Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 22

Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Gen gegn krabba- meini London. Reuters, Daily Telegraph. VÍSINDAMENN hafa greint frá því að uppgötvast hafi gen, eða arfberi, sem eigi mikilvæg- an þátt í að vemda fólk gegn krabbameini. Nokkrar gerðir gensins finnast í mannslíkam- anum og virðist það stuðla að því að líkaminn geti gert krabbameinsvaldandi efni skað- laus, að því er prófessor Roland Wolf við Imperial krabbameins- rannsóknarsjóðinn í Bretlandi sagði í yfirlýsingu. Wolf kvað þetta merldlega uppgötvun. „Nú hefur í fyrsta sinn verið sýnt fram á að eitt einasta gen gæti ráðið úrslitum og vemdað okkur gegn krabba- meini.“ Wolf sagði að áður hefði verið vitað að í mannslíkaman- um væm efni sem hefðu áhrif á það hversu hætt tilteknum ein- staklingi væri við krabbameini. Greint er frá uppgötvuninni í nýjasta hefti Proceedings of the National Academy ofSciences. Dr. Ken Brown, krabba- meinslæknir, sagði uppgötvun- ina geta þýtt að í framtíðinni verði unnt að beita erfðatækni til þess að koma í veg fyrir til- teldn krabbamein. Pað vora vís- indamenn í Dundee, Glasgow og Edinborg sem einangruðu genið. Það framleiðir lífhvatann (ensímið) glútaþíon S-trans- ferasa, sem reyndist vemda mýs gegn krabbameinsvaldandi efnum. Svipað gen er að finna í mönnum. Of snemmt að fagna fyrir reykingamenn Wolf lagði áherslu á að þessi uppgötvun þýddi ekki að hægt yrði að prófa hvaða reykinga- menn eigi á hættu að fá lungna- krabba. „Besta leiðin til þess að forðast þann sjúkdóm er að reykja ekki. Sígarettur valda ekki eingöngu lungnakrabba." Hoffmeyer aðalvitni Færeyinga VITNISBURÐUR Eriks Hofimeyer, sem er fyrrverandi Seðlabankastjóri Danmerkur, verður eitt af helstu trompum færeysku landsstjómarinn- ar í máli hennar gegn dönsku stjóm- inni vegna Færeyjabankamálsins svo- kallaða, að því er kemur fram í Jyllands-Posten í gær. Landstjómin hyggst leggja fram myndbandsupp- töku af viðtali við Hoffmeyer sem birtist í færeyska sjónvarpinu en þar fór hann afar gagnrýnum orðum um frammistöðu dönsku stjómarinnar. Landstjóm Færeyja lagði í fyrra- dag fram stefnu á hendur danska rík- inu og Den Danske Bank vegna taps Færeyinga á yfirtöku Færeyjabanka árið 1993. Færeyingar ki-efjast 1.519 milljarða danskra kr. í bætur, eða um 15.8 milljarða ísl. kr. og hyggjast byggja mál sitt á þeim rökum að dönsk stjómvöld hafi gert sig sek um alvarlega vanrækslu í starfi. Þessu til stuðnings verða orð Hoffmeyers, eins virtasta bankamanns í Danmörku, notuð en viðtalið var sýnt í færeyska sjónvarpinu í janúar. Eftir að flett var ofan af Færeyja- bankamálinu í janúar var Hoffmeyer gagnrýndm- fyrir að hafa ekki gert þá afstöðu Seðlabankans ljósa að hann væri ekki ýkja hrifinn af þeirri hug- mynd að losa Den Danske Bank und: an ábyrgðum vegna Færeyjabanka. í viðtalinu bendir Hoffmeyer hins veg- ar á að dönsk stjómvöld leita iðulega ráðgjafar danska Seðlabankans þegar tekist er á við snúin bankamál. Þetta hefði hins vegar ekki verið gert í Færeyjabankamálinu. Hátíðahöld í írak í tilefni af 61 árs afmæli Saddams Husseins forseta Öryg'g'isráðið slakar ekki á þvingunaraðgerðum Sameinuðu þjóðunum, Bagdad. Reuters. