Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 21
ERLENT
Kristilegir demdkratar fylkja sér að baki Helmuts Kohls
Endi sagður bund-
inn á vangaveltur
Bonn. Reuters.
ÞIN GFLOKKUR Kristilegra
demókrata í Þýzkalandi fylkti sér í
gær að baki formanni sínum, Helmut
Kohl kanzlara, og reyndi þai’ með að
binda enda á vangaveltur sem staðið
hafa vikum saman um að hann kynni
að víkja fyrir staðgengli sínum fyrir
kosningar til Sambandsþingsins í
haust.
„Stemmningin er góð í þingflokkn-
um,“ sagði Kohl í gær að fundinum
loknum, en niðurstöðu hans hafði
verið beðið með allnokkurri eftir-
væntingu, þar sem kosningaósigur
CDU í Sachsen-Anhalt um helgina
ýtti undir gagnrýni á Kohl og vanga-
veltur um að hann hætti við að sækj-
ast eftir endurkjöri í kanzlarastólinn.
Að endi hefði verið bundinn á slík-
ar vangaveltur staðfestu Theo Waig-
el, fjármálaráðherra og formaður
CSU, hins bæverska systurflokks
CDU, Volker Riihe, varnarmálaráð-
herra og Rita SiiBmuth, forseti Sam-
bandsþingsins. Sagði Waigel óum-
deilt að Kohl væri „númer eitt“ og
Wolfgang Scháuble, formaður þing-
flokks CDU og staðgengill Kohls,
„númer tvö“.
Heiner GeiBler, vai’aformaður
þingflokksins, sagði í sjónvarpsviðtali
að mikilvægasti lærdómur undanfar-
inna vikna væri sá að flokkurinn
mætti ekki einskorða kosningabar-
áttuna við Kohl; hinar innihaldslegu
áherzlur yrðu að vera í fyrirrúmi.
Brugðist við árangri
liægriöfgamanna
Flokkurinn ræddi í gær einnig
hinn óvænta kosningasigur
hægriöfgaflokksins DVU í kosning-
unum í Sachsen-Anhalt og hvernig
bregðast skyldi við honum. Karl
Lamers, talsmaður þingflokks CDU
í utanríkismálum, tjáði fréttamönn-
um í Bonn að árangur DVU, sem
fékk tæp 13% atkvæða, væri að
rekja til aðstæðna sem eingöngu
væru fyrir hendi í austurhluta lands-
ins, sem áður var undir stjóm
kommúnista. I Sachsen-Anhalt væri
þennan árangur að rekja til óörygg-
istilfinningar, sem útbreidd væri
meðal fólks sem þar býr, vegna
hinna öru breytinga sem umskiptin
úr áætlanabúskap kommúnistatím-
ans yfir í markaðshagkerfi hefðu í
för með sér, en atvinnuleysi er
hvergi meira innan Þýzkalands en
einmitt í þessu sambandslandi.
,Að vinna bug á atvinnuleysi er
lykillinn að því að vinna bug á
hægriöfgum," sagði Lamers. Hann
sagði uppgang hægriöfgamanna í
eystri sambandslöndunum mikið
áhyggjuefni, en hverfandi líkm- væru
á að þeir næðu svipuðum árangri í
kosningum til Sambandsþingsins.
Nægði að nefna í því sambandi að
íbúar austurhlutans væru aðeins um
20% allra Þjóðverja.
Reuters
Reiði í garð
Belgíustjórnar
BELGÍSK stúlka mundar
mótmælaskilti og hrópar vígorð
í garð stjórnvalda fyrir utan
dómhúsið í Brussel í gær, þar
sem mannfjöldi safnaðist
saman til að lýsa vanþóknun
sinni á frammistöðu belgískra
yfirvalda í máli barnaníðingsins
Marcs Dutroux.
Belgíska ríkisstjórnin hélt í
gær velli, er atkvæði voru
greidd á þingi um vantraust á
hana. Stjómarandstaðan hafði
sameinast um að bera upp van-
trauststillöguna á stjórn Jean-
Luc Deheanes eftir að Dutroux
tókst að flýja úr haldi í síðustu
viku en náðist skömmu síðar.
Deheane hét því í gær að
einskis yrði látið ófreistað til
að uppræta veika hlekki í
löggæzlu- og dómskerfinu.
Hvað er Þýzka þj óðarbandalagið ?
Gert út á
óánægju með
„kerfísflokkau
ÓVÆNTUR kosningasigur Þýzka
þjóðai’bandalagsins (DVU) í Sachs-
en-Anhalt um helgina er - í prósent-
um talið - stærsti sigur öfgaflokks til
hægri í sögu Þýzkalands eftir lok
síðari heimsstyrjaldar. I
kjölfar þessa sigur tilkynnti
formaður DVU, milljóna-
mæringurinn Gerhard Frey,
í gær að hann hygðist bjóða
fram til Sambandsþingsins,
en kosningar til þess fara
fram eftir fimm mánuði.
