Morgunblaðið - 04.04.1998, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
10% afsláttur
af öllum styttum á löngum laugardegi. Opið 9-17. Klapparstíg 35, sími 561 3750.
Tískuverslunin
Smort
Grímsbæ v/Bústaðaveg
Gott úrval af bolum, einnig st. 44-54.
Nýkomin dress st. 38-50
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15. Sími 588 8488
Skólavörðustfg 10
Sími 561 1300
Sfi tSMI
Fermingargjafir
lldiulunnir siH'ur-
^ullskarl^ripir
með íslenskum
^^nállúrusleinum.
perlum
(lemönlum
Bílgreinasambandid
Aðalfundur BGS verður haldinn laugardaginn 18. apríl n.k.
á Grand Hótel, Reykjavík.
kl. 09.00 Fundarsetning - Bogi Pálsson formaður
BGS.
Erindi um fræðslumiðstöð bílgreina og
stöðu menntamála í bílgreininni - Björn
Bjarnason menntamálaráðherra.
Fyrirspurnir - Umræður.
Kl. 09.45-10.30 Aðalfundur.
Dagskrá:
Venjulega aðalfundarstörf.
Kl. 10.45 Sérgreinafundir
Kl. 12.30 Hádegisverður
Stjórn BGS
Ný senaing Stuttar og síðar kápur Sumarhattar
1 Páskatilboð 1 1 Sumarúlpur kr. 7.900. |
Opiö laugardag 10 — 16. \o<??HGI5ID
Éfiil Mörkinni 6, sími 588 5518.
Eitt blað fyrir alla!
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Svar frá
sýslumanni
„VEGNA bréfs Sigrúnar
Reynisdóttur í Velvakanda
27. mars sl. vill sýslumað-
urinn í Reykjavík taka
fram að orðalag í boðunar-
bréfum vegna fjárnáms
hefur verið óbreytt frá 1.
jólí 1992, þegar ný lög
tóku gildi. Orðalag bréfs-
ins var ákveðið í tengslum
við þróun tölvuforrits sem
tekið var í notkun á sama
tíma, en bréfin eru prent-
uð beint úr því forriti.
Orðalagið var ekki ákveðið
hér við embættið, heldur á
vegum dómsmálaráðu-
neytisins sem hafði með
forritið að gera, en það er
r.otað á flestum sýslu-
mannsembættum landsins.
I 3. mgr. 24. gr. laga um
Aðför nr. 90/1989 er fjallað
um úrræði í þeim tilvikum
þegar skuldaii mætir ekki
til fjárnámsgerðar og ekki
reynist unnt að ljúka gerð
án nærveru hans. Eitt af
því sem þar er talið er að
leita megi aðstoðar lög-
reglu. „Meðal annars er
lögreglumönnum í þessu
skyni skylt að leita gerðar-
þola ... og boða hann til að
mæta til gerðarinnar eða
færa hann til hennar.“
Sjálfsagt þykir að vara
fólk við því að þetta geti
komið til ef boðunum er
ekki sinnt.
Hér má taka fram til
fróðleiks að undanfarin ár
hafa nálægt 25 þúsund
fjárnámsbeiðnir verið
teknar til afgreiðslu hér
við embættið á ári, um-
rædd bréf send út vegna
þeirra langflestra, en lítið
er mætt vegna bréfanna,
innan við 5% þeirra sem
eru boðaðir, mæta við
þessa fyrstu kvaðningu.
Varðandi þá hugmynd
að embætti hafi á sínum
vegum lögmann sem gæti
verið fólki til ieiðbeiningar,
skal tekið fram að margir
lögfræðingar er-u starfandi
við þessi mál og hafa þeir
m.a. það hlutverk að leið-
beina fólki varðandi þessar
gerðir. Sú leiðbeiningar-
skylda nær þó aðeins til
þeirra mála sem til af-
reiðslu eru hverju sinni og
kemur að sjálfsögðu ekki
til nema skuldarinn mæti
til fyrirtöku.“
Sýslumaðurinn
í Reykjavík.
Vegna „Gulu
línunnar“
VELVAKANDA barst
eftirfarandi bréf frá Gulu
línunni:
„Símaþjónusta Gulu lín-
unnar, s. 580 8000, er 11
ára gömul þjónusta sem
þjónar þúsundum Islend-
inga árlega í margs konar
upplýsingaleit. Frá upp-
hafi höfum við haft að
leiðarljósi að veita ávallt
frábæra þjónustu og í
þeim tilgangi vinnum við
eftir svörunarstaðli
byggðum á væntingum
viðskiptavina. Staðallinn
mælir viðmót svarenda,
árangur og síðast en ekki
síst biðtíma símtals.
Reglulegar kannanir hlut-
lausra aðila á þjónustunni
sýna lítinn biðtíma. Gróf
frávik um biðtíma, eins og
Guðný lýsir í Velvakanda,
teljast til algjörra undan-
tekninga og ber auðvitað
að harma þau. Slík undan-
tekninga tilfelli eru þó alls
ekki lýsandi um að þjón-
ustunni hafi farið aftur.
Að lokum má geta þess að
símtal til Gulu línunar
kostar sama og venjulegt
símtal og þess vegna eng-
inn hagur fyrir okkur að
lengja biðtíma eða tefja
símtöl meira en nauðsyn
krefur."
