Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 11
FRETTIR
Brotlegur nemandi búinn að fá viðvörun Margmiðlunar
Intís íhugar
frekari aðgerðir
INTÍS, söluaðili internetsambanda
á Islandi, hefur í sérstakri athugun
mál notanda sem staðinn var að því
að senda öllum háskólanemendum
1,8 Mb skjal sem tölvupóstkerfi HÍ
kiknaði undir.
Maríus Olafsson, netstjóri Intís,
segir að ákvörðun um framhald
liggi fyrir á næstum dögum og of
snemmt sé að segja til hvaða ráð-
stafana verði gripið. Hins vegar sé
almenna reglan í sambærilegum
málum sú að netfangi þess sem
brjóti reglurnar sé lokað til fram-
búðar.
„Við höfum ákveðnar reglur sem
við fylgjum í málum sem þessum.
Hafi hinn brotlegi fleiri netföng er
þeim einnig lokað. Hafi fjöldasend-
ing verið notuð til að auglýsa t.d.
heimasíðu sé heimasíðunni lokað
o.s.frv. Áður en við tökum ákvörð-
un í þessu máli er hins vegar
ótímabært að lýsa því yfir til hvaða
ráða við grípum,“ segir Maríus.
Viðkomandi einstaklingur notaði
ekld netfang sitt hjá HI til að
senda skjalið heldur aðgang sem
hann hafði hjá Margmiðlun hf., en
virðist hins vegar ekki hafa falið
notkun sína þar. Hann sendi skjal-
ið á miðvikudagskvöld þegar engin
starfsemi var hjá Reiknistofnun
HI, auk þess sem starfsmenn þar
áttu að vera í leyfi á sumardaginn
fyrsta.
Maríus segir umræddan nem-
SÉRLEYFISHAFAR eru ósáttir
við að þm’fa að bera kostnað vegna
virðisaukaskatts af veggjaldinu í
Hvalfjarðargöngum á sama tíma og
eigendur vörubifreiða fá vh-ðisauka-
MEIRIHLUTI efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis hefur ákveðið
að leggja til að lög um olíugjald verði
afnumin. Lögin áttu að taka gildi um
næstu áramót. Vilhjálmur Egilsson,
formaður nefndarinnar, segir að
meginástæðan sé sú að það hefði
þurft að viðhalda kílómetragjaldi
samhliða olíugjaldi og kostnaðurinn
við eftirlit og innheimtu kílómetra-
gjalds hefði orðið svipaður og í
þungaskattskerfinu. Kostnaður við
innheimtu olíugjalds, litun olíunnar
og reksturs dreifíkerfisins hefði auk
þess orðið 140-150 miltj. á ári, sam-
kvæmt útreikningum olíufélaganna.
Vilhjálmur sagði að nefndin hefði
ekki séð ástæðu til að vefengja tölur
olíufélaganna. „Það skiptir ekki öllu
máli hvort þessi kostnaður er 100,
150 eða 200 milljónir kr. á ári. Það
sem skiptir máli er að olíugjaldið átti
að gefa 2,3-2,4 milljarða kr. á ári og
þegar innheimtan ein og sér nemur
150 milljónum kr. á ári er betra að
nota þá fjármuni í eitthvað annað,“
sagði Vilhjálmur.
Efnahags- og viðskiptanefnd mæl-
ir því með því að þungaskattskerfið
verði áfram við lýði. Vilhjálmur segir
anda hafa brotið notkunarreglur
þær sem hann gekkst undir bæði
sem notandi hjá HI og Margmiðlun
hf., sem kaupa alnetssamband sitt
af Intís og undimta um leið skuld-
bindingar um að hlíta notkunar-
reglum.
„Við höfum fylgst með þessu
máli og munum gera það áfram,“
segir Maríus. „Þegar ljóst er hvað
Háskólinn og Margmiðlun gera
munum við hafa afskipti af málinu,
ef ástæða þykir til.“
Augljóst brot á reglum
Bjarni R. Einarsson kerfisstjóri
Margmiðlunar hf. segir að viðkom-
andi notandi hafi fengið viðvörun
vegna þessa brots og verði lokað
fyrir aðgang hans ef hann brjóti
aftur af sér. „Þama er um augljóst
brot á reglum að ræða en kannski
vissi viðkomandi ekki fyrirfram að
þetta mætti ekki. Haldi hann hins
vegar uppteknum hætti mun hann
missa aðganginn," segir Bjarni.
