Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 45 HESTAR Áfall fyrir Landsmótið á Melgerðismelum Afkvæmasýn- ingu Orra frá Þúfu frestað SAMÞYKKT var á fundi í Orrafé- laginu í fyrrakvöld að fresta sýn- ingu hestsins til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi fram á landsmótið 2000. í fréttatilkynningu sem gefin var út að fundi loknum segir að í ljósi þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna hitasóttarinnar hafí ver- ið ákveðið að fresta sýningu hests- ins. Piltur frá Sperðli næsti handhafi Sleipnisbikarsins Til stóð að sýna þennan mikla gæðinga í reið með afkvæmum sín- um á landsmótinu. Þegar hitasótt- in kom upp á höfuðborgarsvæðinu sat klárinn fastur austur í Þúfu í Vestur-Landeyjum og síðar þegar flutningsbann milli þessara staða var aflétt veiktist klárinn fljótlega og þótti tíminn of knappur til að ná honum í gott form þar sem ætlunin hafði verið að nota hann á hryssur fram að landsmóti. A þessari stundu bendir þvi allt til að það verði Piltur frá Sperðli sem muni hljóta Sleipnisbikarinn eftirsótta og verði jafnframt eini stóðhesturinn sem sýndur verði til heiðursverðlauna á landsmótinu. Jón Olafur Sigfússon fram- kvæmdastjóri landsmótsins á Mel- gerðismelum sagðist taka þessa ákvörðun Orrafélagsins mjög nærri sér. „Eg átta mig ekki alveg á því hvað liggur á bak við þessa ákvörðun. Eg sé lítinn tilgang í því að sýna hest í reið sem er margbú- inn að sanna sig með eftirminni- legum hætti. Nú er það kynbóta- gildi hestsins sem til stóð að sýna og þá eru það afkvæmi hans sem skipta öllu máli og eiga að halda merki hans á lofti en ekki hann sjálfur. Þá er vert að minna á aðra stað- reynd að hingað til hafa væntan- legir landsmótsgestir hverju sinni getað gengið að því vísu að öll bestu hross landsins muni koma fram á landsmótum. Með þessari ákvörðun Orramanna er fýrsta skrefið stigið í þá átt að taka þessa vissu frá mönnum. Þetta er eins og köld vatnsgusa framan í ferðaþjón- ustuaðila sem auglýsa sína þjón- ustu undir þeim formerkjum að á landsmóti geti að líta allt það fremsta og besta sem í boðið er Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson ÞAÐ ER skarð fyrir skildi ef Orri frá Þúfu mætir ekki tii ieiks með afkvæmahóp sinn eins og nú virðist stefna í. Knapi er Gunnar Arnarsson. uppá í íslenskri hestamennsku. Með þessu er verið að rýra traust ferðaþjónustunnar á hestamönn- um og svo aftur traust ferðamanna á ferðaþjónustunni," sagði Jón Ólafur. Hann bætti við að þetta skipti landsmótið á Melgerðismelum ekki höfuðmáli. „Erlendir gestir eru flestir búnir að ganga frá sín- um ferðaplönum. Þetta gæti hins- vegar skipt landsmót framtíðar- innar máli ef sumir þeirra sem eiga bestu hrossin fara að snið- ganga landsmótin. Það er ekki trú- verðugt ef á að kynna á landsmót framtíðarinnar með þeim orðum að kannski komi öll bestu hrossin fram. Fólk hefur hingað til komið á landsmót til að sjá toppana og það er þungamiðja málsins og á því