Morgunblaðið - 15.04.1998, Síða 60

Morgunblaðið - 15.04.1998, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ 60 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 íslandsmeistaramót 1998 í pílukasti verður haldið á Lyngási 7-9 í Garðabæ, föstudaginn 17., laugd. 18. og sunnud. 19. apríl nk. Skráningu í mótið lýkur fimmtud. 16. apríl kl. 20.00. Skráning og upplýsingar í síma 896 4635. BRÆÐURNIR CPORMSSONHF BORGARBYGGÐ Auglýsing um aðalskipulag Borgarbyggðar 1997-2017 Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðal- skipulagi Borgarbyggðar er tekur til þéttbýlis í Borgarnesi. Skipulagsuppdrættir, skýringarkort og greinargerð mun liggja frammi til sýnis á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, Borgarnesi frá 15. apríl til 15. maí nk. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Lauga- vegi 166, Reykjavík. Athugasemdum skal skila til bæjarverkfræðings Borgarbyggðar fyrir 29. maí nk. og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar. Rannsóknaráætlun Evrópusambandsins — árangur og framtíðarmöguleikar — Morgunverðarfundur haldinn föstudaginn 17. apríl á Hótel Sögu — Skála, kl. 8.15—10.00. Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna og Samband íslenskra prófunarstofa standa fyrir kynningarfundi um árangur íslands í fjórðu rammaáætlun ESB, sem lýkur á þessu ári. Við tekur ný áætlun, sem nær yfir tímabilið 1998—2002 og verða megin þættir hennar kynntir. Sérstök áhersla verður lögð á upplýs- ingatæknisviðið, sem fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB, Óskar Einarsson, mun kynna. Dagskrá: • Þátttaka íslands í 4. rammaáætlun ESB, yfirlit yfir árangur. Elísabet M. Andrésdóttir, deildar- stjóri alþjóðasviðs RANNÍS. • Rammaáætlun ESB varðandi rannsóknir og þróun, tímabilið 1998—2002. Hákon Ólafsson, stjórnarmaður í SÍP greinir frá stöðunni í dag, en undirbúningur áætlunarinnar er á lokastigi. • Upplýsingatækniáætlun ESB, yfirlit yfir áherslur undir 4. rammaáætluninni og þær breytingar sem eru fyrirsjáanlegar undir 5. rammaáætlun- inni. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Rannsóknarráðs íslands í síma 562 1320, frekari upplýsingar veitir Elísabet M. Andrésdóttir í sama síma. í DAG VELVAKAMH Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Mistúlkun hjá borgarstjóra „ÉG heyrði borgarstjóra tala um það í útvarpi í vik- unni fyrir páska að sam- kvæmt stefnuskrá R-list- ans verði haldið áfram uppbyggingu fyrir alla ald- urshópa. Ég tel þetta klaufalega orðað hjá borg- arstjóra því að hjá eldri borgurum hefur verið mik- ið um niðurskurð, t.d. er búið að fella niður ýmis hlunnindi eins og fótaað- gerðir, hárgreiðslu og styrki í sambandi við ferðir aldraðra. Svo eru náttúru- lega allir aldurshópar í leiguíbúðum sem borgin átti en eins og allir vita er búið að selja þær og leigan á að hækka. Ég tel þetta ekki vera uppbyggingu fyrir alla aldurshópa. Kt: 181029-3589. Akraborgina áfram! í MORGUNBLAÐINU 30. mars sl. var athyglis- verð grein og viðtal við Önnu Maríu Maier en hún kom til Islands til að fara með Akraborginni. Ég er sama sinnis, hef ferðast með Akraborginni nokkrum sinnum á hverju ári og mun því sjá eftir henni. Hún styttir akst- ursleiðina til Vesturlands og í Borgarfjörð um 80 km, en göngin stytta hana aðeins um 40 km, eða helmingi minna. I raun borgar sig betui' að aka fyrir Hvalfjörð um Drag- háls og Skorradal heldur en fara göngin. Mér er spurn hvort ekki sé möguleiki að halda áfram siglingu Aki-aborgar eina ferð daglega, svo að þeir sem áhuga hafa á sjó- ferð geti notið þess. Eðli- legt er lika að göngin fái keppinaut. Hefur annars verið íhugað hvort bílferja frá Reykjavík til Brjánslækjar gæti verið áhugaverður og framkvæmanlegur kostm-, t.d. einu sinni í viku. Sú sigling tæki sennilega 8-10 tíma, en er fögur og skemmtileg leið að sumr- inu. Kristinn Björnsson. Tapað/fundið Kvenúr týndist KVENIJR með svartri leðuról týndist á leiðinni Álfheimar - leið 2 og niður á Lækjartorg, miðviku- daginn 8. apríl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553 5205. SKAK llm\j»n Margeir Pétursson STAÐAN kom upp í viður- eign tveggja Svía á Excelsi- or Cup mótinu í Gautaborg í janúar. Ralf Ákesson (2.520) var með hvítt og átti leik, en Stellan Brynell (2.465) hafði svart. 