. Mér þykir rétt að minna á þessa Ég hvet hafnfirskt félagshyggjufólk, segir Kristján Bersi Olafsson, til að taka þátt í skoðana- könnuninni. skoðanakönnun um leið og ég hvet hafnfirskt félagshyggjufólk til að taka þátt í henni. I henni felst stuðningur við málstað Fjarðar- listans, en stuðningur við hann er um leið stuðningur við þann draum að fyrr en síðar megi fé- lagshyggjufólk bera gæfu til að sameina kraftana í einni voldugri fylkingu og hjálpast að við að móta farsæla framtíð. Höfundur er formaður stjórnar Fjarðarlistans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.