Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 64
 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Mótmæla nafninu ^Húnaþing HÉRAÐSNEFND Austur-Hún- vetninga hefur mótmælt því að sameinað sveitarfélag í Vestur- Húnavatnssýslu verði nefnt Húna- þing. Að sögn Valgarðs Hilmarssonar, oddvita héraðsnefndar A-Húna- vatnssýslu, eru rökin fyrir mót- mælunum þau að Húnaþing sé samheiti beggja sýslna og hafi sem slíkt sögulegt gildi. Mótmælin eru sett fram nú vegna þess að sameiningamefnd Vestur-Húnvetninga hefur gert til- •* lögu um að þetta nafn, Húnaþing, verði notað á sameinuð sveitarfélög í Vestur-Húnavatnssýslu. Valgarður segir að mótmælun- um sé beint til Vestur-Húnvetn- inga og til félagsmálaráðuneytisins sem þurfi að samþykkja nafn á nýju sveitarfélagi. Hann segir að vegna þess hvemig A-Húnvetning- ar Mti á þetta nafn munu þeir ekki vilja nota það á hugsanlegu sam- einuðu sveitarfélagi austanmegin heldur. —■£ ---------- Þdrsmörk Líkfundur við Krossá LÍK fannst á Krossáraurum neðan við Bása í Þórsmörk í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelii er talið líklegt að þar sé kominn fram Frakkinn, sem leitað var að í haust. Um páskana fannst bakpoki við ána, sem gat átt við lýsingu á bak- , poka Frakkans en pokinn var tóm- ur. Um helgina leitaði lögreglan á Hvolsvelli ásamt björgunarsveit- inni á Hvolsvelli við ána og fannst þá svefnpoki og tjald. Það var svo í gær að þyrla var fengin til að fljúga yfir svæðið og þá fannst líkið á Krossáraurum í uppþomuðum farvegi. Morgunblaðið/Golli Atta hundruð unglingar í miðbænum Umræðum á Alþingi haldið áfram til miðnættis Deilt um skipulags- mái hálendisins UMRÆÐUR stóðu til miðnættis á Alþingi í gær um stjómskipun á hálendi íslands þegar fjallað var um stjórnarfrumvarp til sveitar- stjómarlaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélögin ráði málefnum hálendisins en í breytingartillögu minnihluta félagsmálanefndar er ^lagt til að hálendið verði undanskil- ið og að það verði sjálfstæð stjóm- sýslueining. Meirihluti félagsmálanefndar leggur til að sveitarstjórnarfrum- varpið verði samþykkt með nokkrum breytingum sem Magnús Stefánsson, þingmaður Framsókn- ♦ arflokksins, gerði grein fyrir. '•-^Rannveig Guðmundsdóttir, þing- . maður jafnaðarmanna, sem stend- ur ein að áliti minnihlutans, leggur til að landinu verði skipt í stað- bundin sveitarfélög sem ráði sjálf málefnum sínum nema hvað mið- hálendi Islands verði sjálfstæð stjórnsýslueining sem lúti sér- stakri stjóm. Leggur hún jafn- framt til að forsætisráðherra skipi níu manna stjórn miðhálendis til fjögurra ára að fengnum tilnefn- ingum. AJlmargir þingmenn töldu vafasamt að fela sveitarfélögunum umsjá hálendisins. Til að liðka fyrir framgangi frumvarpsins kynnti Guðmundur Bjamason umhverfisráðherra frumvarp til breytinga á skipulags- og byggingalögum sem gerir ráð fyrir að miðhálendið skuli skipu- lagt sem ein heild. Gerir frumvarp- ið ráð fyrir að umhverfisráðherra skipi 12 manna samvinnunefnd um skipulag miðhálendisins. Olafur Om Haraldsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, taldi lausn máls- ins ekki felast í þessu framvarpi og kvaðst ekki mundu styðja það. Ráðherrann sagði framvarpið að- eins til kynningar og að ráðgert væri að afgreiða það á haustþingi. A þingíúndi í gær gerðu nokkrir þingmenn störf Alþingis að um- ræðuefni og gagnrýndu m.a. hraða afgreiðslu framvarpa og sögðu mál