Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 60
^60 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Hagatorgi, snni 552 2140 mrmniivnoPKlNS ALFC WLDWtN ELLEMACP'íRSON www.dee Sýnd kl. 9 og 11. p-impact.com Sýnd kl Sýnd kl. 6.40 og 9.15. b.í. 12. syjtetÞBl •SWMBUflflHIH JtMBHffll] ■WttHfflHl NÝTT OG BETRA ^ $AÍ3A“~ LESLIE NIELSEN '-£jk Hafðu augun hjá iÉ&K þér.... Magoo JjmBSk*, er mættur Ratar þú t bíó? Sýnd kl. 9. Síöustu sýn. Alfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 ohn Goodman -éd Söthetiand Fallen á TOPPNUM.. Vlnsælasta myndin i Sambíóunum síóustu helgi. Hörkutryllir sem kemur á óvart. SPENNUMYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF. Leikur á hetiniflflwww.samfilm.is Björk á Bravo-kapalstöðirmi Frumherji í nútímatónlist „BJÖRK hefur hlotið viðurkenn- ingu sem einn af framherjum í endurnýjun nútíma tónlistar. Hún hefur verið kölluð tákn „teknó- - kynslóðarinnar". Tónlist hennar er einskonar brú á milli hip-hop, teknó, punk og sígildrar tónlistar, og með þessari einstöku rödd, sem heggur, svífur í hæðir, flissar og urrar, allt í senn, hefur hún vissu- lega brotið biað.“ Með þessum orð- um kynnti bandaríska Bravó-kap- alsjónvarpsstöðin viðtals- og heim- ildaþátt um Björk Guðmundsdótt- ur, sem framsýndur var síðastlið- inn sunnudag. Eins og af öðrum heimi í þættinum, sem ber heitið: „Bravo Profiles: Björk“, er fylgst með Björk í leik og starfí með „hrífandi og tilkomumiklum atrið- um frá heimalandi hennar, ís- landi“, eins og segir í kynningunni, og þar er ennfremur fléttað inn í opinskátt einkaviðtal við söngkon- una. Þátturinn hlaut jákvæða dóma í umfjöllun bandarískra sjónvarpsgagnrýnenda og í fréttaskeyti frá AP-fréttastofunni segir meðal annars: „Bravo-kap- alstöðin fór ekki ódýrustu leiðina í ferðakynningu þegar hún gerði þáttinn um söngkonuna Björk, þar sem sjá mátti stórkostleg og hrífandi atriði frá ósnortnu lands- lagi íslands enda ljóst að skiln- ingur á heimalandi hennar er nauðsynleg forsenda þess, að skilja hana sjálfa. Þegar Björk sneri heim til ís- lands í byrjun síðasta árs fór hún í gönguferð að næturlagi út á ísilagt hraunið. Brakið í ísnum og norðurljósin á himinhvolfinu fylltu skilningarvit hennar og blésu henni í brjóst ferskum anda og hugmyndum að hinum eftir- tektarverða hljómi á hljómplöt- unni „Homogenic". íslenska landslagið er eins og af öðrum heimi og það kemur heim og sam- an við tónlist Bjarkar, sem oft hljómar eins og að hún komi frá óþekktri plánetu.“ Morgunblaðið/Kristinn „PERSÓNIJLEIKI hennar er alveg einstakur," segir Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti íslands, sem hér heilsar upp á Björk Guðmundsdóttur og for- eldrar söngkonunnar fylgjast með. Einstæður persónuleiki í umfjöllun AP-fréttastofunnar segir ennfremur að Björk sé í svo miklum metum sem tónlistarmað- ur að umsjónarmenn heimildar- myndarinnar hafi séð ástæðu til að leita til fyrrum forseta Is- lands, Vigdísar Finnbogadóttur, til að spyrja hana álits á söngkon- unni: „Það verður ekki sagt um Bjök að hún hverfi í fjöldann," er haft eftir Vigdísi. „Persónuleiki hennar er alveg einstakur, sem og hlýjan Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Reuters „SKILNINGUR á heimalandi hennar er nauðsynleg forsenda þess, að skilja hana sjálfa," seg- ir í umsögn um viðtals- og heimildaþáttinn, sem Bravo- kapalstöðin gerði um Björk Guðmundsdóttur. og almenn viðhorf hennar til lífsins, í bland við barns- legt hjartalag. Hún er sér- íslenskt fyrirbrigði," segir forsetinn fyrrverandi. í þættinum er stiklað á ýmsum viðburðum á ferli Bjarkar og meðal annars fylgjast sjónvarpstöku- mennirnir með henni við tónsmíðar á Spáni. „Þar má finna stjarfan og hroll- vekjandi tón í bland við mjúkar og fallegar hljóm- kviður. Rödd hennar flytur tilfinningar upp á yfirborð- ið með slíkum hætti að flestu fólki yrði um og ó ef það stæði sjálft sig að slíku, og ef til vill er það leyndardómurinn að vel- gengni Bjarkar,“ segir í umfjöllun AP fréttastof- unnar. Klukkan tifar Haft er eftir Björk sjálfri að hennar hlutverk í lífinu sé að „skrifa tónlist, sem ekki hefur verið samin áður“. „Eg mun gera allt til að svo megi verða,“ segir hún. „En ég hef ekki óendanlegan tímaj ég finn hvernig klukkan tif- ar. Eg á kannski 50 ár eftir og spurningin er bara hvernig ég get nýtt þann tíma sem best.“ Sem barn var Björk gagntekin af vís- indamönnum, uppfyndingamönn- um og geimförum og hún telur sig finna til samkenndar með slíku fólki. Hún líkir tónlistar- sköpun sinni við það að ganga með bundið fyrir augun. Þegar vel tekst til finnur hún fyrir sér- kennilegri blöndu af alsælu og hræðslu. „Ég er hrifin af könnuðum og tilraunastarfsemi og tónlist mín sver sig mjög í ætt við það,“ segir hún. „Ég geri mér grein fyrir þeirri fórn og vandræðagangi sem af slíkri tilraunastarfsemi getur leitt. En þetta er eina leiðin til að ná einhverjum framförum." FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00 1983-2.fl. 01.05.98-01.11.98 kr. 79.529,10 I * Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 29. apríl 1998 SEÐLABANKIÍSLANDS ► LEIKARAPARIÐ Uma Thur- man og Ethan Hawke eru í gift- ingarhugleiðingum þessa dag- ana. Dagblaðið The New York Post greindi frá því á dögunum að sést hefði til skötuhjúanna í biðröð eftir leyfisbréfi. Sjón- varpsfréttamaður kom auga á parið en það náði að koma sér undan áður en hann gat fest það á filmu. Uma og Ethan eiga von á sínu fyrsta barni í júlí en þau kynntust við tökur á myndinni „Gattaca". Ethan Hawke er um þessar mundir að leika í myndinni „Snow Falling on Cedars" og flaug sérstaklega til New York til að útvega giftingarleyfið en tökur fara fram í Kanada. Nýjasta mynd Umu „The Aven- gers“ verður frumsýnd í júlí en þar leikur hún á móti Ralph Fiennes. Þetta verður annað hjónaband Umu Thurman því hún giftist leikaranum Gary Oldman fyrir sjö árum en þau skildu tveimur árum síðar. Hún keypti nýlega hús leikkonunnar Margot Kidder í Rockland ( New York en meðal nágranna hennar eru A1 Pacino, Bill Murray og Mikhail Barys- hnikov.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.