Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 29. APRÍL 1998 13
FRÉTTIR
Einn yfírmanna í fastaflota NATO
Heim-
sóknin
mjög
áhrifarík
LAUTINANT Annies á þýska
herskipinu Bayern, einu af átta
skipa fastaflota Atlantshafs-
bandalagsins, sem hér var um
helgina Iét vel af dvölinni í
Reykjavík. Á skipunum átta, sem
eru frá sjö ríkjum, voru alls 1.600
sjóliðar og notuðu margir þeirra
tækifærið til að skoða sig um í
Reykjavík, fara í skipulagðar
skoðunarferðir um Suðurland
eða leigja sér bfla og fara út fyr-
ir bæinn á eigin vegum.
Annies sagði að hann hefði,
stöðu sinnar vegna, þurft að
vera um borð í skipinu og taka
þátt í opinberri dagskrá, sem
skipulögð var af íslenskum yfir-
völdum, utanrfldsráðuneytinu
og Landhelgisgæslunni. Á laug-
ardag voru viðkomandi yfirvöld
heimsótt og starfsemi fastafiota
NATO kynnt fyrir þeim.
Síðan var hádegisverður um
borð í einu skipanna og um
kvöldið var móttaka fyrir ís-
lenska boðsgesti.
Annies sagðist þó aðeins hafa
getað skoðað Reykjavík. „Mér
fannst heimsóknin mjög áhrifa-
rík. Borgin er falleg, umhverfið
er hrífandi og raunar hef ég
Morgunblaðið/Ásdís
TVÖ herskipanna átta sem hér voru um helgina í Reykjavíkur-
höfn. Myndin er tekin úr því þriðja.
aldrei séð neitt því um líkt. Þá
finnst mér fólkið mjög vingjarn-
legt,“ sagði hann.
Að sögn Annies er næsti við-
komustaður fastaflota NATO St.
John á Nýfundnalandi. Þá hafa
yfirgefið hópinn spænska skipið
Baleares, sem raunar kvaddi í
Reykjavíkurhöfn, hitt þýska
skipið í hópnum heldur til Þýska-
lands en í staðinn kemur portú-
gölsk freigáta rétt áður en siglt
verður inn í höfnina í St. John.
Annies segir að dagskráin í St.
John verði með svipuðu sniði og
hún var hér í Reykjavík og að
heimsókninni þar lokinni verður
haldið til Bandarikjanna.
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
Menn vona að
rætist úr sjóbirt-
ingsveiðinni
VEIÐIMENN velta fyrir sér hver
framvinda vorveiðanna verður úr því
sem komið er. Sjóbirtingsveiði byrj-
aði yfirleitt afar vel fyrstu daga ver-
tíðarinnar, en síðan breyttust skil-
yrði mjög til hins verra þannig að
varla hefur ræst úr. Veiðin í heild er
í engu samræmi við hversu mikill
fiskur var í ánum í fyrrahaust, en
sem kunnugt er, byggist vorveiðin á
fiski, hrygningarfiski og geldfiski,
sem er á niðurleið úr ánum eftir vet-
ursetu. Stutt er í að veiði hefjist í ám
í Landbroti, t.d. Flóðinu í Grenilæk
og ef að líkum lætur fara þá að ber-
ast líflegri aflatölur að austan.
í veiðiþætti í blaðinu í gær var
greint frá reytingi í Eldvatni og
Hörgsá. Nánar tilgreint höfðu veiðst
um 40 fiskar í Eldvatni, langflestir í
ármótum árinnar við Hverfisfljót. Sá
veiðistaður er þó algerlega háður
dyntum jökulvatnsins og er stundum
h'tt veiðilegur. Birtingarnir hafa
flestir verið 2-4 pund, en nokkrir 5-
6,5 punda hafa einnig veiðst. Svo og
þrjár bleikjur.
I Hörgsá var veiðin um helgina að-
eins 21 birtingur sem eru vonbrigði.
Á móti verður að segja að frá fyrstu
dögum vertíðarinnar hefur áin verið
af ýmsum ástæðum svo að segja
óveiðandi. Fyrst voru harðir
frostakaflar. Síðan algert vatnsleysi,
því næst hret með snjókomu um
páskana og flóð upp úr því. Að und-
ÞÓRARINN Kristinsson fékk
þennan fallega þriggja punda
sjóbirting í Tungulæk um síð-
ustu helgi.
anfómu hefur áin síðan verið kol-
mórauð vegna leysinga í hlýindun-
um. Kunnugir telja að verði ekki all-
ur fiskur á bak og burt er skilyrði
loks skána, gætu einhverjir heppnir
veiðimenn lent í veislu.
Viðunandi veiði hefur hins vegar
Fjármálaráðuneyti um Borgartún
6 hf. og Landsbanka Islands
Líta svo á að
málinu sé lokið
RÍKISENDURSKOÐUN hefur
komist að þeirri niðurstöðu að ekk-
ert hafi komið fram, sem bendi til
þess að reglur um kaup á áfengi á
verði til ráðuneyta hafi verið brotnar
í sambandi við milligöngu Borgar-
túns 6 hf. um áfengiskaup fyrir
Landsbanka Islands hf., en ráðu-
neyti geta keypt áfengi á sérstökum
kjörum.
