Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 49 C Samspil manns og náttúru KYNNINGARSÝNINGIN Sam- spil manns og náttúru verður í Perlunni 1.-3. maí nk. „ísland hefur ekki farið varhluta af þeirri gífulegu vakningu sem hefur átt sér stað varðandi um- hverfísmál og samspil manns og náttúru á undanfömum árum. Samt skortir upplýsingar um það hvert á að leita eftir náttúruvænum vömum og þjónustu eða hvar á að hefja breytingamar. Þessi sýning er kynningarsýning fyrir hinn al- menna neytanda. A henni er sam- ankominn fjöldi þjónustuaðila og fyrirtækja sem eiga það sameigin- legt að vera að kynna eða bjóða til- boð á vistvænum, umhverfisvæn- um, lífrænum og náttúravænum vöram og þjónustu. Það er Leiðarljós ehf. sem stend- ur fyrir sýningunni. í leit að þátt- takendum var lögð áhersla á fjöl- breytni og gæði. Eftirtaldir aðilar hafa staðfest þátttöku sína: Áhuga- hópur um H.Á.Í., Betra Iíf, The Body Shop, Clean Trend, Gróðrar- stöðin Lambhaga, Hagkaup, Heilsubúðin Hafnarfirði, Heilsu- hornið Akureyri, Hrímgull, KB- bakaríið, Landnáma/íslandsflakk- arar, Leiðarljós, Lofthreiniskerfi, Magnús Kjaran, Málning, Mjólkur- samsalan, Nuddstofa Reykjavíkur, Oddur Pétursson, Olís, Plastos, Ra- inbow Air, Regatta-útivistarfatnað- ur, SG-hús, Snæfellsás-samfélagið, Sorpa, Spor, Umhverfisvörur, Vallanesbúið og Yggdrasill. Á sýningunni verður fluttur fjöldi fyrirlestra um efni sem teng- ist samspili manns og náttúra svo sem: Breytt mataræði - nýr lífsstíll, fyrirbyggjandi lækningar, skað- semi reykinga, ábyrgð mannsins gagnvart náttúranni, Organic ís- land - framtíðarsýn, grasalækning- ar, áhrif hveravatns á líf okkar, náttúravernd - hver er framtíð hennar?, flokkun sorps o.fl., kostir vistvænna húsa, framtíð grænnar ferðamennsku o.m.fl. Við flytjum líka samspil manns og náttúra inn á aðrar víddir: Erla Stefánsdóttir leiðir skipulagðar gönguferðir um byggðir álfa- og huldufólks í Öskjuhlíðinni alla sýn- ingardagana kl. 14.30. Sýningin verður opin sem hér segir: Föstudaginn 1. maí kl. 14-19, laugardag 2. maí kl. 13-19 og sunnudag 3. maí kl. 13-19. Aðgang- ur er ókeypis á sýninguna, fyrir- lestrana og í gönguferðimar,“ segir í fréttatilkynningu. Hvammstangi Bjargvætturinn býður fram FRAMBOÐSLISTINN Bjargvætt- j urinn - óháð framboð ungs fólks var j birtur þann 21. aprfl til sveitar- '1 stjómarkosninga í Húnaþingi á 4 komandi vori. Listann skipa eftirtaldir einstak- lingar: 1. Ágúst Jakobsson, kennari, 2. Gunnar Sveinsson, prjónamaður, 3. Tryggvi Hauksson, iðnverkamað- ur, 4. Ragnheiður Sveinsdóttir, nemi, 5. Hannes Ársælsson, starfs- maður á sambýli, 6. Kristín Ólafs- dóttir, prjónamaður, 7. Hlynur Hr- j ingsson, verkamaður, 8. Skúli Hilmarsson, bifreiðavirki, 9. Ársæll if Kjartansson, verkamaður, 10. 01- 4 geir Haraldsson, netagerðarmeist- * ari, 11. Kári Bragason, iðnverka- maður, 12. Guðrún Matthíasdóttir, verkakona, 13. Gísli Amarson, verkamaður, 14. Hjördís Hjartar- dóttir, félagsráðgjafi. Framboðið vill snúa við búsetu- þróun undanfarinna þriggja ára og leggur sérstaka áherslu á að fjölga m ungu fólki í héraðinu. Skapa nýtt og metnaðarfullt sveitarfélag sem f stuðlar að auknum atvinnutækifær- M um og góðri þjónustu. Stefnuskrá ■ framboðslistans er í mótun. JÓN G. Briem, Lionsklúbbnum Víðarri, afhendir Þórarai Gíslasyni lækni