Morgunblaðið - 04.04.1998, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 63
FÓLK í FRÉTUM
-I
ERLENDAR
ooooo
Björn Styrmir Árnason
fjallar um plötuna King of the
Beats (the official album of the
1997 UK breakdance
championship)
Tónlistinni er vel
blandað á
diskinum og
ættu allir sem
hafa gaman af
breaktónlist af
finna nokkur lög
fyrir sig.
sum eru alveg hundleiðinleg, en
það er bara til að undirstrika að
break tónlist er fjölbreytt og fólk
með mismunandi smekk getur
alltaf fundið eitthvað í henni sem
því líkar. Þarna er hart rapp,
leikin hljóðgervlatónlist tónlist
með skrámi og raddsmölun og
nokkur góð mix.
Að mínu mati eru þarna nokkur
mjög frambærileg lög fyrir break
dansara og á það vel við þegar ís-
landsmeistarakeppni í break dansi
er nýlega afstaðin. Þess má geta
þess að á disldnum eru tvö lög sem
gera það vel þess virði að eiga
hann, það eru klassíkerar eins og
Original Rockit með Herbie
Hancock og frábært lag með
Hashim sem heitir A1 Naafi-
ysh (The Soul).
Ég mæli með þessum disk
fyrir þá sem eru að tjá sig í
þessu frábæra og erfiða
dansformi, því þarna eru góð
mix sem henta vel fyrir heil-
an hóp í dúndur sýningu.
Þeir sem hafa gaman af mix-
um, smölun og hörðu rappi
ættu einnig að athuga þenn-
an disk. Þessi diskur er ekki
fyrir poppara heldur hipp hopp
ara!
„Ekki fyrir
poppara heldur
hipp hoppara“
HÉR er á ferðinni tvöfaldur
diskur með úrvali af músík
fyrh- hipp hoppara, break
og electric boogie dansara. Þessi
diskur sver sig algerlega í ætt við
þá músík sem var í gangi fyrir 15
árum þegar þetta dansfár ruddi
sér til rúms í fátækrahverfum
New York borgar og auðvitað
skömmu síðar hingað til íslands. A
þessum diskum eru meira að segja
nokkur nýleg lög með gömlum
kempum sem áttu lög á þessum
tíma eins og Grandmaster Flash
and the Furious Five, Eric B &
Rakim og Africa Bambaataa.
Tónlistinni er vel blandað á
þennan disk, það ættu allir sem
hafa eða höfðu (sum okkar eru
komin yfir þrítugt) gaman
af break tónlist að rekast á
3-4 af þessum 24 lögum
sem kitla danstaugarnar.
Break tónlist er mjög
krefjandi tónlist. Hana er
ekki hægt að setjast nið-
ur og hlusta á, það er
nauðsynlegt að vera að
gera eitthvað, því kraft-
urinn er mikill í henni.
Helst vildi maður hafa
gott pláss í kringum sig
og athuga hvort ekki
væri hægt að finpússa
baksnúninginn eða
vindmylluna. Ég get
ekki sagt að öll lögin
séu góð, þvert á móti
LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
stöð 2 ► 15.55 Asterix á Bret-
landi (Asterix Chez les Bretons),
fjallar, eins og nafnið bendir til, um
æfintýri vinar okkar allra, Ástríks,
sem virðist hafa brugðið sér yfir
sundið til Bretlands. Öruggl ega
hin besta skemmtun, eins og allar
þær teiknimyndir sem maður hefur
séð um hina galvösku Galla í Gaul-
verjabæ.
Sýn ► 21.00 Mynd kvöldsins: Á
tæpasta vaði (Die Hard, ‘88),
★★★Vá. Sjá umfjöllun í ramma.
Stöð 2 ► 21.00 Hún er alröng,
gamanmyndin Sá eini rangi (Mr.
Wrong, ‘96), sem byrjar ekki illa; á
fundum draumaprinsins Bills
Pullman og piparjúnkunnar Ellen-
ar DeGeneres. Gaurinn reynist
snarruglaður. Rennur fljótt útí
sandinn. Algjör tímasóun, leikurun-
um þó ekki um að kenna, heldur
húmorslausu handriti. ★
Sjónvarpið ► 21.15 Þýskamynd-
in I frumskóginum eftir 5 (Nach
ftinf im Urwald, ‘96), segir af sögu-
legri ferð foreldra 17 ára stroku-
stúlku, sem halda til stórborgarinn-
ar á eftir henni. Með Franca Pot-
ente, Dagmar Manzel og Axel Mil-
berg. Leikstjóri Christian Schmidt.
Prumsýning hérlendis.
Stöð 2 ► 22.45 Clare People, eig-
inkona ítalska stórleikstjórans
Bernandos Bertolucci, leikstýrir
Töfralyfinu (Rough Magic, ‘95),
gamanmynd um unga stúlku
(Bridget Fonda), töframann á
flótta undan kærastanum og kemst
til Mexíkó. Box Office gefur ★★ og
segir myndina blöndu af gamni,
töfrum og raunsæi sem lagist ekki
saman.