Hann kveðst telja afar auðvelt
að komast yfir lista með öllum
nemendum háskólans, samskonar
þeim og umræddur aðili virðist
hafa notað. „Listinn gengur milli
manna eða menn kunna að nálgast
hann með öðrum hætti. Það hefur
gerst áður að listinn hefur verið
notaður til fjöldasendinga en þetta
tilvik er hins vegar sérstætt því um
var að ræða gríðarlega stóra send-
skattinn endurgreiddan. Þeir telja
einnig eðlilegt að veittur yrði meiri
afsláttur til þeirra sem koma til með
að nota göngin mest. Eyrún Inga-
dóttir, framkvæmdastjóri Trausta,
að meirihluti nefndarinnar muni hins
vegar leggja til breytingar á þunga-
skattskerfinu. Ein aðalröksemdin
fyrir upptöku olíugjalds voru undan-
skot í þungaskattskerfinu. Vilhjálm-
ur segir að innheimta þungaskatts
hafi lagast verulega og menn séu
sammála um að hefði þungaskatts-
kerfið virkað á sínum tíma eins og
það gerir í dag hefði aldrei orðið um-
ræða um að taka upp olíugjald.
Snorri Bjamason, formaður Sam-
taka landflutningamanna, sagði að
samtökin væru alls ekki sátt við
þessa niðurstöðu. Hann sagði að
samtökin hefðu lagt til breytingar á
olíugjaldinu í þá veru að kílómetra-
gjald yrði lagt á öll vélarlaus aft-
anítæki til vöruflutninga 6 tonn og
þyngri, öll vélbúin ökutæki sem
stunda vöruflutninga í atvinnuskyni 4
tonn og þyngri, almennt kílómetra-
gjald yrði í staðinn lækkað um 18%,
vörugjöld yrðu felld niður af leigubif-
reiðum og fólksbifreiðum til öku-
kennslu og lögð niður eða lækkuð
verulega á hópbifreiðum sem eru
skráðar fyrir 17 farþega eða færri og
vörugjöld yrðu felld niður í þrepum
af vöru- og sendibifreiðum.
ingu og áróður frá stjórnmála-
flokki," segir Bjarni.
Bjarni segir að miðað við að
skráðir nemendur HI með netfang
séu ríflega 5.000 talsins megi
margfalda þá tölu með 1,8 Mb til
að fá út hversu mikið geymslurými
í tölvukerfi háskólans hefði fyllst.
„Hafi hann vandað sig við gerð list-
ans má búast við að maðurinn hafi
komist talsvert næiri því marki.
Tölvupóstsprengjur sem þessar
eru vaxandi vandamál og það þarf
að koma skýrt fram að það er
bannað á Islandi að senda út
hverskyns auglýsingar með tölvu-
pósti,“ segir hann.
Alvarlegt mál
„Ef um fyrsta brot er að ræða og
það talið stafa af fáfræði eða vangá
fara söluaðilar víða um heim oftast
þá leið að láta viðkomandi einstak-
ling fá annað netfang. En ef brotið
er endurtekið fær viðkomandi
hvergi aðgang. I heiminum eru í
gangi svartir listar yfir aðila sem
leyfa mönnum að fremja slík brot
ítrekað án þess að bregðast við
með viðeigandi hætti og þar með
eru þeir búnir að missa aðgang að
stórum hluta netsins. Þetta er
mjög alvarlegt og við leggjum
mikla áherslu á að viðskiptavinir
okkar geri sér grein fyrir afleiðing-
um slíkrar hegðunar," segir Marí-
félags sendibifreiðastjóra, segir að
málið hafi ekki verið rætt innan fé-
lagsins en hún segir að gjöldin komi
sér ekki á óvart.
Snorri Bjarnason, formaður Sam-
taka landflutningamanna, sagði að
sér sýndist að veggjaldið kæmi illa
niður á rekstri stærri bílanna. „Ég
hafði heldur aldrei trú á því að gjald
fyrir fólksbíla yrði hærra en 800 kr.
svo mér þykir þetta í hærri kantin-
um. Það er hins vegar greinilegt að
það á að gera eitthvað fyrir þá sem
fara þama í gegn tO vinnu á hverjum
degi. 40% afsláttur er talsvert mikill
afsláttur,“ segir Snom.
Gunnar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri BSÍ og Félags sérleyfishafa,
segir að á veggjaldinu sé virðisauka-
skattur sem þeir sem stunda fólks-
flutninga þurfi að taka á sig sem
kostnað. „Við munum ekki standa
jafnfætis vöruflutningamönnum,
sem fá að draga virðisaukaskattinn
frá, og þurfum við því að greiða
hærra gjald. Það þykir okkur mjög
erfiður kostur. Við þurftum ekki að
greiða virðisaukaskatt þegar við
ókum fyrir Hvalfjörð og heldur ekki
þegar við fluttum bíla okkar með
Akraborginni," segir Gunnar.
Hann segir kostnað af virðisauka-
skatti munu skipta milljónum kr. á
ári. „Það er ekki á það bætandi því
við erum í harðri samkeppni við flug-
rekstur sem fær að draga innskatt
frá við kaup á flugvélum og rekstrar-
vörum án þess að leggja á nokkurn
útskatt,“ segir Gunnar.
