Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 48

Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 48
~^8 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR INGVAR ODDSSON ' _l_ Ingvar Oddsson I fæddist í Kefla- vík 28. mars 1923. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 6. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Bergsteins- dóttir og Oddur Pálsson. Bræður Ingvars eru Ari, f. 2.8. 1924, og Óli, f. 31.1. 1907, d. 27.4. 1988. ** Hinn 1. apríl 1944 kvæntist Ingvar Soffíu Axelsdóttur, f. 19.8. 1923. Þau eignuðust sex syni. Þeir eru Axel, f. 30.7. 1944, Oddur, f. 5.2. 1947, Ingv- ar, f. 3.7. 1949, Friðrik, f. 16.12. 1950, Ágúst, f. 1.8. 1957, og Óm- ar, f. 30.1. 1961. Útför Ingvars fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Er söfnumst við að kveðja þig hér í hinsta sinn á horfna tímann lítum við til baka. Pó gröfm okkur skilji nú góði vinur minn, þú gleymist ei en minningamar vaka. Þegar við sambýlisfólkið á Kirkjuvegi 1 kveðjum Ingvar Odds- son þá söknum við góðs drengs sem með samvist sinni hafði bætandi áhrif á meðbræður og -systur með umgengni og framkomu sem bar vott um þroskaðan félagsmálamann sem tók þátt í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur í því að styrkja og bætá samskipti einstaklinganna innan veggja þess sameignarhúss sem við bjuggum í. Ingvar var að eðlisfari rólegur og ( yfirvegaður en fastur fyrir ef því var að skipta. Hjálpsemi var ríkur þátt- ur í fari hans ef til hans var leitað. Sorg og tregi fylltu hugi okkar þeg- ar við fréttum að hann væri haldinn ólæknandi sjúkdómi en það er nú svo að allt sem lifír er dæmt til þess að deyja, hjá því verður ekki komist og það hverfur aftur til uppruna síns, jarðarinnar sem við erum líf- fræðilega tengd við. Hann er horf- inn sjónum okkar sem áttum sam- leið með honum, en í minningunni geymum við þær stund- ir sem við áttum saman og látum þær deyfa þær tilfinningar sem mynda eftirsjá í hugum okkar. Það er ekki hægt að komast hjá því að það eru mörg atvik og gjörðir sem á ólíkan hátt renna fyrir hug- sjónum okkar við fráfall Ingvars, sumar trega- blandnar, aðrar hugljúf- ar. Þannig eru einu sinni mannleg sam- skipti og ekki hægt að komast hjá að þau skilji eftir sig hryggð í hjörtum þeirra sem áttu með honum samleið. Að lokum viljum við þakka fyrir árin sem við fengum að njóta þess að eiga hann sem einn hlekk í þeirri samskiptakeðju sem við eigum í okkar fjöleignarhúsi. Það er nú svo að þegar samferðamaður hverfur, þá myndast eftirsjá sem seint verð- ur útmáð og með virðingu og þökk fyrir samfylgdina þökkum við af al- hug þessi ár sem við áttum samleið. Við vottum eiginkonu, börnum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Pótt brjóstið hylji brostinn streng, bráðum minnkar tregi, þvi minningin um mætan dreng mun lifa þótt hann deyi. (H.H.) Blessuð sé minning Ingvars Oddssonar. Magnús Þór. Votar hendur liljunnar heilsa og kveðja hvítur engill fer hratt heimurinn hleypur hraðar en þig grunar hjartað slær ört hendur þínar teygja sig eftir kvöldsól sem drukknar áður en varir - þú ert einn á ströndinni með of stórt hjarta - allt of stórt - (A.S.) Þetta fallega ljóð