Morgunblaðið - 29.04.1998, Síða 1
80 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
95. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Prímakov
vill loka
landamær-
um Kosovo
Tirana, Róm, Moskvu. Reuters.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Rúss-
Iands, Jevgení Prímakov, sagði í
gær að loka þyrfti landamærum
Serbíu að Albaníu til að koma í veg
fyrir ferðir skæruliða inn í hið
stríðshrjáða Kosovo-hérað. Príma-
kov sagði rússnesk stjómvöld afar
mótfallin hugmyndum um sjálfstæði
Kosovo og sagðist telja slíkt auka
hættu á að átökin í héraðinu breidd-
ust út á Balkanskaga.
I dag fer fram í Róm fundur svo-
kallaðs Tengslahóps, Ban'daríkj-
anna, Rússlands, Frakklands, Bret-
lands, Italíu og Pýskalands, og
verður m.a. rætt um hvort beita eigi
stjórnvöld í Belgrad auknum þrýst-
ingi vegna ástandsins í Kosovo.
Fulltrúar Bandaríkjastjórnar
lögðu áherslu á það í gærdag að
Tengslahópurinn yrði að vera reiðu-
búinn til að sýna tennurnar í þessu
máli til að ná mætti árangri. Banda-
ríkjastjóm íhugar nú að beita sér
ein og sér ef ekki næst sátt um að-
gerðir á fundinum í Róm.
Reuters
Kennarí
syrgður
TÆPLEGA 4.000 manns fylgdu
kennaranum Johu Gillette til
grafar í Edinboro í Pennsylvan-
íuríki í gær en Gillette lét lífið er
Qórtán ára nemandi hans hóf
skothríð á skóladansleik um
helgina. Þrír slösuðust ennfrem-
ur en ekki er vitað hvað drengn-
um gekk til en hann tók byssu
föður síns með á dansleikinn.
Kosið í Færeyjum á morgun
Þj óð veldisflokkn-
um spáð sigri
Þórshöfn. Morgunblaðiö.
ÞJOÐVELDISFLOKKNUM, sem
berst fyrir sjálfstæði Færeyja, er
spáð sigri í þingkosningum, sem
fram fara í Færeyjum á morgun,
fimmtudag. Er flokknum spáð 22%
fylgi og sjö þingmönnum af þeim 32
sem sæti eiga á Lögþinginu en það
er 8% fylgisaukning. Þetta er niður-
staða skoðanakönnunar sem birt
var í Sósmlurín í gær.
A hæla Þjóðveldisflokksins koma
þrír flokkar, Sambandsflokkurinn,
sem styður ríkjasambandið við
Dani, hinn borgaralegi Fólkaflokk-
ur og Jafnaðarmannaflokkurinn.
Sambandsflokknum, flokki Edmund
Joensens lögmanns, er spáð 21,5%
fylgi, sem er 2% fylgistap, og sjö
þingmönnum. Fólkaflokkinum, þar
sem Anfinn Kallsberg er í forystu,
er spáð um 20% fylgi sem er 4%
aukning, og sex þingmönnum, og
jafnaðarmönnum, flokki Joannesar
Eidesgaard, sem valdið hefur usla á
danska þinginu, er spáð 5% fylgis-
aukningu, upp í um 20% fylgi, og sjö
þingmönnum.
Verkamannafylkingin tapar
mestu fylgi, um 7%. Henni er spáð
tæplega 2% og kemst hún því varla
inn á þing, þar sem 4% þarf til þess.
Þá er búist við þvi að Kristilegi
þjóðarflokkurinn fái heldur engan
þingmann kjörinn.
Ahrif allsherjarverkfallsiiis aukast í Danmörku
Atvinnurekendur
bjóða til viðræðna
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SAMTÖK atvinnurekenda ákváðu í
gærkvöldi að bjóða danska alþýðu-
sambandinu til undirbúningsvið-
ræðna sem hefjast í dag en það
hafði áður boðið atvinnurekendum
að setjast aftur að samningaborð-
inu. Vilja atvinnurekendur ræða til-
boð alþýðusambandsins áður en eig-
inlegar samningaviðræður hefjist.
Áhrif allsherjarverkfallsins, sem
hófst á miðnætti á mánudag, verða
æ víðtækari og í gær lagði Poul
Nyrup Rasmussen forsætisráð-
herra enn og aftur áherslu á að aðil-
ar vinnumarkaðarins yrðu að leysa
vinnudeiluna sjálfir. Ríkisstjórnin
hygðist ekki skipta sér af deilunni.
Undir rauðum fánum og mót-
mælaspjöldum á fyrsta útifundi al-
þýðusambandsins fyrir framan Iðn-
aðarhúsið við Ráðhústorgið sagði
Hans Jensen forseti sambandsins
þau fimmtán verkalýðsfélög, sem
eru í verkfalli, hafa boðið atvinnu-
rekendum að semja aftur. Félögin
væru bæði tilbúin til að semja hvert
fyrir sig og láta sambandið um það,
en atvinnurekendur skyldu gera sér
grein fyrir að semja ætti við alla í
einu. Ekkert félag yrði skilið eftir í
lausu lofti og vinnuveitendur fengju
ekki að spá í hver kæmi fyrst og
hver síðast.
