Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
l
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 23
LISTIR
KARLAKÓRINN Þrestir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
LYSTHÚSKVÆÐI eftir Eggert Ólafsson hljómar vel í meðförum kórsins..
Norður-Atlantshafskórar með sam-
S
eiginlega tónleika í Oðinsvéum
SAMSTARF íslendingafélagsins
og Færeyingafélagsins í Óðinsvé-
um hefur verið með besta móti
síðan félögin tóku sig saman um
leigu á húsnæði á sl. ári. Eftir
áramótin hófúst sameiginlegar
kóræfingar félaganna og eru æfð
lög á báðum tungumálum.
Að sögn kórfélaga beggja þjóða
er framburðurinn aðalvandamálið
enda ekki auðvelt bæði að læra ný
lög og framburðinn á sama tima,
því þótt málin séu skyld er mun-
urinn talsverður.
Sljórnandi kórsins er færeyski
organistinn Jan Djurhus og eru
kórfélagar allt að 30.
Hugmyndin að þessu sameigin-
lega kóramóti kemur frá Færey-
ingum en þeir hafa verið með
kóramót víða í Danmörku. Þar
sem kórinn í Óðinsvéum var nú í
ár blandaður með fslendingum
var ákveðið að bjóða einnig kór-
um frá öðrum félögum Islendinga
og Grænlendinga í Danmörku, á
eins konar Norður-Atlantshafs-
mót.
Kóramótið verður haldið dag-
ana 8. og 9. maí nk. og hefst með
sameiginlegum æfingum báða
dagana kl 9.00 og eru tónleikar
bæði kvöldin. Þess skal getið, að
öllum þeim sem gaman hafa af að
syngja, en eru ekki í neinum kór,
er velkomið að taka þátt í mótinu.
Fyrir þá sem áhuga og aðstöðu
hafa hefjast tónleikarnir kl. 19.30
báða daga og verða haldnir í
Sohusskolen í Óðinsvéum. Reikn-
að er með um 200 þátttakendum
víðsvegar að úr Danmörku.
Einsöng’stónleikar í
Norræna húsinu
GUÐBJÖRG Ragnhildur Tryggva-
dóttir sópransöngkona og Iwona
Jagla píanóleikari halda einsöngs-
tónleika í Norræna húsinu fimmtu-
dagskvöldið 30. apríl kl. 20.30. Tón-
leikamir eru lokaáfangi burtfarar-
prófs Guðbjargar frá Söngskólan-
um í Reykjavik.
A efnisskránni eru íslensk
sönglög eftir Pál Isólfsson, erlendir
ljóðasöngvar, þar á meðal Sígauna-
ljóð op. 55 eftir Dvorák og stök ljóð
eftir Grieg, Poulenc og Fauré.
Ennfremur aríur úr óperum, m.a.
vals Júlíu úr Rómeó og Júlíu eftir
Gounod.
Guðbjörg er fædd á Akureyri en
hefur verið búsett í Reykjavík und-
anfarin 12 ár. Hún lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri og námi í tækniteiknun frá
Iðnskólanum í Reykjavík. Hún hóf
nám við Söngskólann í Reykjavík
1991 hjá Magnúsi Jónssyni og
Hólmfríði Sigurðardóttur og lauk
8. stigi vorið 1996. Síðastliðin tvö
Guðbjörg
Ragnhildur
Tryggvadóttir
ár hefur hún verið
nemandi Þuríðar
Pálsdóttur og tók
sl. vor burtfarar-
próf (Advaneed
Certificate). Eru
tónleikamir nú
lokaáfangi prófs-
ins.
Guðbjörg hefur
komið fram sem
einsöngvari við
ýmis tækifæri. Hún er félagi í Kór
Islensku ópemnnar þar sem hún
tók m.a. þátt í konsertuppfærslu á
Otello eftir Verdi og uppfærslu á
Kátu ekkjunni eftir Lehár hjá
Nemendaóperu Söngskólans hefur
hún m.a. sungið í Oklahoma eftir
Rodgers og Hammerstein.
Guðbjörg stundar nú nám við
söngkennaradeild SÖngskólans í
Reyjavík og stefnir að lokaprófi
vorið 1999. Iwona Jagla píanóleik-
ari er einn af kennumm hennar
þar.
Þrestir halda
þrenna tónleika
Steypa og strigi
KARLAKÓRINN Þrestir í Hafnar-
firði lýkur áttugasta og sjötta starfs-
ári sínu með því að halda þrenna
tónleika. Fyrstu tónleikamir verða í
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
fimmtudaginn 30. apríl og hefjast kl.
20.30. Aðrir tónleikar verða í Víði-
staðakirkju föstudaginn 1. maí en
þeir hefjast kl. 17. Þriðju tónleikam-
ir verða svo í Bústaðakirkju laugar-
daginn 2. maí og hefjast kl. 17.
Leyndar-
mál á
Selfossi
NEMENDAFÉLAG Fjöl-
brautaskóla Suðurlands á Sel-
fossi framsýnir Leyndarmál í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.