28. Bxh5! - Hd4 (Svartur mátti ekki þiggja biskups- fómina: 28. - gxh5 29. Hg3 - Hdl+ 30. Kh2 - Kf8 31. Rh7+ - Ke8 32. Hg8+ Kd7 33. Hxa8 og hvítur vinn- ur) 29. Dg3 - Rd8 30. Bf3 - Bxf3 31. Hxf3 - Dd7 32. h5! (Nú munar heldur bet- ur um það að hafa unn- ið svarta h peðið. Hvíta sóknin er óstöðvandi) 32. - Hdl+ 33. Kh2 - De7 34. Hf6 - Hd5 35. f4 - Da7 36. hxg6 - Hdl 37. Rf3 - Kf8 38. g7+ - Kg8 39. Hh6 og Brynell gafst upp. Daninn Sune Berg Han- sen sigraði á mótinu með 7 vinninga af 9 mögulegum og náði áfanga að stórmeist- aratitli. Eistinn Rytsjagov og Einar Gausel, Noregi, deildu öðru sætinu með 6 v. en stigahæsti keppandinn, Litháinn Viktor Gavrikov, sem nú teflir fyrir Sviss, varð að láta sér nægja fjórða sætið með 514 v. leikur og vinnur HVÍTUR HÖGNI HREKKVÍSI ÉG keypti blóm handa þér, af því þú hefur stað- ið þig svo vel í megrun- inni alla vikuna. Víkveiji skrifar... AFTÆKJAVÖRUÆÐIÐ sem að undanförnu hefur runnið á landsmenn varð Víkverja að um- fjöllunarefni fyrir skömmu. Nú er páskahátíðin liðin og hversdags- leikinn tekinn við. Á pálmasunnu- dag eru jafnan margar fermingar og sama máli gegnir um skírdag og annan í páskum. Segja má að raf- tækjavöruæðið hafi flust yfir til fermingarbamanna síðustu daga fyrir pálmasunnudag, eftir því sem fermingarnar nálguðust. Mörg fermingarböm settu á blað lista yf- ir ýmsa hluti sem þau gætu hugsað sér að fá í fermingargjöf. Eins og Víkverji hefur kynnst slíkum list- um í gegnum tíðina, hefur mátt sjá óskir um viðlegubúnað, orðabækur, skíði, skauta, úr, jafnvel tölvur, sjónvarp og hljómflutningstæki. Auðvitað era slíkir óskalistar margbreytilegir. XXX NÚ HEFUR Víkverji hins veg- ar fregnað að algengt hafi ver- ið að fermingarböm settu fram óskina um að fá GSM-síma í ferm- ingargjöf! Þetta finnst Víkverja svolítið sérkennileg ósk, því venju- legt fermingarbarn heftir engin efni á því að halda úti GSM-síma með einhverri notkun, nema það ætli kannski að nota peningana sem það fær í fermingargjöf til þess að borga fyrir afnotin af sím- anum. Auðvitað er það svo að þessi ósk bamanna er bara beint fram- hald af því sem þau sjá í kringum sig - þar sem annar hver maður, er með GSM-síma sér við eyra í tíma og ótíma. Börnin hafa ugglaust ekki hugsað lengra en svo að þarna sé um þægilegan kost að ræða sem þau vilji komast yfir. Fróðlegt gæti verið, í kjölfar ferm- inganna, að eitthvert skoðana- könnunarfyrirtækið gerði alvöru könnun á því, hvað fermingarbörn- in fengu nú helst í fermingargjöf í ár. xxx EKKI sviku þeir Spaugstofu- bræður sl. laugardag frekar en íýrri daginn. Reyndar fannst Vík- verja sem þessi blanda þeirra af al- veg einstökum aulahúmor, tvíræðri fyndni og síðan skerandi háðskri þjóðfélagsádeilu væri ein besta, fyndnasta og dýpsta ádeila á sam- tímann sem hann hefur séð í lang- an tíma. Á hálftíma settu þeir sam- an í svo einstaklega miklu háðs- ljósi, Landsbankaveiðimálin, kvótabraskið og fíkniefna- og skuldaklúður lögreglunnar, ásamt ýmiskonar álitamálum úr nýlegri fortíð, að segja má að þeir hafi gert flestum öðram sem eiga að vera í hlutverki þess eða þeirra sem rýna í þjóðféiagið og gerðir þess, skömm til. XXX VÍKVERJI man vart eftir pásk- um undanfama áratugi sem hann hefur ekki að einhverju leyti eytt í hlíðum Bláfjalla á skíðum. Sem betur fór varð sú hin sama raunin um þessa páska - Víkverji og fjölskylda komust til fjalla. Að vísu var snjórinn af mjög svo skornum skammti og því þurftu menn að gæta að því hvar þeir renndu sér - stundum var snjórinn aðeins þunn föl á fjalli. Hvað sem því leið, þá var veðrið, bæði á skír- dag og sl. laugardag svo dýrlegt, að það eitt að komast til fjalla, njóta útsýnisins, jafnt austur úr, til Vestmannaeyja og víðar og norð- vestur úi' til Snæfellsjökuls að fjallaferð var virkilega þess virði. Auk þess vora svo fáir gestir í Blá- fjöllum þessa daga, að viðstöðu- laust var hægt að renna sér niður hlíðarnar og komast beint upp með lyftu aftur. Einu biðraðimar sem mynduðust þessa daga vora við bamalyftuna!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.