Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 9
FRÉTTIR
Flugleiðir leggja niður flug til Fort Lauderdale
Oánægja meðal Islend-
inga á Flórída
Halldór Ásgrímsson ræðir við utanríkisvið-
skiptaráðherra Kanada
*
Aréttar að liðka þurfí
fyrir leyfum
MIKILLAR óánægju gætir meðal
Islendinga sem búsettir eru í Suð-
ur-Flórída vegna ákvörðunar Flug-
leiða um að leggja niður áætlunar-
flug til Fort Lauderdale. Félagið
mun hætta áætlunarflugi þangað
15. maí næstkomandi en þangað
hefur verið beint flug sl. fimm ár.
Tæplega 300 manns skráðu nöfn
sín í mótmælaskyni á undirskrifta-
lista sem sendur var forsvars-
mönnum Flugleiða og hefur Þórir
Gröndal, ræðismaður Islands í
Mið- og Suður-Flórída, skrifað bréf
til framkvæmdastjóra Norður-Am-
eríkuflugs og forstjóra Flugleiða
vegna málsins.
Þórir Gröndal sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að íslendingar
á þessum slóðum væru mjög óá-
nægðir og þeim þætti ákvörðun
Flugleiða undarleg þar sem ferð-
irnar til Fort Lauderdale hefðu
Forsetinn
flýgur beint
til Tallin
FORSETI íslands hr. Ólafur Ragn-
ar Grímsson og eiginkona hans frú
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir fara í
opinbera heimsókn til Eystrasalts-
ríkjanna 8. júní næstkomandi. Flogið
verður með Flugleiðum beint til
Tallin í Eistlandi en Flugleiðir milli-
lenda þar í áætlunarflugi til
Helsinki.
Nokkui- dæmi eru um að Flugleið-
ir breyti ferðaáætlun sinni fyrir
þjóðhöfðingja Islands þegar um op-
inbera heimsókn er að ræða, að sögn
Margrétar Hauksdóttur í upplýs-
ingadeild félagsins.
Breytingarnai' eru ákveðnar með
löngum fyrirvara og er öllum farþeg-
um gert kunnugt um þær þegar flug-
miðar eru keyptir. Um hálftíma flug
er á milli Helsinki og Tallin.
vanalega verið fullbókaðar og erfitt
hefði verið að fá sæti. Hann benti
einnig á að mikil gróska væri í við-
skiptum milli Islands og Suður-
Flórída svæðisins, Islenskir aðal-
verktakar væru til dæmis að
byggja nokkur íbúðarhús á svæð-
inu og tölvufyrirtæki væri þarna
starfandi auk annarra smáfyrir-
tækja.
Ákvörðun Flugleiða
verður ekki breytt
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi
Flugleiða sagði að ákveðin hag-
ræðing fælist í breytingunum. Það
væri hagkvæmara fyrir félagið að
beina fluginu á einn stað á Flórída
í stað tveggja, betri nýting næðist
þannig á vélum félagsins. Spurður
um viðbrögð við undirskriftalist-
anum sagði Einar:
„Við hlustum auðvitað á sjónar-
mið en þetta er ákvörðun sem búið
er að taka og hún hefur ekki
breyst við móttöku listanna. Við
skiljum að fólk vilji hafa flug til ís-
lands sem næst sér, en þarna er
því ekki við komandi miðað við
þær forsendur sem við búum við í
rekstrinum í dag. Við teljum okk-
ur geta þjónað svæðinu með flugi í
gegnum Örlando og munum fjölga
flugferðum þangað. Sú nýting sem
við náum með flugi til Flórída er
ekki jafn mikil og við náum með
flugi til áfangastaða norðar í
Bandaríkjunum. Vélarnar þurfa
að staðnæmast þar yfir nótt og
það er afar óhagkvæmt fyrir okk-
ur.“
A Suður-Flórída svæðinu eru
búsettir um 300 Islendingar allt
árið um kring auk fjölda Islend-
inga sem búa þar hluta ársins,
ferðamanna og námsmanna.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra átti í gær fund með Sergio
Marchi utanríkisviðskiptaráðherra
Kanada í París en ráðherrarnir
sitja þar ársfund OECD. Á fundin-
um ræddu þeir viðskipti íslands og
Kanada og undirbúning fríverslun-
arviðræðna EFTA-ríkjanna og
Kanada, segir í fréttatilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu. Halldór
áréttaði á fundinum að Kanada-
menn þyrftu að liðka fyrir um veit-
ingu atvinnu- og búsetuleyfa í
Kanada fyrir íslenska starfsmenn
fyrirtækja sem væni að fjárfesta
þar í landi.
Halldór Ásgrímsson bauð Marchi
að heimsækja ísland 3. júní nk. í
tengslum við ráðherrafund EFTA-
ínkjanna sem haldinn verður í
Reykjavík þann dag. Utanríkisráð-
herra minnti á hið sérstaka sam-
band Islands og Kanada og lýsti yf-
ir ánægju sinni með ört vaxandi
viðskipti og samgöngur milli land-
anna.
Marchi lýsti því yfír að viðskipti
við EFTA-ríkin væru afar áhuga-
verð fyrir Kanada og að fríverslun-
arviðræðurnar væru eitt mikilvæg-
asta verkefni kanadískra stjórn-
valda á viðskiptasviðinu um þessar
mundir. Ráðherrarnir voru sam-
mála um að fríverslunarviðræðun-
um þyrfti að hraða eftir fongum og
að stefna ætti að því að ljúka þeim
um eða skömmu eftir næstu ára-
mót. Fyi-sti sameiginlegi viðræðu-
fundurinn vegna fyrirhugaðrar frí-
verslunar EFTA-ríkjanna og
Kanada verður haldinn í Reykjavík
26.-27. maí nk.
Vikuferð
til Costa del Sol
27. maí
frá kr. 36.132
Við höfum nú fengið viðbótar-
gistingu 27. maí til Costa del Sol
og getum nú boðið síðustu sætin á frábærum
kjörum í vikuferð til þessa vinsælasta áfangastaðar Miðjarðar-
hafsins. í lok maí er komið frábært veður á suðurströnd Spánar
og þú nýtur þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr.
36.132
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára í viku
á E1 Pinar íbúðarhótelinu, íbúð m. 1
svefnherbergi.
Verð kr.
39.960
M.v. 2 í studio, Sunny Beach, 27. maí,
vikuferð, flug, gisting og ferðir til og
frá flugvelli.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð
sími 562 4600
Eyddu í spamað!
HeimiUsbókhald 1998
NÖV tm ’í SiAMÍALV
Það þarf aðeins eitt símtal
til að byrja að spara reglulega
með spariskírteinum
ríkissjóðs.
562 6040 8 0 0 6 6 99
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
Veffang: www.lanasysla.is Netfang: lanasyslan@lanasyslan.is