Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 24

Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ásdís Sala hlutafjár í Járnblendifélaginu Kaupþing með hæsta boðið ÞRJÚ tilboð voru samþykkt í eignarhlut ríkisins í Islenska járnblendifélaginu hf. en tilboðin voru opnuð í gær. Meðfylgjandi mynd var tekin er tilboðin voru opnuð af Davíð Björnssyni, frá Viðskiptastofu Landsbanka ís- lands, en Hreinn Loftsson, for- maður einkavæðingarnefndar ríkisstjórnarinnar (t.v.), fylgist með. Fjárfestingarbanki atvinnu- h'fsins fékk samþykkt kauptil- boð upp á 20 m.kr. að nafnvirði á genginu 8,05 eða 61 milljón króna að markaðsvirði, Kaup- þing hf. bauð að nafnvirði kr. 119.760.000 á genginu 3,01 en fékk samþykktar kr. 103.760.000 eða 312 milljónir að markaðsvirði og Hlutabréfa- sjóðurinn Auðlind hf. sem bauð 30 m.kr á genginu 3,01 fékk samþykktar 26 milljónir króna eða 78 milljónir að mark- aðsvirði. Alls barst 51 tilboð í bréfin að nafnvirði 149.760.000 milljónir króna. Meðalgengi samþykktra tilboða var 3,02 og kaupverðið 451.577.600 milljónir. Áskriftir hátt á þriðja þúsund Þá er ljóst að sala á hlutabréf- um til almennings og starfs- manna fyrirtækisins gekk fram- ar vonum. Þegar talning var langt komin í gær var ljóst að áskriftir voru hátt á þriðja þús- und þrátt fyrir að enn lægju áskriftarblöð í nokkrum útibúum bankans. Útlit er því fyrir að til nokkurrar skerðingar komi með- al almennings. SEMENTSBUNDIN FLOTEFNI Uppfylla ströngustu gæðakröfur • Rakaheld án próteina • Níðsterk • Hraðþornandi • Dælanleg eða handílögð • Hentug undir dúka, parket og til ílagna 147 PR0NT0 154PRESTO 316 REN0V0 OPTIROC n Gólflagnir (ÐNAÐARGÓLF Smlðjuvegur 72, 200 Kópavogur Símar: 564 1740, Fax: 554 1769 Auknar líkur á byggingu magnesíumverksmiðju Astralskir fjárfestar kaupa 40% hlut í Islenska magnesíumfélagin u ÁSTRALSKA fyrirtækið Australian Magnesium Investments Pty Ltd., hefur keypt 40% hlut í íslenska magnesíumfélaginu hf. fyrir 174 milljónir króna með rétti til að auka eignarhlut sinn í 51% síðar, sam- kvæmt fréttatilkynningu IMF í gær. Þá er útlit fyrir að horfið verði frá upphaflegum hugmyndum um að vinna léttmálminn úr sjó en reyna þess í stað nýja ódýi-ari framleiðslu- aðferð sem Ástralarnir hafa þróað, þar sem magnesíum er unnið úr magnesítgrjóti. Ástralska fyrirtækið er að stærst- um hluta í eigu Normandy Mining Ltd., sem leggur stund á margskonar námuvinnslu en þó aðallega á gulli. Fyrirtækið er t.a.m. með stærstu gullvinnslu Ástralíu og fjórðu stærstu í heimi, með um eina og hálfa milljón únsa á síðasta ári. Vegna lækkandi heimsmarkaðsverðs á gulli undanfarið og mats sérfróðra manna á að verðið muni ekki stíga á næstr unni, telja forsvarsmenn Noi-mandy rétt að hverfa frá þeirri framleiðslu og snúa sér að öðru og varð magnesí- um fyrir valinu sem framtíðar- vinnsluafurð, bæði vegna tiltölulega lítils framleiðslukostnaðar og síauk- innar eftirspurnar á heimsmarkaði. Dótturfyrirtæki Australian Mag- nesium Corp. Ltd. vinnur nú að því að ljúka við hagkvæmniathugun á byggingu magnesíumverksmiðju í Queensland fylki í Ástralíu þar sem fyrirhugað er að reisa 90 þúsund tonna magnesíumverksmiðju á næstu árum. Hluti af þeirri athugun felst m.a. í byggingu 1.500 tonna verksmiðju tfi að sannreyna nýja tækni við framleiðsluna sem felst í því að vinna málminn úr magnesít- grjóti. Niðurstöður þessara hag- kvæmniathugana ættu að liggja fyr- ir í lok ársins og standi þær undir væntingum liggur einungis fyrir að heimfæra þær upp á íslenskar að- stæður sem ætti hvorki að verða tímafrekt né kostnaðarsamt verk- efni, áður