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna ákvað í fyrrakvöld að slaka ekki á refsiaðgerðunum gegn Irak og frestaði því að taka ákvörðun um hvort draga ætti smám saman úr leit að efnum og bún- aði í kjarnavopn sem írakar kynnu að hafa fahð. Ákvörðun öryggisráðsins spillti þó ekki hátíða- höldum í írak í tilefni þess að Saddam Hussein varð 61 árs í gær. „Það var engin samstaða um að breyta refsiað- gerðunum," sagði forseti öryggisráðsins, Japan- inn Hisashi Owada. Þetta er í fyrsta sinn í tæpt ár sem ráðið hefur komið saman til að ræða hvort breyta eigi refsi- aðgerðunum. Slíkir fundir eru venjulega haldnir á tveggja mánaða fresti en endurskoðun refsiað- gerðanna var frestað í júní á liðnu ári eftir að Irakar hindruðu leit eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna að gereyðingarvopnum. ,Alþjóðasamfélagið hefur sagt að engum refsi- aðgerðum verði aflétt vegna þess að írakar hafa ekki virt ályktanir öryggisráðsins,“ sagði Bill Richardson, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. „írakar eiga enn margt ógert.“ Kínverjar, Rússar og Frakkar hafa þó beitt sér fyrir því að slakað verði á refsiaðgerðunum, sem voru samþykktar í ágúst 1990 vegna innrás- ar íraka í Kúveit. Ríkin þrjú og fleiri aðildarríki öryggisráðsins studdu drög að ályktun um að leitinni að kjamavopnum yrði hætt þar sem Irak- ar hefðu haft fullt samstarf við eftirlitsneftidina en hún yrði hafin á ný ef ástæða þætti til vegna nýrra upplýsinga. Owada sagði að málið yrði rætt á fundi ráðsins síðar í vikunni. í nýlegri skýrslu Alþjóðakjarnorkumálastofn- unarinnar (IAEA) segir að engar vísbendingar hafi fundist um að írakar hafi falið efni eða bún- að í kjarnavopn og að þeir hafi veitt fullnægjandi svör við spumingum stofnunarinnar. Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna, UNSCOM, sem hefur verið falið að leita að ger- eyðingarvopnum í Irak, segir þó að hún eigi enn langt í land með að ljúka leitinni. Riehardson viðurkenndi að starf eftirlitsnefnd- arinnar hefði borið árangur en bætti við að enn væri of snemmt að hætta leitinni að kjamavopn- um. Hátíðahöld í írak íraskir fjölmiðlar lofsömuðu Saddam Hussein íraksforseta sem „blessun frá guði“ í tilefni 61 árs afmælis hans í gær. Dagblöðin birtu ljóð og greinar um leiðtogann og Shabab-sjónvarpið, sem elsti sonur Saddams stjómar, breytti nafni sínu í ,Afmælissjónvarpið“ og sendi út sérstaka þætti um Saddam í tilefni dagsins. Hátíðahöld voru í öllum borgum og bæjum Iraks. Embættismenn stjórnarflokksins tóku þátt í afmælishátíðinni í helstu borgunum og dreifðu ókeypis kökum, súkkulaði og drykkjum. Reuters ALVARO Arzu, forseti Guatemala (í miðju), og fleiri fulltrúar stjórnvalda votta hinum myrta biskup, Jose Ju- an Gerardi, hinstu virðingu í dómkirkju Guatemalaborgar í gær. Hlé á stækkun NATO? Washing^on. Reuters. STJÓRN Bills Clintons Bandaríkja- forseta hefur hafnað tillögu um að Atlantshafsbandalagið (NATO) verði ekki stækkað í þrjú ár, verði aðild Póllands, Ungverjalands og Tékk- lands að bandalaginu samþykkt í öldungadeild Bandaríkjaþings. Öldungadeildin hóf umræðu um stækkun bandalagsins á mánudag og búist er við að gengið verði til at- kvæða síðar í vikunni. Þingmaðurinn John Wamer, repúblikani frá Virginíu, hyggst leggja til að aðildarríkjum NATO verði ekki fjölgað í þrjú ár eftir að Pólverjar, Ungverjar og Tékkar fái aðild. Ennfremur er búist við tillögu um að önnur ríki þurfi að fá aðild að Evrópusambandinu áður en þau geti gengið í NATO. Bandarískur embættismaður sagði að stjórnin hefði mestar áhyggjur af tillögu Warners en kvaðst vongóður um að stækkun NATO yrði samþykkt í öldunga- deildinni með tilskildum meiri- hluta, eða tveimur þriðju atkvæð- anna. Þeir sem leggjast gegn stækkun- inni segja að hún sé ekki nauðsyn- leg, skaði samskiptin við Rússland og sé vatn á myllu rússneskra þjóð- ernissinna. Mannrétt- indafrömuð- 1 ur myrtur Guatemalaborg;. Reuters. 