Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 AKUREYRI MORGUNB LAÐIÐ Hross veiktust á Bakka í Svarfaðardal Vægur grun- ur um hitasótt ÞRJÚ folöld og eitt trippi veiktust um páskana í hesthúsinu á Bakka í Svarfaðardal. Einkenni voru að mörgu leyti áþekk og á hitasóttinni sem herjað hefur á hesta syðra, slen og staðfest var að eitt folaldanna var með hita, en Ólafur Valsson dýralæknir sagði að ekki væri hægt að staðfesta enn sem komið væri að veikin hefði borist norður. Sýning á verðlauna- gripum SÝNING á verðlaunagripum í samkeppni sem bæjarráð Akureyrar efndi til um hönnun og framleiðslu minjagripa sem ætlaðir eru til gjafa fyrir Akur- eyrarbæ verður opnuð á Lista- safninu á Akureyri í dag, mið- vikudaginn 15. apríl og stendur hún fram á sunnudag, 19. apríl. Verðlaunaafhending fer fram á Listasafninu næstkomandi laugardag, 18. apríl. Markmið keppninnar var að fá fram tillögur að hönnun og framleiðslu tækifærisgjafa og var óskað eftir að þær væru í þremur verðflokkum, þ.e. mun- ir sem kosta undir 500 krónum, undir 3000 krónum og loks munir sem kosta allt að 10 þús- und krónur. Æskilegt þótti að munimir tengdust á einhvern hátt eða minntu á Akureyri og höfðuðu til þjóðlegra einkenna, en það var þó ekki skilyrði. Alls skiluðu 17 einstaklingar inn munum og litu margar at- hyglisverðar tillögur ljós, en dómnefnd þótti þó töluvert skorta á að margar hugmynd- anna væru tæknilega og hug- myndalega fullnægjandi út- færðar. Af þeirri ástæðu valdi dómnefnd þann kost að veita engin fyrstu verðlaun í flokk- unum. Dagatal og lyklakassi I ódýrasta flokknum voru veitt tvenn önnur verðlaun, annars vegar fékk George Hollanders verðlaun fyrir dagatal og Snæbjörn og Hrafn Þórðarsynir fyrir lyklakassa. Næla eftir Önnu Gunnarsdótt- ur og bókahnífur úr hrosslegg eftir Guðrúnu Steingrímsdótt- ur hlutu þriðju verðlaun. Kassi með lás eftir Beate Stormo og George Hollanders hlaut verð- laun í þriðja verðflokki. Einnig ákvað dómnefnd að kaupa grunnhugmynd af einum þátt- takanda og semja við hann um þróun hennar svo henti Akur- eyrarbæ sem sérstakur minja- gripur, en eigandi tillögunnar er George Hollanders. Hitasóttin breiddist hratt út í Borgarfírði um páskahelgina og er sóttin nú einnig komin austur yfir Markarfijót. Hjá embætti yfirdýralæknis hef- ur verið ákveðið að fella niður aðrar vamarlínur en Mýrdalssand og Holtavörðuheiði, auk þess sem Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla verður áfram sérstakt varnarsvæði, svo nú em svæðin einungis þrjú, að sögn Sigríðar Bjömsdóttur, dýra- læknis hrossasjúkdóma. Enn er ekki staðfest hvað veldur sleninu í Svarfaðardal. „Þetta er bara vægur gmnur ennþá, en kem- ur væntanlega í ljós á næstu dögum hvað þama er á ferðinni því það em fleiri hross í húsinu og þau hafa þá líklega smitast einnig," sagði Ólaf- ur. „En þetta getur allt eins verið eitthvað allt annað, það em til ýmis afbrigði af hestaveitó sem hafa svip- uð einkenni." Ólafur sagði að ekki væri hægt að rekja nein ferðalög fólks til eða frá hesthúsinu og yfir á sýkt svæði, „þannig að við trúum því mátulega að þama sé um hitasótt