en hægt verður að hefjast handa hér á landi hugsanlega í lok næsta árs. Breytt vinnsluform gæti tryggt lægri framleiðslukostnað Eins og kunnugt er hefur undir- búningsvinnan á Reykjanesi tekið mið af því að vinna málminn úr sjó og hefur þegar verið varið um fimm milljónum dollara í rannsóknarvinnu þar að lútandi. Að sögn Júlíusar Jónssonar, stjórnarformanns Is- lenska magnesíumfélagsins, eru þessir fjármunir ekki glataðir þótt ákveðið hafi verið að reyna aðrar vinnsluaðferðir. Mikið af þeirri vinnu nýtist mönnum áfram en ann- að verður einfaldlega lagt til hliðar þar til niðurstöðurnar frá Ástralíu liggja fyrir. Um 70 milljónum bandaríkjadala hefur þegar verið varið tfi þeirra rannsókna sem talið er að skili bæði minni framleiðslu- kostnaði og minni mengun en vinnsla magnesíums úr sjó. Bregðist sú aðferð hins vegar, verður sjó- vinnslan aftur tekin upp á borðið án þess að nokkuð tapist. Ársframleiðslan á bilinu 50-60 þúsund tonn Verði ráðist í magnesíumfram- leiðslu með þeirri vinnsluaðferð sem Ástralirnir leggja til, mun afkasta- geta verksmiðjunnar aukast úr fyr- irhuguðum 50 þúsund tonnum í 60 þúsund tonn á ári. Júh'us segir þær áherslubreytingar sem fylgt hafi er- lendu fjárfestunum ekki verða til að tefja upphaflegar vonir manna um að verksmiðjan verði komin í gagnið upp úr aldamótunum. Þvert á móti sé nú kominn tfi sögunnar aðili með tæknilega og fjárhagslega getu tfi að klára verkefnið, auk þess sem ástralska fyrirtækið hafí ákveðið að byggja afkomu sína í framtíðinni að stærstum hluta á magnesíumfram- leiðslu og eigi því mikilla hagsmuna að gæta að verkefnið gangi vel. TölvuMyndir kaupa helmingshlut í Hópvinnukerfum ehf. Stefnt að nánu samstarfi milli fyrirtækjanna KAUP TölvuMynda á helmingshlut í Hópvinnukerfum handsöluð. Frá vinstri: Friðrik Sigurðsson forstjóri TölvuMynda, Kristín Björnsdóttir markaðssljóri Hópvinnukerfa og Hörður Olavson framkvæmdastjóri Hópvinnukerfa. TÖLVUMYNDIR hafa keypt 50% hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Hóp- vinnukerfum ehf. af Herði Olavsyni og Kristínu Björnsdóttur. Tölvu- Myndir og samstarfsfyrirtæki þeirra eru því orðin ein stærsta hugbúnað- arsamsteypa landsins með tæplega 80 starfsmenn. Fyrir eiga TölvuMyndir 50% hlut í Forritun ehf. og 100% í Skyggni hf. Fyrirtæk- in stefna að víðtæku samstarfi á sviði útflutnings að sögn Friðriks Sig- urðssonar, forstjóra TölvuMynda, en vörur frá þeim eru þegar í notkun í níu löndum. Skrifað hefur verið undir sam- starfssamning milli fyrirtækjanna sem felur meðal annars í sér sam- vinnu við rekstrarumsjón, tæknileg- ar lausnir, markaðsstarf og útflutn- ing. TölvuMyndir Norðurlands verða með umboð fyrir Notes-lausnir Hóp- vinnukerfa á Norðurlandi og sjá um þjónustu þar. Hjá Hópvinnukerfum vinna nú 8 starfsmenn og sérhæfir fyrirtækið sig í lausnum fyrir Lotus Notus. Helstu vörur fyrirtækisins eru skjalavörslukerfið Skjalavörður, gæðastjórnunarkerfið Gæðavörður, starfsmannakerfi, Markaðsvörður til markaðsstjórnunar og Web-Guard til vefsíðugerðar. Hópvinnukerfi bjóða að auki fjölda annarra lausna. Hörður Olavson verður áfram framkvæmdastjóri Hópvinnukerfa, en stjómarformaður verður Þorkell Sigurlaugsson. Um sextíu starfsmenn vinna nú hjá TölvuMyndum og á síðasta ári keyptu þær 50% hlut í Forritun ehf. sem er eitt öflugasta hugbúnaðarfyr- irtækið á sviði AS 400 lausna. Með kaupum á Hópvinnukerfum hyggjast TölvuMyndir bæta vöruúrval sitt og bjóða viðskiptavinum sínum alhliða upplýsingalausnir. Microsoft he i I d a r I a u s Tæknival www.tapkniva

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.