afgreidd úr nefndum áður en þau væra fullrædd. MUN færri unglingar söfnuðust saman við Kringluna í góða veðr- inu í gær að afloknum samræmd- um prófum en oft áður. Að sögn lögreglu voru ólætin mun minni en undanfarin ár enda greip lög- reglan strax til sinna ráða þegar útlit var fyrir óspektir ölvaðra unglinga. Sagði lögreglan að áfengi hefði verið tekið frá þeim sem það höfðu um hönd og mátti heyra nokkrar kvartanir í hópn- um vegna þess. Ásamt lögreglu mátti greina öryggisverði í Kr- inglunni að störfum, foreldra og starfsmenn félagsmiðstöðva, sem gengu um og ræddu við ung- mennin. Reyndar virtust margir unglinganna vera mun eldri og kannski komnir til að rifja upp gamlar endurminningar. Þegar líða tók á kvöldið fóru unglingar að streyma í miðbæinn og voru um 800 unglingar þar að skemmta sér um miðnættið. ■ Hálendið verði/10 Sjávarútvegur Stefna ESB lítið breytt Brussel. Morg’unblaðið. LITLAR stefnubreytingar í sjávar- útvegsmálum, aukin áhersla á að fylgja eftir ákvörðunum og opnar umræður um framhaldið voru lykil- atriði í máli Ole Tougaard, skrif- stofustjóra sjávarútvegsdeildar Evrópusambandsins, á fundi með Islendingum í Brussel í gærkvöld. Fundurinn var haldinn í tengslum við stóra evrópska sjávarútvegssýn- ingu sem nú stendur yfir í borginni og Tougaard ræddi framtíðarstefnu sambandsins í þessum málaflokki. Utflutningsrað, Evrópska upplýs- ingastofan á Islandi (Euro Info) og sendiráðið í Brussel stóðu að fundin- um. Stefna ESB í sjávarútvegsmál- um er í endurskoðun fram til 2002 og Tougaard sagði óformlegar við- ræður við aðila utan sambandsins skipta verulegu máli. Hvað ísland varðaði nefndi hann heilbrigðisregl- ur ESB um fisk, sem ætlað er að Is- land standist þegar og fullgildi bráð- lega á grandvelli fríverslunarsamn- ings EFTA og ESB. Ríki utan ESB sem ekki standast reglurnar sæta írá júlíbyrjun inn- flutningshömlum til bandalagsríkj- anna, en Arndís Steinþórsdóttir, fiskimálafulltrúi í sendiráðinu í Brassel, segh- það ekki þýða nema um 7% minnkun innflutnings á sjáv- arfangi til ESB landa. Þannig sé erfítt í bili að benda á veigamiklar breytingar í þessum mikilvæga málaflokki fyrir íslendinga, en með vissum hætti jaðannáli fyrir Evr- ópusambandið. -------------- Könnuðu aðstæður fyrir Keiko HÉR á landi hafa undanfarna daga verið staddir tveir þjálfarai- háhyrn- ingsins Keikos, Jeff Foster og Jennifer Schon-, og Katherine Hanly, ráðgjafi Free Willy Keiko samtakanna. Þau eru hingað komin til að kanna aðstæður ef til þess kemur að íslensk stjórnvöld sam- þykkja að taka við hvalnum. Þau hafa farið austur á land og skoðað aðstæður við Eskifjörð. Einnig hafa aðstæður verið skoðað- ar á Reykjavíkursvæðinu og í Hvammsvík í Hvalfirði auk Vest- mannaeyja. Þau komu á föstudag og fóru af landi brott í gær. ------♦-M----- SÍF selur meira á Spáni „ÞETTA ár hefur farið mjög vel af stað hjá Union Islandia, dótturfyrir- tæki SÍF á Spáni. Fyrstu þrjá mán- uði þessa árs höfum við aukið söl- una um 25% frá sama tíma í fyrra. Aukningin felst reyndar að stóram hluta í fiski frá Noregi og Færeyj- um, en það hefur verið skortur á millifiski, smáum fiski og flökum frá Islandi," segir Ulfar Steindórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í samtali við Verið. Heildarvelta Union Islandia í fyrra var um 2,5 milljarðar peseta, um 1,2 milljarðar króna. ■ Union Islandia/Bl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.