Sjónvarpið ► 22.55 Mynd hins
kunna kvikmyndagerðarmanns,
Spike Lee, Enn betri blús (Mo’
Better Blues, ‘90), segir af tilvist-
arkreppu djassleikara (Denzel
Washington), bæði sem tónlistar-
manns og kvennamálin eru í hnút.
Langdregin og fremur leiðinleg
en á sína spretti. Með Wesley
Snipes og leikstjóranum, sem
seint verður talinn hrífandi leik-
ari, og á að þessu sinni heldur
slakan dag á öðrum vígstöðvum.
★ ★'/2
Sýn ► 23.10 Mynd kvöldsins: Á
tæpasta vaði 2. Sjá umsögn í
ramma.
Stöð 2 ► 0.35 Kvikmyndagerð
Billie August á metsölubók Isabel
Allende Hús andanna (The House
of the Spirits, ‘93), er umdeild. Allir
geta þó verið sammála um að hún
sé mistæk. Segir átakamikla og há-
dramatíska sögu suður-amerískrar
fjölskyldu frá þriðja áratugnum
fram á þann áttunda. Estan Trub-
an (Jeremy Irons) er heitbundinn
Rósu. Hún drekkur eitur, ætlað
föður hennar. Truban hverfur á
braut, kemur löngu síðar til baka
og giftist þá Clöru, systur Rósu.
Fjölskyldusagan er sögð með hryll-
ing pólitískra átaka í Chile sífellt í
bakgrunninum. Töfi’araunsæi sög-
unnar er fyrirferðariítið en myndin
sjálf vel sögð og eftirminnilega vel
leikin af Irons, Glenn Close og
Meryl Streep. Með Wynonu Ryder,
Antonio Banderas, Vanessu Red-
grave og Armin Mueller-Stahl.
★★★
Stöð 2 ► 3.00 Hrollvekjan
Draugagangur (Haunting of
Seacliff Inn, ‘94) segir af ungum
hjónum sem flytja úr borginni nið-
ur til strandarinnar þar sem þau
festa kaup á gistiheimili. Drauga-
gangur reynist fylgja með í kaup-
unum. Eitthvað er hann pasturslít-
ill því notendur IMDb gefa mynd-
inni falleinkun, 3,8. Með Ally
Sheedy.
s
Ur skýjakljúfnum á flugvöllinn
BRUCE Willis í hlutverki löggu í New York sem skýlir hér eiginkonu
sinni, sem leikin er af Bonnie Bedelia, í myndimii Á tæpasta vaði.
Sýn ► 21.00 Á tæpasta vaði
(Die Hard, ‘88), ★★★'/2, og Á
tæpasta vaði 2 (Die Hard II,
‘90), ★★★ eru myndir kvöldsins.
Báðar tvær hreint sprengiefni
fyrir taugakerfið, æsispennandi
og vel gerðar afþreyingarmyndir
þar sem skopskynið er einnig í
góðu lagi. Sú einstaka spennu-
mynd A tæpasta vaði, hefur verið
stæld í tugatali á þeim tíu árum
sem liðin eru frá frumsýningu
hennar. Framhaldsmyndirnar
orðnar tvær, og sú þriðja á leið-
inni. Mennirnir á bak við vinsæld-
irnar eru Bruce Willis í hlutverki
löggunnai- McClane, sem lendir í
hremmingum í skýjakljúf í Los
Angeles. Þar er eiginkona hans
(Bonnie Bedelia), tekin í gíslingu,
ásamt stóriðjuhöldunum, vinnu-
veitendum sínum, af flokki
hryðjuverkamanna undir stjórn
Aians Rickmans (fer einnig á
kostum). John McTiernan keyrir
atburðarásina áfram af þvílíkum
fítonskrafti að myndin er ein
langbesta hasarmynd sögunnar.
Missið ekki af framhaldinu kl.
23.10, á sömu stöð, A tæpsta vaði
2, gefur fyrirrennara sínum sára-
lítið eftir. Hasarinn er kominn
niður á jörðina, nánar tiltekið á
alþjóðaflugvöllinn við Was-
hington. Hann á að verða næsti
vígvöllur vondu kallanna. Þeim yf-
irsést að frú McClane er að koma
heim úr flugi og okkar maður bíð-
ur lendingarinnar.
Sæbjörn Valdimarsson
Bíldshöfða 14
112 Reykjavík
Fyrsta sendingin af pallhús-
um frá Starcraft kemur f maí.
Getum boðið mikið úrval fyrir
pallbílaeigendur af einum
insælustu pallhúsum frá USA.
insamlegast staðfestið
pantanir hið fyrsta.
S. 587 6644
«
Klass
Frábær danstónlist frá kl. 23.30 með
hljjómsveitinni Saga Klass og söngvurunum Sigrúnu
Evu Ármannsdóttur og Reyni Guðmundssyni
Ladcli og félagar
fara á kosiuni t feröabran
GLEÐI.SONGUR OG FULLT
AF GRÍNIí SULNASAL
Raggi Bjarna og Stefán Jökuisson
sjá um stuðið á Mímisbar