að ræða, en höfum allan vara á og fylgjumst vel með þessu,“ sagði Ólafur. Morgunblaðið/Guðmundur Þór KRISTINN Bjömsson hlaut æðstu orðu Kiwanishreyfingarinnar, Hixon orðuna, Sveinbjöm Árnason, forseti Súlna, afhenti Kristni orðuna. Kristinn sæmdur Hixon orðunni ólafsfirði. Morgunblaðið. KIWANISKLÚBBURINN Súlur í Ólafsfirði veitti Kristni Bjömssyni skíðamanni æðstu viðurkenningu Kiwanishreyfingarinnar, Hixon orðuna á sérstökum hátíðarfundi síðastliðinn sunnudag. Fær hann þessa orðu fyrir frá- bæran árangur á skíðum og fyrir að halda nafni Ólafsfjarðar og ís- lands á lofti. í ræðu Sveinbjöms Ámasonar, forseta Súlna, kom fram að Hixonfélagsskapurinn var stofhaður tii heiðurs fyrsta forseta Alþjóðasambands Kiwanis, Georg F. Hixon. Andvirði orðunnar renn- ur til joðverkefnis Kiwanis en það er að útrýma joðskorti í heiminum árið 2000. Kristinn er annar íslend- ingurinn sem ekki tengist Kiwanis- hreyfingunni á íslandi til að hljóta þessa orðu en hinn er Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti Is- lands, en hún er jafnframt verndari joðverkefnisins. Bæjarstjóra Ólafs- fjarðar hélt Kristni Björnssyni og fjölskyldu kvöldverðarboð í kjöifar Islandsmeistaramótsins á skiðum. Afhenti forseti bæjarstjómar, Þor- steinn Ásgeirsson Kristni 150 þús- und krónur að gjöf frá Ólafsfjarð- arbæ sem viðurkenningu fyrir frá- bæran árangur á skfðum í vetur. Norðurlandsmót í snjókrossi haldið í Ólafsfirði Ólafsfirði. Morgunblaðið. NORÐURLANDSMÓT í snjó- krossi var haldið í Ólafsfirði síð- astliðinn laugardag. Keppt var í tveimur fiokkum í mótinu, vanir og óvanir. Alls var keppt á 21 sleða, 13 keppendur í fiokknum óvanir og 8 í fiokknum vanir. Norðurlandsmeistari hjá vön- um var Alexander Kárason, í öðru sæti var Finnur Aðalbjarn- arson og í þriðja sæti var Stefán Bjamason. I fiokknum óvanir var Helgi Ólafsson Norðurlandsmeistari, Alexander og Helgi Norður- landsmeistarar Gunnlaugur Gunniaugsson var í öðm sæti og Helgi Schiöth í því þriðja. Evrópumót eftir tvö ár Keppnin fór fram í bliðskapar- veðri og var keppnissvæðið í miðj- Morgunblaðið/Guðmndur Þór um bænum. Undanfarið hefur tekið mikinn snjó upp í bænum og þurftu menn að grípa til þess ráðs að keyra snjó á mótsstað. Keppnisbrautin er einn kíló- metri og vom farnir íjórir hring- ir í einni umferð. Samanlagður tími úr þremur umferðum réð úrslitum um hver bar sigur úr býtum. Mikill fjöldi fólks fylgdist með keppninni sem þótti takast mjög vel. Rætt hefur verið um að Evrópumót í snjókrossi fari fram í Ólafsfirði eftir tvö ár. Mannauður og menntun f sjávarútvegi Ráðstefna á vegum sjávarútvegsráðuneytisins og Háskólans á Akureyri. Haldin á Akureyri í Fiðlaranum, Skipagötu 14, 4. hæð, föstudaginn 17. apríl 1998. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Skráning fer fram í síma 463 0900, fax 463 0999, netfang sigharis@unak.is Skákþing Norðlend- inga framundan SKÁKÞING Norðlendinga í yngri flokkum verður haldið í Skákheimil- inu við Þingvallastræti á Akureyri dagana 18.-19. apríl nk. Skákþing Norðlendinga í eldri flokkum verð- ur haldið á sama stað dagana 23.