kemur upp í hugann þegar við kveðjum einlægan vin okkar allra. Yfír 30 ára samstarf með Ingvari skilur eftir sig ótal minningar sem allar eru bjartar og góðar. Ingvar var einn af fyrstu starfsmönnum Fríhafnarinnar og sá fyrirtækið vaxa úr smáverslun í það veldi sem það er. Á engan er hallað þegar við segjum að hann var vin- sælasti starfsmaður meðal okkar allra. Kímni hans var með eindæm- um, en aldrei á kostnað þess sem minnimáttar var. Við brosum þegar við minnumst Ingvars, hann var ein- stakur. Hjálpsemi hans við yngri starfsmenn, sem voru að byrja í vinnu, var slík að margir búa að því ævilangt. Hann var hamur til vinnu og hafa fáir komist til jafns við hann. Á yngri árum stundaði Ingvar sjó- mennsku og sú reynsla fylgdi hon- um ævilangt. Oft skrapp hann í róð- ur ef hann átti frí frá sínu aðalstarfi. Alstaðar kom hann sér vel og var al- staðar beðið eftir honum í vinnu. Hann vann einnig við akstur þegar færi gafst. Eftir að hann hætti störfum fyrir fimm árum var hann í sambandi við sinn gamla vinnustað og var alltaf tekið opnum örmum. Hann var al- staðar velkominn og afar kær okkur öllum. Síðustu árin undi hann glaður við sitt með konu sinni í fallegri íbúð fyrir aldraða. Aldrei fannst okkur Ingvar vera gamall, enda varð hann „aðeins" 75 ára. Hann átti svo glaða og góða lund og fylgdist af áhuga með þeim sem yngri voru. Við sökn- um hans. Það var svo gott að vita af honum. Við vottum Soffíu, sonum þeirra og þeirra fjölskyldum okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu góðs manns. Starfsfólk Fríhafnarinnar. Elsku afi, ég sakna þess að fara ekki í pútt með þér. Núna ert þú kominn upp til Guðs og ég vona að þér líði vel þar. Ég sakna þín. Kveðja, Magni Omarsson. Elsku afi, það var gaman að pútta með þér. Núna kemur þú ekki oftar í heimsókn til Vestmannaeyja. Ég sakna þín mikið. Kveðja. Sigurgeir Ingi Ágústsson. Elsku afi, nú ert þú kominn til Guðs, ég vil koma til þín. Það var gaman að lita myndir með þér. Núna er ég búin að teikna tvær myndir handa þér. Ég elska þig svo mikið og sakna þín. Ég bið bænirn- ar á kvöldin og tala þá við þig. Bless afi, Ylfa Eik Ómarsdóttir. Ingvar Oddsson var starfsmaður Fríhafnarinnar í nær 35 ár. Hann lét af störfum fyrir fimm árum þá sjötugur að aldri. Fyrir þremur ár- um greindist hann með krabba- mein. Hann náði sér til heilsu þá og naut þess að vera til í rúm tvö ár. Hann var virkur í púttklúbbi aldr- aðra í Keflavík og hafði einnig gam- an af spilamennsku, þá aðallega brids. Nú í vetur tók sjúkdómur hans sig upp aftur og í þetta sinn tókst ekki að yfirbuga hann. Hann lést 6. apríi síðastliðinn. Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég þakka krabba- meinsdeild Landsspítalans fyrir við- mót þeirra gagnvart Ingvari og að- standendum. Starfsfólk deildarinn- ar er alveg einstakt og hefur reynst okkur vel. Það er komið stórt tóm, eftir frá- fall Ingvars, en minningarnar lifa. Þetta eru fá orð, en söknuðurinn er þeim mun meiri. Kveðja, Hulda Einarsdóttir. Við hjónin höfðum eytt þremur vikum á Kanaríeyjum, vorum á heimleið og biðum þess sem oft áð- ur í ferðum okkar að upplifa há- punkt ferðarinnar, koma aftur heim og sjá á ný