Tapað/fundið
Gullhringiir og gull-
armband týndust
STÓR gullhringur með
gulum steini týndist fyrir
nokkrum mánuðum.
Einnig týndist gullmúr-
steinsarmband í síðustu
viku. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 553 2795.
Seðlaveski týndist
SVART seðlaveski týndist
í Arbænum að kveldi 1.
apríl sl. I veskinu eru ýmis
konar skilríki og fleiri
gögn sem undirritaður vill
gjarnan fá. Fundarlaun í
boði fyrir skilvísan finn-
anda. Upplýsingar hjá
Lárusi í síma 557 5455.
SKÁK
llniKjón llargcir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp í atskák
á Melody Amber hraðmót-
inu í Mónakó sem lauk í síð-
ustu viku. Anatólí Karpov
(2.735), FIDE heimsmeist-
ari, var með hvítt og átti
leik, en Vladímir Kramnik
(2.790), næststigahæsti
skákmaður heims,
hafði svart.
27. Dc8! - Hf8?
(Svartur verður
mát ef hann þigg-
ur drottningarfóm
Karpovs: 27. -
Hxc8 28. Hxc8+ -
Kg7 29. Rf5+ -
Kg6 30. Hg8+ -
Kh5 31. g4 mát.
Hins vegar var 27.
- Ðd2 betri varn-
artilraun, þótt
svarta staðan sé
þá einnig mjög
erfið) 28. Dg4+ -
Kh8 29. Hc8 og Kramnik
gafst upp.
Teflt var bæði blindskák
og atskákmót. Kramnik
stóð sig best í blindskákinni,
en Shirov í atskákinni og
urðu þeir efstir og jafnir í
heildarkeppninni.
Skákþing íslands 1998,
áskorenda- og opinn fiokk-
ur: Keppnin hefst í dag kl.
14 og stendur til 11. apríl.
Frí á morgun og á skírdag.
Teflt er í Faxafeni 12 og fer
skráning fram á mótsstað.
HVITUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
AKVÖRÐUN Evrópusam-
bandsins (ESB) frá 1991 um að
afnema tollfrjálsa verzlun innan
ESB á að koma til framkvæmda
um mitt næsta ár. Framkvæmda-
stjóm ESB staðfesti nýlega, að
hvergi verði hvikað frá þessari
ákvörðun, þrátt fyrir mikinn þrýst-
ing frá hagsmunaaðilum og jafnvel
stjómvöldum nokkurra aðildar-
landanna um að hætt verði við að
gera alvöru úr þessum áformum.
Nú, þegar tæpt ár er í að þeir
sem ferðast með flugi eða ferjum
milli aðildarríkja ESB geti ekki
lengur hagnýtt sér lægra verð á
ýmsum munaðarvamingi, sem ann-
ars er tollaður og skattaður upp í
topp, em starfsmenn ferjufýrir-
tækja og fleiri sem hagsmuna hafa
að gæta famir að láta til sín kveða,
til dæmis stöðvaðist ferjuumferð
um frönsku hafnarborgina Calais á
dögunum vegna aðgerða starfsfólks
á ferjum og hafnarstarfsmanna,
sem em uggandi um sinn hag ef
áformin ná fram að ganga.
Og áhyggjur þessa fólks eru
ekki ástæðulausar. Tekjumar af
tollfrjálsri verzlun um borð í
Ermarsundsferjunum em hátt í
þriðjungur veltu ferjufyrirtækj-
anna, og þetta hlutfall er jafnvel
enn hærra hjá þeim fyrirtækjum
sem reka hinar glæsilegu ferjur
sem ganga á milli Svíþjóðar og
Finnlands, Svíþjóðar og Danmerk-
ur og á fleiri leiðum milli grann-
landanna við Eystrasalt og Norð-
ursjó.
Það er augljóst að afnám toll-
frjálsrar verzlunar, sem var ákveð-
in í nafni jafnrar samkeppnisstöðu
verzlunar á innri markaði Evrópu,
mun hafa slæmar afleiðingar fyrir
ferðamenn í Norður-Evrópu, ekki
sízt Norðurlandabúa, sem búa við
meira okur á þessum neyzluvarn-
ingi heima hjá sér en gengur og
gerist annars staðar í álfunni
vegna óhóflegrar toll- og skatt-
heimtu yfirvalda.
EN ÞAÐ sem varðar mestu er
áhrifin á ferjurekstur. Ef
ferjufyrirtækin missa um þriðjung
veltu sinnar verða þau að bæta
tekjumissinn upp með öðrum
hætti, þ.e. hækka fargjöld. Það
þýðir að venjulegir ferðamenn,
jafnt þeir sem nýta sér framboð
fríhafnarverzlunar og hinir sem
gera það ekki, verða að greiða
miklu hærri fargjöld t.d. milli
Stokkhólms og Helsingfors, Kaup-
mannahafnar og Málmeyjar og
Helsingjaeyrar og Helsingjaborg-
ar, svo nokkur dæmi séu nefnd um
ferjuleiðir sem ófáir Islendingar
eiga leið um.
Sama gildir um Ermarsunds-
ferjurnar milli Englands og
meginlandsins. Ljóst er að
margar þeirra munu neyðast til
að leggja niður rekstur eftir af-
nám tollfrjálsu verzlunarinnar,
þar sem samkeppnisstaða þeirra
við hin niðurgreiddu Ermar-
sundsgöng (og flug) verður von-
laus.
x