hafa vinsældir landsmótanna byggst,“ sagði Jón Ólafur að end- ingu. Enn og aftur metþátttaka Opið mót Hestamanna félagsins Gusts HESTAR Sörlastaðir HRÓA HATTARMÓT OG NÝHESTAMÓT Hestamannafélagið Sörli hélt mót fyrir hestamenn af yngri kynslóðinni sunnudaginn 26. apríl. ÞAÐ voru fleiri en hinir fullorðnu sem þreyttu keppni um helgina því hið árlega Hróa Hattarmót var haldið á Sörlastöðum á sunnudag þar sem 70 hestamenn af yngri kynslóðinni leiddu saman hesta sína í drengilegri keppni. Að keppni lokinni var boðið upp á flatbökur í boði Hróa Hattar. Einnig fengu allir keppendur viðurkenningu fyrir þátttökuna. Mót þetta hefur vaxið og dafnað ár frá ári og nánast metþátttaka á hverju ári. Að sögn Margrétar Vilhjálms- dóttur hjá Sörla var nánast örtröð á Sörla- stöðum þar sem mótið var haldið að venju. Vel fór um alla, bæði menn og hesta, í góðu veðri en keppnin fór að þessu sinni fram á beinni braut þar sem hringvöllurinn hefur ekki komið vel undan vetri að sögn Margrét- ar. Þátttakendur voru frá flestum hesta- mannafélögunum á suðvesturhorninu og vakti góð frammistaða krakka úr Mána á Suðurnesjum athygli og sömuleiðis hversu vel ríðandi pollarnir voru. Þá var á laugardag haldið Nýhestamót hjá Sörla þar sem keppt var í karla- og kvenna- flokki. Þar hafði sigur einn af yngri kynslóð- arknöpum Sörla, Hinrik Þ. Sigurðsson á Val frá Litla-Bergi. Þá fylgja hér með úrslit frá móti sem Gustsmenn héldu um þar síðustu helgi. Valdimar Kristinsson Úrslit í Hróa Hattar mótinu Ungmenni 1. Marta Jónsdóttir Mána, á Krumma frá Eskiholti, glæsilegasta parið. 2. Kristín Ó. Þórðardóttir Sörla, á Síak frá Þúfu. 3. Ingólfur Pálmason Sörla, á Pílatusi frá Búlandi. 4. Sigríður Pjetursdóttir Sörla, á Kóral frá Bólstað, ásetuverðlaun. 5. Unnur 0. Ingvarsdóttir Sörla, á Líkjör frá Stangarholti. Unglingar 1. Gunnar Ö. Einarsson Mána, á Halifax frá Breiðabólstað. 2. Skúli St Vilbergsson Mána, á Dögun frá Feti. 3. Daníel I. Smárason Sörla, á Seif frá Sigmundarstöðum. 4. Berglind R. Guðmundsdóttir Gusti, á Sjöstjömu frá Svignaskarði, glæsilegasta parið. 5. Eyjólfúr Þorsteinsson Sörla, á ísak frá Heggstöðum. Asetuverðlaun: Perla D. Þórðardóttir Sörla frá Langholti II. Börn 1. Kristján Magnússon Herði, á Rúbín frá Breiðabólstað, glæsilegasta parið. 2. Elva B. Magnúsdóttir Mána, á Svarti frá Sólheimatungu. 3. Þórir Hannesson Andvara, á Fáfni. 4. Róbert Þ. Guðnason Mána, á Hauki frá Akureyri. 5. Sæþór Fannberg Fáki, á Leó frá Múla. Ásetuverðlaun: Ómar Theódórsson Sörla, á Rúbín frá Ögmundarstöðum. Pollar 1. Camilla P. Sigurðardóttir Mána, á Safír frá Öxl, glæsilegasta parið. 2. Linda R. Pétursdóttír Herði, á Fasa frá Nýjabæ. 3. Þorvaldur Hauksson Andvara, á Kulda. 4. Viðar Hauksson Herði, á Þrótti. 5. Sara Sigurbjömsdóttir Fáki, á Tvisti frá Skarði. Asetuverðlaun: Guðmundur Gunnarsson Mána, á Nökkva. Úrslit í Nýhestamótinu Karlar 1. Hinrik Þ. Sigurðsson á Val frá Litla-Bergi. 2. Gústaf Loftsson á Flugu frá Reykjavík. 