Að dómi stjórnmála-
skýrenda bendir þó fátt til
þess að hætta sé á að
hægriöfgamenn nái slíkri
fótfestu í stjórnmálum Þýzkalands
og pólitískh’ samherjar þeirra hafa
gert á undanförnum árum í ýmsum
löndum Evrópu. Allt frá lokum kalda
stríðsins hafa flokkar sem standa
fyrii’ fátt annað en andúð á útlend-
ingum og/eða gyðingum náð all-
nokkru kjörfylgi víða um Evrópu,
frá lýðveldum Sovétríkjanna fyrr-
verandi til landanna við Atlantshafs-
ströndina.
Li'til hætta
En á meðan segja má að nokkur
uppgangur sé um þessar mundir hjá
róttækum hægrimönnum víða um
Evrópu, er mikil sundrung einkenn-
andi fyrir þennan væng stjórnmál-
anna í Þýzkalandi. Ennfremur hefur
sú valddreifing sem uppbygging
Þýzkalands í sambandsríki byggist á
og skilvirkt starf hinna lýðræðislegu
stofnana landsins í för með sér að
lýðræðinu stendur engin ógn af
þýzkum hægriöfgamönnum.
Eina skiptið í nær hálfrar aldar
sögu Sambandslýðveldisins Þýzka-
Iands sem næm lá að róttækur
hægriflokkur næði tilskildu 5% lág-
marksfylgi til að fá þingsætum út-
hlutað á Sambandsþinginu í Bonn
vai’ 1969, þegar „Þjóðernislegi lýð-
ræðisflokkurinn“, NPD, upplifði
stutt uppgangsskeið og fékk fulltrúa
kjörna á þing nokkurra sambands-
landa.
NPD er að nafninu til
ennþá starfandi, en hann er
eins og Þýzka þjóðarbanda-
lagið (Deutsche Volksunion,
DVU) aðeins einn margra
smáflokka sem finnast
lengst til hægri í þýzkum
stjórnmálum.
Þeir tveir róttæku hægri-
flokkar sem náð hafa mest-
um árangri í kosningum í
Þýzkalandi á síðustu ái-um eru
repúblikanar, sem sitja á þingi Bad-
en-Wurttembergs, og DVU.
DVU náði óvænt 6,3% fylgi í kosn-
ingum til þings Slésvíkur-Holtseta-
lands 1992, og fékk þar með fulltrúa
kjörna, en þeir féllu aftui- út af þing-
inu í kosningum 1996. í september
sl. greiddu 4,9% kjósenda i Hamborg
flokknum atkvæði sitt. Þótt þessi
árangur hefði ekki dugað til að flokk-
urinn hlyti sæti á þingi borgarinnar,
sem er eitt sambandslandanna sext-
án, vakti hann töluverða athygli.
DVU er stjórnað af Dr. Gerhard
Frey, ríkum útgefanda í Munchen.
Heildarfjöldi flokksfélaga í öllu
Þýzkalandi er samkvæmt upplýsing-
um Freys sjálfs á sextánda þúsund,
en í Sachsen-Anhalt eru þeir fáein
hundruð.
Alls staðar sem flokkurinn hefur
boðið fram hefur kosningabarátta
hans svo gott sem einskorðast við
kröfur um að innflytjendum verði
haldið burtu - einkum á þeim for-
sendum að tryggja beri að útlend-
ingar taki ekki störf frá innfæddum -
og höfðað til óánægju fólks með
„kerfisflokkana“.
Gerhard Frey
u
UKORT
GUNN
EFTIR
GUÐMUNDSSQ.
í
UPPLÝSINGAR í SÍMA 553 .7;
T\ ;Nv
00.250
2ja sæta 87.400,-
Comfort Max clýna
74.800
72.200
2ja Sceta ?Q.30Qf-
2ja sæta ?0.000f-
Pageant
Comfort Max dyiia
87.400
98.2300
2ja sæta 82-650,-
PAGEANT
Comfort Max dýna
Skbtanlegt áyéec& (stb covar)
AHir sófamir eru með
135 cm-152 cm
breiðum dýnum.
ÖJI vcrð
miðast við
staðgreiðslu
yiWKtaanii
Lane
Mörkinni 4 • 108 Reykjavík
Sími: 533 3500 ’ Fax: 533 3510 • www.marco.is
Viö styöjum vifí bakifí á þér
Létt Vtfc Auglýangastofa