Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Háskólinn á Akureyri Kristján Krist- jánsson prófess- or í heimspeki DOKTOR Kristján Kristjánsson hefur nýverið verið ráðinn prófessor í heimspeki við Háskólann á Akur- eyri. Kristján er fæddur árið 1959. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1979, BA-prófi í heimspeki og þýsku frá Háskóla íslands árið 1983 og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Is- lands 1986. Hann lauk M.PhiI. námi í siðfræði og stjórnmálaheimspeki frá Há- skólanum í St. Andrews árið 1988 og doktorsprófi þaðan tveimur ár- um síðar. Kristján starfaði sem kennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri skólaárið 1979-80 og við Mennta- skólann á Akureyri 1983-’87 og 1990-’91. Hann hefur starfað við Háskólann á Akureyri frá 1991, sem sérfræðingur, lektor og dós- ent og nú prófessor. Hann var um árabil formaður stjórnar Rann- sóknarstofnunar háskólans. Kristján hefur ritað margt um fræði sín, þ.á m. fjölmargar grein- ar um siðfræði, mennt- ir og menningu í ís- lensk blöð og tímarit. Auk þess hefur hann flutt opinbera fyrir- lestra víða um land. Bókin Þroskakostir kom út hjá Siðfræði- stofnun Háskóla Is- lands 1992 og var til- nefnd til fslensku bók- menntaverðlaunanna það ár. Annað rit- gerðasafn hans, Af tvennu illu, kom út hjá Heimskringlu fyrir síð- ustu jól. Þá hefur Kristján birt greinar í ýmsum alþjóðlegum heimspekitímaritum, breskum og bandan'skum. Hann hefur hlotið styrki til heimspekirannsókna sinna úr innlendum og erlendum rannsóknarsjóðum. Bók hans um frelsishugtakið, Social Freedom: The Responsibility View, kom út hjá Cambridge University Press árið 1996. Kristján hlaut árið 1997 Hvatningarverðlaun Rannsóknar- ráðs íslands fyrir framúrskarandi árangur og afköst á sviði heim- spekirannsókna. Hann er kvæntur Nóru Chia- jung Tsai, MA í listfræði, og eiga þau einn son. Kristján Kristjánsson Háskólinn á Akureyri Auglýsing um innritun nýnema Heilbrigðisdeild: Hjúkrunarfræði Iðjuþjálfun Kennaradeild: Grunnskólakennaranám Leikskólakennaranám Viðbótarnám til B.Ed. gráðu fyrir leikskólakennara Rekstrardeild: Rekstrarfræði Iðnrekstrarfræði Framhaldsnám í gæðastjórnun Tölvu- og upplýsingatækni Ferðaþjónusta Sjávarútvegsdeild: Sjávarútvegsfræði Matvælaframleiðsla Reglulegri innritun nýnema lýkur 1. júní nk. Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskírteinum. Ef próf- um er ekki lokið, skal senda skírteini um leið og þau liggja fyrir. Við innritun ber að greiða staðfestingargjald, kr. 6.000, sem er óafturkræft fyrir þá nemendur sem veitt er skólavist. Bent er á að auðveldast er að leggja þessa upphaeð inn á ávísanareikn- ing Háskólans á Akureyri, í Landsbanka íslands, reiknings- númer 0162-26-610 og láta kvittun fyrir greiðslunni fylgja um- sókn. Gjalddagi eftirstöðva skrásetningargjalds er 1. ágúst. Skilyrði fyrir innritun í háskólann er stúdentspróf eða annað nám, sem stjórn háskólans metur jafngilt. í framhaldsnám í gæðastjórnun gilda þó sérstök inntökuskilyrði um B.Sc. gráðu í rekstrarfræði eða annað nám, sem stjórn háskólans metur jafn- gilt. Á fyrsta ári í heilbrigðisdeild er gert ráð fyrir að fjöldatak- mörkunum verði beitt. Ath.: Nýtt námsframboð haustið 1998. Kennaradeild: Viðbótamám til B.Ed. gráðu fyrir leikskólakennara Rekstrardeild: 90 eininga B.Sc. nám f tölvu- og upplýsingatækni 90 eininga í B.Sc. nám í ferðaþjónustu Umsóknarfrestur um húsnæði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri er til 20. júní 1998. Umsóknareyöublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu háskólans, Sólborg, 600 Akureyri, sími 463 0900 frá kl. 8 til 16. Upplýsingar um húsnæði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri veitir Jónas Steingrfmsson í símum 894 0787 og 463 0968. Háskólinn á Akureyri. £_ hAskóunn Aakureyri Búnaðarsamband Eyjafjarðar veitir hvatningarverðlaun 1 L Korn- rækt og kjötiðnaður Morgunblaðið/Benjamín EyjaQarðarsveit. BÚNAÐARSAMBAND Eyja- fjarðar, BSE hélt aðalfund sinn í gær en þá voru í fyrsta sinn afhent svonefnd Hvatningar- verðlaun BSE. Hugmyndin er að veita slíka viðurkenningu árlega fyrir sérstakt framtak í landbúnaði og/eða úrvinnslu landbúnaðarafurða. Viður- kenningin getur verið fyrir vel unnin störf, athyglisverða nýj- ung eða einstakan