Magnús Pétursson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði að
ekki hefði verið um auðgun að ræða
hjá veitingamanninum og hann liti
svo á að þessum þætti málsins væri
lokið.
Innkaupsverð eðlilegt
Fjármálaráðuneytið sendi Elíasi
Einarssyni, veitingamanni í Borgar-
túni 6 hf., bréf á fóstudag þar sem
segir að ekkert bendi til þess að
reglur um kaup á áfengi hafi verið
brotnar. Hins vegar hafi komið í ljós
að eyðublöð, sem eingöngu bæri að
nota við kaup ráðuneyta á áfengi hjá
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins,
hefðu verið notuð í viðskiptum Borg-
artúns 6 hf. og bankans: „Þrátt íyrir
að þessi eyðublöð hafi verið notuð,
metur Rfldsendurskoðun ekki annað
af gögnum málsins en að innkaups-
verð á áfengi því sem um er að ræða,
hafi verið eðlilegt. Óviðunandi er að
starfsemi Borgartúns 6 hf. fyrir
ráðuneytin sé á nokkurn hátt bland-
verið í Geirlandsá og Vatnamótum
og á annað hundrað fiskar verið
dregnir úr hvorum veiðistað.
Sækja bleikjuna djúpt í Soginu
Enn reyta menn úr Soginu. Einn
sem var í Bíldsfelli fyrir stuttu fékk
þrjá fiska, alla væna, missti nokkra
og sá bleikjutorfur um allt. Annar
sem var í Ásgarði, á silungasvæðinu,
fékk sex stykki. Allt er þetta mjög
væn bleikja, 2-4 punda. Brögð hafa
verið að því að menn hafi dregið hop-
laxa. Einn veiðimaður sem rætt var
við sagði að tiltölulega auðvelt væri
að fá veiði og hann vissi að sumir
hefðu ekki náð fiski vegna þess að
þeir veiddu „of hefðbundið“ eins og
hann sagði. Sagðist þessi kappi hafa
verið í Ásgarði og notað spón. Hann
varð ekki var fyrr en honum hug-
kvæmdist að kasta spæninum vel
upp fyrir sig og draga hann hægar.
Þetta hafði í för með sér nokkrar
miserfiðar botnfestur, en hann fékk
líka fjórar vænar bleikjur á stuttum
tíma.
að saman við aðra starfsemi fyrir-
tækisins, þ.m.t. notkun eyðublaða,"
segir í bréfinu og síðan er bætt við
að umrædd eyðublöð hafi ekki verið
notuð eftir árið 1996.
Einnig kemur fram að skýrsla
Rflrisendurskoðunar og reikningar
staðfesti að áfengi hafi verið selt til
aðila utan veitingasalar, þótt það
stangist á við 11. og 20. gr. áfengis-
laga nr. 82/1969.
í bréfinu er rakið að fjármálaráðu-
neytið hafi gert húsaleigusamning
við Ek'as árið 1988 um rekstur
veislu- og ráðstefnusala ríkisins í
Borgartúni 6 og í framhaldi af grein-
argerð Ríkisendurskoðanda um lax-
veiðiferðir og risnu á vegum Lands-
bankans nú í aprfl hefði ráðuneytið
óskað eftir upplýsingum um það
hvort staðið hefði verið að veitinga-
rekstri Borgartúns 6 í samræmi við
samninginn.
Engin áhrif á leigusamning
I samningnum kveður á um að
áfengi veitt á vegum ráðuneyta í
Borgartúni 6 eigi leigutaki að panta
hjá ÁTVR. Viðkomandi ráðuneyti
staðfesti pöntun með undirskrift og
ÁTVR gjaldfæri að því búnu úttekt-
ina á ráðuneytin.
Magnús sagði að þetta mál myndi
engin áhrif hafa á leigusamninginn
um Borgartún 6 og viðskipti ráðu-
neyta við fyrirtækið.
Sjálfstæðisfélagið
á Kjaiarnesi
Ohlutbundin
kosning til
samstarfsráðs
KOSIÐ verður til samstarfsráðs
Kjalarness samhliða sveitarstjórnar-
kosningunum 23. maí næstkomandi,
og ákvað Sjálfstæðisfélagið á Kjalar-
nesi á fundi síðastliðið mánudags-
kvöld að bjóða ekki fram lista í kosn-
ingunum bjóði R-listinn ekki fram
lista heldur verða með óhlutbundna
kosningu. Það þýðir að einstaklingar
verða í kjöri til samstarfsráðsins og
geta þá allir í sveitinni gefið kost á
sér allt fram að kjördegi.
Samstarfsráð Kjalarness verður
ráðgefandi borgarstjórninni í
Reykjavík um málefni borgarhlutans
Kjalarness og sérhagsmuni hans í
hinum ýmsu málefnum.
Finnst þér í lagi að...
...skuldir borgarinnar
hafa aukist?
R-listinn lofaði að greiða niður skuldir
en undir hans stjorn hafa skuldir
borgarinnar aukist um 4,5 milljarða krona.
Þetta gerist þrátt fyrir gódæri og
auknar tekjur borgarinnar.
í)
i&ftfkjfii ík