Leyndarmál er nýlegt verk
eftir Jónínu Leósdóttur blaða-
mann og rithöfund. Leikstjórn
er í höndum Selfyssingsins
Guðmundar Karls Sigurdórs-
sonar sem hefur leikstýrt og
leikið í verkum sem Nemenda-
félag Fjölbrautaskóla Suður-
lands hefur sett upp. Nú sein-
ast leikstýrði hann söngleikn-
um Kostum hins villta lífernis.
„I verkinu er fjallað um ungt
fólk sem er að uppgötva sjálft
sig. Þetta er viðkvæmur tími
og því eiga allir sín leyndarmál.
Þegar þeim er síðan Ijóstrað
upp er spennandi að sjá hvern-
ig vinir og fjölskylda taka á
málunum," segir í kynningu.
Um 30 manns koma að sýn-
ingunni. Sýnt verður í hátíðar-
sal Fjölbrautaskóla Suður-
lands, en þetta er í fyrsta skipti
sem leikið er í þessum sal.
Önnur sýning verður fóstu-
daginn 1. maí, þriðja sýning
sunnudaginn 3. maí og fjórða
sýning þriðjudaginn 5. maí. All-
ar sýningar hefjast kl. 20.
Miðaverð 1.000 kr.
Kórinn flytur fjölbreytta efnis-
skrá íslenskra sönglaga og erlendra
tónverka við íslenska texta, allt frá
þjóðlögum til atriða úr Þrymskviðu
Jóns Asgeirssonar.
Að þessu sinni er Bergþór Páls-
son ópemsöngvari gestur kórsins
og flytur hann nokkur lög ásamt
kórnum. Auk þess flytja þau Berg-
þór og Lára S. Rafnsdóttir píanó-
leikari íslenska söngtónlist. Stjóm-
andi Karlakórsins Þrasta er Jón
Kristinn Cortes og er þetta fyrsta
starfsár hans með Þröstum.
Miðasala er við innganginn og
kostar miðinn 1.000 kr. Styrktarfé-
lagar kórsins geta valið um hverja
tónleika kórsins þeir sækja.
slegið á ft-est nú þegar Lars Nittve,
forstöðumaður Louisiana-safnsins,
hverfur þaðan til að taka við stjóm
Tate Gallery of Modem Art, nútíma-
deildar hins virta Tate Gallery,
nokkmm mánuðum áður en Louis-
iana fagnar 40 ára afmæli sínu. Nú
þarf safnið að hugsa sinn gang, því
Nittve hefur aðeins verið við safnið í
þrjú ár og það verður líka gert, því
nýr framkvæmdastjóri verður ekki
ráðinn á næstunni, heldur tekur fyrri
forstöðumaður, Steingrim Laursen,
sem reyndar er af íslenskum ættum,
aftur við stjóm ásamt ýmsum öðmm
yfirmönnum safnsins. Knud W. Jen-
sen, stofnandi Louisiana, sem á sín-
um tíma réð Nittve, mun vera stjóm-
inni til ráðuneytis, en hann kemur
ekki lengur nálægt daglegum rekstri.
Nittve ætlaði sér ekki annað en að
vera við Louisiana fram á elliárin, en
eins og hann segir sjálfur þá var til-
boðið eins og þeir segja í Ameríku:
„Of gott til að hafna.“
Hinn 44 ára gamli Nittve á að
baki glæstan feril. Fyrst kenndi
hann listasögu við Stokkhólmshá-
skóla, síðan varð hann yfirsafnvörð-
ur við Moderna Museet í Stokk-
hólmi, en 1990 réðst hann sem for-
stöðumaður að nýlistasafninu Roos-
eum í Málmey, sem ásamt Konsthal-
len þar í borg, er Bera Nordal veitir
forstöðu, hefur rækilega komið
Málmey á evrópska listakortið. Það-
MYNDLIST
20 fermetrar, Vestur-
götu lOa, kjallara
HÖGGMYND/MALVERK
HELGI ÁSMUNDSSON
Til 3. maí. Opið miðvikudaga til
sunnudaga frá kl. 15 til 18.
HIÐ agnarsmáa Gallerí 20m2, við
tröppurnar niður með Vesturgötu
lOa, hefur þann kost að þar geta
listamenn sett upp verk með litlum
fyrirvara án þess að þvi fylgi dýr-
keyptur lúðrablástur. Vandinn er
hins vegar sá að slíkir smástaðir
verða fljótt að gömlum vana sem
listamennirnir hætta að bera virð-
ingu fyrir og þá er stutt í tækifæris-
an var hann svo fenginn að Louis-
iana 1995, eftir að hann hafði látið
vera að sækja aftur um Modema
Museet, þegar þar var leitað að for-
stöðumanni. Sjálfur segist Nittve
hafa tekið boðinu með tilliti til
þeirra möguleika er liggi í starfinu
en einnig þar sem Bretland sjóði og
bulli af skapandi kröftum þessi árin.