ættingja og vini. Varla höfðum við stigið okkar fyrstu skref á fósturjörðinni þegar okkur barst sú fregn að góður vin- ur okkar, Ingvar Oddsson, væri all- ur. Ég vissi þegar ég fór að heiman að veikindi hans voru alvarleg, ég hafði heimsótt hann skömmu áður en ég fór. Þá var ekki að sjá að svona stutt væri eftir, hann var svo hress að vanda. Ég spurði hann þá: Verður þú ekki sjötíu og fimm 28. mars? Og eins og honum var einum lagið klemmdi hann neðri vörina saman milli þumalfingurs og vísi- fingurs, svaraði með sinni einstöku hógværð: „Jú, ef ég lifi.“ Svona svar stingur mann í hjartað og maður + Guðbjörg Guð- mundsdóttir fæddist í Urriðakoti í Garðahreppi 25. október 1906. Hún andaðist á sjúkra- húsinu Sólvangi að morgni 6. apríl síð- astliðins. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Jónsson, bóndi í Urriðakoti í Garðahreppi f. 26. jan. 1866, d. 31. des. 1942, og Sigurbjörg Jónsdóttir kona hans, f. 26. febr. 1865, d. 12. okt. 1951. Þau bjuggu öll sín búskaparár í Urriðakoti. Fyrst í tvíbýli við föður Guðmundar, Jón Þor- varðsson frá Vötnum í Ölfusi, f. 1. sept. 1817, og Jórunni Magn- úsdóttur frá Litlaiandi í Ölfusi. Þau hófu búskap í Urriðakoti 1846. Þau eignuðust tólf börn, en tvö dóu í frumbernsku. Þau sem náðu fullorðinsaidri voru: Bjargmundur, f. 16. apríl 1890, rafstöðvarstjóri í Hafnarfírði, “ Jónína Guðmundsdóttir, f. 2. nóv. 1892, fyrrv. húsfreyja í Hafnarfirði, Viiborg Guð- mundsdóttir, f. 24. aprfl 1894, fyrrv. húsfreyja á Vífilsstöðum og Reykholti við Hafnarfjörð, Guðmundur S., f. 31. okt. 1896, fyrrv. vörubílstjóri í Reykjavik, tp Guðlaugur, f. 1. mars 1899, bryti og síðar veit- ingamaður í Reykja- vík, Katrín, f. 19. nóv. 1900, fyrrv. húsfreyja í Viðey og Minna-Mosfelli í Mosfellssveit, Guð- rún, f. 28. nóv. 1902, húsfreyja í Reykja- vík, Jórunn, f. 13. nóv. 1904, fyrrv. húsfreyja á Akur- eyri og Reykjavík, Guðbjörg, f. 25. okt. 1906, fyrrv. hús- freyja á Minni-Völl- um, Landsveit og Hafnarfirði. Yngstur af Urriða- kotssystkinunum var Dagbjart- ur, sem var-2,2 lengi verkstjóri hjá Rafveitu Hafnaríjarðar, f. 6. nóv. 1910. Af þessum systkina- hópi er Guðrún á lífi á 96. ald- ursári. Hinn 21. júní 1935 giftist Guðbjörg Páli Kjartanssyni, f. 18. nóv. 1902, d. 4. des. 1968, síðar bónda á Minni-Völlum, Landsveit og síðast verkamanni í Hafnarfírði. Sonur þeirra er Svanur Pálsson landfræðingur, sérfræðingur hjá Orkustofnun ríkisins, kvæntur 2. des. 1989 Marcelinu Velasco, f. 24. febr. 1955 á Filippseyjum. títför Guðbjargar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mið- vikudaginn 15. apríl og hefst at- höfnin klukkan kl. 13.30. Guðbjörg móðursystir var náinn vinur minn allt frá því ég fæddist á heimili foreldra hennar í Urriðakoti árið 1917, er hún var á ellefta ári, til hinstu stundar. Þar sem ég var alinn upp hjá afa mínum og ömmu í Urriða- koti allt til 10-11 ára aldurs hef ég litið á Guðbjörgu sem systur mína og besta vin. Á bemskuárum mínum voru öll systkinin farin að heiman nema Guðbjörg og Dagbjartur, sem var yngstur systkinanna. Guðbjörg ólst upp á fjölmennu, sæmilega bjargálna heimili. Hún var níunda bam Urriðakotshjónanna af tíu, sem komust upp. Guðmundur, faðir