Nú þegar viðræður hefjast aftur,
þykir líklegast að tilboð um nokkra
frídaga í viðbót muni leysa hnút-
inn, því allt bendir til að launþegar
sækist eftir lengra fríi í viðbót við
þær fimm frívikur, sem þeir hafa
þegar.
Verkfallið setur svip sinn á þjóð-
lífið en jafnvel þó svo ólíklega fari
að skjótt verði samið verður verk-
fallinu ekki aflýst fyrr en samning-
arnir hafa verið samþykktir í at-
kvæðagreiðslu launþega. Ferlið er
því þungt í vöfum og mun vísast
eiga sinn þátt í að draga verkfallið á
langinn.
■ Lyfjaskortur og lamaðar/20
Reuters
NÆR engin umferð var um Kastrup-flugvöll og tómir gangar í stað hinnar venjulegu mannmergðar.
SBSBÍ3I6
Nemtsov og Khristenko skipaðir aðstoðarforsætisráðherrar í Rússlandi
Moskvu. Reuters.
Nemtsov segir
völd sín aukin
Bóluefni
gegn tann-
skemmdum
London. Reuters.
VÍSINDAMENN við Guys-
sjúkrahúsið í London sögðust í
gær hafa þróað bóluefni gegn
tannskemmdum. Efnið er unn-
ið úr erfðabreyttri tóbaksjurt.
Sagt var frá þessu í nýjasta
hefti Nature.
Tilraunir voru gerðar á hópi
fólks sem skolaði tennurnar
ýmist með bóluefninu eða lyf-
leysu. í fyrrnefnda hópnum var
komið í veg fyrir að strept-
ókokkar, sem valda um 95%
tannskemmda, næðu bólfestu í
munninum. Reyndist bóluefnið
verja tennurnar í allt að fjóra
mánuði.
UMBÓTASINNINN Borís
Nemtsov var í gær skipaður að-
stoðarforsætisráðheiTa Rússlands,
ásamt Viktor Khristenko, sem var
áður aðstoðarfjármálaráðherra.
Talsmaður rússnesku ríkisstjórn-
arinnar tilkynnti í gær um skipan
nokkurra ráðherra í ríkisstjórn
Sergeis Kíríjenkos, eftir fund sem
hann átti með Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta í gær. Nemtsov, sem
gegndi sömu stöðu og nú í fyrri
stjórn, sagði í samtali við Interfax-
fréttastofuna að völd þeirra
Khristenkos ykjust frá því sem
verið hefði, þar sem nú yrðu aðeins
þrír aðstoðarforsætisráðherrar.
Hann sagði hins vegar ekki hver sá
þriðji yrði.
Jevgení Prímakov utanríkisráð-
herra, Sergei Stephasín innanríkis-
ráðherra, Míkaíl Zadornov fjár-
málaráðherra og Igor Sergejev
vamarmálaráðherra halda emb-
ættum sínum. Tilkynnt verður um
frekari skipan ráðherra í nýrri
stjórn Kíríjenkos á morgun. Þingið
samþykkti skipan hins 36 ára
gamla Kíríjenkos sl. fóstudag í
þriðju atkvæðagreiðslunni um mál-
ið. Nemtsov og Khristenko eru
litlu eldri, 38 og 40 ára.
Khristenko er lítt þekktur en
hann er umbótasinnaður hagfræð-
ingur sem þykir hafa staðið sig vel
í fjármálaráðuneytinu á því eina ári
sem hann hefur starfað í ríkis-
stjórninni.
Það var umbótasinninn Anatólí
Tsjúbajs, fyrrverandi fyrsti aðstoð-
arforsætisráðherra, sem réð
Khristenko til starfa en Tsjúbajs
var gert ljóst að hann ætti ekki von
á að fá sæti í nýrri ríkisstjórn er
Jeltsín leysti þá fyrri upp fyrir
rúmum mánuði og skipaði
Kíríjenko forsætisráðherra.
Rauðvínsglas með
morgunverðinum
Talsmenn Jeltsíns vísuðu í gær
á bug fréttum um að forsetanum
hefði verið skipað að hætta að
drekka, vegna þess að lifrin væri
að gefa sig. Sagði Sergei
Jastrzhembskí að forsetinn tæki
nú rauðvín fram yfir vodka og
hefði t.d. fengið sér rauðvínsglas
er hann snæddi morgunverð með
embættismönnum. I gærmorgun
hafði Yasuhiro Nakasone, fyrrver-
andi forsætisráðherra Japans, eft-
ir Jacques Chirac Frakklandsfor-
seta að Jeltsín væri nú bannað að
drekka þar sem lifrin væri farin að
valda honum vandræðum.