árangur og geta einstaklingar, félög eða stofnanir hlotið viðurkenning- una. Þeir sem fengu Hvatningar- verðlaunin nú eru annars vegar kombændur sem standa fyrir kornrækt í Miðgerði í Eyja- fjarðarsveit og hins vegar Kjöt- iðnaður KEA. Hjónin í Grænu- hlíð, Óskar Kristjánsson og María Tryggvadóttir, sem em lengst til hægri á myndinni, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd kornbænda í Miðgerði og Helgi Jóhannesson, forstöðu- maður, fyrir Kjötiðnað KEA, en við hlið hans, lengst til vinstri, er Óli yaldimarsson sláturhús- stjóri. I miðjunni er Sigurgeir Hreinsson, formaður Búnaðar- sambands Eyjafjarðar. Bygging III-áfanga við Dalvíkurskóla Sex tilboð bár- ust í verkið ■ SEX tilboð bárust í byggingu III- áfanga við Dalvíkurskóla, þar af tvö frávikstilboð frá sama fyrirtækinu. Tilboðin eru á bilinu 90-100% af kostnaðaráætlun hönnuða. Fyrir ut- an frávikstilboðin átti Árfell hf. á Dalvík lægsta tilboðið, sem hljóðaði upp á rúmar 144,8 milljónir króna, eða 91,5% af kostnaðaráætlun. Tréverk hf. á Dalvík bauð rúmar 145.3 milljónir króna, eða 91,9%, Tréver hf. í Ólafsfírði bauð 145,6 milljónir króna, eða 92,0% og SS Byggir hf. á Akureyri bauð rúmar 159.3 milljónir króna eða 100,7%. Tréverk hf. sendi einnig inn tvö frávikstilboð, annars vegar upp á rúmar 142 milljónir króna, eða 90,1% og hins vegar upp á 150,5 milljónir króna, eða 95,2%. Kostn- aðaráætlun hljóðaði upp á tæpar 158,2 milljónir króna. Tilboðin eru nú til frekari skoðunar og yfirferð- Stefnt að einsjetningu A undanfórnum misserum hefur www.mbl l.is staðið yfir hönnun á nýbyggingu við Dalvíkurskóla vegna áætlana um frekari uppbyggingu skólans og ein- setningu hans. Nýbyggingin verður tæpir 1500 fermetrar og að mestum hluta á einni hæð. Gert er ráð fyrir að vinna við nýbyggingu skólans hefjist um leið og skóla lýkur í vor. Verður verkþáttum skipt þannig að skólastarf verði ekki fyrir truflun á næsta skólaári og að þeim verði lokið haustið 1999. Dalvíkurbær gerði heUdarsamning um hönnun við Arkitekta- og verk- fræðistofu Hauks á Akureyri og er Fanney Hauksdóttir arkitekt nýja hússins. Núverandi skólabygging við Mímisveg, sem fyrst var tekin í notk- un 1980 er um 1560 fermetrar að stærð og að hluta til á tveimur hæð- um. I ■ ♦ ♦♦ JMJ Norður- landsmót í knattspyrnu JMJ Norðurlandsmót í knattspyrnu hefst á morgun, fimmtudaginn 30. aprfl, en það stendur til 14. maí næstkomandi. Keppt er um titilinn besta lið Norðurlands 1998. Leikið verður í tveimur fimm liða riðlum og eru þátttakendur nánast öll þau norðlensku lið sem taka þátt í defldarkeppni á vegum Knatt- spyrnusambands íslands í ár. JMJ Norðurlandsmótið fer aðal- lega fram á völlum KA og Þórs á Akureyri með nokkrum undantekn- ingum, en liðum er frjálst að semja um það sín í milli hvar leikið skuli, gæti því orðið breyting á leikjaniður- röðun. Mótinu lýkur með úrslitaleik á milli þeirra liða sem efst verða í hvorum riðli fyrir sig. Úrslitaleikur- inn mun að öllum líkindum fara fram 14. maí kl. 20, en vallaraðstæður munu ráða mestu um hvar leikurinn fer fram. I f E f ! ♦ ♦♦ Skákþing Norðlendinga 1 1 Rúnar skák- til sveitarstjórnarkosninga í Eyjafjarðarsveit 23. maí rennur út laugardaginn 2. maí nk. kl. 12.00. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag frá kl. 11 til 12 á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar á Syðra- Laugalandi. Berist aðeins einn listi, framlengist framboðsfrestur til kl. 12 mánudaginn 4. maí nk. Tekið skal fram að fjöldi meðmælenda með hverjum lista skal vera að lágmarki 20 og að hámarki 40. Syðra-Laugalandi 27. apríl 1998. Yfirkjörstjórn Eyjafjarðarsveitar, Auður Eiríksdóttir, Emelía Baldursdóttir, Níels Helgason. meistari RÚNAR Sigurpálsson varð skák- meistari Norðlendinga, en Skákþing i Norðlendinga fór fram á Akureyri og lauk á sunnudag. Rúnar fékk 5‘A vinning og vann farandbikar til I eignar. I öðru sæti varð Jón Árni Jóns- son, Gylfi Þórhallsson varð í þriðja sæti, Olafur Kristjánsson í fjórða sæti og Halldór B. Halldórsson í því fimmta. Á hraðskákþingi Norðlendinga varð Rúnar Sigurpálsson einnig í fyrsta sæti, fékk 1214 vinning af 14, Gylfi Þórhallsson varð í öðru sæti með 12 vinninga og Ólafur Krist- jánsson í því þriðja með 11 vinn- inga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.