nýtt mælitæki til rannsókna á svefni og öndun. Lionsklúbburinn Víðarr gefur Vífílsstaðaspítala mælitæki LIONSKLÚBBURINN Víðarr færði laugardaginn 18. aprfl sl. lungnadeild Vífilsstaðaspítala að gjöf mælitæki frá fyrirtækinu Flögu. „Þetta tæki er notað til þess að skrá ýmis líffræðileg fyrirbæri og kemur m.a. í mjög góðar þarf- ir hjá þeim sjúklingum sem grun- ur leikur á að þjáist af kæfisvefni. Gjöf þessi kemur í nyög góðar þarfir þar sem fjöldi þeirra sem greinst hefur með öndunartruflanir í svefni hefur farið ört víixandi undanfarin ár og eru nú á fimmta hundrað ein- staklingar sem sofa að staðaldri með öndunarvélar heima. Þeim hópi þarf að fylgja eftir með reglulegum mælingum. Að auki bíða um 300 eintaklingar eftir næturrannsókn vegna gruns um kæfisvefn. Mælitækið, sem er að stærð við meðalbók, getur mælt með mik- illi nákvæmni. En vegna smæðar þess þá er auðvelt fýrir sjúkling- inn að hafa það með sér heim og sofa í eigin rúmi þegar að rann- sóknin fer fram. Starfsmenn Vífisstaðaspítala þökkuðu þessa höfðinglegu gjöf sem stuðlar að þvi að heimamæl- ingar sjúklinga með grun um öndunartruflanir í svefni geti brátt hafist á vegum lungna- deildar Vífilsstaðaspítala," segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestrar á vegum Mann- spekifélag’sins RÁÐSTEFNA stjórna mannspeki- félaganna (antroposofisku félag- anna) á Norðurlöndum verður hald- in hér á landi dagana 30. aprfl til 2. maí. Af því tilefni verða haldnir tveir opinberir fyrirlestrar í hús- næði félagsins Klapparstíg 26, 2. hæð. Fyrri fyrirlesturinn verður hald- inn fóstudaginn 1. maí kl. 20.30. Fyrirlesari verður Oscar Borgman Hansen, heimspekiprófessor við Árósarháskóla, og nefnir hann fyr- irlesturinn: „Antroposofi -som en nordisk kulturimpuls". Fyrirlestur- inn verður haldinn á dönsku. Seinni fyrirlesturinn verður laugar- daginn 2. maí kl. 20.30. Fyrirlesari verður Dick Tibblin, forstöðumaður á Mikaelgárden sem er „lákepeda- gogiskt“ heimili í Svíþjóð. Fyrir- lesturinn nefnir hann: „Antropsofi- mánniskoröten-sociala former“. Fyrirlesturinn verður á sænsku. Fyrirlestramir eru opnir öllum. Fagna frestun MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun: „Vorfundur í deild hjúkranarfor- stjóra sjúkrahúsa hinn 27. aprfl sl. fagnar þeirri ákvörðun Alþingis að fresta umræðu um frumvarp til laga um gagnagranna á heilbrigð- issviði til næsta þings. Frumvarpið snertir marga og flókna þætti bæði á sviði heilbrigðisvísinda sem og á viðskipta- og rekstrarsviði. Hags- munir sjúklinga og almennings hljóta að hafa þar forgang. Einnig eru hagsmunir þeirra sem stunda vísindastörf á heilbrigðissviði mikl- ir og mun umræddur gagnagrunn- ur því geta haft stefnumarkandi áhrif um alla framtíð á möguleika til rannsóknavinnu á heilbrigðis- sviði á íslandi. Því skorar fundurinn á þing- menn alla að kynna sér málið og hlusta á hina fjölmörgu aðila sem málið varðar áður en endanleg ákvörðun verður tekin.