Hann segir að reynt verði á það
hvort einhver lagfæring fáist. Án
hennar verði menn að velta fyrir sér
hvort þeh noti göngin eða ekki.
„Við vildum einnig sjá að fleiri af-
Söngnám í
sólinni
SIBYLLE Köll frá Austurrfki dvel-
ur nú á Islandi við söngnám. Hún
sat í gær við Vesturgötuna og
lærði í sólinni.
slætth væru í gildi því ákveðin fyrh-
tæki munu keyra um göngin allt að
40 sinnum í viku,“ sagði Gunnar.
Rekstrarstofan og Rekstrarstoð
ehf. unnu greinargerð fyrh Spöl ehf.
þar sem tekinn er saman kostnaður
við akstur ökutækja 42, 49,2 eða 60
km sem eru þær vegalengdh sem
sparast við að aka um Hvalfjarðar-
göng í stað þess að aka fyrh Hval-
fjörð norður eða til Akraness og
grenndarsvæða. I niðurstöðunum
kemur fram að veggjaldið er yfhleitt
lægra en sem svarar til kostnaðar
við að aka fyrir Hvalfjörð. Við bætist
að menn eru fljótari í ferðum og
njóta að jafnaði meha öryggis, ekki
síst að vetrarlagi.
Meðalstytting fyrh þá sem fara
um göngin, samkvæmt umferðar-
könnun, er 49,2 km. Hér fara út-
reikningar Rekstrarstofunnar og
Rekstrarstoðar ehf. um kostnað við
að aka 49,2 km og veggjald fyrh
sömu bíla til samanburðar.
Aksturstengdur kostnaður fyrh
fólksbíla, jeppa og litla sendibíla er
787 kr. til 1.671 kr. Veggjald er 600-
1.000 kr.
Aksturstengdur kostnaður fyrh
stærri sendibíla er 2.467 kr. Veg-
gjald er 2.250-3.000 kr.
Aksturstengdur kostnaður fyrh
minni flutningabíla er 4.216 kr. Veg-
gjald er 2.250-3.000 kr.
Aksturstengdur kostnaður fyrh
stærri flutningabíla er 5.397 kr. Veg-
gjald er 2.850-3.800 kr.
Aksturstengdur kostnaður fyrh
minni fólksflutningabíla er 3.272 kr.
Veggjald er 2.250-3.000 kr.
Aksturstengdur kostnaður fyrh
stærri fólksflutningabíla er 4.038 kr.
Veggjald er 2.850-3.800 kr.
Sinueldur
stofnaði
mannvirkj-
um í hættu
BYGGINGAR og mannvirki
voru í hættu að mati slökkvi-
liðsins í Reykjavík eftir að
unglingar kveiktu sinuelda
skammt frá langbylgjustöð-
inni á Vatnsenda skömmu eft-
ir miðnætti aðfaranótt mánu-
dags.
Þama eru bæði örbylgju-
stöðvar fyrir Landssímann og
endurvarpsstöðvar fyrir út-
varpssendingar á FM og lang-
bylgju. Svæðið er girt en veru-
leg sina var innan girðingar,
bæði kringum möstrin og
byggingarnar, og hafði eldur
verið borinn að henni á
nokkrum stöðum.
Veruleg hætta á ferð
Slökkviliðið fór á staðinn og
barðist við eldinn sem logaði
þá á gríðarlega stóru svæði
samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliði og var um verulega
hættu að ræða. Slökkviliðs-
menn sem komu fyrstir á vett-
vang, fjórtán talsins, töldu
vandséð að þeir gætu ráðið
niðurlögum eldsins án full-
tingis félaga sinna og var
aukalið kallað út. Þegar mest
var börðust á milli 25 og 30
manns við eldinn á þremur
slökkviliðsbílum, en þegar
barist er við sinubruna eru að-
allega notaðar klöppur og eld-
urinn kæfður með þeim.
Þurrt og hvasst var í veðri
og stóð vindáttin beint á bygg-
ingamar. Myndaðist mikið kóf
auk neistaflugs sem gekk yfir
menn og mannvirki og vom
aðstæður talsvert erfiðar sam-
kvæmt upplýsingum frá
slökkviliði. Þegar nokkuð var
liðið á slökkvistarf breyttist
hins vegar vindátt sem auð-
veldaði það til muna.
Vitni sáu til unglinga hlaupa
frá þeim stað sem eldurinn
kom upp og leikur sterkm-
granur á að eldur hafi verið
borinn að sinunni.
Sérleyfíshafar ósáttir við veggjald um Hvalfjarðargöng
Virðisauki af fólks-
flutningum um göngin
Þungaskattskerfið
áfram við lýði