Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 64
4>4 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir
KRYDDSTELPURNAR á Vopnafirði: Guðný Bára, Rannveig Hrund, Birna Kristín, Ólöf Birna og Margrét
Lilja.
ALLIR, ekki fáir útvaldir, fengu að spreyta sig á braut leiklistarinnar.
pekkar
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjónusta - þekking - raögjöl. Áratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SUNDABORG 1, RVK • SlMI 568 3300 • FAX 568 3305
--------------------------:____________
Krydd í tilveruna
í Miklagarði
Vopnafírði. Morgunblaðið.
► ÞAÐ var mikil gleði ríkjandi í
Félagsheimilinu Miklagarði,
þegar nemendur héldu árshátíð
Vopnafjarðarskóla. Þar stigu
nemendur á svið hver af öðrum
og skemmtu sveitungum sínum.
Allir, ekki fáir útvaldir, fengu að
spreyta sig á braut leiklistarinnar
og hver veit nema einhveijir eigi
eftir að leggja leiklistina fyrir sig.
Eldri nemendur skólans sýndu
leikritið Latabæ eftir Magnús
Scheving, en yngri nemendur
léku úr ólíkum ævintýrum og
sýndu heimatilbúna skemmtun.
Óskipta athygli vöktu líka
Kryddstelpur Vopnafjarðar með
söng og dansi.
ELDRI nemendur skólans sýndu leikritið Latabæ eftir Magnús
Scheving
BÍÓIN í BORGINNB
Sæbjörn Valdimarsson /Arnaldur Indriðason / Hiidur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
L.A. Confidental ★★★'/\
Frambærilegri sakamálamynd en
maður á að venjast frá Hollywood
þessa dagana. Smart útlit, lagleg-
ur leikur og ívið flóknari sögu-
þráður en gerist og gengur.
The Evening Star ★
Slöpp framhaldsmynd nokkuð
góðrar klútamyndar.
Litla hafmeyjan ★★★!4
Falleg og fyndin kvikmynd þai-
sem töfrar ævintýrsins blómstra
að fullu.
Flubber ★★
Dáðlítil, einsbrandara gaman-
mynd um viðutan prófessor og
tölvufígúrur. Robin Williams hef-
ur úr litlu að moða. Skemmtun
fyrir smáfólkið.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Jackie Brown ★★'/4
Nýja myndin hans Tarantinos er
fagmannleg, vel leikin, oft fyndin,
en næstum drukknuð í óhófs-
lengd. Allt snýst um flókna flétt-
una (minnir á The Killing meist-
ara Kubricks), allir reyna að
hlunnfara alla útaf hálfri milljón
dala. Persónurnar, allar mismikl-
ar minnipokamanneskjur, eru
dýrðlega leiknar af Samuel L.
Jaekson, Bridget Fonda, Robert
Forster, Michael Keaton og ekki
síst Pam Grier.
Rocket Man ★★
Hringavitleysa um fyrstu, mönn-
uðu geimferðina til Mars. Fyndin
á köflum.
Litla hafmeyjan ★★★14
Falleg og fyndin kvikmynd þar
sem töfrar ævintýrsins blómstra
að fullu.
Desperate Measures ★★
Formúluhasarmynd frá Barbet
Schroeder sem hvorki er fugl né
fískur
Seven Years in Tibet ★★★
Falleg en svolítið yfírborðskennd
mynd um andlegt ferðalag hroka-
gikks sem virkar hressandi fyrir
andann.
Flubber ★★
Dáðlítil, einsbrandara gaman-
mynd um viðutan ptófessor og
tölvufígúrur. Robin Williams hef-
ur úr litlu að moða. Skemmtun
fyrir smáfólkið.
George of the Jungle ★★1/2
Bráðskemmtileg frumskógardella
um Gogga apabróðir og ævintýii
hans.
Tomorrow Never Dies ★★★
Bond myndh-nar eru eiginlega
hafnar yfir gagmýni. Farið bara
og skemmtið ykkur.
HÁSKÓLABIÓ
Anastasia ★★★
Disney er ekki lengur eitt um hit-
una í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga, sem
fer frjálslega með söguna af keis-
aradótturinni (?) og byltingu ör-
eiganna.
Allír fyrir einn ★★
Ævintýramynd í stíl gullaldar-
mynda Hollywood. Vænlegt
þrjúbíó en ekki miklu meira.
Wag the Dog ★★"/2
Sniðug og vel til fundin kvikmynd
sem hefur ýmislegt til síns máls,
en handritið er ekki nógu beitt.
Hnefaleikarinn ★★★
Ruslpóstur ★★1/2
Einstaklega grámygluleg og of-
urraunsæ, norsk tragikómedía,
sem kemur við kvikuna á áhorf-
endum. Tilvalin tilbreyting frá
„venjulegum" myndum.