“ Framboðslisti Framsóknar- flokksins í Borgarnesi FRAMBOÐSLISTI Framsóknar- flokksins við sveitarstjórnarkosn- ingarnar 23. maí 1998 í nýju sam- einuðu sveitarfélagi Alftanes- hrepps, Borgarbyggðar, Borgar- hrepps og Þverárhlíðarhrepps hef- ur verið samþykktur. Hann er svohljóðandi: 1. Guðmundur Guðmarsson, safn- vörður, 2. Kolfinna Jóhannesdóttir, bóndi, Norðtungu, 3. Guðmundur Eiríksson, byggingatæknifræðing- ur, 4. Finnbogi Lárusson, bóndi, Hítardal, 5. Eygló Lind Egilsdóttir, stuðningsfulltrúi, 6. Sigriður Skúla- dóttir, starfsstúlka, 7. Þórður Þor- steinsson, húsasmíðameistari, Brekku, 8. Edda Hauksdóttir, hús- freyja, Leiralækjarseli II, 9. Sigur- geir Sindri Sigurgeirsson, bóndi, Bakkakoti, 10. Sigmar Gunnarsson, pípulagningameistari, Rauðanesi III, 11. Margrét Guðjónsdóttir, þjóðfræðingur, Hvassafelli Norður- árdal, 12. Guðbrandur Þorkelsson, iðnnemi, Mel, 13. Guðmunda Ólöf Jónsdóttir, starfsstúlka, 14. Ólafur Waage, múrari, 15. Veronika Sigur- vinsdóttir, atvinnurekandi, 16. Ragnheiður Jóhannesdóttir, kenn- ari, 17. Sigurjón Valdimarsson, bóndi, Glitstöðum og 18. Jón Þór Jónasson, skrifstofumaður. Fræðslufundur um hjartasjúk- dóma, meðferð og forvarnir FÉLAG hjartasjúklinga á Vestur- landi heldur fræðslufund í Félags- bæ, Borgarnesi, fimmtudaginn 30. apríl kl. 20.30. Hjartalæknamir Uggi Agnarsson og Þorkell Guðbrandsson halda fræðsluerindi: Nýjungar í meðferð hjartasjúkdóma og Lífshættir og áhættuþættir hjarta- og æðasjúk- dóma. Allir velkomnir. Blettaskoðun í byrjun sumars FÉLAG íslenskra húðlækna og Krabbameinsfélag íslands samein- ast um þjónustu við almenning á föstudaginn, 1. maí. Fólk sem hefur áhyggjur af blettum á húð getur komið á Göngudeild húð- og kyn- sjúkdóma í Þverholti 18 í Reykjavík eða í Leitarstöð Krabbameinsfé- lagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Þar skoðar húðsjúkdómalæknir blettina og metur hvort ástæða er til nánari rannsókna. Skoðunin er ókeypis. Nauðsynlegt er að panta tíma í síma 562 1990 eftir hádegi miðvikudaginn 29. aprfl. Eins og kunnugt er hefur tíðni húðkrabbameins aukist síðustu ára- tugi og er það rakið til aukinna sól- baða og notkunar ljósabekkja. Ár hvert era greind um fimmtíu ný til- felli af húðkrabbameini hér á landi. Mikilvægt er að fara til læknis ef fram koma breytingar á húð eins og blettir sem stækka, era óreglulega litir eða breytast, og sár sem ekki gróa. Á flestum heilsugæslustöðv- um og í mörgum apótekum er hægt að fá fræðslurit um sólböð, sólvöm og húðkrabbamein. Þá er ástæða til að benda á að hjá Krabbameinsráðgjöfinni er hægt að fá upplýsingar, ráðgjöf og stuðning um flest er varðar krabbamein. Svarað er í síma 800 4040 kl. 15-17 virka daga. Þess má geta að áformað er að hafa blettaskoðun hjá Krabba- meinsfélagi Akureyrar og nágrenn- is í lok maí og verður það nánar til- kynnt síðar. Minnisvarði á leiði dr. Kon- rads Maurer í MUnchen 175 ÁR era liðin í dag, miðvikudag- inn 29. apríl, frá fæðingu þýska fræðimannsins og íslandsvinarins Konrads Maurers, prófessors í þýskum lögum og norrænni réttar: sögu, í Múnchen í Bæjaralandi. í fyrrahaust kom í fyrsta sinn út saga hans frá því er hann dvaldi í hálft ár á íslandi árið 1858 og ferðaðist víða um landið. Ferðasagan, sem var af- mælisbók Ferðafélags íslands, vakti mikla athygli, enda stórmerk heimild um land og þjóð, segir í fréttatilkynningu. Ennfremur segir: „í framhaldi af þessari útgáfu var ákveðið að gera enn betur til að halda merki Maurers á loft og var ákveðið að Ferðafélagið kostaði minnisvarða á leiði hans í Múnchen og einmitt í dag, þegar 175 ár eru frá fæðingu hans, verður minnisvarðinn vígður við hátíðlega athöfn. Fyrir athöfninni stendur íslenska sendiráðið í Bonn undir forystu Ingimundar Sigfússonar sendi- herra. Viðstaddir era fyrir hönd Ferðafélagsins þeir Árni Bjömsson og Jóhann J. Ólafsson en þarna verða m.a. Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Ingimundur Sigfússon sendiherra, Heinrich Nöth, forseti vísindaakademíunnar í Bayem, og Kurt Sehier, fyrrver- andi prófessor og helsti hvatamaður að útgáfu ferðasögunnar. í tilefni þessa verður ferðabókin, sem nefnist Konrad Maurer, ís- landsferð 1858, á tilboði út næstu viku.“ Skemmtikvöld FI með mynda- sýningu FERÐAFÉLAG íslands efnir til skemmtikvölds fimmtudagskvöldið 30. aprfl kl. 20.30 í félagsheimili sínu í Mörkinni 6 til að fagna sum- arkomunni. Á dagskrá verður fjölbreytt myndasýning Ólafs Sigurgeirsson- ar en að því loknu verður stiginn dans. Allir era velkomnir. LEIÐRÉTT Ónákvæmni í frásögn ÖRLÍTILLAR ónákvæmni gætti í fréttafrásögn hér í Morgunblaðinu sl. sunnudag, þar sem raktar voru athugasemdir Læknafélags íslands við framvarp heilbrigðisráðherra um gagnagranna á heilbrigðissviði. Á einum stað vitnaði Læknafélag íslands í umfjöllun í aprílhefti tíma- ritsins Nature Biotechnology og sagði að þar sé bent á að Islensk erfðagreining hyggist m.a. láta ókeypis lyf í staðinn fyrir erfða- rannsóknir sínar. Því næst vora næstu ummæli höfð innan tilvitnun- armerkja, eins og um orðrétta til- vitnun í tímaritið væri að ræða. Það var röng greinamerkjanotkun, því hér var einungis verið að endur- segja athugasemdir Læknafélags íslands. Beðist er velvirðingar á þessari ónákvæmni við vinnslu fréttarinnar. Vígsla steindra glugga í FRÉTT Morgunblaðsins þann 21. apríl s.l. þar sem greint er frá vígslu steindra glugga eftir Benedikt Gunnarsson í Suðureyrarkirkju gætir misskilnings, í skilgreiningu á - eðli og stöðu þeirra í kirkjunni. Ennfremur hefur heiti eins mynd- gluggans misritast og er nánast óskiljanlegt. Rétt er: 1. Myndglugg- arnir era fjórir í kór kirkjunnar og era hver um sig sjálfstætt mynd- verk. 2. Heiti myndar nr. 4 er: Mettunarkraftaverkið, sbr. Mark- úsarguðspjall 6. 38-45 en ekki Menntunarkraftaverkið. Morgunblaðið biðst afsökunar á þessum mistökum. Sr. Kristján Björnsson í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um sáttargjörð í Súðavflí var á ein- um stað misfarið með nafn sr. Kris- tjáns Bjömssonar sóknarprests á > Hvammstanga, sem hefur haft um- sjón með sáttastarfinu. Kristján var sagður heita Karl. Hann er beðinn velvirðingar á mistökunum. Félagsmenn BHM ríflega 7.000 í FRÉTT Morgunblaðsins um aðal- fund BHM í gær var farið rangt með tölu félaga í bandalaginu. Hið rétta er að þeir eru ríflega 7.000 og þar af era 4.600 ríkisstarfsmenn. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Rangur opnunartími Stöðlakots ’í MYNDLISTARGAGNRÝNI - Gunnars J. Ámasonar um skart- gripasmíð Guðrúnar Marinósdóttur og Sifjar Ægisdóttur í blaðinu í gær þriðjudag er rangur opnunartími Stöðlakots. Opið er í Stöðlakoti alla daga frá kl. 14-18. t Sambýlismaður minn, faðir og fósturfaðir okkar, Hallgrímur Eyfells Guðnason, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju i dag, miðvikudaginn 29. apríl, kl.10.30. Sesselja Haraldsdóttir, Björgvin Hallgrímsson, Hallgrfmur Byron Hallgrfmsson, Gfsli Einarsson, Lára Ólaffa Einarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.