Guðbjargar, hóf búskap í Urriða- koti árið 1887 á móti fóður sínum, Jóni Þorvarðssyni, sem hafði búið á jörð- inni frá 1846. Guðmundur lét af bú- skap árið 1942 og skorti því ekki nema fjögur ár í heila öld að jörðin væri set- in af þeim feðgum. Það fer lítið fyrir Urriðakotinu í dag. Þegar farið er um svokallaðan Flóttamannaveg sjást aðeins vall- grónar rústir í túninu þar sem gamli bærinn stóð í túninu norðan Urriða- kotsvatns. Þeir sem ekkert þekkja til munu eiga bágt með að ímynda sér að á þessari öld hafi stórfjölskylda orðið að framfleyta sér og skilað til framtíð- arinnar stórum hópi nýtra borgara, sem öll hlutu farsælar gáfur í vöggu- gjöf, komust vel til manns og urðu dugandi og vel metnir borgarar. Urriðakotið taldist ekki til stórjarða. Afkomendur Urriðakotshjóna eru þegar komnir vel yfir tvö hundruð. Faðir Jóns Þorvarðssonar, fóðurafa Guðbjargar, var Þorvarður Jónsson bóndi að Vötnum í Ölfusi, en kona hans var Guðbjörg Eyjólfsdóttir, bónda og hreppstjóra á Kröggólfs- stöðum. Þorvarður var sonur Jóns Sigurðssonar á Bíldsfelli í Grafningi, sem var fæddur 1746 í Nýjabæ í Ölf- usi. Föðuramma Jórunnar var Jórunn Magnúsdóttir frá Litlalandi í Ölfusi, Magnússonar, Beinteinssonar útvegs- bónda í Þorlákshöfn, en móðir Jór- unnar Magnúsdóttur var Herdís Þor- geirsdóttir bónda í Litlalandi. Móður- foreldrar Guðbjargar Guðmundsdótt- ur voru Jón Guðmundsson, bóndi á Setbergi í Garðahreppi, sem er næsti bær við Urriðakot og kona hans, Vil- borg Jónsdóttir, sem ættuð var frá Einholti í Biskupstungum. Jón á Set- bergi var sonur Guðmundar Eiríks- sonar, sem nefndur var,jiinn ríki eða sauðglöggi“ og löngum hefur verið kenndur við Haukadal í Biskupstung- um en bjó síðast í Miðdal f Mosfells- sveit. Kona hans var Guðbjörg Jóns- dóttir frá Ósabakka af Hörgshólsætt. Jón á Setbergi átti 18 böm með tveimur konum. Er hann ættfaðir Set- bergsættarinnar og er margt kjama- fólk komið af þeirri ætt eins og af Bíldfellsættinni. Af framansögðu sést að Guðbjörg var af góðum stofni í báðar ættir og erfði í ríkum mæli margt það besta frá báðum ættum s.s. dugnað og far- sælar gáfur. Eftir að hafa lokið námi við bama- skólann í Hafnarfirði fór Guðbjörg strax að vinna foreldrum sínum, en réð sig ekki I vist annars staðar eins og Jómnn, systir hennar, gerði. Hygg ég að hún hafi af ræktarsemi við for- eldra sína ekki leitað annarrar virmu á meðan þau stunduðu búskap í Urriða- koti allt til 1935. Án hennar hjálpar og vinnukrafts hefðu foreldrar hennar vart getað búið í Urriðakoti öllu leng- ur. Bæði vom þau farin að reskjast og búið gaf ekki það mikið af sér að hægt væri að greiða þeim, sem gengið hefðu í störf Guðbjargar, full laun og erfitt hefði verið að fá þann vinnu- GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR situr orðlaus um stund. Hann hafði nefnilega svarað mér á svipaðan máta í heimsókn minni til hans á sjúkrahúsið, er ég spurði hann eitt- hvað á þá leið hvort hann færi heim um helgina. Svarið var einlægt og alvömþrungið. „Þetta er búið hjá mér.