Morgunblaðið - 04.04.1998, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 04.04.1998, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Skíðamót í blíðskaparveðri SKÍÐALANDSMÓT íslands hófst í Illíðarfjalli við Akureyri í gær í sól og sumaryl og nutu bæði keppendur og áhorfendur blíðunnar. Á myndinni má sjá eina stúlkuna í risasvigi kvenna takast á loft. Keppni verður fram lialdið um helgina og í næstu viku verða nokkur alþjóð- leg mót nyrðra. ■ Landsmótið / B2 Lýst eftir fjórum íslenskum sakamönnum erlendis Gefa út alþjóðlega handtökuskipun EMBÆTTI ríkislögreglustjóra gaf í gær út fjórar alþjóðlegar hand- tökuskipanir á hendur fjórum ís- lenskum einstaklingum sem fóru af landi brott á sínum tíma áður en afplánun refsidóma sem þeir höfðu hlotið hófst. Dómarnir eru mis- langir samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eða frá fimm mán- uðum til tveggja ára. Handtökuskipanir eru gefnar út að undirlagi Fangelsismálastofnunar ríkisms og hefur embætti ríkislög- reglustjóra haft veg og vanda af frá- gangi þeirra og framkvæmd málsins ásamt þýðingu gagna o.s.frv. Lausafregnir um aðsetur Handtökuskipanimar eru gefnar út í tengslum við átak Fangelsis- málastofnunar til að hremma það fólk sem flúið hefur réttvísina hér á landi seinustu árin. Að sögn Smára Sigurðarsonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns er óvíst hvort og hvenær þær beri árangur. „Aðsetur þessa fólks er ekki staðfest og því er um alþjóðlega til- kynningu að ræða, en jafnframt er viðkomandi yfirvöldum bent á að fólkið kynni að vera í ákveðnum löndum. Það eru hins vegar lausa- fregnir sem við höfum ekki fengið staðfestar,_“ segir Smári. Sigrún Agústsdóttir, lögfræðing- ur hjá Fangelsismálastofnun, segir að beiðnir stofnunarinnar um handtökur þeirra aðila sem um ræðir hafi verið að berast embætti ríkislögreglustjóra á undanfórnum mánuðum og sé við því að búast að nokkur bið verði áður en þær beri árangur. „Oft er vitað í hvaða landi þetta fólk dvelst en ekki mikið meira en það. Við höfum fengið tvo þeirra sem við leituðum að heim og vonum að jafn vel gangi að ná í þá sem eftir eru,“ segir hún. VEÐURBLÍÐAN dregur fram iðandi mannh'f og er óhætt að fullyrða að íbúar höfuðborgar- innar hafí verið komnir í sumar- skap í gær. Margir höfðu dregið fram sólgleraugun og sumarföt- in og spókuðu sig í góða veðr- I sól og sumaryl Morgunblaðið/RAX inu, á meðan aðrir sötruðu svaladrykki á kaffíhúsum borg- arinnar. Veðurstofan spáir áframlialdandi sól og blíðu næstu daga. ■ Iðandi mannlíf/6 Nefnd fjallar . einkavæðingu Landssímans HALLDÓR Blöndal samgönguráð- herra skipaði í gær starfshóp til að meta áhrif eignarhalds ríkisins á stöðu og möguleika Landssíma Is- lands og hvort æskilegt sé að ríkið selji af eignarhluta sínum í fyrir- tækinu. Þetta kom fram í ræðu samgönguráðherra á aðalfundi Landssímans hf. í gær. „Starfshópurinn á að gaumgæfa sérstaklega hvaða áhrif breytt eign- arhald geti haft á hagsmuni fyrir- tækisins, viðskiptamanna þess og starfsmanna," sagði Halldór. Tveggja milljarða króna hagnaður Póstur og sími hf. skilaði 1.955 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Guðmundur Björnsson, for- stjóri félagsins, þakkaði árangurinn einkum sterkri stöðu fjarskiptanna og sagði að GSM-farsímaþjónustan hefði fengið sérstaklega góðar við- tökur hjá fýrirtækjum og einstak- lingum. Utiloka ekki erlenda eignaraðild Hlutafélagið Landssími Islands hf. tók til starfa um seinustu áramót er