Nittve þekkti Louisiana fyrir er
hann kom þangað, því þar hafði
hann tekið þátt í skipulagningu ný-
listasýninga og hélt áfram á þeirri
braut. Síðastliðið ár einkenndist af
nýlist, en þá vildi svo til að aðsóknin
að safninu var hin minnsta síðan
1986, var 410 þúsund manns, hafði
verið 525 þúsund 1995 en 640 þús-
und metárið 1994. í dönskum fjöl-
miðlum hefur því verið fleygt að
safnstjómin megi því kannski vera
feginn að Nittve leiti nú annað, en
því hafnar stjórnin alfarið. Sjálfur
sagði Nittve á blaðamannafundi í
listina, þennan endalausa dragbít ís-
lenskrar menningar þar sem lista-
menn spila sig niður á lágnóturnar af
því þeir ímynda sér að meiningar-
leysið sé pottþéttasta vörnin við
gagnrýni.
Nú er Helgi Asmundsson engin
slík mús sem læðist af ótta við að
floppa, en samstillingu hans í 20 fer-
metmm skortir samt eilítið ákveðn-
ara markmið en það að vera bara.
Vel slípaðir þríhyrningarnir sem
mynda miðverkið á gólfinu bera
vissulega vott um mikla tilfinningu
fyrir efnislegri úrvinnslu, en mál-
verkið á veggnum fylgir ekki eftir
þeim áherslum. Það er einfaldlega of
handgert og viðvaningslegt.
Ef Helgi er að hugsa um að koma
fram síðbúinni hefnd fyrir
Michelangelo af því að Júlíus páfi II
gær að það væri ekki auðvelt að
sigla milli skers og bám, því fastir
gestir safnsins væm kannski svolítið
íhaldssamir, um leið og hann sagði
að safnið hefði hugsanlega ekki stað-
ið sig nógu vel í að kynna sýningar
sínar og ná til fólks. Það er einnig
ætlunin að skipta á milli nútíma
klassíkur og hins framúrstefnulega
og þannig stendur nú yfir glæsileg
sýning á verkum breska málarans
Francis Bacon, þar sem ekki hefur
skort áhugasama gesti.
Safnstjórnin getur líka fagnað því
að Nittve skuli sóttur í jafn eftir-
sóknarvert starf og nýja starfið við
Tate er. Nútímadeildin verður opn-
uð árið 2000 í gamalli rafstöð við
Thames, sem nú er verið að gera
upp - og ef rafstöðin við Elliðaár
verður einhvem tímann laus við raf-
magnið þá yrði hún ekki síður stór-
brotin safnbygging en sú við
Thames, þó á minni mælikvarða
píndi hann til að taka niður fyrir sig
og mála í staðinn fyrir að höggva þá
staðfestir sýningin vissulega veik-
leika málverksins frammi fyrir styrk
höggmyndarinnar.
En málverk er ekki bara litur á
striga. Þríhymingar Helga em ekki
síður sprottnir af þróun tvívíðrar
listar en höggmyndalist fyrri tíðar.
Það hefði hann getað undirstrikað á
miklu snarpai-i hátt með því að nota
fislétt efni - helst gerviefni - í mynd-
ina á veggnum, mögulega í skæram,
eitraðum og æpandi lit. Þá hefði
skapast verðug togstreita milli þung-
lamalegs grámans á gólfinu og svíf-
andi glampans á veggnum. í staðinn
kýs Helgi algjörlega hlutlausa leið
allegoríunnar: „Hérna höggmynd,
þama málverk; gessovel góurinn...“
Halldór Björn Runólfsson
væri. Nýja safnið er hugsað sem
breska svarið við Pompidou-mið-
stöðinni í París og Museum of
Modem Art í New York. Það er ein
af þremur undirdeildum Tate Gall-
ery og mun þegar það verður opnað
hafa verið í undirbúningi í sex ár og
dregið til sín ríflega 130 milljónir
punda. Staðsetningin er heldur ekki
af lakara taginu, því safnið er rétt
við Globe Theater, nýja Shakespe-
are-leikhúsið, þarna sigla útsýnis-
bátar framhjá og eftir nýrri brú yfir
Thames verður aðeins örskotsleið
yfir í St. Pauls Cathedral. A hinum
34 þúsund fermetram safnsins verð-
ur alþjóðleg nútímalist tíl sýnis eftir
listamenn á borð við Warhol,
Picasso og Matisse. Nánari útfærslu
mun svo Nittve standa fyrir.
A Louisiana verða menn hins veg-
ar að leggjast undir feld og hugleiða
hvort haldið verði áfram á hinni of-
urnútímalegu leið Nittves, þar sem
sýningar er gagnrýnendur meta
áhugaverðar vinna ekki alltaf hylli
almennings, hvort áfram verður
gert út á stórsýningar vinsælla lista-
manna eða þess freistað að finna
jafnvægi þama á milli eins og Nittve
stefndi vafalaust að. Safnið er alltaf
að stækka, nú síðast er verið að
byggja enn voldugri búð þar en áð-
ur, enda hefur Louisiana fundið fyr-
ir því eins og önnur söfn að velbúin
safnbúð er besta leiðin til að lokka fé
upp úr vasa glaðra safngesta.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
KYNSLÓÐASKIPTUNUM verður
Louisiana miss-
ir safnstjóra
sinn til London