Amistad ★★‘/2
Átakanleg saga um örlög afríku-
þræla verður að óði til amerísks
lýðræðis og réttarkerfís.
Bíóstjarnan Húgó ★★■/2
Sagan mætti vera skemmtilegri,
en Húgó er sætur og börnum
fínnst hann fyndinn.
Titanic ★★★14
Mynd sem á eftir að verða sígild
sökum mikilfengleika, vandaðra
vinnubragða í stóru sem smáu,
virðingar fyrir umfjöllunarefninu.
Falleg ástarsaga og ótrúlega vel
unnin endurgerð eins hrikalegasta
sjóslyss veraldarsögunnar.
Stikkfrí ★★>/2
Islensk gaman- og spennumynd
þar sem þrjár, barnungar leikkon-
ur bera með sóma hita og þunga
dagsins og reyna að koma skikk á
misgjörðir foreldranna.
KRINGLUBÍÓ
Litla hafmeyjan ★★★!/2
Falleg og fyndin kvikmynd þai-
sem töfrar ævintýrsins blómstra
að fullu.
Djarfar nætur ★★★
Frábærlega vel gerð mynd um
klámiðnaðinn í Bandaríkjunum í
kringum 1980. Góður leikur.
Desperate Measures ★★
Formúluhasarmynd frá Barbet
Schroeder sem hvorki er fugl né
fískur
Flubber ★★
Dáðlítil, einsbrandara gaman-
mynd um viðutan ptófessor og
tölvufígúrur. Robin Williams hef-
ur úr litlu að moða. Ágæt
skemmtun fyrir smáfólkið.
LAUGARÁSBÍÓ
Allir fyrir einn ★★
Ævintýramynd í stíl gullaldar-
mynda Hollywood. Vænlegt
þrjúbíó en ekki miklu meira.
Það gerist ekki betra ★★★!4
Jack Nicholson í sallafínu formi
sem mannhatari, rithöfundur og
geðsjúklingur sem tekur ekki inn
töflurnar sínar - fyrr en gengil-
beinan Helen Hunt, homminn
Greg Kinnear og tíkin vekja upp í
honum ærlegar tilfínningar.
Rómanískar gamanmyndir gerast
ekki betri. Vítamínspi’auta fyi-ir
geðheilsuna.
Lína langsokkur ★★!4
Teiknimynd um Línu Langsokk,
ætluð yngstu kynslóðinni.
REGNBOGINN
Jackie Brown ★★!/■
Nýja myndin hans Tarantinos er
fagmannleg, vel leikin, oft fyndin,
en næstum drukknuð í óhófs-
lengd. Allt snýst um flókna flétt-
una (minnir á The Killing meist-
ara Kubricks), allir reyna að
hlunnfara alla útaf hálfri milljón
dala. Persónurnar, allar mismikl-
ar minnipokamanneskjur, eru
dýrðlega leiknar af Samuel L.
Jackson, Bridget Fonda, Robert
Forster, Michael Keaton og ekki
síst Pam Grier.
Anastasia ★★★
Disney er ekki lengur eitt um hit-
una í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga, sem
fer frjálslega með söguna af keis-
aradótturinni (?) og byltingu ör-
eiganna.
Good Will Hunting ★★!/2
Sálarskoðun ungs manns í vörn
gagnvart lífínu. Frekar gi-unn en
ágætlega skemmtileg.
Copland ★★
Kvikmyndastjörnur af ýmsum
stærðai'gráðum leika spilltar lögg-
ur í kvikmynd sem bryddar ekki
uppá neinu nýju.
Spice Worid ★★
Kryddpíurnar hoppa um og
syngja og hitta geimverur einsog
Stuðmenn forðum daga. Allt í lagi
skemmtun fyrir fólk sem þolir
dægurflugur stúlknanna.
STJÖRNUBÍÓ
Það gerist ekki betra ★★★
Jack Nicholson í sallafínu formi
sem mannhatari, rithöfundur og
geðsjúklingur sem tekur ekki inn
töflurnar sínar - fyrr en gengil-
beinan Helen Hunt, homminn
Greg Kinneai- og tíkin vekja upp í
honum ærlegar tilfinningar.
Rómanískar gamanmyndir gerast
ekki betri. Vítamínsprauta fyrir
geðheilsuna.
Eg veit hvað þú gerðir í
fyrrasumar ★★
Unglingahrollvekja sem nær ekki
að skera sig úr urmli slíkra. í
meðailagi.
Körfuboltahundurinn Buddy
★★
Hundurinn Böddi er mikill leikari
og skytta og það bitastæðasta
ásamt vináttutengslunum sem
skapast milli drengs og hunds í
annars heldur ómerkilegi'i ung-
lingamynd.