3. Jóhannes Armannsson á Hrímni frá Svertingsstöðum. 4. Sveinn Jónsson á Gránu frá Skammbeinsstöðum. 5. Adolf Snæbjömsson á Lýsingi frá Ketilsstöðum. Konur 1. Elsa Magnúsdóttir á Ronju frá Syðra-Skörðugili. 2. Hafdís Sigursteinsdóttir á Stráki frá Bólstað. 3. Kristín M. Ingólfsdóttir á Berki frá Grund. 4. Rakel Sigurðardóttir á Röðli. ÚRSLIT í opnu móti Hestamannafélasins Gusts, sem haldið var 16. apríl í Glaðheimum: Karlar 1. Guðmundur Skúlason Gusti, á Maístjömu frá Svignaskarði. 2. Bjami Sigurðsson Gusti, á Hrannari frá Skeiðháholti. 3. Sigurður Sigurðsson Gusti, á Sörla frá Kópavogi. 4. ísleifur Jónasson Geysi, á Glanna frá Kálfholti. 5. Guðmundur Jónasson Gusti, á Hrafni frá Kópavogi. Konur 1. Barbara Meyer Herði, á Sikli frá Hofi. 2. Hulda G. Geirsdóttir Gusti, á Felix frá Stóra-Sandfelli. 3. Steila Kristjánsdóttir Gusti, á Hebron frá Lækjarbrekku. 4. Oddný M. Jónasd. Gusti, á Kaffi-Brún frá Svipaskarði. 5. María Gunnarsdóttir Gusti, á Blika frá Brávöllum. Öldungar 1. Jón Þ. Bergsson Gusti, á Framtíð frá Svignaskarði. Ungmenni 1. Birgitta D. Kristinsdóttir Gusti, á Ósk frá Refsstöðum. 2. Sveinbjöm Sveinbjömsson Gusti, á Toppi frá Árbakka. 3. Ásta K. Victorsdóttir Gusti, á Nökkva W Bjamastöðum. 4. Ásta D. Bjamadóttir Gusti, á Feng frá Kópavogi. 5. Maríanna S. Bjarnleifsdóttir Gusti, á Söru frá Hvammi. Unglingar 1. Berglind R. Guðmundsdóttir Gusti, á Sjöstjörnu frá Svigna- skarði. ÞAU LEIÐU mistök urðu við myndbirtingu í hestaþætti í gær að röng mynd var birt. Með grein um ístölt í skautahöllinni átti að birt- ast mynd af Atla Guðmundssyni á Kötlu frá Dallandi en þess í stað birtist mynd af Þor- 2. Sigríður Þorsteinsdóttir Gusti, á Gusti frá Litlu-Gröf. 3. Svandís D. Einarsdóttir Gusti, á Þokkadís frá Miðdal. 4. Bryndís K. Sigurðardóttir Sörla, á Skraggu frá Hala. 5. Guðrún E. Þórisdóttir Gusti, á Skugga frá Skeiðholti. Börn 1. Hreiðar Hauksson Andvara, á Drífu frá Grímsstöðum. 2. Bjamleifur S. Bjamleifsson Gusti, á Vin frá Kirkjulæk. 3. María Einarsdóttir Gusti, á Kolskeggi frá Vindheimum. Á 4. Freyja Þorvaldsdóttir Gusti, á Hæringi frá Gerðum. 5. Elka Halldórsdóttir Gusti, á Gúnda frá Kópavogi. Pollar 1. Þorvaldur Hauksson Andvara, á Kulda frá Grímsstöðum. 2. Sandra L. Þórðardóttir Sörla, á Spaða frá Hafnarfirði. 3. Guðný B. Guðmundsdóttir Gusti, á Litla-Rauð frá Svignaskarði. 4. Hagalín Guðmundsson Gusti, á Vögg frá Felli. 5. Þórhildur Blöndal Gusti, á Þokka frá Vallanesi. Skeið 1. Axel Geirsson Andvara, á Melrós frá Framnesi. 2. Birgitta D. Kristinsdóttir Gusti, á Jötni frá Heiðabæ. 3. Guðmundur Skúlason Gustá, á Skerjálu frá Svignaskarði. 4. Gylfi Gylfason á Gjóstu frá Miklabæ. Dómarar voru Steinar Sigurbjörnsson og Hermann Karlsson. varði Friðbjörnssyni á Prinsi frá Keflavík sem að vísu stóðu sig með mikilli prýði þótt ekki næðu þeir nægilegri hylli dómaranna til að komast í úrslit. En hér birtist mynd af þeim Atla og Kötlu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.