“ Hann vissi örugglega hvernig komið var. Hann sýndi vinum sínum og kunningjum sem heimsóttu hann sama æðruleysið og yfii-vegunina sem alla jafna einkenndu framkomu hans. Leiðir okkar lágu fyrst saman 1947, en þá ókum við leigubíl frá Aðalstöðinni í Keflavík. Ingvar var að allra mati lista-ökumaður og allir sem með honum óku gáfu honum hæstu einkunn. Enn lágu leiðir okkar saman þegar hann hóf starf hjá Fríhöfninni árið 1959. Þar störfuðum við saman þar til að starfslokum kom vegna aldurs. Ingvar átti hug allra samstarfs- manna sinna sem minntust hans á dánardaginn með því að kveikja á tveimur kertum sem látin voru loga á kaffistofu starfsmanna Frí- hafnarinnar svo lengi sem vaktin hans var að störfum þann daginn. Ingvar átti ekki síður hug og virðingu þeirra tugþúsunda við- skiptavina sem nutu frábærrar þjónustu hans og ljúfmannlegrar framkomu hans við afgreiðslustörf hjá Fríhöfninni um þrjátíu og fimm ára skeið. Ingvar skipti aldrei skapi, hann var alltaf sami ljúfi persónuleikinn hvar og hvenær sem var, hafði gaman af hverskonar veiði- mennsku, var sérlega laginn með veiðistöngina og það var gaman að vera nálægur á árbakkanum og sjá einbeitinguna sem skein úr andliti veiðimannsins. Jú, það er margs að minnast á langri leið, sem ekki er hægt að rifja upp í fáum orðum, við geym- um það til betri tíma, vinur, þegar leiðir okkar liggja saman á ný. Því enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Kæri vinur, hafðu bestu þakkir fyrir ánægjulega samfylgd. Þú brást aldrei. Þú varst alltaf eins og klettur, sama á hverju gekk. Þú varst vinur, alltaf vinur. Elsku Soffía, við hjónin sendum þér og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Kristjánsson. kraft. Guðbjörg var aldrei kröfuhörð. Hún var ósérhlífin og gekk í svoneíhd karlsmannsstörf bæði sumar og vetí ur. M.a. gekk hún að slætti, smalaði og rúði og vann flest útistörf. Eins og hún átti ætt til var hún handlagin og í frístundum fékkst hún við fína handa- vinnu. Guðbjörg giftíst vorið 1935 Páli Kjartanssyni, ættuðum úr Landsveit. Tóku þau þá Urriðakotið á leigu og hófu þar búskap. Guðbjörgu var sveitabúskapur í blóð borinn og þráði að búa áfram í Urriðakoti. Höfðu for- eldrar hennar þá byggt sér lítið íbúð- arhús áfast bænum á þeim stað, sem gamli vesturbærinn hafði verið. Árið 1937 fæddist síðasta bamið í Urriða- kotið, Svanur sonur þeirra Guðbjarg- ar og Páls. Örlögin höguðu því þannig að þau hættu búskap eftir tvö ár. Um það leyti var að ganga í garð bylting á öll- um landbúnaðarháttum og um að- keyptan vinnukraft var ekld að ræða. Fluttust þau þá til Hafnarfjarðar og áttu þar heima skamma hríð. Þau bjuggu á Minni-Völlum í Landsveit í nokkur ár og fluttust aftur til Hafnar- fjarðar til þess að auðvelda syni sínum að stunda nám, sem hugur hans stóð til. Eftir lát manns síns vann Guð- björg í fiskvinnu og í niðurlagningar- stöð í nokkur ár. Guðbjörg hafði yndi af að kynnast landinu og ótaldar eru þær ferðir er Svanur keyrði þær syst- ur, Jórunni og Guðbjörgu, bæði um hálendið og byggðir landsins. Guð- björg var ekki allra en átti marga góða vini. Henni var kærleikur í blóð borinn og hugsaði meira um annarra hag en sjálfrar sín, sem er aðall góðs manns. Við hjónin sendum Línu og Svani samúðarkveðjur. Guðmundur Bjömsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.