starfsemi Póst og síma var skipt í tvö félög. Þórarinn V. Þórarinsson, stjórnarformaður félagsins, sagði á aðalfundinum í gær, að myndun við- skiptablokka í símaþjónustu kynni að kalla á nánari samvinnu við eitt eða fleiri erlend símafyrirtæki. „Þótt ég sé sjálfur sannfærður um mikilvægi þess að tryggja stöðu íslensks símafyrirtækis hygg ég að óvarlegt sé að útiloka sölu á litlum hluta til erlends samstarfsaðila," sagði hann. ■ Starfshópur/18 Fjölmennur fundur læknaráðs Landspítalans um gagnagrunnsfrumvarp Ofsaakstur á Snæfellsnesi Ottast að málið verði knúið fram án umræðu MIKILVÆGI rækiiegrar og opinberrar umræðu um frumvarp um gagnagrunn heilsufarsupplýsinga var ítrekað á fundi læknaráðs Landspítalans, sem haldinn var í gær að viðstöddum tæplega 200 lækn- um. Gagnrýndi Guðmundur Bjömsson, formaður Læknafélags Islands, meðferð frumvarpsins. Guðmundur tók fyrstur til máls og sagði að ótt- ast væri að með frumvarpi heilbrigðisráðherra væri verið að knýja fram lög með hraði án nægi- legrar umræðu. Kvaðst hann telja að aldrei hefði jafn stórt og merkilegt komið upp með jafn skömmum fyrir- vara. Á fundinum var spurt hvort þörf væri á sam- hæfðum gagnagrunni á heilsufarsupplýsingum og ef svo væri hver ætti að ráða yfir honum. Lögð **«pr áhersla á mikilvægi framþróunar í vísindum, en um leið að ekki mætti stefna vernd einstak- lingsins og persónuupplýsinga í hættu. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfða- greiningar, sem komið hefur fram að hafi áhuga á að vinna gagnagrunninn, var á fundinum og ítrek- aði að sinn skilningur á frumvarpinu væri sá að ekki ætti að takmarka aðgang að upplýsingum. „Grundvallarhugsunin á bak við frumvarpið er eingöngu sú að þær upplýsingar, sem hér liggja og má búa til úr verðmæti, verði komið í verð,“ sagði hann. „Ekkert annað.“ Hömlur á vísindavinnu? Gunnar Sigurðsson, læknir og nýkjörinn for- maður Hjartavemdar, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að í stofnuninni hefðu menn áhyggjur af eignarréttinum á þeim vísindagagna- grunni, sem Hjartavernd hefði safnað undanfarin 30 ár. „Þarna er verið að leggja hömlur á vísinda- vinnu og væntanlega er það ekki ætlunin með frumvarpinu," sagði Gunnar. „I skýringum með frumvarpinu er þess getið að Hjartavernd verði að sækja um starfsleyfi til reksturs þessa gagna- grunns síns og til áframhaldandi söfnunar. Hins vegar er gagnagrunnur Hjartaverndar ekki venjulegar heilsufarsupplýsingar heldur vísinda- grunnur." Samkeppnisstofnun hefur fengið frumvarp heilbrigðisráðherra til umsagnar og mun stofnun- in væntanlega skila áliti í kringum páska. ■ Góð og ítarleg/10 ■ Kapp er best/36 Tekinn á 140 og 120 LÖGREGLAN í Stykkishólmi stöðv- aði ungan ökumann á 140 km hraða við Hítará um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Þessi sami maður var stöðvaður við Vegamót, við veginn upp í Kerlingarskarð, nokkrum mín- útum seinna, þá á 120 km hraða. Að sögn Einars Guðjónssonar varðstjóra hefur þessi maður verið tekinn áður fyrir ofsaakstur á Snæ- fellsnesi og hefiu- lögregla orðið að elta hann þegar hann hefur reynt að stinga af. Maðurinn mun þurfa að sjá af ökuskírteini sínu vegna athæfisins um einhvern tíma, væntanlega ein- hverja mánuði. Einar segir að lögreglan í Stykkis- hólmi sé í umferðarátaki þessa dag- ana og fylgist hún sérstaklega með ökuhraða og bílbeltanotkun. Um 20 ökumenn voru kærðir í gær vegna ýmissa umferðarlagabrota.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.