-26. apríl. í keppni yngri flokka er stefnt að 7 umferðum og verða tefldar skákir með 20 mínútna umhugsunartíma fyrir hvem keppanda til að ljúka skák. Teflt verður í kvennaflokki, drengjaflokki, unglingaflokki og þarnaflokki. Veitt verða vegleg verðlaun sem eru bikar fyrir hvern flokk og verð- launapeningar fyrir þrjú efstu sæti í hverjum flokki. Skráningu í mótið skal lokið í síðasta lagi 10 mínútum fyrir mót. í eldri flokki verða tímamörk ein og hálf klukkustund á 36 leiki og 30 mínútur til að ljúka skák. Verðlaun verða bikar til eignar, svo og pen- ingaverðlaun fyrir fimm efstu sætin og fær sigurvegarinn 20.000 krónur í sinn hlut. Skráningu skal lokið í síðasta lagi 10 mínútum fyrir mót. Aflýsa varð frum- sýningu á Markús- arguðspjalli Góðar undirtekt- ir á hátíð- arsýningu LOFTMENGUN af völdum málningar í húsi áföstu Renni- verkstæðinu við Strandgötu varð tU þess að aflýsa varð frumsýningu LeUcfélags Akur- eyrar á Markúsarguðspjalli sem vera átti á fóstudaginn langa. Af sömu sökum féll niður forsýning á verkinu sem verða átti síðastliðið miðvikudags- kvöld. Fyrsta sýning á Markúsar- guðspjalh var að kvöldi annars páskadags og var það jafnframt hátíðarsýning í tilefm af 30 ára leUcafmæh Aðalsteins Bergdals sem leikur einleik í þessu verki. Nær húsfyllir var á sýningunni og undirtektir áhorfenda góðar. Næstu sýningar á Markúsar- guðspjalh verða annað kvöld, fimmtudagskvöldið 16. apríl, kl. 20.30 og sunnudagskvöldið 19. aprU kl. 20.30. Frumsýningar- gestir eru sérstaklega boðnir á fimmtudagssýninguna og gilda miðar þeirra þá. Gestir sem urðu frá að hverfa á forsýning- unni eru boðnir velkomnir á sýninguna á sunnudagskvöld, en fólk er beðið um að hafa samband við miðasölu Leikfé- lags Akureyrar. Sextán umferðaróhöpp Harður árekstur í Víkurskarði SEXTÁN umferðaróhöpp voru skráð hjá lögreglunni á Akur- eyri í páskavikunni, flest minni- háttar og lítið um meiðsl nema í einu tilfelli þegar tvær bifreiðar rákust saman í vestanverðu Víkurskarði um kl. 21 á föstu- daginn langa. Areksturinn var harður og voru þrír fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, tveir reyndust vera með brotna úlnliði en einn slapp með skrámur og mar án bein- brots. Alls voru 69 ökumenn staðnir að of hröðum akstri og var einn sviptur ökuréttindum fyrir að aka á 101 kílómetra hraða á klukkustund innanbæjar þar sem hámarkshraði er 50 kíló- metrar. Fimm voru teknir fyrir ölvun við akstur og af þeim voru þrír réttindalausir, einn sviptur ökuréttindum, annar með útrunnið ökuskírteini og sá þriðji hafði ekki fengið réttindi sökum ungs aldurs. Sólveig sýnir í Galleríi + MYNDLISTARKONAN Sól- veig Þorbergsdóttir opnaði sýn- ingu með gjömingum í Galleríi + í Brekkugötu 35 á Akureyri á annan í páskum. Sólveig nam myndlist í Utrecht í Hollandi en hefur ver- ið búsett á íslandi síðustu ár. Nýlega hafði Sólveig eftir- minnilega sýningu í Nýlista- safninu og hún mun taka þátt í hinu stóra verkefni Flagð og fögur skinn, í vor. Sýning Sól- veigar stendur til sunnudagsins 19. apríl og er opin um helgar frá kl. 14-18 eða á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.