Morgunblaðið - 15.04.1998, Side 58
. 58 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
J3?--------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
v( dúdú, ,
j, J Aldbe/
QFHVERJU HBFÉG
SÉÐ 6/0 FLJÚ6H?\ \_^
‘i-b^ÁÉG TEKst&ejB
L__; IXf^Fúh bs ffrew! í°^
Tommi og Jenni
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Aldraðir og
öryrkjar í
Tryggingaráð
Frá Ágústi Einarssyni:
ÞAÐ ER brýnt að tryggja aðild
eldri borgara og öryrkja að trygg-
ingaráði Tryggingastofnunar ríkis-
ins. Þessir hópar eru meðal helstu
lífeyris- og bótaþega Trygginga-
stofnunar og eðlilegt að þeir fái
beina aðild að stjóm hennar.
Frumvarp um aðild
að Tryggingaráði
Undirritaður hefur ásamt
nokkrum öðrum þingmönnum úr
stjórnarandstöðunni lagt fram
frumvarp á Alþingi að Landssam-
band eldri borgara og Öryrkja-
bandalag Islands tilnefni tvo aðal-
menn í tryggingaráð.
Nú er tryggingaráð skipað
þannig að Alþingi kýs á fyrsta þingi
eftir hverjar alþingiskosningar
fímm menn í tryggingaráð. Verk-
efni Tryggingastofnunar sam-
kvæmt lögum eru þrenns konar,
þ.e. sjá um slysa- og sjúkratrygg-
ingar og bætur í fæðingarorlofi svo
og að annast lífeyristryggingar,
sem skiptast í ellilífeyri, örorkulíf-
eyi'i, tekjutryggingu, örorkustyrki
og barnalífeyri.
Tryggingaráð skal hafa eftirlit
með fjárhag, rekstri og starfsemi
Tryggingastofnunar ríkisins og
gæta þess að hún starfi í samræmi
við lög og reglugerðir á hverjum
tíma. Valdsvið tryggingaráðs er
verulegt og það stafar í nánu sam-
starfi við forstjóra. Eldri borgarar
og öryrkjar eiga flest sitt undir
Tryggingastofnun og margir allt
fjárhagslega. Því er nauðsynlegt að
sjónarmið þeirra komist skýrt til
skila í starfi stofnunarinnar.
Eldri borgarar
og öryrkjar hunsaðir
Undanfarin ár hefur þess ekki
verið gætt að hlustað væri af nægri
athygli á skoðanir eldri borgara og
öryrkja. Þessir hópar hafa reynt að
sækja rétt sinn með miðlun upplýs-
inga til samfélagsins og þrýst á
stjórnmálamenn að breyta um
stefnu. Þessi barátta hefur oft borið
nokkurn árangur en þó er enn langt
í land.
Eldri borgarar starfa í fjölmörg-
um samtökum. Til að mynda eru
starfandi 45 félög eldri borgara víða
um landið. Stærst þeirra er Félag
eldri borgara í Reykjavík og ná-
grenni. Þessi félög starfa innan
heildarsamtakanna Landssam-
bands eldri borgara. Einnig er
starfandi mjög virkur hópur eldri
borgara, Aðgerðahópur aldraðra.
I huga jafnaðarmanna er grund-
vallaratriði að samfélagið búi vel að
öldruðum og öryrkjum. Margh'
þeirra eiga ekki í önnur hús að
venda. Það er algerlega óviðunandi
að eldri borgarar og öryrkjar verði
að sætta sig við geðþóttaákvarðanir
íTkisstjórnar hvers tíma og vera í
óvissu um kjör sín.
Stoppa ríkisstjórnar-
flokkarnir málið?
Núverandi í-íkisstjórn hefur tekið
minna tillit til hagsmuna þess fólks
en áður hefur þekkt. Þess vegna er
mjög mikilvægt að formleg þátttaka
eldri borgara og öryrkja sé tryggð í
stjórn þessara mála, eins og lagt er
til í frumvarpinu.
Frumvarpið hefur fengið einstak-
lega góðar viðtökur í umsögnum
víðs vegar af landinu. Það er núna til
umfjöllunar í heilbrigðis- og trygg-
inganefnd Alþingis. Það verður at-
hyglisvert að fylgjast með því hvort
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur
stoppa þetta sanngjarna mál.
ÁGÚST EINARSSON,
þingmaður í þingflokki
jafnaðarmanna.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
4>,
fyð&b&'iiÉ Brúðhjón
Allur bórðbúnáður
Glæsileg (jjaíavara
\4
Brúðarhjóna listar
VERSLUNIN "
Laiigavegi 52, s. 562 4244.
í pípum og plötum sem má þrýsta
og sveigja, laust við CFC, í sam-
ræmi við ríkjandi evrópska staðla.
Hentar vel til einangrunar kæli-
kerfa fyrir loftræsti- og hitakerfi,
og fyrir pípulagningar.
Leitið frekari upplýsinga
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29,108 REYKJAVÍK,
SÍMI 553 8640/568 6100.
ÞÞ
&co