72 ÁRA kaþólskur biskup og mann- réttindafrömuður í Guatemala, Jose Juan Gerardi, var myrtur með hrottalegum hætti á mánudag. 1 Biskupinn hafði nýlokið skýrslu um ) mannréttindabrot og illvirki, sem . framin vora í borgarastyrjöldinni í Guatemala, og talið er að hann hafi verið myrtur af pólitískum ástæð- um. Gerardi var barinn í höfuðið með steinblökk þegar hann steig út úr bifreið sinni við heimili sitt í San Sebastian. Morðið olli miklum óhug meðal þjóðarinnar og leiðtogar kaþólsku kirkjunnar kröfðust þess að lögreglan fyndi morðingjann i innan þriggja daga. Jóhannes Páll j páfi lýsti morðinu sem „viður- styggilegum glæp“ og sagði að Ger- ardi hefði helgað líf sitt baráttunni fyrir friði. Gerardi hafði stjórnað þriggja ára rannsókn á mannréttindabrot- um, morðtilræðum og fjöldamorð- um sem framin vora í 36 ára stríði stjómarhersins og vinstrisinnaðra skæruliða sem lauk í desember 1996. Skýrsla um rannsóknina var birt á föstudag og þar er hernum og vopnuðum bandamönnum hans kennt um 80% drápanna í stríðinu. Fram kom að 150.000 manns hefðu verið drepin og 50.000 manns horf- ið. Stjórn Alvaros Arzus forseta hvatti til þriggja daga þjóðarsorgar og skipaði sex manna nefnd til að rannsaka morðið. Áform ESB um nýjan viðskiptasamning við Bandarrkin lögð til hliðar Látið undan kröfu Frakka Lúxemborg. Reuters, The Daily Telegraph. EVRÓPUSAMBANDIÐ lét í fyrra- dag undan kröfu Frakka um að leggja tillögu framkvæmdastjómar ESB um víðtæka viðsldptasamninga við Bandaríkin á hilluna. Embættis- menn og stjómarerindrekar í Brus- sel álíta þessa ákvörðun vera lið í til- raun til að mýkja frönsku stjómina í öðru stóru deilumáli ESB-ríkjanna, þ.e. um það hvern skuli skipa fyrsta aðalbankastjóra Evrópska seðla- bankans (ECB). Ekki var endanlega fallið frá til- lögu framkvæmdastjómarinnar, sem Sir Leon Brittan, viðskiptamálastjóri hennar, var aðalhvatamaðurinn að, en utanríkisráðherramir 15 ákváðu að hún skyldi ekki sett á dagskrá sér- staks leiðtogafundar ESB og Banda- ríkjanna í Lundúnum 18. maí nk. Deilan um bankastjóra ECB enn óleyst Þess í stað á að ræða viðskipta- tengnlsin yfir Atlantshafið án þess að vísa til Brittan-áætlunarinnar. Þessi ákvörðun fylgdi í kjölfar gagnrýni frá Jacques Chirac og franskra ráðherra á tillöguna, sem gekk út á að allir tollar á iðnaðarvör- ur skyldu afnumdir í skrefum fyrir árið 2010 og fríverzlun yrði komið á á sviði þjónustu. Öll hin ESB-löndin 14 auk Bandaríkjanna vora hlynnt til- lögunni. Trúverðugleiki ECB í húfi Þegai- aðeins þrír dagar era til stefnu fyrir leiðtogafund ESB um *★★★* EVRÓPA^ Efnahags- og myntbandalagið, EMU, hafna Frakkar því enn að draga frambjóðanda sinn í embætti seðlabankastjóra Evrópska seðla- bankans til baka. Þjóðverjar - og reyndar svo til öll hin ESB-löndin - vilja sjá Hollendinginn Wim Du- isenberg taka við stöðunni, en hann stýrir nú Peningamálastofnun Evr- ópu í Frankfurt (EMI), fyrirrenn- ara ECB. Aðalbankastjóri hollenzka seðla- bankans, Nout Wellink, sagðist í gær trúa því staðfastlega að Duisen- berg verði skipaður í embættið, sem j verður eitt það áhrifamesta í Evr- ópu eftir að EMU verður að veru- leika. Þjóðverjar hafa einkum áhyggjur af því, að yrði látið undan Frökkum í þessu máli kynni það að spilla trú- verðugleika nýja Evrópuseðlabank- ans, sem á að verða óháð stofnun eins og þýzki seðlabankinn Bundesbank. Það kynni að stefna trausti á evróið, hina væntanlega nýja Evrópumynt, í hættu áður en myntbandalagið • kemst á koppinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.